Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar 24. október 2026 13:01 Ég lít á Loftbrúna sem fjárfestingu í byggðajöfnuði, atvinnuþróun og samkeppnishæfni Íslands, fremur en kostnaðarlið sem rétt sé að skerða. Samgöngur þurfa að styðja við það markmið að fólk geti búið og starfað um allt land. Því tel ég ekki rétt að miða stuðning Loftbrúarinnar við fasta krónutölu. Slík breyting gæti aukið kostnað þeirra sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu. Fyrir Vestfirðinga, Norðlendinga og Austfirðinga er flug ekki aðeins þægilegur ferðamáti heldur nauðsynleg samgönguleið. Það gerir þeim kleift að sækja vinnu, fundi og þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu. Aukinn ferðakostnaður mun draga úr þeim jöfnuði sem Loftbrúnni er ætlað að stuðla að. Þessar hugmyndir falla ekki vel að áherslum stjórnvalda um sterkari byggðir og hvata til óstaðbundinna starfa. Til að þau markmið náist þarf fólk að eiga greiðan aðgang að samgöngum. Hærri ferðakostnaður gæti gert því erfiðara að nýta þau tækifæri sem óstaðbundin störf skapa. Þau sem starfa frá landsbyggðinni þurfa að sækja fundi, ráðstefnur og aðra samstarfsvettvanga. Aðgengilegar samgöngur auðvelda þeim að halda tengslum við fyrirtæki, stofnanir og viðskiptavini annars staðar á landinu. Loftbrúin getur þannig stutt við fjölbreyttari atvinnutækifæri óháð búsetu. Loftbrúin var sett á laggirnar til að jafna aðstöðu landsmanna óháð búsetu. Ég tel það markmið jafn mikilvægt nú og þegar verkefnið hófst. Því eigum við að efla Loftbrúna og varðveita þann stuðning sem hún veitir. Hún auðveldar fólki að velja sér búsetu um allt land og halda um leið tengslum við atvinnulíf, þjónustu og samfélag. Höfundur er landsbyggðarmaður, flokksbundinn í Viðreisn og verkefnastjóri fjármála og rekstrar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Samgöngumál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Ég lít á Loftbrúna sem fjárfestingu í byggðajöfnuði, atvinnuþróun og samkeppnishæfni Íslands, fremur en kostnaðarlið sem rétt sé að skerða. Samgöngur þurfa að styðja við það markmið að fólk geti búið og starfað um allt land. Því tel ég ekki rétt að miða stuðning Loftbrúarinnar við fasta krónutölu. Slík breyting gæti aukið kostnað þeirra sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu. Fyrir Vestfirðinga, Norðlendinga og Austfirðinga er flug ekki aðeins þægilegur ferðamáti heldur nauðsynleg samgönguleið. Það gerir þeim kleift að sækja vinnu, fundi og þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu. Aukinn ferðakostnaður mun draga úr þeim jöfnuði sem Loftbrúnni er ætlað að stuðla að. Þessar hugmyndir falla ekki vel að áherslum stjórnvalda um sterkari byggðir og hvata til óstaðbundinna starfa. Til að þau markmið náist þarf fólk að eiga greiðan aðgang að samgöngum. Hærri ferðakostnaður gæti gert því erfiðara að nýta þau tækifæri sem óstaðbundin störf skapa. Þau sem starfa frá landsbyggðinni þurfa að sækja fundi, ráðstefnur og aðra samstarfsvettvanga. Aðgengilegar samgöngur auðvelda þeim að halda tengslum við fyrirtæki, stofnanir og viðskiptavini annars staðar á landinu. Loftbrúin getur þannig stutt við fjölbreyttari atvinnutækifæri óháð búsetu. Loftbrúin var sett á laggirnar til að jafna aðstöðu landsmanna óháð búsetu. Ég tel það markmið jafn mikilvægt nú og þegar verkefnið hófst. Því eigum við að efla Loftbrúna og varðveita þann stuðning sem hún veitir. Hún auðveldar fólki að velja sér búsetu um allt land og halda um leið tengslum við atvinnulíf, þjónustu og samfélag. Höfundur er landsbyggðarmaður, flokksbundinn í Viðreisn og verkefnastjóri fjármála og rekstrar.
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar