Handbolti

ÍBV vann toppslaginn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sandra Erlingsdóttir var markahæst með níu mörk í Breiðholtinu.
Sandra Erlingsdóttir var markahæst með níu mörk í Breiðholtinu. Anton Brink

ÍBV vann 30-26 sigur á ÍR í fimmtu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta. Eyjakonur jafna ÍR auk annarra tveggja toppliða að stigum.

ÍR hóf leik dagsins betur og leiddi 9-6 um miðjan fyrri hálfleik en Eyjakonur svöruðu fyrir sig með góðum seinni hluta hálfleiks og voru 14-12 yfir í hálfleik.

ÍR tókst að vinna sig inn í leikinn og komst 21-20 yfir snemma í síðari hálfleik. ÍBV lokaði vörninni í kjölfarið og byggði upp forystu sem liðið hélt til loka og vann fjögurra marka sigur.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst með níu mörk fyrir ÍBV en Andrea Jacobsen skoraði sjö. Anna María Aðalsteinsdóttir, Matthildur Lilja Jónsdóttir og Sylvía Sigríður Jónsdóttir skoruðu fimm hver fyrir ÍR.

ÍBV fer upp í átta stig og jafnar topplið Fram, Hauka og ÍR að stigum. Fram og Haukar eiga leik inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×