Fjöldi gervihnatta á braut um jörðu talinn ósjálfbær Umgengni manna í geimnum næst jörðinni er ekki sjálfbær til lengri tíma litið, að mati evrópskra sérfræðinga í geimrusli. Aldrei hefur fleiri gervihnöttum verið skotið út í geim en í fyrra. Hnettirnir safnast upp á braut um jörðu þar sem óvirkir hnettir eru ekki teknir úr umferð. Erlent 15. ágúst 2023 07:01
Hélt fram áratuga yfirhylmingu á fljúgandi furðuhlutum á þinginu Fyrrverandi starfsmaður hjá leyniþjónustu bandaríska flughersins hélt því fram á þinginu í gær að Bandaríkin hefðu haldið leyndu áratugalöngu verkefni sem snerist um að hafa upp á fljúgandi furðuhlutum til að endurgera þá. Pentagon segir ekkert renna stoðum undir yfirlýsingar mannsins. Erlent 27. júlí 2023 08:54
Skutu geimfari af stað til tunglsins í þriðja sinn Starfsmenn Geimvísindastofnunar Indlands (Isro) skutu í morgun geimfari af stað til tunglsins. Farið nefnist Chandrayaan en þetta er í þriðja sinn Indverjar skjóta tunglfari út í geim en þeir vilja verða fyrstir til að lenda fari á suðurpól tunglsins. Erlent 14. júlí 2023 15:03
Kína ætlar að koma fólki á tunglið Kínversk yfirvöld opinberuðu í dag áform sín um mannaða ferð til tunglsins. Gert er ráð fyrir að koma fólki á tunglið fyrir árið 2030. Erlent 13. júlí 2023 17:00
Evklíð ætlað að afhjúpa hulduöfl alheimsins Nýr evrópskur geimsjónauki sem verður skotið á loft í dag á að hjálpa vísindamönnum að skilja dulin og leyndardómsfull öfl sem halda vetrabrautum saman og valda sívaxandi útþenslu alheimsins. Athuganir hans gætu varpað ljósi á ýmsar brýnustu spurningar heimsfræðinnar. Erlent 1. júlí 2023 13:00
Heyrðu öldunið þyngdarbylgna sem ganga um alheiminn Alheimurinn er fullur af þyngdarbylgjum sem ganga um tímarúmið samkvæmt niðurstöðum fimmtán ára langrar og byltingarkenndrar rannsóknar alþjóðlegs hóps vísindamanna. Uppgötvunin á þessum þyngdarbylgjubakgrunni alheimsins er sögð hjálpa fræðimönnum að skilja hvernig vetrarbrautir myndast og þróast. Erlent 29. júní 2023 09:30
Fann hornstein lífrænnar efnafræði í sólkerfi í fæðingu Kolefnissameind sem er talin hornsteinn lífrænnar efnafræði fannst í fyrsta skipti í fjarlægu sólkerfi sem er verða til með athugunum James Webb-geimsjónaukans. Rannsóknin á frumsólkerfisskífunni er einnig sögð sýna fram á þátt útfjólublárrar geislunar í lífvænleika nýrra sólkerfa. Erlent 27. júní 2023 12:21
Sýna hvernig geimvera skaðar ónæmiskerfið Virkni hvítra blóðfruma sem leika lykilhlutverk í ónæmiskerfi manna minnkaði í geimförum um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Ný rannsókn sýnir í fyrsta skipti hvernig ónæmiskerfi manna veikist í þyngdarleysi í geimnum. Erlent 22. júní 2023 12:24
Náðu mynd af Sveinsdóttur á Merkúríusi Sjaldséð mynd náðist af gígnum Sveinsdóttur þegar gervihnötturinn BepiColombo tók mynd af Merkúríusi í þriðju ferð sinni í kringum plánetuna. Erlent 20. júní 2023 22:03
Enginn alvöru lofthjúpur utan um lofandi fjarreikistjörnur Líkur á að lífvænlegar aðstæður finnist í Trappist-sólkerfinu fara þverrandi eftir að rannsóknir James Webb-geimsjónaukans bentu til þess að þykkan lofthjúp sé ekki að finna á tveimur af sjö bergreikistjörnum þar. Fundur reikistjarnanna vakti athygli á sínum tíma þar sem þær eru nær allar á stærð við Venus. Erlent 20. júní 2023 10:09
