Innan við tíu prósent farþega ákváðu að fara á sóttkvíarhótelið Aðeins fjórtán af 170 farþegum sem komu með flugi til landsins í dag ákváðu að fara á sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni. Sumir farþeganna vissu ekki hvar þeir ætluðu að vera í sóttkví á meðan aðrir voru bólusettir og hér í þeim tilgangi að sjá eldgosið. Innlent 7. apríl 2021 20:00
Segja áhættuna af AstraZeneca mjög litla Fólk er í mun meiri hættu að fá blóðtappa veikist það af Covid 19 en ef það er bólusett með AstraZeneca bóluefninu samkvæmt ítarlegum rannsóknum bæði evrópsku og bresku lyfjastofnanna sem kynntar voru í dag. Ábatinn af notkun efnisins sé til mikilla muna meiri en áhættan sem fylgi því að veikjast af Covid. Innlent 7. apríl 2021 19:21
Sérreglur fyrir ákveðna hópa erfiðar í framkvæmd Ekki hefur verið skoðað sérstaklega að slaka á sóttvarnareglum fyrir fólk sem hefur verið bólusett gegn kórónuveirunni, að sögn sóttvarnalæknis. Hann telur að sérreglur fyrir bólusetta eða þá sem hafa fengið Covid-19 erfiðar í framkvæmd og eftirliti. Innlent 7. apríl 2021 19:16
Kári vill skikka alla farþega í sóttkví Hópsmit kom upp í vinnuhóp á Suðurlandi í gær og talið er að það megi rekja til einstaklings með mótefni sem smitaðist aftur af veirunni. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að allir sem koma hingað til lands eigi að fara í sóttkví. Innlent 7. apríl 2021 18:40
Kæru sóttvarnalæknis vísað frá Landsrétti Landsréttur vísaði frá kæru sóttvarnalæknis á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um lögmæti skyldudvalar í sóttkvíarhóteli. Sóttvarnalækni var talinn skorta lögvarða hagsmuni í málinu og tók Landsréttur ekki efnislega afstöðu til lögmætis skyldudvalarinnar. Innlent 7. apríl 2021 18:02
Engar breytingar á notkun bóluefnis AstraZeneca hér á landi Ekki verða gerðar breytingar á notkun AstraZeneca bóluefnisins hérlendis í kjölfar þess að Evrópska lyfjastofnunin (EMA) gaf út að möguleg tengsl væru milli sjaldgæfra tilfella blóðtappa og bólusetningar með efninu. Innlent 7. apríl 2021 16:46
Hinir smituðu starfsmenn í ferðaþjónustu Fimm starfsmenn á vinnustað tengdum ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi smituðust af Covid-19 eftir að smitaður einstaklingur kom í heimsókn til þeirra í vikunni. Að sögn Þorbjargar Gísladóttur, sveitarstjóra í Mýrdalshreppi, er ekki talið að smitin hafi nálgast þéttbýli í Vík í Mýrdal. Innlent 7. apríl 2021 16:44
Einhverjir mættu fyrr í von um að fá Pfizer en ekki AstraZeneca Spurst hafði að í dag sé verið að bólusetja með Pfizer og vildu því einhverjir skjóta sér fram fyrir röðina í bólusetninguna. Innlent 7. apríl 2021 15:05
Blóðtappar skulu skráðir sem „afar sjaldgæf aukaverkun“ af AstraZeneca Evrópska lyfjastofnunin (EMA) telur að möguleg tengsl séu á milli sjaldgæfra tilfella blóðtappa og bólusetningar með bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Slíkir blóðtappar skuli nú skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun af efninu. Ávinningur af notkun efnisins vegi þó áfram þyngra en áhættan af aukaverkunum þess. Erlent 7. apríl 2021 14:03
Fullbólusettur Ingvi Hrafn vill komast í sund núna Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara segir það góða hugmynd að hleypa gráa hernum í sund en á því er þó einn hængur. Innlent 7. apríl 2021 13:49
Sportið í dag: „ÍSÍ kemur sínum skilaboðum aldrei á framfæri“ Strákarnir í Sportinu í dag furða sig á þögn ÍSÍ í tengslum við æfinga- og keppnisbann í íslenskum íþróttum vegna kórónuveirunnar. Sport 7. apríl 2021 13:30
Bæjarar skrifa undir samning við Spútnik V Yfirvöld í Bæjaralandi tilkynntu í morgun að skrifað hafi verið undir skilyrtan samning við framleiðendur rússneska bóluefnisins Spútnik V. Erlent 7. apríl 2021 12:48
Slæmt ef pólitískur ágreiningur ríkir um nauðsynlegar aðgerðir Mál sóttvarnarhótela er nú meðferðar í Landsrétti og von er á niðurstöðu í fyrsta lagi síðdegis í dag. Óeining er um næstu skref innan þingsins en þingmaður Viðreisnar segir skorta upplýsingar um nauðsyn aðgerðanna. Innlent 7. apríl 2021 12:24
Gætu tengst ferðalang sem mögulega smitaðist aftur á Íslandi Hópur á Suðurlandi greindist með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær. Smitin tengjast hugsanlega landamærasmiti, þar sem mögulegt er að einstaklingur með mótefni hafi smitast aftur af veirunni eftir komuna hingað til lands. Innlent 7. apríl 2021 11:35
