Fleiri
Stefnt að skráningu á árinu 12.2.2011 16:00 Jón Ásgeir segist hafa boðið Arion banka að greiða allar skuldir Jón Ásgeir Jóhannesson sem ásamt fjölskyldu sinni átti félagið 1998 ehf., móðurfélag Haga, segist hafa boðið Arion banka að greiða stóra eingreiðslu inn á skuldir móðurfélagsins og afganginn á sjö árum með 2 prósenta vöxtum. Bankinn hafi hafnað því. Hann segist óska nýjum eigendum Haga velfarnaðar og góðs gengis. 12.2.2011 14:27 ALP kaupir 215 bíla Í dag var undirritaður samningur í milli B&L og Ingvars Helgasonar annarsvegar og bílaleigunnar ALP hinsvegar um kaup á 215 bílum. Um er að ræða bíla frá Hyundai, Nissan, Land Rover og Renault. Bílarnir verða allir afhentir á tímabilinu maí til júní. 12.2.2011 14:15 Vona að samráðsvettvangur skapi 15 þúsund störf Jóhanna Sigurðardóttir vonast til að nýr samráðsvettvangur stjórnvalda, vinnumarkaðsaðila og allra þingflokka um vinnumál skapi um það bil fimmtán þúsund störf. 12.2.2011 13:18 Atvinnulífið vill ekki lengur krónuna „Þetta kemur ekki á óvart. Öll óvissa sem tengist krónunni og gengi hennar er eingöngu til vandræða,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. 12.2.2011 11:00 Fimmta endurskoðun í apríl Stefnt er að því að fimmta endurskoðun samstarfsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fari fram í apríl. Þetta kom fram á blaðamannafundi með Julie Kozack, formanni sendinefndar sjóðsins gagnvart Íslandi, og Franek Rozwadowski, fastafulltrúa sjóðsins hér á landi, í Seðlabankanum í gær. 12.2.2011 03:30 Kaupa þriðjungshlut í Högum Arion banki hefur selt dreifðum hópi lífeyrissjóða og öðrum fjárfestum 34% hlut í Högum ásamt kauprétti að 10% viðbótarhlut. Kaupverð er 4,1 milljarður. Skráning í kauphöll er fyrirhuguð síðar á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. 11.2.2011 20:55 Sjá næstu 50 fréttir
Vafamál um kaup á hlutabréfum í Össuri „Ef það kemur upp vafamál þessu líku þá er það hlutverk okkar að komast til botns í því eða eyða vafanum,“ segir Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, FME. 16.2.2011 07:30
Telja tækifærin í orku og ferðaþjónustu Tæp fjörutíu prósent forsvarsmanna í íslensku atvinnulífi telja mestu verðmætasköpun hér næsta áratuginn liggja í nýtingu orkuauðlinda og hækkun raforkuverðs, samkvæmt niðurstöðum könnunar Viðskiptaráðs. Á eftir fylgir ferðamennska og ferðaþjónusta en þrjátíu prósent þeirra sem þátt tóku í könnuninni telja mestu tækifærin þar. Helmingi færri sjá mestu tækifærin í nýsköpun, fiskveiðum og iðnaði. 16.2.2011 06:00
Forstjóraskipti ekki áformuð Finnur Árnason, forstjóri Haga, á von á því að hann verði áfram forstjóri fyrirtækisins eftir að 34% kjölfesturhlutur í fyrirtækinu var seldur fyrir helgi. 15.2.2011 20:00
Erfiðlega gæti reynst að finna fordæmisgildi Fyrirtæki eiga sama rétt á endurútreikningi eins og einstaklingar vegna ólögmætra gengistryggðra lána til fasteignakaupa samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Frjálsi fjárfestingabankinn þarf að endurreikna höfuðstól 500 fyrirtækjalána til viðbótar, sem skipta milljörðum. 15.2.2011 19:17
Samkeppniseftirlitið setur skilyrði vegna Bláfugls Samkeppniseftirlitið hefur sett yfirráðum Íslandsbanka og Glitnis yfir Bláfugli skilyrði. Bláfugl er fraktflugfélag sem verið hefur undir yfirráðum Icelandair Group. Félagið verður nú undir yfirráðum eignarhaldsfélagsins SPW sem Íslandsbanki og Glitnir hafa stofnað sameiginlega. 15.2.2011 16:22