Lykilhráefni lífs í neðanjarðarhafi tungls Satúrnusar Ofgnótt af frumefninu fosfór, sem er nauðsynleg byggingareining lífs eins og við þekkjum það, er líklega að finna í neðanjarðarhafi undir ísskorpi Enkeladusar, tungls Satúrnusar. Efnasambönd sem innihalda frumefnið fundust í einum hringja Satúrnusar sem íshverir Enkeladusar fóðra. Erlent 15. júní 2023 20:02
Stærsti „garðúðari“ sólkerfisins við Satúrnus Hátt í tíu þúsund kílómetra langur vatnsstrókur frá Enkeladusi, ístungli Satúrnusar, sést teygja sig um reikistjörnukerfið eins og gusa úr garðúðara á nýlegum myndum James Webb-sjónaukans. Aldrei áður hefur slíkur strókur sést spanna svo miklar vegalengdir. Erlent 1. júní 2023 15:18
Draumar Branson úti og starfseminni hætt að fullu Virgin Orbit, geimferðafyrirtækið sem breski auðkýfingurinn Richard Branson stofnaði árið 2017, er hætt starfsemi. Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er því ferli nú lokið. Viðskipti erlent 24. maí 2023 11:17
Bein útsending: Borgurum aftur skotið til geimstöðvarinnar Starfsmenn SpaceX og Axiom SpaceX ætla sér að skjóta óbreyttum borgurum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Þetta er annað geimskot fyrirtækjanna af þessu tagi en gangi það ekki eftir í kvöld eða annað kvöld, þurfa geimfararnir að bíða þar til í næsta mánuði. Erlent 21. maí 2023 20:31
NASA semur við Bezos um tunglfar Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, hafa samið við fyrirtækið Blue Origin, sem er í eigu auðjöfursins Jeff Bezos, um þróun geimfars sem nota á til að lenda mönnum á tunglinu. Til stendur að nota geimfarið í verkefninu Artemis V, sem á að vera í mannaða tunglending Artemis-áætlunarinnar. Erlent 20. maí 2023 08:01
Sá áður óþekkt smástirnabelti sem óséðar reikistjörnur móta Tvö áður óþekkt smástirnabelti sáust í efnisskífu í kringum nálæga stjörnu þegar James Webb-geimsjónaukinn beindi sínu haukfráa auga að sólkerfinu. Stjörnufræðingar telja næsta víst að óséðar reikistjörnur í fæðingu móti beltin. Erlent 9. maí 2023 23:30
Fengu forsmekk af örlögum jarðar þegar stjarna gleypti í sig gasrisa Hópur stjörnfræðinga náði að fylgjast með því fyrsta skipti þegar stjarna gleypti eina af reikistjörnum sínum. Athuganirnar eru sagðar lærdómsríkar því jarðarinnar og hinna innri reikistjarnanna bíða líklega sömu örlög í fjarlægri framtíð. Erlent 4. maí 2023 16:09
Fundu leifar fyrstu stjarnanna í fjarlægum gasskýjum Þrjú fjarlæg gasský sem stjörnufræðingar fundu eru talin innihalda leifar af fyrstu stjörnunum sem mynduðust í alheiminum. Uppgötvun þeirra hjálpar vísindamönnum að skilja betur eðli fyrstu stjarnanna sem urðu til eftir Miklahvell. Erlent 3. maí 2023 12:18
Fyrsta tunglfarið í einkaeigu brotlenti Forsvarsmenn japanska fyrirtækisins Ispace, sem reyndu að lenda smáu geimfari á tunglinu á þriðjudaginn, segja það líklega hafa brotlent á fjarhlið tunglsins. Geimfarið hafa orðið eldsneytislaust áður en því tókst að lenda. Erlent 27. apríl 2023 15:42
Skrefi nær leyndardómi risasvartholsstróka Skuggi risasvarthols í nágrannavetrarbraut okkar og kröftugur strókur efns sem stafar frá því sjást í fyrsta skipti saman á einni mynd sem alþjóðlegum hópi stjörnufræðinga tókst að ná. Myndin hjálpar vísindamönnum að skilja hvernig svarthol þeyta burtu efni í slíkum strókum. Erlent 26. apríl 2023 15:13