Smitunum hjá liði Söru fjölgar enn Allur leikmannahópur Evrópumeistara Lyon er kominn í einangrun vegna fjölda kórónuveirusmita í herbúðum liðsins. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með Lyon. Fótbolti 7. apríl 2021 11:16
„Við þurfum að sýna ríkisstjórninni að við erum komin með nóg“ Rapparinn Herra Hnetusmjör hefur undanfarið gengið fram fyrir skjöldu á Instagram sem talsmaður þess að loka landinu til þess að varna kórónuveirunni vegar inn í landið. Hann var harðorður í garð stjórnvalda í gær. Innlent 7. apríl 2021 11:07
Ellefu greindust innanlands og sex utan sóttkvíar Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. Innlent 7. apríl 2021 10:58
Vonar að 13. október verði búið að aflétta öllu Kári Stefánsson segist mjög bjartsýnn á að búið verði að aflétta öllum Covid-aðgerðum næsta haust. Lífið 7. apríl 2021 10:01
Vilja nýja lagasetningu strax Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Alþingi komi saman án tafar til þess að ráðast í lagasetningu sem rennir stoðum undir nauðsynlegar sóttvarnir á landamærunum. Það felur í sér að kalla þarf þingmenn heim úr páskafríi. Innlent 7. apríl 2021 10:00
Stöðva tímabundið bóluefnarannsóknir á börnum Vísindamenn AstraZeneca og Oxford-háskóla hafa stöðvað tímabundið bólusetningar barna með bóluefni sínu gegn Covid-19. Ákveðið hefur verið að bíða á meðan breska lyfjastofnunin (MHRA) rannsakar tengsl bóluefnsisins við sjaldgæfa blóðtappa. Erlent 7. apríl 2021 07:56
Líkja faraldrinum í Brasilíu við „líffræðilegt Fukushima“ Útlit er nú fyrir að Brasilía gæti tekið fram úr Bandaríkjunum sem það ríki þar sem flestir hafa látið lífið í kórónuveirufaraldrinum. Brasilískur læknir líkir ástandinu í heimalandi sínu við kjarnaofn sem bræðir úr sér. Erlent 6. apríl 2021 23:49
Búast við að súrálsskipið sigli um eða eftir helgi Átján skipverjar sem eru enn um borð í súrálsskipi á Reyðafirði þar sem kórónuveirusmit komu upp fóru í sýnatöku í dag og er niðurstaðna sagt að vænta í kvöld eða í fyrramálið. Búist er við því að skipið geti látið úr höfn um eða eftir helgi komi ekkert upp á. Innlent 6. apríl 2021 23:23
Ekki á því að loka landamærunum Forsætisráðherra segist ekki hafa sannfæringu fyrir því að loka landamærunum þar til tekist hefur að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar. Breyta þurfi reglugerð um sóttkvíarhótel svo að hún standist lög. Innlent 6. apríl 2021 22:49
Gnabry greindist með veiruna og missir af leiknum gegn PSG annað kvöld Evrópumeistarar Bayern München hafa orðið fyrir öðru áfalli fyrir fyrri leik liðsins gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 6. apríl 2021 22:31
Virkir í athugasemdum misstu stjórnina við frétt Evu Bjarkar Í Brennslunni í morgun var mikið rætt um ummæli virkra í athugasemdum við umtalað viðtal við íþróttafréttakonuna Evu Björk Benediktsdóttur. Í viðtalinu lýsir Eva Björk upplifun sinni af dvöl á sóttvarnarhótelinu við Þórunnartún. Lífið 6. apríl 2021 21:00
Will.i.am hannaði grímur með innbyggðum heyrnatólum Will.i.am setur eigin sóttvarnargrímur á markað á fimmtudag. Xupermask eru ekki þessar hefðbundnu andlitsgrímur, heldur innihalda þær heyrnatól og hljóðnema. Tíska og hönnun 6. apríl 2021 20:01
Afnám harðra sóttvarnaaðgerða gæti dregist á langinn Sóttvarnalæknir segir að harðar sóttvarnaaðgerðir innanlands gætu varað lengur ef ekki verði hægt að skylda alla til að dvelja á sóttvarnahóteli milli tveggja skimana eftir komuna til landsins. Innlent 6. apríl 2021 19:20
Á annað hundrað manns yfirgefa sóttkvíarhótelið Um 120 manns sem hafa fengið niðurstöður úr seinni sýnatöku yfirgefa sóttkvíarhótelið í Reykjavík í dag og í kvöld. Manneskja sem fór í skimun vegna einkenna sem komu fram á hótelinu greindist með kórónuveirusmit en fékk að fara heim til sín í einangrun. Innlent 6. apríl 2021 19:04
Þurfum að ná sömu markmiðum með öðrum hætti ef niðurstaðan verður staðfest Heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms um sóttkvíarhótel vera vonbrigði en næstu skref verða ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. Þingmaður Pírata í velferðarnefnd segir málið risa stórt klúður og ætlar ekki að samþykkja lagabreytingar sem gætu skotið stoðum undir fyrirkomulagið. Innlent 6. apríl 2021 18:36
Tugir þúsunda bóluefnaskammta væntanlegir Von er á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá fjórum framleiðendum til landsins í þessum mánuði. Mánaðarleg afhending á bóluefni eykst um 160% í þessum mánuði borið saman við fyrstu þrjá mánuði ársins. Innlent 6. apríl 2021 17:25