Myndasyrpa: Stuð í síðasta teitinu í Gautaborg Ísland spilar sinn síðasta leik á HM á eftir er strákarnir okkar mæta Brasilíu. Þeir munu fá góðan stuðning úr stúkunni. Handbolti 22. janúar 2023 15:42
Þetta er það sem þarf að ganga upp svo Ísland komist í átta liða úrslit Eftir tap íslenska karlalandsliðsins gegn Svíum síðastliðinn föstudag er draumur liðsins um sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins nánast úr sögunni. Þó er enn vonarglæta og hér fyrir neðan verður farið yfir það sem þarf að ganga upp svo liðið komist áfram. Handbolti 22. janúar 2023 12:28
„Stundum gott að hætta að hugsa um handbolta“ „Það er virkilega þung stemning og menn gríðarlega svekktir,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson á liðshóteli Íslands í gær en þá voru drengirnir að sleikja sárin eftir tapið gegn Svíum. Handbolti 22. janúar 2023 12:01
HM í dag: Síðasti dansinn í Gautaborg Lokadagur milliriðilsins í Gautaborg fer fram í dag og líkurnar á áframhaldandi þátttöku strákanna okkar á mótinu eru litlar sem engar. Handbolti 22. janúar 2023 11:00
„Vonbrigði að komast ekki lengra en þetta“ „Það var bara mjög gaman að koma inn í liðið og gott að fá sénsinn og traustið og mér fannst ég standa mig ágætlega,“ segir Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður landsliðsins í handbolta, í viðtali við Vísi og Stöð 2 á hóteli landsliðsins í Gautaborg í gær. Sport 22. janúar 2023 10:00
„Ég hef ekki upplifað svona stemningu áður“ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var boginn en ekki brotinn eftir tapið sára gegn Svíum. Handbolti 22. janúar 2023 09:01
Þýskaland í átta liða úrslit Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu í handbolta eru komnir í 8-liða úrslit á HM í handbolta. Danmörk er hársbreidd frá sæti í 8-liða úrslitum en Danir unnu þægilegan sigur á Bandaríkjunum í kvöld. Handbolti 21. janúar 2023 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Stjarnan 25-31 | Gestirnir unnu grannaslaginn á Ásvöllum Eftir að hafa náð í aðeins eitt stig í síðustu tveimur leikjum vann Stjarnan góðan sigur á nágrönnum sínum frá Hafnafirði. Lokatölur á Ásvöllum 25-31 og Stjarnan fór með stigin tvö heim í Garðabæ. Handbolti 21. janúar 2023 20:40
Norðmenn örugglega í átta liða úrslit Noregur er komið í 8-liða úrslit HM í handbolta þökk sé mjög svo öruggum sigri á Katar í milliriðli þrjú. Þá vann Króatía þægilegan sigur á Belgíu í milliriðli fjögur. Handbolti 21. janúar 2023 19:32
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KA/Þór 30-24 | Íslandsmeistararnir stöðvuðu sigurgöngu norðankvenna Fram lagði KA/Þór með sex mörkum 30 - 24 á heimavelli í Olís-deild kvenna í dag. Sigurinn var afar sannfærandi hjá Fram sem hefur ekki tapað í síðustu fimm leikjum og líta út fyrir að vera til alls líklegar eins og staðan er núna. Handbolti 21. janúar 2023 18:45
Ótrúlegur sigur ÍBV í Suðurlandsslagnum Segja má að ferð ÍBV á meginlandið hafi verið til fjár en liðið rúllaði yfir Selfyssinga á þeirra heimavelli í Olís deild kvenna í handbolta í dag, lokatölur 19-40. Handbolti 21. janúar 2023 18:00
Egyptar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum og vonir Arons orðnar að engu Egyptaland tryggði sér sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handbolta eftir fjögurra marka sigur gegn Aroni Kristjánssyni og lærisveinum hans í bareinska landsliðinu í dag, 26-22. Egyptar eru því á leið í hreinan úrslitaleik gegn Dönum um efsta sæti milliriðils fjögur. Handbolti 21. janúar 2023 16:07
Valskonur völtuðu yfir botnliðið Topplið Vals lenti ekki í neinum vandræðum er liðið tók á móti botnliði HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Valskonur tóku forystuna strax í upphafi leiks og unnu að lokum 16 marka sigur, 41-25. Handbolti 21. janúar 2023 14:55
„Er bara eitt stórt spurningamerki“ „Það var ömurleg tilfinning að sitja upp í stúku og horfa á leikinn. Það er ekkert verra að vera ekki í handboltaskónum og búningnum og geta ekki hjálpað liðinu,“ segir Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í viðtali við Vísi og Stöð 2 á hóteli landsliðsins í Gautaborg í dag. Handbolti 21. janúar 2023 14:43
Ómar Ingi tognaði í þríhöfða og gat ekki kastað Ómar Ingi Magnússon gat lítið spilað gegn Svíum í gær vegna meiðsla og hann verður ekki með í leiknum gegn Brasilíu á morgun. Handbolti 21. janúar 2023 14:02
