Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 15. október 2026 10:33 Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti var staddur í Bretlandi í gær. EPA/BETTY LAURA ZAPATA Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars.
Í kjölfarið jókst umfang árása Rússa á Úkraínu og gerðu Rússar meðal annars umfangsmiklar árásir á orkuver í Úkraínu. Í viðtali sem Financial Times birti í nótt sagði Selenskí að Úkraínumenn væru hættir að halda að sér höndum, sem þeir hafa gert í þrjá daga. „Stöðvunin er búin. Við erum hættir þessu.“ Þá gagnrýndi hann viðleitni Trumps og hans fólks til að reyna að gera viðskiptasamninga við Rússa og það að Trump virtist líta upp til Pútíns. „Hann [Trump] talar opinskátt og hástöfum um það að honum líki við slíkt fólk og beri virðingu fyrir því. Að hans mati eru þeir sem geta verið leiðtogar í tuttugu ár, þrjátíu ár eða fjörutíu ár mjög sterkir menn.“ In a defiant interview with the FT, Volodymyr Zelenskyy said Donald Trump had an instinctive affinity for autocrats and the super-wealthy. The Ukrainian president explained his views on the relationship between the US and Russian heads of state https://t.co/LydswPxdYG https://t.co/j6ByjyImYz— Financial Times (@FT) October 15, 2026 Í viðtalinu ítrekaði Selenskí að jákvætt samband við Bandaríkjamenn væri gífurlega mikilvægt fyrir Úkraínumenn. Það væri þó ekki á hans könnu að bæta það, þar sem hann hefði ekki gert neitt til að skemma sambandið. Harðorður í garð Selenskís Trump hefur á undanförnum dögum verið mjög svo gagnrýninn og harðorður í garð Selenskís. Hann hefur sakað hann um að standa í vegi friðar og kallað eftir kosningum í Úkraínu. Reiði Trumps í garð Selenskís virðist að miklu leyti snúast um árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Trump hefur reynt að halda því fram að þær séu ástæðan fyrir háu eldsneytisverði en ekki stríð Trumps gegn Íran og meðfylgjandi óreiða og takmarkanir á flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum, sem spilar mun stærri rullu í hærra eldsneytisverði en árásir Úkraínumanna í Rússlandi. Þá er útlit fyrir að Bandaríkjamenn hafi um tíma hætt að deila upplýsingum um eldflaugaskot í Rússlandi með Úkraínumönnum og gert þeim erfiðara um vik með að verjast drónaárásum Rússa og gera árásir á rússneska hermenn með því að setja takmarkanir á Starlink-notkun Úkraínumanna í gær. Þær takmarkanir voru ekki lengur til staðar í morgun, samkvæmt Selenskí. Í viðtali sem hann fór í hjá Piers Morgan í gær sagði Selenskí að þessar ákvarðanir ráðamanna í Bandaríkjunum hefðu kostað mannslíf í Úkraínu. Sagði hann að um svik af hálfu Trumps væri að ræða. Í viðtalinu við FT sagði Selenskí að það yrði erfitt fyrir Úkraínumenn að berjast án aðstoðar Bandaríkjamanna og að Evrópa þyrfti að standa betur saman. Hann viðurkenndi að á næstu tólf mánuðum gætu kosningar í Evrópu, þar sem stjórnmálaöflum sem þykja vinveitt Rússlandi virðast ætla að ganga vel, einnig leitt til vandræða fyrir Úkraínumenn. Úkraínumenn gerðu einnig árás á herflugvöll í Voronezh-héraði í gærkvöldi og segja að þeir hafi grandað sex Su-34M herþotum. Sú árás var gerð með Neptun-stýriflaugum en verði niðurstaðan staðfest yrði um að ræða mikið tjón fyrir Rússa. Árásin var fönguð á myndband. Footage captures the missile attack on the Borisoglebsk military airfield in Russia’s Voronezh Oblast. This is a missile, not a drone. #Russia https://t.co/Vz4Fbmf26O— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) October 14, 2026
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín Bandaríkin Donald Trump Hernaður Tengdar fréttir Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld. 14. október 2026 20:01 Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa. 14. október 2026 10:12 Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Rússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“. 14. október 2026 07:45 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Fleiri fréttir Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Sjá meira
Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld. 14. október 2026 20:01
Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa. 14. október 2026 10:12
Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Rússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“. 14. október 2026 07:45