Dómur Hæstaréttar festir gengislánalögin í sessi Efnahags- og viðskiptaráðuneytið lítur svo á að dómur Hæstaréttar sem féll í gær festi í sessi efnisreglur og forsendur gengislánalaga sem Alþingi setti í desember. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér í tilefni af dómnum. 15.2.2011 16:14
Atvinnuleysið haft áhrif á þriðjung heimila Atvinnuleysið hefur haft bein áhrif á 31,8%, eða nærri þriðja hvert heimili, frá efnahagshruninu haustið 2008, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök atvinnulífsins. 15.2.2011 16:02
Þorvaldur Lúðvík hættir hjá Sögu Fjárfestingarbanka Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hefur sagt starfi sínu, sem forstjóri Sögu Fjárfestingarbanka, lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þorvaldur Lúðvík hafði réttarstöðu sakbornings í rannsókn sérstaks saksóknara á hruni Kaupþings. 15.2.2011 15:36
Spáir því að verðbólgan lækki í 1,5% í febrúar Greiningardeild Arion banka spáir 0,8% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í febrúar. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 1,5% samanborið við 1,8% í janúar. 15.2.2011 15:12
Úrskurður Hæstaréttar kostar Frjálsa marga milljarða Nýr úrskurður Hæstaréttar í máli Tölvupóstsins ehf. gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum (FF) kallar á margra milljarða kr. endurmat og lækkun á lánum til fyrirtækja í viðbót við það sem FF þarf að lækka lán einstaklinga vegna endurútreikninga lána þeirra. 15.2.2011 14:58
Seldu minkaskinn fyrir 160 milljónir í Kaupmannahöfn Íslenskir loðdýraræktendur gerðu góða ferð til Kaupmannahafnar í dag. Á uppboði hjá Kopenhagen Fur seldust um 20.000 minkaskinn fyrir tæpar 160 milljónir kr. Meðalverð á skinn hefur aldrei verið hærra. 15.2.2011 14:47
Íslandsmet: Yfir 230 sækja um í tónlistarsjóð Alls bárust 233 umsóknir í umsóknarferli Kraums tónlistarsjóðs sem lauk í síðustu viku. Aldrei fyrr hafa jafn margar umsóknir borist í umsóknarferli sjóðsins, en alls bárust 193 umsóknir í síðasta umsóknarferli - sem þá var nýtt met. 15.2.2011 13:43
Flestir telja að kreppunni ljúki árið 2015 Í skoðanakönnun sem Talnakönnun gerði seinni hluta janúar töldu flestir að kreppan endi árið 2015. Milli 15 og 20 prósent nefndu sérhvert ár á tímabilinu 2012 til 2015. 15.2.2011 13:35
Fiskvinnsla hefst vonandi á Flateyri eftir helgi Lotna ehf. nýr eigandi fiskvinnslunnar á Flateyri, vonast til að hefja fiskvinnslu strax eftir næstu helgi. Þá mun annað skip verða gert út frá Flateyri en skipið er væntanlegt þangað á laugardag. 15.2.2011 12:39
Hvetur banka til að hafa samband við ábyrgðarmenn Héraðsdómslögmaður hvetur banka og sparisjóði til að stíga fram og greina ábyrgðarmönnum lána frá því hvort gert hafi verið greiðslumat hjá lántakendum samkvæmt samkomulagi frá 2001 um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga. 15.2.2011 12:33
Heimilin draga úr einkaneyslu í ársbyrjun Ef marka má kortaveltutölur virðast heimilin hafa haldið að sér höndum í einkaneyslu í upphafi ársins eftir nokkuð myndarlegan vöxt á síðustu mánuðum nýliðins árs. Kortavelta var þannig að raungildi svipuð í janúar síðastliðnum og í sama mánuði árið 2010. 15.2.2011 12:06
Gengi krónunnar hefur veikst gagnvart flestum myntum Þó nokkur veiking hefur orðið á gengi krónunnar það sem af er ári. Nú stendur gengisvísitala krónunnar í 214 stigum en um síðustu áramót stóð vísitalan í 207 stigum. Þessa þróun má rekja til nánast allra undirliggjandi mynta sem þarna koma við sögu, en þar spilar þróun á gengi krónunnar gagnvart evru stærsta hlutverkið. 15.2.2011 11:58
