ON hefur betur gegn Ísorku í hleðslustöðvamáli Landsréttur staðfesti á fimmtudag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember um ógildingu á úrskurði kærunefndar útboðsmála um lögmæti útboðs á uppsetningu og rekstri hleðslustöðva fyrir rafbíla í hverfum í Reykjavík. Bílar 27. júní 2022 07:01
Polestar tekið til viðskipta á Nasdaq Viðskipti með bréf sænska rafbílaframleiðandans Polestar hófust á Nasdaq í New York í gær undir skráningarheitinu PSNY. Polestar hóf starfsemi árið 2017 og hefur nú þegar selt 55.000 bíla á heimsvísu. Bílar 25. júní 2022 07:00
Ford sýndi 2000 hestafla ofurrafsendibíl Ford notaði Goodwood Festival of Speed til að sýna heiminum nýja rafknúna útgáfu af Ford SuperVan bíl sínum, sem nú er búinn næstum 2000 hestafla mótor og ber bíllinn nú heitið Ford Pro Electric SuperVan. Bílar 24. júní 2022 07:00
Gígaverksmiðja Tesla í Berlín framleiðir 1000 Model Y á einni viku Tesla hefur formlega staðfest að Gígaverkmskiðan í Grünheide við Berlín hefur afrekað að framleiða 1000 Model Y bíla á einni viku. Bílar 20. júní 2022 07:01
14 ára og elskar gamlar dráttarvélar Gamlar og uppgerðar dráttarvélar eru í miklu uppáhaldi hjá 14 ára strák á Reykhólum en hann hefur keyrt dráttarvélar frá því að hann var sex ára gamall. Á bænum er líka Læðan úr Dagvaktinni til sýnis, ásamt öllum dráttarvélunum. Innlent 19. júní 2022 20:05
„Þessir gömlu stálfákar eru eins og að setjast í mjúkan lazyboy“ Að setjast undir stýri í gömlum stálfáki er líkt og að láta sig sökkva ofan í mjúkan hægindastól. Þetta segir formaður Bílaklúbbs Akureyrar um hina haganlega smíðuðu fornbíla. Þrjú hundruð af glæsilegustu bílum landsins, gömlum og nýjum, verða á hátíðarsýningu á bíladögum á Akureyri. Innlent 16. júní 2022 12:02
Pósturinn leitar umhverfisvænni leiða fyrir bílaflotann Pósturinn hefur hafið samstarf við fyrirtækið VETNIS til að kanna notkun á vetni fyrir flutningabíla á lengri leiðum þar sem aðrir orkugjafar henta síður. Á síðasta ári var hafist handa við tilraunaverkefni sem snýst um að skoða ferðir flutningabíla Póstsins um landið og hvar gæti hentað að setja niður vetnisstöðvar, meðal annars með tilliti til rekstraröryggis. Þróun vetnisframleiðslu hérlendis og uppbygging innviða gæti tekið fáein ár en margir hafa trú á því að vetni leysi jarðefnaolíu af hólmi ásamt rafmagni og metani. Bílar 16. júní 2022 07:00
Myndband: innlit í Rivian verksmiðjurnar Rivian birti nýlega myndband af verksmiðjum sínum þar sem farið er í gegnum helstu stöðvar bílanna frá því mótun hluta þeirra hefst, sprautun, samsetning og gæðaeftirlit. Auk þess er viðtal við Robert Scaringe, stofnanda og framkvæmdastjóra Rivian. Bílar 15. júní 2022 07:02
Féll þrisvar en náði prófinu í fjórðu tilraun: „Mjög stressuð“ Bóklega ökuprófið var til umfjöllunar í Íslandi í dag í gær, þar sem rætt var við Láru Jakobínu Gunnarsdóttur þar sem hún gekk út úr prófinu. Það var gleðidagur, enda hafði Lára reynt við prófið án árangurs í þrjú skipti, en loksins náð því í fjórðu tilraun. Innlent 14. júní 2022 10:09
ESB heldur sig við bensín- og díselbíla bann Nýlega kaus Evrópuþingið um að halda áætlun um bann við sölu bensín og dísel bíla frá og með árinu 2035. Upprunalega plön um bannið voru kynnt í júlí í fyrra og hafa þau nú verið staðfest. Bílar 13. júní 2022 07:01
