Gagnrýni

Gagnrýni

Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.

Fréttamynd

Djúsí strengir

Sinfóníutónleikar á fimmtudagskvöldið voru með þeim skemmtilegustu á árinu. Frábær fiðluleikur og frábær hljómsveitarstjórn.

Gagnrýni
Fréttamynd

Helstirnið Enron

Á fimmtudagskvöld var ein "heitasta" leiksýning nútímans, Enron eftir Lucy Prebble, frumsýnd í Borgarleikhúsinu. Sagan um Enron, ris þess og fall, er flestum kunn. Hún átti eftir að endurtaka sig hér á Íslandi þegar fjármálakerfið hrundi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Ég trúi ekki á orðin þín

Frábær þáttur, sem ætti að vera áfram í almenningseign, nýtur sín ekki sem skyldi á leiksviði, þrátt fyrir notaleg augnablik inn á milli.

Gagnrýni
Fréttamynd

Varla Hofi hæft

Vel sungin sýning með skemmtilegum gervum en heildarútkoman er rýr og ekki í samræmi við væntingar til atvinnuleikhúss í jafn glæsilegu húsnæði og Hofi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Góðri hugmynd gerð þokkaleg skil

Ágætis mynd sem þó geldur fyrir að taka sig of alvarlega á köflum. Þó vanti upp á herslumuninn til að gera góðri hugmynd fullnægjandi skil er Sumarlandið á heildina ágætis afþreying.

Gagnrýni
Fréttamynd

Að gera bakgarðinn frægan

Ánægjuleg heimild um skemmtilega músíksenu. Vel er unnið úr einfaldri hugmynd. Stemningin er yfir höfuð góð, músíkin líka og Backyard er fínt innlegg í flóru íslenskra tónlistarmynda.

Gagnrýni
Fréttamynd

Hljóðlátt innlegg í baráttuna

Með viljann að vopni er sýning sem kveikir margar tímabærar spurningar um stöðu kvenna, kjörinn vettvangur til umræðu. Trú listakvennanna á kraft listarinnar sem öflugt tæki í samfélagsbaráttunni stendur upp úr.

Gagnrýni
Fréttamynd

Einföld hugmynd, góð plata

Albúm er fimmta plata Orra Harðarsonar og sú fyrsta síðan Trú kom út fyrir fimm árum. Þetta er alvöru sólóplata í þess orðs sterkustu merkingu. Öll lög, textar, söngur, hljóðfæraleikur, hljóðritun og hljóðblöndun eru verk Orra sjálfs. Og öll tónlistin er spiluð á sama kassagítarinn.

Gagnrýni
Fréttamynd

Maðurinn með ljáinn

Flottir tónleikar, Víkingur Heiðar spilaði Liszt af stakri glæsimennsku, en Rakmaninoff var aðeins síðri. Stjórnandinn Ilan Volkov átti víða frábæra spretti.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fjármálaöskuhaugar

16 elskendur spruttu fram á sviðið í Kassanum þó þeir væru bara tíu. Það var kannski fyrsta svindlið. Þjóðleikhúsið hóf leikárið með því að bjóða upp á blandaðan hóp ungra áhugasamra leikara sem sjálfir settu saman hraðnámskeið í að græða á vitleysingum og beita þá brögðum sem þegar eru þekkt meðal svikahrappa.

Gagnrýni
Fréttamynd

Magnað maður, magnað

Þrátt fyrir úreldingu merkimiða verður þessari mynd ekki lýst betur en sem „strákamynd" og slíkar myndir verða tæpast mikið betri en The Expendables. Hún býður upp á allt fyrir okkur sem fílum svona en ekkert fyrir hina. Góða skemmtun!

Gagnrýni
Fréttamynd

Brimsölt hasargella

Hörkufín hasarmynd sem er þeim góða kosti gædd að miðaldra fólk getur haldið þræðinum þótt ekki skorti hamaganginn. Frekar fyrirsjáanleg en það kemur ekki að sök þar sem þetta er bara stuð. Og já, svo er Angelina í henni!

Gagnrýni
Fréttamynd

Frábær Inception

Bíómyndir verða ekki mikið betri en þessi. Gáfuleg háspennumynd með áhugaverðri sögu og stórleik magnaðra leikara í stórum hlutverkum sem smáum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Ósigrandi minnipokamenn

The Losers er hrá, sveitt og á köflum alveg hreint ferlega töff hasarmynd. Gallalaus er hún þó ekki og líður einna helst fyrir lapþunnt handrit, frekar slappa og klisjukennda sögu og leikarahóp sem er vægast sagt misgóður. Myndin rís hins vegar undir göllunum, aðallega vegna þess að hún tekur sig aldrei alvarlega og þykist ekki vera neitt annað en það sem hún nákvæmlega er. Spennumynd með sprengingum, byssubardögum og slagsmálum og þeir sem fara sjálfviljugir á myndir eins og The Losers eru að sækjast eftir einmitt þessu án þess að hafa of miklar áhyggjur af umgjörðinni eða vitrænni framvindu sögunnar.

Lífið
Fréttamynd

Sallafín sumarfroða

Fagmannlega unnin, vel leikin, skemmtileg og innihaldslaus sumarfroða. Hlutverk Gísla Arnar reynir ekki á leikhæfileika hans en er rós í hnappagatið.

Gagnrýni
Fréttamynd

Bedroom Community: fimm stjörnur

Valgeir Sigurðsson, Ben Frost, Nico Muhly og Sam Amidon rugluðu saman reitum sínum á áhrifamikinn og eftirminnilegan hátt í Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöldið.

Lífið
Fréttamynd

Vanir menn á villigötum

Cop Out er stefnulaus og þvæld grínspennumynd sem er ekkert sérstaklega fyndin og nær ekki upp neinni raunverulegri spennu.

Gagnrýni
Fréttamynd

Þjónn! Meira salt, takk

Á Congratulations hefur hljómsveitin ekki aðeins skipt um gír, drif og jahh, bíl - heldur er hún farin að keyra aftur á bak, en ekki áfram og beygja til vinstri en ekki hægri.

Gagnrýni
Fréttamynd

Járnkallinn þvottekta sumarmynd

Ellefu ára sonur Þórarins Þórarinssonar gagnrýnanda lagði hart að honum að koma því á framfæri að Iron Man 2 sé „æðisleg, frábær og miklu betri en fyrsta myndin“.

Gagnrýni
Fréttamynd

Hver þolir dagsljósið?

Elísabet Brekkan gagnrýnandi var hrifin af Glerlaufunum og segir þau klassíska, litla vel sagða sögu í leikmynd sem hentaði innihaldinu.

Gagnrýni
Fréttamynd

Já, Dorrit

Ótrúlega góð hugmynd, en ekki eins gott leikrit, segir Elísabet Brekkan um verkið Nei, Dorrit!

Gagnrýni
Fréttamynd

Aðalgæinn Berlusconi

Kostuleg og að mörgu leyti áhugaverð heimildarmynd þar sem reynt er að útskýra hvað fær Ítali til að kjósa Berlusconi aftur og aftur. Óskýr fókus truflar en breytir því ekki að efniviðurinn er bæði dásamlegur og sorglegur.

Gagnrýni