Íslenskir framleiðendur tölvuleikja velta 10 milljörðum Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um 10 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware auk þess að kenna í Háskólanum í Reykjavík. 15.2.2011 11:17
Greining: Samþykkt Icesave markar tímamót „Samþykkt Icesave-samkomulagsins mun marka tímamót í endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hrun. Samþykkt hins nýja samkomulags mun að öllum líkindum hafa jákvæð áhrif á aðgang íslenskra aðila að erlendu fjármagni og lækka áhættuálag á íslenskar fjáreignir.“ 15.2.2011 10:20
Töluverð aukning á afla milli ára í janúar Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 13,9% meiri en í janúar 2010. 15.2.2011 10:07
Segir úrskurð Hæstaréttar stórsigur fyrir lánþega Nýfallin úrskurður Hæstaréttar í máli Tölvupóstsins ehf. gegn Frjálsa fjárfestingabankanum er stór sigur fyrir lánþega, hvort heldur um er að ræða einstaklinga eða lögaðila. 15.2.2011 10:03
Verulega dregur úr hagnaði HS Orku Hagnaður HS Orku nam 865 milljónum kr. í fyrra samanborið við hagnað að upphæð 6,8 milljörðum kr. á árinu 2009. 15.2.2011 10:02
Viðskipti fyrir 2,9 milljarða króna Velta á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu jókst verulega í síðustu viku. Alls var þinglýst 81 kaupsamningi, sem er rétt tæplega 20 samningum meira en nemur meðaltali síðustu 12 vikna. 15.2.2011 08:00
Stöndum ekki undir kröfum Íslensk yfirvöld hafa ekki tryggt að fiskafurðir séu meðhöndlaðar og unnar samkvæmt kröfum samningsins um evrópska efnahagssvæðið (EES). Þetta er meginniðurstaða skýrslu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem birt var í gær. 15.2.2011 07:00
Lán hækkuðu um 500 milljarða Vinna starfshóps sem leitar leiða í umboði stjórnvalda til að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku efnahagslífi er á lokastigi og lýkur væntanlega fyrir mánaðamót. 15.2.2011 06:00
Ábyrgðarmenn gætu sloppið Fjöldi lánasamninga gæti verið í uppnámi vegna tíu ára gamals samkomulags um ábyrgð á skuldum einstaklinga. Í mörgum tilvikum gætu ábyrgðarmenn sloppið undan ábyrgðinni þar sem bankarnir hafa ekki gert greiðslumat hjá lántakendum. 14.2.2011 19:12
Velta kreditkorta jókst um 7,4% milli mánaða Heildarvelta kreditkorta í janúar s.l. var 28,4 milljarðar kr. og er þetta 0,1% aukning miðað við janúar 2010 en 7,4% aukning miðað við desember í fyrra. 14.2.2011 17:46
Íhuga að skrá hlutabréfin í annarri kauphöll Stjórn Icelandair Group hf. hefur ákveðið að kanna þann möguleika að skrá hlutabréf fyrirtækisins í annarri kauphöll á Norðurlöndunum, til viðbótar núverandi skráningu á Nasdaq OMX Iceland hf. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hefur verið send Kauphöllinni á Íslandi. 14.2.2011 16:57
Upplýst bótasvik spara 700 milljónir á tæpu ári Eftirlitsdeild Vinnumálastofnunnar hefur upplýst um bótasvik sem sparað hafa stofnunni 700 milljónir kr. á tímabilinu frá október 2009 og fram til september í fyrra. 14.2.2011 15:47
Viðsnúningur um 11 milljarða til hins betra hjá Icelandair Hagnaður Icelandair Group eftir skatta var 1,4 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi í fyrra samanborið við 9,6 milljarða króna tap á sama tímabili árið áður. Þetta er viðsnúningur upp á 11 milljarða til hins betra hjá félaginu. 14.2.2011 14:38
Forsenda AGS að áætlun um gjaldeyrishöftin liggi fyrir Ein forsenda þess að fimmta endurskoðunin á áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Íslands nái fram að ganga er að ríkisstjórnin samþykki nýja áætlun um afléttingu gjaldeyrishafta fyrir febrúarlok. 14.2.2011 11:37
