

Bónus-deild karla
Leikirnir

Bestu lið sögunnar: „Maggi er að fara að berjast gegn sjálfum sér“
Tvö Keflavíkurlið mættust í lokaviðureign átta liða úrslitanna þar sem Subway Körfuboltakvöld hélt áfram að reyna að komast að því hvað sé besta lið sögunnar í karlakörfuboltanum.

Maggi Gunn valdi bestu skyttur Subway deildarinnar
Magnús Þór Gunnarsson er ein besta þriggja stiga skyttan í sögu íslenska körfuboltans og hann fékk það verkefni í síðasta Subway Körfuboltakvöldi að velja bestu skyttur Subway deildarinnar í dag.

„Skiptir rosalega miklu máli fyrir þetta lið“
Emil Karel Einarsson, fyrirliði Þórs Þorlákshafnar, átti virkilega góðan leik fyrir þá grænklæddu er liðið vann sterkan 17 stiga sigur gegn Íslandsmeisturum Tindastóls síðastliðinn fimmtudag.

„Rosalega vont að sitja hérna og hrauna yfir hann með 42 framlagspunkta“
Í síðasta þætti Körfuboltakvölds var Remy Martin, leikmaður Keflavíkur, til umræðu. Hann skoraði 36 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar í sigrinum á Breiðabliki.

,,Búinn að vera hérna nánast daglega síðan 1998”
,,Það voru tilfinningar fyrir þennan leik, ég lýg því ekki,” sagði Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, eftir magnaðan sigur gegn Stjörnunni í nágrannaslag í Subway-deild karla í kvöld.

Umfjöllun: Stjarnan - Álftanes 84-90 | Álftnesingar unnu grannaglímuna eftir framlengdan leik
Það er óhætt að tala um spennutrylli þegar talað er um nágrannaslag Stjörnunnar og Álftaness í Subway-deild karla í kvöld. Um var að ræða fyrstu grannaglímu Garðabæjar í körfuboltasögunni en þessi leikur stóðst allar þær væntingar sem gerðar voru til hans, allavega fyrir hlutlausa.

Stóru dagarnir sem breyttu Garðabæ í körfuboltabæ
Garðabær á heldur betur sviðið í kvöld þegar fyrsta grannaglíma Garðabæjar í sögunni fer fram í Umhyggjuhyggjuhöllinni. Það er von á fullt af fólki og flottum leik þegar Stjarnan tekur á móti Álftanesi í lokaleik níundu umferðar Subway-deildar karla í körfubolta.

Mæta í grannaglímu Garðabæjar merktir Katalóníu Garðabæjar
Fyrsta grannaglíma Garðabæjar í sögu efstu deildar karla í körfubolta fer fram í kvöld í Umhyggjuhöllinni í Ásgarði og er von á góðri mætingu og mikilli stemmningu.

Lárus: Hefðum verið í vandræðum án Jose Medina
Þór Þorlákshöfn komst aftur á sigurbraut eftir sannfærandi sigur gegn Tindastóli 96-79. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var afar ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Tindastóll 96-79 | Þórsarar unnu stórleikinn
Þór Þorlákshöfn lagði Íslandsmeistarar Tindastóls í Subway-deild karla í kvöld. Eftir sigur í síðasta leik virðast Íslandsmeistararnir aftur komnir í brekku.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Höttur 93-85 | Taphrina Hauka á enda
Höttur mætti í Ólafssal í kvöld eftir að hafa unnið sannfærandi sigur gegn þá heitasta liðinu í deildinni, Stjörnunni, í síðustu umferð. Liðið mætti ísköldum Haukum sem freistuðu þess að enda fjögurra leikja taphrinu.

Finnur Freyr: Ánægður að við séum hérna þunnskipaðir og náum fram sigri
„Ég er mjög ánægður með karakterinn og að ná sigri hér í kvöld,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals strax að leik loknum þegar hann er inntur eftir viðbrögðum.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Breiðablik 100-86 | Lærisveinar Péturs unnu fyrrum lærisveina hans
Feðgarnir Pétur Ingvarsson og Sigurður Pétursson fóru fyrir tímabilið í Subway-deild karla í körfubolta frá Breiðabliki til Keflavíkur. Í kvöld mættu þeir sínu fyrrum félagi og unnu góðan sigur en fæðingin var ansi erfið að þessu sinni.

„Alls konar lið að kalla mig lúser“
Haukar voru án sigurs í síðustu fjórum leikjum þegar Höttur kom í heimsókn í níundu umferð Subway-deildarinnar. Haukar unnu leikinn með átta stigum, 93-85, og færast því fjær fallpakkanum og nær sæti í úrslitakeppninni.

