Innlent

Kveikja og slökkva á ljósa­staurum vegna bilunar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ljóslaust var víða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi vegna bilunar í ljósnema.
Ljóslaust var víða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi vegna bilunar í ljósnema. Vísir/Vilhelm

Víðtæk bilun varð á ljósastaurum víða á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í gærkvöldi. Samkvæmt svörum frá Veitum er um að ræða bilun í ljósnema sem nemur birtustigið úti. Samkvæmt svari átti að taka hann úr rekstri um áramótin. Hann verður gerður óvirkur fyrr og verður ljósunum handstýrt þar til nýtt kerfi er komið í notkun.

Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir í samtali við Vísi að starfsmenn Veitna séu í dag að endurstilla kerfið og því megi fólk búast við því að sjá ljósastaurana blikka.

„Þeir eru að kveikja og slökkva á þeim til að endurstilla kerfið,“ segir hún.

Greint var frá biluninni í gær og fengust ábendingar úr Breiðholti, Ártúnsbrekku og við Vesturlandsveg um ljóslausa staura. Silja segir að bilunin hafi verið víðtækari og náð til Vesturbæjar í Reykjavík líka.

„Við viljum alls ekki að þetta gerist og þetta er mjög óþægilegt og getur skapað hættu. Þess vegna verður þessu handstýrt,“ segir hún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×