Íslenski boltinn

Akranesvöllur sundurgrafinn og hand­ó­nýtur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessi mynd af Akranesvelli var tekin í dag. Þarna er risahola í vítateignum. Ljóst er að ekki hefði dugað að moka yfir hana aftur og setja gras yfir. Völlurinn er skemmdur.
Þessi mynd af Akranesvelli var tekin í dag. Þarna er risahola í vítateignum. Ljóst er að ekki hefði dugað að moka yfir hana aftur og setja gras yfir. Völlurinn er skemmdur. vísir/aðsend

Það virðist aldrei hafa verið raunhæft að spila fótbolta á Akranesvelli um helgina enda búið að grafa risaholur á völlinn.

Til stóð að leikur ÍA og Keflavíkur í lokaumferð Bestu deildar karla færi fram á vellinum um helgina. Hann hefur verið færður inn í Akraneshöllina.

„Í fyrstu ætluðum við bara að taka holur utan við leikflötinn en síðan var það mikilvægt fyrir verkfræðistofuna að tekin yrðu líka sýni inni á vellinum til að fá betri niðurstöður um rúmmálið í jarðveginum undir vellinum. Á þessum tíma var völlurinn mjög blautur og þoldi illa að fá tæki inn á sig. Núna er hann óleikhæfur og þess vegna sóttum við um að spila inni í Akraneshöllinni,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA, við íþróttadeild.

Eins og myndirnar með fréttinni sýna eru þetta engar smá holur á báðum vallarhelmingum. Þess utan má sjá stór hjólför í grasinu.

KSÍ skammaði ÍA fyrir að fara í þessar framkvæmdir án samráðs og það fór augljóslega fyrir brjóstið á sambandinu að ÍA teldi sig geta fengið undanþágu til að leika í Akraneshöllinni án samráðs.

Hér má sjá seinni stóru holuna á vellinum sem er á hinum vallarhelmingnum.vísir/aðsend

„Rétt er að hér komi fram að mótanefnd KSÍ harmar þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við þessa framkvæmd, sérstaklega samráðsleysi við KSÍ og að engin tilraun hafi verið gerð til að lagfæra skemmdir í vellinum og gera hann leikhæfan. Afleiðingin er sú að völlurinn er óleikhæfur. Nefndin telur sig ekki eiga annan kost en að samþykkja undanþágu um að leika í Akraneshöll. Sú ákvörðun er ekki einróma. Með von um að undirbúningur við fyrirhugaðar framkvæmdir gangi sem best og nýr leikvöllur verði að veruleika,“ segir í bréfi KSÍ sem fótbolti.net birti.

ÍA mun leggja gervigras á völlinn næsta vor og þarf að finna sér annan heimavöll á meðan framkvæmdir standa yfir næsta sumar.

Svona var staðan á Akranesvelli í dag. Á þessu sögulega grasi verður ekki aftur spilaður fótbolti.vísir/aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×