„Mætti halda að þjálfarateymið hafi verið í brandarakeppni á bekknum“ Arnar Daði Arnarsson, stjórnandi Handkastsins, var vægast sagt ósáttur eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Svíum á HM í gær. Tapið þýðir að vonir Íslands um sæti í átta liða úrslitum eru nánast úr sögunni og Arnar vandaði þjálfarateymi liðsins ekki kveðjurnar. Handbolti 21. janúar 2023 13:30
HM í dag: Eigum skilið að fara heim Það var ekki hátt risið á Henry Birgi og Stefáni Árna eftir tapið gegn Svíum í Scandinavium. Handbolti 21. janúar 2023 11:00
Myndasyrpa frá tapinu súra gegn Svíum Vonir íslenska karlalandsliðsins í handbolta um að komast í átta liða úrslit á HM eru nánast orðnar að engu eftir súrt tap liðsins gegn heimamönnum í Svíþjóð í gær. Handbolti 21. janúar 2023 09:31
Skýrsla Henrys: Séra Palicka sá um útför íslenska liðsins Draumur íslenska liðsins á HM varð að martröð í kvöld. Tap gegn Svíum og ballinu í raun lokið í Svíþjóð. Það eru gríðarleg vonbrigði. Svíagrýlan er víst ekki alveg dauð eftir allt saman. Handbolti 20. janúar 2023 23:01
„Ég hef enn sömu trú á liðinu“ Bjarki Már Elísson átti fínan leik fyrir íslenska handboltalandsliðið í kvöld, en það dugði ekki til og liðið mátti þola fimm marka tap gegn Svíum, 35-30. Bjarki var eðlilega sár þegar hann mætti í viðtal að leik loknum. Handbolti 20. janúar 2023 22:39
„Einkennist af því að við erum með ellefu algjör dauðafæri sem við misnotum“ Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var eðlilega súr og svekktur eftir fimm marka tap liðsins gegn Svíum á HM í kvöld. Handbolti 20. janúar 2023 22:13
„Án gríns, þetta er svo leiðinlegt“ „Ég er bara gríðarlega sár. Sár og svekktur og mér finnst við alltaf vera inni í leiknum,“ sagði leikstjórnandinn Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir fimm marka tap Íslands gegn Svíþjóð á HM í kvöld. Handbolti 20. janúar 2023 22:11
Einkunnir strákanna okkar á móti Svíþjóð: Gísli Þorgeir besti maður liðsins Strákarnir okkar fengu erfitt verkefni í kvöld og það þurftu mun fleiri leikmenn að spila betur ef íslenska liðið átti að halda sér á lífi á þessu heimsmeistaramóti. Handbolti 20. janúar 2023 22:05
Biður þjóðina afsökunar „Mér líður illa og ég vill byrja á því að segja sorry við þjóðina,“ segir Elliði Snær Viðarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, sem tapaði fyrir Svíum 35-30 í öðrum leik liðsins í milliriðlinum. Handbolti 20. janúar 2023 21:41
Topparnir í tölfræðinni á móti Svíþjóð: Palicka smjattaði á dauðafærum strákanna Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með fimm marka mun á móti Svíum, 35-30, í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi. Handbolti 20. janúar 2023 21:32
Twitter eftir tapið gegn Svíum: Eigum að vera að gera mikið betur Íslenska karlalandsliðið í handbolta mátti þola fimm marka tap gegn Svíum á HM í handbolta í kvöld. Tapið er dýrt fyrir liðið sem þarf nú að treysta á hagstæð úrslit úr öðrum leikjum til að eiga möguleika á sæti í átta liða úrslitum, en eins og við var að búast fylgdist íslenska þjóðin vel með leiknum og lét skoðanir sínar í ljós á Twitter. Handbolti 20. janúar 2023 21:27
Umfjöllun: Ísland - Svíþjóð 30-35 | Vonin veiktist verulega eftir tap fyrir heimamönnum Von íslenska karlalandsliðsins í handbolta um að komast í átta liða úrslit á HM 2023 er afar veik eftir tap fyrir Svíþjóð, 30-35, í Gautaborg í kvöld. Eins marks munur var á liðunum í hálfleik, 16-17, en Svíar voru umtalsvert sterkari í seinni hálfleik sem þeir unnu, 18-14. Handbolti 20. janúar 2023 21:20
Umfjöllun: Brasilía - Ungverjaland 25-28 | Enginn brasilískur greiði Ungverjaland kom sér í frábæra stöðu til að komast í átta liða úrslit á HM 2023 í handbolta karla með sigri á Brasilíu, 25-28. Handbolti 20. janúar 2023 18:45
Aron Pálmarsson ekki með íslenska liðinu gegn Svíum Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, verður ekki með í leiknum gegn Svíþjóð í milliriðli II á HM í kvöld. Handbolti 20. janúar 2023 18:32
Íslenska gleðin við völd fyrir stærsta leik HM til þessa: Myndir Íslensku stuðningsmennirnir komu saman í Gautaborg í dag fyrir annan leik Íslands í milliriðli sem er á móti Svíum á eftir. Þetta er jafnframt mikilvægasti leikur íslenska liðsins á HM til þessa. Handbolti 20. janúar 2023 17:30