Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. Erlent 13.3.2026 10:44
Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi í nótt drónaárás í norðurhluta Íraks. Nokkrir franskir hermenn særðust og einn yfirmaður lét lífið í árásinni. Hermennirnir hafa verið að þjálfa írakska Kúrda í að berjast gegn vígahópum á svæðinu. Erlent 13.3.2026 08:04
Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. Erlent 12.3.2026 23:29
Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Íranar halda áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael, eftir að Ísraelar hafa gert umfangsmiklar loftárásir í Íran. Eldflaugunum virðist þó fara sífellt fækkandi og Ísraelar segjast hafa tryggt sér yfirráð í háloftunum yfir Íran. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í kvöld að allir íbúar Tehran, höfuðborgar Íran, ættu að flýja en Bandaríkin hafa verið að flytja umtalsverðan herafla til Mið-Austurlanda. Erlent 16. júní 2025 22:57
Fækka í sendiráðinu í Bagdad vegna öryggisógnar Bandaríkjastjórn ætlar að flytja hluta starfsmanna sendiráðsins í Írak úr landi hið snarasta. Allir starfsmenn sem ekki eru taldir nauðsynlegir og fjölskyldur þeirra verða fluttir á brott en þetta mun vera gert af öryggisástæðum. Erlent 12. júní 2025 07:53
Óttast að næstu „ljónsungar“ kalífadæmisins valdi usla Aðstæður í al Hol búðunum í Sýrlandi, þar sem sýrlenskir Kúrdar hafa um árabil haldið eiginkonum og börnum ISIS-liða, hafa versnað til muna að undanförnu. Árásir eru tíðar og ógnin frá Íslamska ríkinu hefur aukist, bæði utan búðanna og innan. Erlent 19. mars 2025 13:01
Feldu næstráðandi leiðtoga Íslamska ríkisins Bandaríkjamenn felldu á dögunum leiðtoga Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi í loftárás. Abdallah Makki Muslih al-Rifai, sem gekk einnig undir nafninu Abu Khadijah var felldur í Anbar-héraði í Írak, auk annars vígamanns, þegar bíll þeirra var sprengdur í loft upp en hann er sagður hafa verið næstráðandi innan hryðjuverkasamtakanna á heimsvísu. Erlent 15. mars 2025 08:50
Morð á kóranbrennumanni gæti tengst erlendu ríki Forsætisráðherra Svíþjóðar segir að mögulegt sé að erlent ríki hafi komið nálægt morði á írökskum flóttamanni sem vakti athygli fyrir að brenna trúarrit múslima á miðvikudag. Fimm menn eru í haldi lögreglu vegna morðsins. Erlent 31. janúar 2025 11:41
Ný lög sögð leyfa giftingar allt að níu ára stúlkna Þing Írak samþykktu í gær frumvarp sem gagnrýnendur segja að geri hjónabönd við börn, niður í níu ára aldur, lögleg. Önnur frumvörp sem samþykkt voru í gær þykja ýta undir spillingu. Erlent 22. janúar 2025 14:31
Sýrlenska þjóðin á krossgötum: Hver er Abu Mohammed al-Jolani? Abu Mohammed al-Jolani er fyrirferðarmikill þessa dagana enda leiddi skyndisókn hans og bandamanna hans í gegnum varnir Aleppo, Hama og Homs í Sýrlandi til falls einræðisstjórnar sem hafði verið við völd í Sýrlandi í meira en hálfa öld. Þykir hann líklegur til að reyna að mynda nýja ríkisstjórn í Sýrlandi en hvort honum takist það og hvernig sú ríkisstjórn mun líta út er erfitt að segja til um. Erlent 9. desember 2024 11:13
Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Harðir bardagar eru sagðir eiga sér stað milli uppreisnar- og vígamanna annars vegar og stjórnarhers Bashars al-Assad, forseta Sýrlands, og annarra sveita honum hliðhollar hinsvegar norður af borginni Hama. Það er ein af stærstu borgum Sýrlands og höfuðborg Hama-héraðs og hafa uppreisnarmennirnir tekið nokkra bæi norður af borginni í dag. Erlent 3. desember 2024 18:31
Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Hundruð meðlima írakskra vopnahópa hafa streymt yfir landamærin til Sýrlands í dag. Þar ætla þeir að aðstoða sveitir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, gegn uppreisnar- og vígamönnum sem tóku stjórn á borginni Aleppo og stórum nærliggjandi svæðum í vikunni. Erlent 2. desember 2024 18:38
Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Klerkastjórn Íran er þegar byrjuð að gera lítið úr árásum Ísrael á landið í nótt. Þær eru sagðar hafa beinst gegn hernaðarskotmörkum í landinu og segja ráðamenn í Íran að skaðinn hafi verið „takmarkaður“. Ísraelar segja árásunum lokið og að þær hafi verið gerðar á loftvarnarkerfi, eldflaugaverksmiðjur og önnur skotmörk. Erlent 26. október 2024 07:29
Gerðu loftárásir á Kúrda í Írak og Sýrlandi Tyrkneski herinn hefur gert loftárásir á meintar stöðva Verkamannaflokks Kúrda í Sýrlandi og Írak eftir að fimm létu lífið í hryðjuverkaárás í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í gær. Ráðamenn segja tugi vígamanna hafa verið fellda. Erlent 24. október 2024 16:40
21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Kona af ættbálki Jasída, sem liðsmenn Ríkis íslam rændu fyrir tíu árum í Írak, þegar konan var aðeins 11 ára gömul, hefur verið bjargað úr prísund sinni á Gasa. Erlent 4. október 2024 06:42
Stærsta aðgerð gegn ISIS í Írak í nokkur ár Bandarískir og írakskir sérsveitarmenn gerðu í síðustu viku áhlaup á nokkra staði í vesturhluta Íraks og felldu þeir minnst fjórtán vígamenn Íslamska ríkisins. Aðgerðin er sögð sú umfangsmesta gegn ISIS í Írak um nokkurra ára skeið en hún var framkvæmd á sama tíma og yfirvöld Bandaríkjanna og Íraks ræða það hvernig binda eigi enda á viðveru bandarískra hermanna í Írak eða draga verulega úr henni. Erlent 4. september 2024 14:24
Rannsaka bandaríska álitsgjafa rússneskrar sjónvarpsstöðvar Umdeildur fyrrverandi vopnaeftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna í Írak er annar tveggja Bandaríkjamanna sem sæta sakamálarannsókn vegna starfa sinna fyrir rússneska ríkissjónvarpsstöð. Rannsóknin er sögð liður í að berjast gegn tilraunum Rússa til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í haust. Erlent 23. ágúst 2024 23:37
Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Umm Hudaifa, ekkja Abu Bakr al-Baghdadi fyrrverandi stjórnanda hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkisins, hefur tjáð sig um hjónaband þeirra, eiginmanninn og gjörðir þeirra í viðtali við BBC. Hudaifa situr nú í fangelsi í Írak á meðan stjórnvöld þar í landi rannsaka meinta glæpi hennar. Erlent 10. júní 2024 14:13
„Trúði því ekki að þetta væri ég“ Karlmaður á flótta sem dvelur í Neyðarskýli Rauða krossins segist ekki hafa trúað eigin augum þegar hann horfði á myndband af sjálfum sér með hróp og köll á þingpöllum Alþingis. Innlent 27. mars 2024 16:08
Ögurstund í máli Julian Assange Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins. Erlent 20. febrúar 2024 11:46
Felldu einn af leiðtogum Kataib Hezbollah í drónaárás Einn af æðstu leiðtogum vígahópsins Kataib Hezbollah var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna í Bagdad í Írak í gær. Hann er sagður hafa komið með beinum hætti að skipulagningu og framkvæmd árása á bandaríska hermenn í Írak, Sýrlandi og Jórdaníu. Erlent 8. febrúar 2024 09:46
Bandaríkin svara fyrir sig með loftárásum í Írak og Sýrlandi Bandaríski herinn hefur hafið loftárásir á herstöðvar tengdar írönskum vígasamtökum í Írak og Sýrlandi. Loftárásirnar eru svar Bandaríkjamanna við drónaárás sem varð þremur bandarískum hermönnum að bana fyrir viku síðan. Erlent 2. febrúar 2024 21:57
Biden segist búinn að ákveða sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist búinn að ákveða sig hvernig brugðist verði við drónaárás í Jórdaníu, þar sem þrír bandarískir hermenn létu lífið og minnst þrjátíu særðust. Forsvarsmenn hópsins sem gerði árásina segjast hættir að gera árásir á Bandaríkjamenn í bili. Erlent 30. janúar 2024 22:31
Skutu drónann ekki niður vegna misskilnings Bandarískir hermenn í herstöðinni Tower 22 í Jórdaníu töldu að dróninn sem banaði þremur hermönnum og særði 34 í gær væri þeirra eigin sem verið væri að fljúga aftur til herstöðvarinnar. Þess vegna hafi hann ekki verið skotinn niður. Erlent 29. janúar 2024 18:57