„Vanir að fá bara heimadómgæslu hér í Keflavík“
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Breiðabliks, var ómyrkur í máli í garð dómaranna eftir tap hans manna í Keflavík, 100-86. Alls voru dæmdar 25 villur á Blika í kvöld en aðeins tólf á heimamenn og þeir voru villulausir í fjórða leikhluta þar til í blálokin.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grindavík 96-83 | Valsarar á sigurbraut
Valur tók á móti Grindavík í 9. umferð Subway-deild karla í körfubolta nú í kvöld. Fyrir leikinn voru heimamenn í öðru sæti deildarinnar á meðan gestirnir úr Grindavík sátu í því níunda. Svo fór að lokum að heimamenn í Val unnu sannfærandi 13 stiga sigur 96-83.

Umfjöllun og viðtöl: Hamar - Njarðvík 85-109 | Toppliðið fór illa með botnliðið
Í kvöld var slagur á milli liðanna á sitthvorum enda töflunnar í Subway-deild karla. Topplið Njarðvíkur sótti botnlið Hamars þá heim í Hveragerði. Búast mátti við ójöfnum leik fyrir fram sem að lokum varð þegar Njarðvík vann 24 stiga sigur, lokatölur 85-109.

Stólarnir óttast ekki dómsmál: „Eru með tapað mál í höndunum“
Formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls missir ekki svefn þrátt fyrir hótanir KB Peja frá Kósóvó þess efnis að fara með mál, tengt félagsskiptum Bandaríkjamannsins Jacob Calloway til Tindastóls, fyrir dómstóla. Calloway er mættur á Sauðárkrók þar sem að hann hyggst hefja nýjan kafla á sínum körfuboltaferli.

Fyrrum lið Calloway ósátt með brotthvarf hans
Körfuknattleiksfélagið KB Peja frá Kósovó er allt annað en sátt með Jacob Calloway, fyrrverandi leikmann Vals, en hann ku vera að semja við Íslandsmeistara Tindastóls.

Leikmannaskipti í Subway-deildinni: Love og Tahvanainen skipta um lið
Subway Körfuboltakvöld Extra heldur áfram að koma með brakandi ferskar fréttir úr Subway deildinni en í þætti kvöldsins er greint frá óvæntum leikmannaskiptum í íslensku deildinni.

Pavel: Ég var hættur að fara út í búð
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, hefur loksins fengið liðstyrk í Subway deild karla í körfubolta en Stólarnir létu ekki bara erlendan leikmann fara fyrir mánuði heldur hafa mikil meiðsli herjað á leikmannahópinn.

Með smá skvettu af stælum og stórt hjarta
Blikinn Sölvi Ólason átti mikinn þátt í fyrsta sigri Blika í Subway deild karla í körfubolta á dögunum en hann kom í mjög mikilvægum leik á móti Hamri í síðustu umferð.

„Líkami sem allir karlmenn vilja bera og allar konur vilja faðma“
Sævar Sævarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, fékk það skemmtilega verkefni í síðasta þætti að setja saman hinn fullkomna körfuboltamann úr leikmönnum Subway-deildar karla.

Pavel fær fyrrverandi liðsfélaga sinn á Krókinn
Íslandsmeistarar Tindastóls hafa samið við Jacob Calloway um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil í Subway-deild karla í körfubolta.

Jose Medina fljótur að finna sér nýtt Subway-deildar lið á Suðurlandinu
Spænski körfuboltamaðurinn Jose Medina fer ekki langt eftir að Hamarsmenn létu hann fara á dögunum. Þórsarar sögðu frá því að þeir höfðu samið við bakvörðinn.

„Fyrir mér þá er þetta fegurðin við hann“
Sigurður Pétursson átti sannkallaðan stórleik þegar Keflvíkingar rúlluðu upp nágrönnum sínum úr Grindavík í áttundu umferð Subway deildar karla í körfubolta.

Ósáttur með hvernig farið var með landsliðsfyrirliðann á Egilsstöðum
Landsliðsfyrirliðinn Ægir Þór Steinarsson kláraði ekki leik Stjörnunnar á móti Hetti í síðustu umferð Subway deildar karla því hann var rekinn snemma í sturtu af dómurum leiksins.

Stoðsending af dýrari gerðinni frá Remy Martin
Boðið var upp á glæsileg tilþrif í 8. umferð Subway-deildar karla. Öflugar troðslur glöddu augað en stoðsending sem virtist vera frá öðrum heimi stóð upp úr.

Okeke útskrifaður af sjúkrahúsi í dag
David Okeke, leikmaður Hauka í Subway-deild karla, sem fór í hjartastopp í leik liðsins gegn Tindastóli á fimmtudaginn virðist vera á batavegi en hann verður útskrifaður af sjúkrahúsi í dag.

„Ég á bara ekki til orð, þetta var skelfilegt og við ættum að skammast okkar“
Það var fokillur þjálfari sem kom til tals við blaðamann eftir 87-69 tap Hamars gegn Breiðabliks í Subway deild karla. Hamar er enn án sigurs í neðsta sæti deildarinnar eftir átta umferðir, þetta var fyrsti sigur Breiðabliks sem kom sér upp í 11. sætið.