Skoðun

Skila­boð til lands­byggðarinnar

Trausti Hjaltason skrifar

Aflið tekna, greiðið meira og sýnið biðlund.

Fjárlög eru pólitík í tölum. Skilaboðin til landsbyggðarinnar eru skýr: Veiðið fiskinn, takið á móti ferðamönnunum og skapið verðmætin. Greiðið svo meira og bíðið eftir samgöngunum og innviðunum. Þolinmæði landsbyggðarinnar er mikil. En hún er ekki ótakmörkuð auðlind. Á meðan æðsta stjórnsýslan og utanríkismál fá aukið vægi dragast framlög að raunvirði saman til nýsköpunar, sjávarútvegs, orkumála og byggðamála. Samgönguliðurinn lækkar líka.

Vegalengdirnar styttast ekki

Nú á einnig að draga verulega úr framlögum til Loftbrúar. Það er klár samgönguskerðing. Reikningurinn færist einfaldlega frá ríkinu yfir á heimilin. Ríkið safnar sérhæfðri þjónustu á höfuðborgarsvæðið og gerir síðan fólki erfiðara að komast þangað. Fólk þarf áfram að sækja heilbrigðisþjónustu þótt framlagið lækki. Vegalengdirnar styttast ekki við afgreiðslu fjárlaga.

Breytingar fyrir hvern?

Sameining sýslumannsembætta og fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum vekja sömu spurningu: Fyrir hvern er verið að hagræða eða breyta?Ef stjórnendur og störf flytjast burt og ákvarðanir færast fjær íbúunum ber landsbyggðin kostnaðinn. Hún missir störf, þekkingu og aðgengi að þeim sem bera ábyrgð. Sá kostnaður hverfur ekki þótt hann sjáist ekki í bókhaldi ráðuneytis.

Hættum að veikja það sem skapar verðmætin

Landsbyggðin er of oft meðhöndluð eins og mjólkurkýr ríkissjóðs. Það má þurrmjólka kúna en ekki viðhalda fjósinu. Auknar álögur á sjávarútveg og ferðaþjónustu eru eitt. Ríkisvaldið hefur undanfarin ár komið sífellt fram með hugmyndir um sameiningar og eða skerðingar þjónustu á landsbyggðinni líkt og í lögreglu-, heilbrigðisþjónustu, sýslumann og framhaldsskóla. Þegar höggvið er í grunnþjónustu og aðra innviði veikjast forsendur til búsetu og atvinnureksturs. Fyrsta hugmynd skal yfirleitt vera að flytja störf og þjónustu á höfuðborgarsvæðið. Hvenær á að snúa þessari þróun við? Viljum við ekki landsbyggð?

Vilji ríkisvaldið efla landsbyggðina liggja verkefnin fyrir:

  1. Bæta samgöngur.
  2. Nýta og efla heilbrigðisstofnanir landsbyggðarinnar og létta á þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
  3. Draga úr auknum álögum á sjávarútveg og ferðaþjónustu og skapa atvinnulífinu stöðugar leikreglur.
  4. Styrkja flutningsnet raforku og hraða grænni orkuöflun.
  5. Byggja upp hafnir og flugvelli, meðal annars í þágu varnarmála.
  6. Tryggja vatnsöryggi og öflugar nettengingar svo fyrirtæki geti vaxið.
  7. Flytja ríkisstofnanir og störf út á land og fela þeim raunverulegt ákvörðunarvald.

Þetta eru fjárfestingar sem skapa störf og verðmæti. Íbúar landsbyggðarinnar geta ekki endalaust staðið í vörn. Ríkisstjórnin þarf að svara með öðru en hærri reikningi og lengri bið.

Höfundur er bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum.




Skoðun

Sjá meira


×