Horft verði til þyngdar í aðgerðum sem eiga að skila ríkissjóði fimmtán milljörðum Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að meðal annars verði horft til þyngdar ökutækja þegar kemur að boðaðri endurskoðun á skattlagningu á umferð og ökutæki. Reiknað er með að flýting á innleiðingu nýrra gjalda vegna umferðar og eldsneytis skili ríkissjóði fimmtán milljörðum á árunum 2023 til 2027. Meirihluti nefndarinnar telur að ekki sé hægt að horfa mikið lengur framhjá því að núverandi fyrirkomulag komi niður á viðhaldi vega. Innlent 12. júní 2022 08:47
Renault Megane E-Tech frumsýndur í dag Renault við Sævarhöfða frumsýnir í dag laugardag, 11. júní milli kl. 12 og 16, rafbílinn Megane E-Tech sem hefur allt að 470 km drægni. Megane hefur frá upphafi verið einn vinsælasti fjölskyldubíll Renault og hefur nú verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan og má segja að um algerlega nýjan bíl sé að ræða, sem hefur þegar verið kjörinn fjölskyldubíll ársins hjá TopGear. Bílar 11. júní 2022 07:01
Myndband: Fyrstu myndir af Polestar 3 Rafbílaframleiðandinn Polestar opinberaði nýlega fyrstu myndina af væntanlegum Polestar 3. Rafjeppling sem ætlað er að auka vöxt og markaðshlutdeild Polestar, sérstaklega í Bandaríkjunum. Bílar 9. júní 2022 07:02
Rimac safnar 500 milljónum evra Rafbílaframleiðandinn Rimac aflaði sér 500 milljónum evra í fjármögnungarumferð sem meðal annarra Porsche tók þátt í. Porsche á nú um fimmtungs hlut í Rimac. Umferðin tryggir Rimac rúmlega 72 milljarða króna til frekari vaxtar. Bílar 7. júní 2022 07:01
Kalla inn nærri því milljón Mercedes-bíla Þýski bílaframleiðandinn ætlar að kalla inn tæplega milljón eldri bifreiða um allan heim vegna þess að bremsubúnaður þeirra kunni að hafa orðið fyrir mikilli tæringu. Hætta sé á að bremsurnar virki ekki sem skyldi við vissar aðstæður. Viðskipti innlent 6. júní 2022 11:08
Framkvæmdastjóri Ford vill loka umboðum og hætta að auglýsa Jim Farley vill selja rafknúna Ford bíla á netinu, losa Ford við lagerstöðu umboðanna og breyta núverandi sölustöðum í háklassa þjónustumiðstöðvar. Bílar 4. júní 2022 07:02
Heimilin taka bílalán sem aldrei fyrr Alls hafa um 9.600 bifreiðar verið nýskráðar á fyrstu fimm mánuðum ársins sem er um 65 prósenta aukning frá því í fyrra. Rúmur meirihluti nýskráðra ökutækja gengur þá fyrir öllu leyti eða að hluta fyrir rafmagni og virðist því rafbílavæðingin ganga vel. Viðskipti innlent 3. júní 2022 17:30
Nýr Land Rover Defender 130 kynntur Land Rover í Bretlandi kynnti á dögunum nýjan Defender, 130, sem er fjórða og nýjasta útgáfa bílsins á eftir Defender 90, Defender 110 og Defender Hard Top sem kynntir hafa verið frá því í júní 2020. Nýi Defender 130 er 34 sentimetrum lengri að aftan en Defender 110. Bíllinn verður frumsýndur hjá BL í haust. Bílar 3. júní 2022 07:00
„Svo setti ég bara hnefann í borðið og það hlýddu mér allir“ Hanna Rún Ragnarsdóttir byrjaði að stunda rally af miklum móð til þess að komast yfir bílhræðslu sem hún byrjaði að upplifa eftir slæmt bílslys fyrir nokkrum árum. Hún segir konur hræddar við akstursíþróttir því þær séu þekktar sem karlasport og vill hún breyta því. Lífið 2. júní 2022 13:30
Toyota með flestar nýskráningar í maí Toyota trónir á toppi nýskráðra nýrra bifreiða í maí mánuði með 568 bifreiðar nýskráðar. Mitsubishi er í öðru sæti með 428 nýskráðar bifreiðar. Hyundai í þriðja sæti 213 nýskráðar bifreiðar. Alls voru 3573 ökutæki nýskráð í maí, þar af voru 2.367 nýjar bifreiðar. Fréttin byggir á tölum af vef Samgöngustofu. Bílar 2. júní 2022 07:01