Skuldatryggingaálagið ekki lægra síðan sumarið 2008 Skuldatryggingaálag Íslands stendur nú í 241 punkti og hefur ekki verið lægra síðan um sumarið 2008. Þetta kemur fram á vefsíðunni keldan.is sem aftur sækir sínar upplýsingar til Bloomberg/CMA gagnaveitunnar. 14.2.2011 11:17
Gufubaðið á Laugarvatni opnar aftur í sumar Í sumarbyrjun opnar gufubaðið á Laugarvatni aftur undir nafninu Laugarvatn Fontana – uppspretta vellíðunnar. Gert er ráð fyrir að starfsemin skapi 10 til 12 stöðugildi á staðnum. 14.2.2011 10:59
Forstjóri Össurar með 433 þúsund í laun á dag Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, var með um 433 þúsund krónur í laun á dag í fyrra. Samkvæmt ársreikningi félagsins var hann með 1343 þúsund bandaríkjadali í árslaun á síðasta ári. Upphæðin samsvarar um 158 milljónum íslenskra króna í árslaun. 14.2.2011 10:48
Faxaflóahafnir leggja 50 milljónir í aðstöðu fyrir smábáta Stjórn Faxaflóahafna hefur ákveðið að leggja 50 milljónir kr. í formi hlutafé til byggingar aðstöðu fyrir útgerðir smábáta á Akranesi. 14.2.2011 08:04
Veruleg veltuaukning á fasteignamarkaðinum Veruleg aukning varð á veltunni á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var þinglýst 81 kaupsamningi sem er rétt tæplega 20 samningum meira en nemur meðaltali síðustu 12 vikna. 14.2.2011 07:50
Flytja menn og báta vestur „Við vonumst til að fá byggðakvóta þegar fram líða stundir. Þetta lifir allt á því að fá hráefni í hús,“ segir Kristján Kristjánsson sem um helgina keypti ásamt Sigurði Aðalsteinssyni allar eignir þrotabús Eyrarodda á Flateyri. 14.2.2011 05:00
Lotna kaupir fiskvinnsluna á Flateyri Fyrirtækið Lotna ehf. er að leggja lokahönd á kaupsamning á öllum eigum þrotabús Eyrarodda ehf., á Flateyri. Lotna eignast þannig allar fasteignir þrotabúsins, fiskvinnsluna, skrifstofuhúsnæðið og krókaaflamarksbátinn Stjána Ebba ÍS. 13.2.2011 10:28
Jón Ásgeir segist hafa boðið Arion banka að greiða allar skuldir Jón Ásgeir Jóhannesson sem ásamt fjölskyldu sinni átti félagið 1998 ehf., móðurfélag Haga, segist hafa boðið Arion banka að greiða stóra eingreiðslu inn á skuldir móðurfélagsins og afganginn á sjö árum með 2 prósenta vöxtum. Bankinn hafi hafnað því. Hann segist óska nýjum eigendum Haga velfarnaðar og góðs gengis. 12.2.2011 14:27
ALP kaupir 215 bíla Í dag var undirritaður samningur í milli B&L og Ingvars Helgasonar annarsvegar og bílaleigunnar ALP hinsvegar um kaup á 215 bílum. Um er að ræða bíla frá Hyundai, Nissan, Land Rover og Renault. Bílarnir verða allir afhentir á tímabilinu maí til júní. 12.2.2011 14:15
Vona að samráðsvettvangur skapi 15 þúsund störf Jóhanna Sigurðardóttir vonast til að nýr samráðsvettvangur stjórnvalda, vinnumarkaðsaðila og allra þingflokka um vinnumál skapi um það bil fimmtán þúsund störf. 12.2.2011 13:18
Atvinnulífið vill ekki lengur krónuna „Þetta kemur ekki á óvart. Öll óvissa sem tengist krónunni og gengi hennar er eingöngu til vandræða,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. 12.2.2011 11:00
Fimmta endurskoðun í apríl Stefnt er að því að fimmta endurskoðun samstarfsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fari fram í apríl. Þetta kom fram á blaðamannafundi með Julie Kozack, formanni sendinefndar sjóðsins gagnvart Íslandi, og Franek Rozwadowski, fastafulltrúa sjóðsins hér á landi, í Seðlabankanum í gær. 12.2.2011 03:30
Kaupa þriðjungshlut í Högum Arion banki hefur selt dreifðum hópi lífeyrissjóða og öðrum fjárfestum 34% hlut í Högum ásamt kauprétti að 10% viðbótarhlut. Kaupverð er 4,1 milljarður. Skráning í kauphöll er fyrirhuguð síðar á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. 11.2.2011 20:55