Hamilton ætlar sér sigur í Ástralíu Það er aðeins vika í fyrsta Formúlu 1 mót ársins. Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren stefnir á sigur á götum Melbourne í Ástralíu. Hamilton, Felipe Massa, Kimi Raikkönen og Heikki Kovalainen eru líklegastir til að standa fremstir í fyrsta móti, ef marka má æfingar síðustu vikur. Formúla 1 9. mars 2008 11:56
Aguri liðið mætir þrátt fyrir peningaleysi Japanska keppnisliðið er mætt til Ástralíu, þrátt fyrir þær fréttir að eigandi liðsins hafi leitað logandi ljósi að fjármagni til að greiða rekstrarkostnað. Auguri Suzuki var alla síðustu viku í leit að fjármagni, eftir að hafa lent í fjárhagsörðugleikum. Formúla 1 9. mars 2008 11:52
Umfangsmikil umfjöllun um Formúlu 1 Fyrsta útsending Sýnar frá Formúlu 1 verður á mánudagskvöld. Þá verður sýnt frá frumsýningum Formúlu 1 keppnisliða og rætt við toppökumenn liðanna og tæknistjóra. Síðan verða átta útsendingar í viðbót í vikunni frá Formúlu 1. Formúla 1 8. mars 2008 07:49
Hamilton og Kovalainen hjá McLaren bíða spenntir Bretinn Lewis Hamilton vakti óskipta athygli á síðasta ári, sem nýliði í Formúlu 1 og tapaði af titilinum á lokasprettinum. Hann stefnir á titilinn í ár og félagi hans Heikki Kovalainen ætlar sér í toppslaginn frá fyrsta móti um næstu helgi. Formúla 1 7. mars 2008 19:28
Formúlu 3 vertíðin hefst hjá Kristjáni Einari Hinn nítján ára Kristján Einar Kristjánsson var við æfingar á Silverstone brautinni í gær, en hann keppir í Formúlu 3 í Bretlandi á þessu ári. Kristján ekur bíl frá Carlin Motorsport og nýtur stuðnings frá Salt Investments, sem er fyrirtæki í eigu Róbert Wessman. Formúla 1 7. mars 2008 07:35
Níu Formúlu 1 útsendingar á Sýn í næstu viku Sjónvarpsstöðin Sýn hefur Formúlu 1 tímabilið með miklum glæsibrag og verða níu útsendingar í næstu viku. Fyrsta útsending er mánudaginn 10. mars og þá verður sýnt frá frumsýningum keppnisliða og rætt við ökumenn. Tveimur dögum síðar verður sýnt frá ferð Sýnar á lokaæfingar keppnisliða á Barcelona brautina í síðustu viku. Formúla 1 5. mars 2008 09:09
Baugur styrkir Williams enn frekar Baugur hefur ákveðið að styrkja Formúlu 1 lið Williams enn frekar en síðustu ár og tilkynnti Frank Williams um nýjan samning í dag. Formúla 1 3. mars 2008 18:15
Rosberg vill í toppslaginn með Williams Bæði Nico Rosberg og Kazuki Nakajima óku geysilega vel á æfingum í Barcelona í vikunni. Hraði Nakajima hefur komið mörgum á óvart og Rosberg er í fantaformi sem fyrr. Báðir eru synir fyrrum Formúlu 1 ökumanna og Rosberg telur það til hagsbóta fyrir Formúlu 1 að kappaksturs-eðlið gengur í erfðir. Formúla 1 28. febrúar 2008 14:22
Sýnarmenn að tjaldabaki í Barcelona Starfsmenn Sýnar dvöldu að tjaldabaki í Barcelona á æfingum keppnisliða síðustu daga, en það var liður í margslunginni þáttagerð sem stendur til hjá Sýn vegna Formúlu 1. Formúla 1 28. febrúar 2008 13:11
Alonso: Hamilton getur orðið heimsmeistari Fernando Alonso telur fyrrum félaga sinn Lewis Hamilton hjá McLaren eiga ágætar líkur á því að standa uppi sem heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 á næsta tímabili. Formúla 1 28. febrúar 2008 10:23
Hamilton aftur fljótastur á Spáni McLaren ökumaðurinn Lewis Hamilton var enn og aftur í sérflokki á æfingum í Barcelona þar sem Formúluökuþórarnir undirbúa sig nú fyrir fyrstu keppni ársins sem verður í Ástralíu um miðjan næsta mánuð. Formúla 1 27. febrúar 2008 12:15
Ferrari í sterkri stöðu fyrir tímabilið Brasilíumaðurinn Felipe Massa telur að Ferrari liðið sé í þægilegri stöðu hvað undirbúning fyrir tímabilið varðar. Á mánudag mætir Michael Schumacher til leiks hjá Ferrari á Barcelona brautinni og æfir með Kimi Raikkönen. Formúla 1 24. febrúar 2008 15:53
Nýliðar vekja athygli Fjölmargir nýliðar eru í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili og þeir hafa vakið athygli fyrir spretthörku á æfingum í Barcelona þessa vikuna. Lokaæfingar keppnisliða verða í Barcelona í næstu viku og meðal ökumanna verður Michael Schumacher. Formúla 1 23. febrúar 2008 22:21
Kristján keppir í Formúlu 3 í Bretlandi Kristján Einar Kristjánsson hefur skrifað undir samning við Carlin Motorsport í Bretlandi og keppir á vegum liðsins í breska meistaramótinu í Formúlu 3. Formúla 1 19. febrúar 2008 11:14