Kvóti fyrir rafbíla að klárast: Rafbílar gætu hækkað um meira en milljón í verði á næstu mánuðum Verð á rafbílum gæti hækkað um allt að eina og hálfa milljón á næstu mánuðum þegar fjöldakvóti fyrir skattaívilnanir stjórnvalda klárast. Miðað við núverandi sölu á rafbílum gæti kvótinn klárast í síðasta lagi eftir þrjá mánuði. Neytendur 2. júní 2022 07:00
Kia Niro EV væntanlegur Bílaumboðið Askja hóf í gær forsölu á nýjum rafbíl, Kia Niro EV. Þetta er þriðja kynslóð Kia Niro sem hefur verið einn vinsælasti bíll Kia um allan heim undanfarin ár. Hér á landi hefur hann verið söluhæsta gerð Kia. Bílar 1. júní 2022 23:07
Bílaleigur stórauka bílakaup en horfa í auknum mæli til bensín- og dísilbíla Fleiri horfa nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, eftir að verð á tengiltvinnbílum hækkaði í vor. Stóraukin umsvif bílaleiga eru meginástæða þess að sala á bílum jókst verulega á milli ára fyrstu mánuði ársins. Neytendur 1. júní 2022 10:49
Myndband: Mismunadrif útskýrt Mismunadrif er eitt af þessu sem margt fólk telur sig nú vita hvernig virkar, en margir eru í erfiðleikum með að útskýra fyrir öðrum. Eitthvað snýst á meðan annað er ekki að snúast, ekki jafn hratt hið minnsta. Myndband frá 1937 sem finna má í fréttinni er notað til að útskýra mismunadrif. Bílar 31. maí 2022 07:00
Fimm milljarða dollara verkefni til að rafvæða bandaríska skólabíla Umhverfisstofnun Bandaríkjanna, EPA vill rafvæða skólabílaflotann í Bandaríkjunum. Stofnunin hefur sett saman áætlun sem gerir ráð fyrir að fimm milljarðar dollara eða um 650 milljarðar króna verði varið í að rafvæða skólabíla. Bílar 29. maí 2022 07:00
Polestar fjárfestir í StoreDot Rafbílaframleiðandinn Polestar hefur tilkynnt að félagið hafi fjárfest í StoreDot, frumkvöðlafyrirtæki frá Ísrael sem sérhæfir sig í ofurhraðhleðslu rafhlöðum. Bílar 25. maí 2022 07:00
Um helmingur Breta myndi ekki íhuga rafbíl næsta áratuginn Um helmingur breskra ökumanna myndi ekki íhuga að skipta yfir í rafbíl, vegna efasemda um drægni þeirra og hleðslu samkvæmt nýrri rannsókn, tryggingafélagsins NFU Mutual. Rannsóknin tók til rúmlega 1000 breskra ökumanna. 45 prósent þátttakenda sögðust ekki geta hugsað sér að skipta dísel eða bensín bíl sínum fyrir rafbíl á næsta áratug. Bílar 23. maí 2022 07:01
Ísland í aðalhlutverki í Hyundai auglýsingu Kvikmyndatökulið á vegum bílaframleiðandans Hyundai var statt hér á landi fyrr á árinu til að taka upp myndefni þar sem Heimsbíll ársins 2022, Ioniq 5 og jepplingurinn Tucson PHEV voru í aðalhlutverkum. Bílar 22. maí 2022 07:01
Harley-Davidson stöðvar tímabundið smíði bensínmótorhjóla Sögufrægi mótorhjólaframleiðandinn Harley-Davidson mun stöðva framleiðslu bensín mótorhjóla í tvær vikur vegna vandamála með íhluti frá ónefndum þriðja aðila og reglufylgni. Rafmótorhjól framleiðandans, sem framleidd eru undir merkjum LiveWire verða ekki fyrir áhrifum vegna þessa. Bílar 20. maí 2022 07:00
MG5 Station Wagon, fyrsti skutrafbíllinn á markaðnum kynntur BL, umboðsaðili MG, kynnir á laugardaginn fyrsta hreina rafbílinn á markaðnum í skutútfærslu þegar boðið verður til sýningar og reynsluaksturs á fjölskyldubílnum MG5 Station Wagon milli klukkan 12 og 16 við Sævarhöfða. Bílar 19. maí 2022 07:01