

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Slæmur hringur Birgis sem er í erfiðri stöðu
Birgir Leifur Hafþórsson átti ekki góðan hring á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar í dag og er kominn í nokkuð slæma stöðu þegar mótið er hálfnað.

Þurftu báðir að bíða 1.667 daga eftir sigri
Ótrúleg tilviljun varð í gær þegar Matt Kuchar sigraði á PGA mótaröðinni og Lee Westwood sigraði á Evrópumótaröðinni.

Kuchar stóð uppi sem sigurvegar í Mexíkó
Matt Kuchar stóð upp sem sigurvegari á Mayakoba mótinu í Mexíkó en mótið er hluti af PGA mótaröðinni.

Birgir Leifur enn í vænlegri stöðu
Birgir Leifur Hafþórsson lék á tveimur höggum undir pari á öðrum hring lokaúrtökumóts Evrópumótaraðarinnar í golfi í dag.

Matt Kuchar leiðir með fjórum höggum í Mexíkó
Bandaríkjamaðurinn Matt Kuchar er með fjögurra högga forystu eftir þrjá hringi á Mayakoba golfmótinu en mótið er hluti af PGA mótaröðinni í golfi.

Fjórir fuglar á fimm holum í frábærri byrjun Birgis
Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði vel á fyrsta hring lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Guðrún Brá í toppsætinu á LET-móti í Barcelona
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2018, er að gera góða hluti á lokamóti LET Access mótaraðarinnar í golfi. Mótaröðin er næststerkasta atvinnumótaröðin í Evrópu hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki.

Tiger Woods sagði nei takk við 400 milljóna tilboði frá Sádum
Kylfingurinn Tiger Woods átti möguleika að fá um 2,5 milljónir punda fyrir að taka þátt í móti í Sádí Arabíu á næsta ári en hafnaði því.

Tiger og Mickelson spiluðu golf pong | Myndband
Stjörnukylfingarnir Tiger Woods og Phil Mickelson eru á fullu þessa dagana að auglýsa einvígi sitt sem fer fram í Las Vegas síðar í mánuðinum.

Mamman svindlaði og dóttirin var dæmd úr leik
Það er oftast mjög gott að fá hjálp frá móður sinni en ekki alltaf. "Hjálpsöm“ móðir í úrtökumóti LPGA-mótaraðarinnar í golfi gekk aðeins of langt.

Tiger upp fyrir Spieth á heimslistanum
Tiger Woods heldur áfram að klifra upp heimslistann í golfi og hann er nú kominn upp fyrir Jordan Spieth í fyrsta skipti í fjögur ár.

Birgir Leifur áfram á lokaúrtökumótið
Birgir Leifur Hafþórsson mun spila á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann spilaði frábærlega á öðru stigi úrtökumótanna um helgina.

Leikgleðin fór með þreytunni
Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir segist sjá eftir því að hafa ekki haldið sig betur við skipulagið og tekið sér hvíldardaga á tímabilinu. Hún finnur fyrir ofþreytu í dag og segist vera fegin að vera komin í frí.

Guðrún Brá áfram │Birgir og Haraldur á fjórum höggum undir pari
Birgir Leifur Hafþórsson stefnir hraðbyr á Evrópumótaröðina í golfi eftir annan frábæran hring á öðru stigi úrtökumótanna í dag.

Lokahringurinn sá versti hjá Ólafíu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður ekki með þátttökurétt á LPGA mótaröðinni, sterkustu mótaröð heims, á næsta ári eftir að hafa ekki náð sér á strik á lokaúrtökumóti mótaraðarinnar.

Birgir Leifur og Guðrún standa vel að vígi
Birgir Leifur Hafþórsson er í góðum málum eftir tvo hringi á öðru stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék annan hringinn í dag á tveimur höggum undir pari.

Ólafía spilaði hring sjö á pari
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, spilaði sjöunda hringinn af átta á síðasta úrtökumótinu fyrir LPGA mótaröðina á parinu.

Ólafía náði ekki að laga stöðuna sem er svört
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, náði ekki að laga stöðu sína á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA mótaröðina.

Ólafía færist fjær LPGA mótaröðinni
Möguleikar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur á að halda korti sínu á LPGA mótaröðinni fara dvínandi. Ólafía er langt frá því að tryggja áframhaldandi veru í gegnum lokaúrtökumótið.

Ólafía aftur í vandræðum
Aftur náði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sér ekki á strik er hún lék á Q-School mótaröðinni en leikið er á Pinehurst vellinum í Bandaríkjunum.

Ekki góð byrjun hjá Ólafíu
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði á fjórum höggum yfir pari á Q-School mótaröðinni en spilað var á Pinehurst vellinum í Bandaríkjunum.

Koepka efstur á heimslistanum í fyrsta sinn
Bandaríkjamaðurinn Brooks Koepka komst í dag í efsta sætið á heimslistanum í golfi í fyrsta sinn á ferlinum.

Valdís Þóra reynir við LPGA- mótaröðina
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, hefur leik á öðru stigi úrtökumótsins fyrir LPGA-mótaröðina í Flórída í Bandaríkjunum í dag.

Snedeker leiðir enn á fyrsta PGA mótinu
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Brandt Snedeker vinni Safeway Open en þetta er fyrsta PGA mótið á nýju tímabili.

Snedeker leiðir á fyrsta mótinu á PGA-mótaröðinni
Brandt Snedeker er með þriggja högga forystu á Safeway Open en þetta er fyrsta mótið á nýju tímabili á PGA-mótaröðinni.

Missti sjónina í Ryder-bikarnum: „Ég hefði getað dáið“
Corine Remande fær líklega ekki aftur sjón á hægra augað eftir að bolti fór í andlit hennar í París.

Reed segir að Spieth hafi ekki viljað spila með sér
Hinn óvinsæli kylfingur, Patrick Reed, er búinn að gera allt brjálað í herbúðum bandaríska Ryder Cup-liðsins. Hann ákvað að opna sig eftir flenginguna sem Bandaríkjamenn fengu á Le Golf National.

Tímamótaáfangi hjá Arnari Grant
Einkaþjálfarinn Arnar Grant gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á golfvelli á Spáni.

Slæmt högg Koepka í Ryder-bikarnum blindaði áhorfanda á öðru auga
Kona sem ferðaðist frá Egyptalandi til að sjá bestu kylfinga heims spila sér nú aðeins með öðru auganum.

Einstök evrópsk stemning allt WhatsApp og leyndu húðflúri að þakka
Evrópa pakkaði Bandaríkjunum saman í Ryder-bikarnum.