Fótbolti

Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM

Sindri Sverrisson skrifar
Ungu strákarnir okkar áttu magnaða leiki í síðustu landsleikjatörn og tryggðu sig inn í umspilið.
Ungu strákarnir okkar áttu magnaða leiki í síðustu landsleikjatörn og tryggðu sig inn í umspilið. vísir/Guðmundur

Íslenska U21-landsliðið í fótbolta dróst í dag gegn Grikklandi í umspilinu um sæti í lokakeppni EM næsta sumar.

Leikirnir fara fram dagana 11.-17. nóvember og byrjar Ísland á heimavelli en sækir svo Grikki heim í seinni leiknum.

Einvígin í EM-umspilinu:

  • Danmörk - Holland
  • Ísland - Grikkland
  • Finnland - Írland
  • Tyrkland - Tékkland

Liðin tólf sem eru komin með sæti á EM eru gestgjafarnir Albanía og Serbía, Belgía, Króatía, England, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Noregur, Pólland, Portúgal og Spánn.

Ísland komst í umspilið með frábærum árangri í síðustu landsleikjatörn þegar liðið gerði jafntefli við stjörnum prýtt lið Frakka, valtaði yfir Sviss 5-1 og vann svo Færeyjar á útivelli með sannfærandi hætti síðasta þriðjudag, 2-0.

Íslenska U21-landsliðið hefur tvisvar sinnum komist í lokakeppni EM. Fyrst var það gullkynslóðin sem komst á EM 2011 og átti síðar eftir að koma A-landsliðinu á EM 2016 og HM 2018, og svo aftur árið 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×