Ert þú Formúlusérfræðingur? Formúlu 1 útsendingar á Sýn verða mjög ítarlegar á árinu og verður sýnt frá öllum æfingum, tímatöku og kappakstri. Auk þess verða þættir á undan og eftir mótshelginni. Sýn og Bylgjan leita áhugamanna um Formúlu 1 um land allt til að taka þátt í herlegheitunum. Formúla 1 15. febrúar 2008 11:34
Kynþáttafordómar verða ekki liðnir í Formúlu 1 Max Mosley, yfirmaður í Formúlu 1, segir að hart verði brugðist við ef kynþáttafordómar gera vart við sig á ný í kring um íþróttina. Lewis Hamilton, ökumaður McLaren, varð fyrir aðkasti á Spáni um daginn. Formúla 1 13. febrúar 2008 14:00
Hamilton fljótastur á Spáni Bretinn Lewis Hamilton var fljótastur allra á æfingum á Jerez brautinni á Spáni í dag. Hann var brotabrotum á undan Pedro de la Rosa á samskonar bíl. Robert Kubia á BMW var skammt undan. Formúla 1 12. febrúar 2008 18:34
Forráðamenn McLaren kallaðir fyrir dómara Ítalskur dómari sem er að fylgja eftir njósnamálinu umtlalaða frá því í fyrra fyrir Ferrari og lögfræðinga liðsins vill fá forráðamenn McLaren á sinn fund þann 18. febrúar. Formúla 1 7. febrúar 2008 15:21
Schumacher búinn að stofna kappaksturslið Þjóðverjinn Michael Schumacher hefur ákveðið að stofna keppnislið í kart-kappakstri og meðal ökumanna verður sonur fyrrum heimsmeistara í rallakstri, Carlos Sainz yngri. Formúla 1 5. febrúar 2008 17:51
Hamilton leiður yfir framkomu Spánverja Bretinn Lewis Hamilton tekur nærri sér ástandið á Barcleona brautinni í gær, þar sem spænskir áhorfendur gerðu lítið úr litarhætti hans. Formúla 1 4. febrúar 2008 15:28
Hamilton svívirtur í Barcelona Lewis Hamilton hjá McLaren fékk að heyra miður fallegar athugasemdir frá áhorfendum þegar hann var við prófanir á Montmelo brautinni í Barcelona á Spáni í gær ef marka má spænska fjölmiðla. Formúla 1 3. febrúar 2008 16:44
Klien ráðinn til BMW Austurríski ökumaðurinn Christian Klien hefur verið ráðinn tilraunaökumaður BMW Sauber liðsins í Formúlu 1. Klien var áður hjá Jaguar og Red Bull á árunum 2004-06 og síðast var hann tilraunaökumaður hjá Honda. Formúla 1 2. febrúar 2008 17:18
Allar æfingar, tímataka og kappakstur á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn mun sýnt beint frá öllum æfingum á mótsstöðum í Formúlu 1 á keppnistímabilinu, auk þess að sýna frá tímatökum og kappakstri. Formúla 1 1. febrúar 2008 21:51
Slapp ómeiddur eftir harðan árekstur Japanski ökumaðurinn Kazuki Nakajima hjá Williams í Formúlu 1, slapp ómeiddur frá hörkuárekstri á æfingu keppnisliða á Barcelona brautinni í hádeginu í dag. Nakajima fór útaf á fullri ferð í lokabeygju brautarinnar, á þriðja hundrað kílómetra hraða. Formúla 1 1. febrúar 2008 13:41
Renault hyggst keppa til sigurs París var vettvangur formlegrar frumsýningar Renault Formúlu 1 liðsins í dag: Flavio Briatore kynnti nýju ökumenn sína til sögunnar, þá Fernando Alonso og Nelson Piquet. Formúla 1 31. janúar 2008 14:46
600 blaðamenn á frumsýningu Renault Renault frumsýnir formlega nýjan keppnisbíl sinn í París í dag, en í gær gafst kostendum og velunnurum liðsins færi á að sjá bílinn með eigin augum. Formúla 1 31. janúar 2008 09:56
Stöðugar framfarir markmið Honda Honda liðið frumsýndi keppnisbíl sinn í höfuðstöðvum liðsins í Bretlandi í hádeginu. Ross Brawn, nýr framkvæmdastjóri liðsins fór fyrir sínum mönnum, en ökumenn liðsins verða Jenson Button og Rubens Barrichello. Formúla 1 29. janúar 2008 12:41
McLaren ökumönnum ekki mismunað Þrátt fyrir mikla orrahríð í fyrra á milli Lewis Hamilton og Fernando Alonso, þá munu Hamilton og Heikki Kovalainen vera jafn réttháir innan McLaren liðsins á þessu ári. Formúla 1 28. janúar 2008 14:21
Hamilton baunar á Alonso Lewis Hamilton sendi fyrrum félaga sínum Fernando Alonso hjá McLaren litla pillu í viðtali í dag þegar hann var spurður út í samband sitt við Spánverjann. Formúla 1 24. janúar 2008 19:13
BMW í vanda Það hefur sýnt sig að BMW liðið hefur ekki verið á því flugi sem liðið ætlaði eftir að hafa frumsýnt bíla sína. Liðsmenn BMW voru ekki meðal fremstu manna á Valencia brautinni í dag, þar sem Finnarnir Kimi Raikkönen á Ferrari og Heikki Kovalainen á McLaren voru fljótastir og nýliðinn Kazuki Nakajima á Williams þriðji. Formúla 1 24. janúar 2008 18:10
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti