Kjörís gaf nokkur tonn af ís í dag Mörg tonn af ís runnu ofan í þá tuttugu þúsund gesti, sem heimsóttu Kjörís í Hveragerði í dag á Ísdegi fyrirtækisins þar sem allir gátu fengið eins mikið af ókeypis ís eins og þeir vildu. Nokkrir furðulegir ísar voru á boðstólnum, til dæmis laxaís, harðfiskís og sinnepsís. Innlent 17. ágúst 2024 20:04
Harðfisk-, laxa- og beikonís á Ísdeginum í Hveragerði Kjörísdagurinn Stóri var haldinn hátíðlegur í Kjörís í Hveragerði í dag í fimmtánda sinn. Hátíðin er dagskrárliður á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum sem er haldin árlega í Hveragerði. Í tilkynningu frá Kjörís kemur fram að gefnir hafi verið um 200 þúsund skammtar af ís og að áætlað sé að um 22 þúsund manns hafi látið sjá sig á hátíðinni. Lífið 17. ágúst 2024 18:36
Bílaröð ísþyrstra Löng bílaröð hefur myndast á þjóðveginum vestan Hveragerðis. Þangað hafa fjölmargir gert sér ferð á Blómstrandi daga sem fara fram núna um helgina í Hveragerði. Innlent 17. ágúst 2024 14:28
Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Tveir hinseginfánar voru skornir niður í Hveragerði í dag, einn við hjúkrunarheimilið Ás og annar við kirkjuna. Sú sem vakti athygli á þessu vill senda fólkinu á bak við verknaðinn ást og frið. Innlent 10. ágúst 2024 15:37
„Við mætum þessu með því að stækka fánann“ Bæjarráð í Hveragerði ákvað á fundi sínum í morgun að stækka regnbogafánann eftir að unnin voru á honum skemmdarverk í nótt. Starfsfólk bæjarins hefur vinnu við stækkuna í dag. Lögreglu hefur verið tilkynnt um skemmdarverkin. Innlent 8. ágúst 2024 10:56
Regnbogafáninn í Hveragerði útbíaður hatursorðræðu Hvergerðingar komu saman í gær til að mála regnbogafánann á svokallaða Regnbogagötu en ljót sjón blasti við í morgun þar sem búið var að útbía fánann hatursorðræðu. Innlent 8. ágúst 2024 09:04
Verstu skemmdarverk í sögu Lystigarðsins Unnar hafa verið miklar skemmdir á grasflötinni í Lystigarðinum í Hveragerði og hefur málið verið tilkynnt til Lögreglunnar á Suðurlandi. Talið er að óprúttnir aðilar hafi ekið um blautan garðinn á vespum. Innlent 26. júlí 2024 10:09
Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Eitt glæsilegasta gullregn landsins, ef ekki það glæsilegasta er í garði í Hveragerði en það hefur aldrei blómstrað jafn mikið og í sumar. Þá er líka glæsilegur hlynur í garðinum. Innlent 5. júlí 2024 20:04
Viðrar vel til hátíða víðs vegar um helgina Stór ferðahelgi er í vændum á Íslandi og eru margir að undirbúa sig fyrir ferðalag um þessar mundir. Mikið er um að vera víðs vegar á landinu en þar má helst nefna Írska daga á Akranesi, fjölskylduhátíðina Allt í blóma á Hveragerði og Goslokahátíð í Vestmannaeyjum. Veður 5. júlí 2024 15:40
Pétur G. Markan og Margrét selja einbýli við eina fallegustu götu Hafnarfjarðar Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðis og eiginkona hans Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur hafa sett einbýlishús sitt við Austurgötu í Hafnarfirði á sölu. Húsið var byggt árið 1906. Ásett verð er 91,9 milljónir. Lífið 26. júní 2024 11:01
Starfsmennirnir útskrifaðir af sjúkrahúsi en starfsfólk harmi slegið Framkvæmdastjóri endurvinnslufyrirtækisins Pure North segir lukka að ekki varð manntjón þegar eldur kviknaði í starfsstöð fyrirtækisins í nótt. Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir eldsvoðann en eru að hans sögn báðir útskrifaðir. Innlent 21. júní 2024 16:22
Tveir fluttir á sjúkrahús eftir eldsvoða hjá Pure North Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú eldsvoða sem kom upp á starfsstöð endurvinnslufyrirtækisins Pure North í Hveragerði rétt fyrir miðnætti í nótt. Innlent 21. júní 2024 09:51
Alls konar veðrabrigði vel heppnaður Hengill Ultra Hengill Ultra fór fram í Hveragerði um helgina. Aðstæður voru krefjandi en mótið þótti heppnast vel. Sport 9. júní 2024 12:30
Kynfræðingurinn flytur úr Hveragerði Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur hefur sett glæsilegt parhús í Hveragerði á sölu. Um er að ræða 144 fermetra nýlega eign á einni hæð. Ásett verð er 89,8 milljónir. Lífið 3. maí 2024 15:59
Fegurðin og gleðin í myndlistinni Starfsemi Myndlistarfélags Árnessýslu blómstrar nú sem aldrei fyrr því félagsmönnum fjölgar og fjölgar og myndlistarsýningum í takt við það. Nýjasta sýningin, sem heitir "Gróskan” hefur verið opnuð í blómabænum Hveragerði. Lífið 14. apríl 2024 09:30
Ætla að vera aðeins „hógværari“ en Ölfus við gerð bæjarskiltis Til stendur að reisa nokkur skilti við bæjarmörk Hveragerðisbæjar á þessu ári. Í minnisblaði menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar bæjarins er lagt til að vera ögn „hógværari“ en nágrannarnir í Ölfusi við gerð skiltanna. Innlent 10. apríl 2024 13:24
„Fjölskyldan stækkar og heimurinn hlær af hamingju“ Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðis og eiginkona hans Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur eignuðust stúlku í vikunni. Pétur deilir gleðifregnunum í færslu á Facebook. Lífið 9. apríl 2024 09:23
Eldskírn að hitta karlakórinn Pétur G. Markan er að taka við bæjarstjórataumunum í Hveragerði. Það leggst vel í biskupsritarann sem segja má að sé með Guð í farteskinu. Innlent 5. apríl 2024 09:53
Pétur Markan næsti bæjarstjóri Hveragerðis Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar mun leggja það til á aukafundi bæjarstjórnar 2. apríl að Pétur G. Markan verði næsti bæjarstjóri Hveragerðis. Pétur tekur við starfinu af Geir Sveinssyni. Starfslokasamningur hans var samþykktur á fundi bæjarstjórnar síðasta föstudag. Innlent 26. mars 2024 15:54
Fær um tólf milljónir í biðlaun sem skerðast ekki fái hann annað starf Geir Sveinsson fær greiddar um þrettán milljónir í nokkrum greiðslum sem hluta af starfslokasamningi. Greiðslur til Geirs skerðast ekki fái hann aðra vinnu þrátt fyrir bókun sem samþykkt var í bæjarráði um það. Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti starfslokasamning hans í dag. Innlent 22. mars 2024 14:45
Starfslok Geirs staðfest í bæjarstjórn Tillaga að starfslokasamningi Geirs Sveinssonar var samþykkt í bæjarstjórn í morgun. Geir hefur gegn starfi bæjarstjóra síðustu tvö ár og lætur strax af störfum. Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar, verður staðgengill bæjarstjóra þangað til nýr bæjarstjóri verður ráðinn. Innlent 22. mars 2024 10:31
Léttir að komast úr eitruðu umhverfi minnihlutans Geir Sveinsson, fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis, segir ummæli bæjarfulltrúa minnihlutans, Eyþórs H. Ólafssonar, um að hann hafi ekki ráðið við verkefnið „algjörlega í takt við þá kjallarapólitík sem minnihluti D lista hefur stundað á þessu kjörtímabili.“ Geir segir það létti að komast úr því „eitraða umhverfi“ sem minnihluti bæjarstjórnar hefur skapað. Innlent 21. mars 2024 10:59
Að gefnu tilefni vegna ummæla bæjarfulltrúa D-listans í Hveragerði Ummæli bæjarfulltrúa minnihlutans í Hveragerði í fjölmiðlum í gær koma lítið á óvart enda algjörlega í takt við þá kjallarapólitík sem minnihluti D lista hefur stundað á þessu kjörtímabili; að sparka í starfsfólk bæjarins, afvegaleiða alla umræðu, halda ósannindum fram gagnvart bæjarbúum, brjóta trúnað, axla ekki ábyrgð á sínum fyrri kostnaðarsömu mistökum, vinna gegn hagsmunum bæjarbúa og hafa málefnalega nákvæmlega ekkert fram að færa annað en leiðindi. Skoðun 21. mars 2024 10:54
Segir fulltrúa minnihlutans vega illa að Geir Njörður Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Hveragerðis, er ekki par sáttur við orð bæjarfulltrúa minnihlutans í bæjarstjórn um að ljóst væri að Geir Sveinsson hafi ekki ráðið við embætti bæjarstjóra. Innlent 20. mars 2024 12:55
„Ljóst að hann réð ekki við verkefnið“ Eyþór H. Ólafsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hveragerði, segir að ákvörðun meirihluta bæjarstjórar að semja við Geir Sveinsson bæjarstjóra um starfslok hafa komið sér nokkuð á óvart. Þó hafi verið ljóst um nokkurt skeið hvert stefndi. Fulltrúar meirihlutans munu ekki tjá sig um málið fyrr en að loknum bæjarstjórnarfundi á föstudag. Innlent 20. mars 2024 10:37
Geir hættir sem bæjarstjóri Hveragerðis Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar og Geir Sveinsson bæjarstjóri hafa náð samkomulagi um starfslok Geirs. Innlent 20. mars 2024 09:53
Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Hveragerðisbær og Reykjadalsfélagið hafa náð samningi um uppbyggingu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði. Samningurinn felur í sér kaup Reykjadalsfélagsins á byggingarrétti og úthlutun lóða. Neytendur 6. mars 2024 23:10
„Algjör forsendubrestur í viðskiptasambandi okkar við Wok On“ Forsvarsmaður Gróðurhússins í Hveragerði segir að unnið sé að því að slíta viðskiptasambandi við veitingastaðinn Wok On, sem er í mathöll Gróðurhússins. Staðnum var lokað í gær í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Viðskipti innlent 6. mars 2024 11:33
Hávaxnasti maður landsins loksins í almennilegu rúmi Það getur verið æði flókið að vera hávaxnasti maður landsins og get ekki sofið í rúmi án þess að fæturnir standi langt fram úr eins og fréttamaður varð vitni af þegar hann lagðist í rúmið með manninum, sem er tveir metrar og tuttugu sentímetrar á hæð. Lífið 3. mars 2024 20:05
Tók við Kjörís 23 ára eftir að faðir hennar varð bráðkvaddur Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi hitti Sindri Sindrason Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og fékk að kynnast henni betur. Lífið 22. febrúar 2024 13:02