Sprengdu Starship eftir bilun í aðskilnaðarbúnaði Fyrirtækið SpaceX mun reyna aftur í dag að koma stærstu eldflaug sögunnar út í geim. Stefnt er að því að skjóta flauginni klukkan hálf tvö í dag. Erlent 20. apríl 2023 11:09
Bein útsending: Hættu við fyrsta geimskot Starship í dag Starfsmenn geimfyrirtækisins SpaceX stefna að því að skjóta geimfarinu Starship út í geim í fyrsta sinn. Til þess verður Super Heavy, stærsta eldflaug heimsins notuð. Erlent 17. apríl 2023 10:30
Átta ára ferðalag til Júpíters hafið Starfsmenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) gera í dag aðra tilraun til að skjóta geimfarinu JUICE af stað til Júpíters. Þar á geimfarið að kanna reikistjörnuna og þrjú stór ístungl Júpíters, sem heita Ganýmedes, Kallistó og Evrópa. Erlent 14. apríl 2023 11:31
Hætt við geimskot JUICE vegna eldingahættu Starfsmenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) ætla í dag að skjóta geimfarinu JUICE af stað til Júpíters. Þar á geimfarið að kanna reikistjörnuna og þrjú stór ístungl Júpíters, sem heita Ganýmedes, Kallistó og Evrópa. Vegna stærðar JUICE mun ferðalagið þó taka átta ár. Erlent 13. apríl 2023 11:32
Starship gæti flogið í næstu viku Forsvarsmenn geimfyrirtækisins SpaceX stefna á að skjóta geimfarinu Starship á braut um jörðina á næstunni og mögulega strax í næstu viku. Eldflaug sem kallast Super Heavy á að koma geimfarinu út í geim en þegar af geimskotinu verður, mun eldflaugin verða sú stærsta sem notuð hefur verið hér á jörðinni. Erlent 12. apríl 2023 11:45
Virgin Orbit stefndi á geiminn en lenti á hausnum Geimferðarfyrirtækið Virgin Orbit í eigu breska auðkýfingsins Richards Barnason óskaði eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í gær. Eldflaugarskot fyrirtækisins misheppnaðist fyrr á þessu ári og það hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna frekari tilraunir. Viðskipti erlent 4. apríl 2023 12:20
Kynnti áhöfnina sem á að fara aftur til tunglsins Bandaríska geimvísindastofnunin NASA kynnti í gær geimfarana fjóra sem urðu fyrir valinu til að fljúga til tunglsins á næsta ári. Kona og blökkumaður eru í fyrsta skipti á hópi væntanlegra tunglfara. Erlent 4. apríl 2023 08:38
Webb mældi hitastig á innstu reikistjörnu Trappist Hitastigið á dagshlið fjarreikistjörnunnar Trappist-1 b nær um 230 gráðum og gefur það til kynna að ekkert andrúmsloft sé þar að finna. Þetta segja meðlimir alþjóðlegs teymis vísindamanna sem beindu öflugum linsum James Webb geimsjónaukans (JWST) að fjarreikistjörnunni. Erlent 28. mars 2023 10:24
Hyggst leita að tækni frá siðmenningu úr geimnum í Kyrrahafi Eðlisfræðingurinn Avi Loeb, prófessor við Harvard-háskóla, hyggur á leiðangur á Kyrrahafi til að finna mögulegar leifar hlutar frá siðmenningu úr geimnum. Hluturinn hrapaði til jarðar undan ströndum Manus-eyja árið 2014. Erlent 24. mars 2023 11:35
Þrívíddarprentuð eldflaug á loft í fyrsta sinn Starfsmönnum fyrirtækisins Relativity Space tókst loks í nótt að skjóta fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni á loft. Tvær fyrri tilraunir höfðu misheppnast en bilun á efra stigi eldflaugarinnar leiddi til þess að hún komst ekki á braut um jörðu. Erlent 23. mars 2023 14:12