Tugir einstaklinga smitaðir af Covid-19 eftir „swing“-ráðstefnu í New Orleans 41 einstaklingur hefur greinst með Covid-19 eftir að hafa sótt svokallaða „swing“-ráðstefnu í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum. Yfirvöld segja ráðstefnuna hafa verið viðburð sem stuðlaði að „ofurdreifingu“ kórónuveirunnar sem veldur Covid-19. Erlent 3. desember 2020 10:33
Svona var 143. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 3. desember 2020 10:09
Frumvarp um greiðslur til íþróttafélaga komið inn á Alþingi Stjórnvöld á Íslandi ætla með nýju frumvarpi inn á Alþingi að koma til móts við hið mikla rekstraráfall sem íþróttahreyfingin hefur orðið fyrir á árinu vegna kórónuveirufaraldursins. Sport 3. desember 2020 09:15
„Það opnast alltaf einhverjar nýjar dyr“ „Það er bara allt að verða klárt“ segir söngkonan Sigga Beinteins, sem undirbýr nú jólatónleikana sína. Viðburðurinn verður með óhefðbundnu sniði í ár, en vegna heimsfaraldursins verða engir áhorfendur í Hörpu og geta Íslendingar horft á tónleikana í sjónvarpi sínu eða í gegnum streymi á föstudagskvöldið. Lífið 3. desember 2020 08:00
Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo. Viðskipti innlent 3. desember 2020 07:36
Forstjóri CDC spáir erfiðasta vetrinum í lýðheilsusögu Bandaríkjanna Robert Redfield, forstjóri bandarísku sóttvarnastofnunarinnar (CDC), varar við því að veturinn gæti orðið sá erfiðasti í lýðheilsusögu Bandaríkjanna. Spáir hann því að dauðsföll vestanhafs af völdum Covid-19 gætu náð 450 þúsundum í febrúar. Erlent 3. desember 2020 06:16
Obama treystir Fauci og segist myndu láta sjónvarpa bólusetningu sinni Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, segist hiklaust munu láta bólusetja sig ef Anthony Fauci, æðsti sóttvarnasérfræðingurinn vestanhafs, segir það óhætt. Erlent 2. desember 2020 23:33
„Mínar björtustu vonir hafa ræst“ Prófessor í ónæmisfræði vonar að hægt verði að klára að bólusetja fyrstu sex forgangshópa fyrir kórónuveirunni hér á landi í lok febrúar. Hann kveðst himinlifandi yfir fréttum dagsins frá Bretlandi og segir þróun bóluefnis hafa verið í takt við sínar björtustu vonir. Innlent 2. desember 2020 22:02
Menn ekki á eitt sáttir um ákvörðun og meint afrek Breta Bretar þurfa ekki lengur að vona að daglegt líf verði eins og áður var í vor; núna geta þeir verið þess fullvissir. Þetta segir forsætisráðherrann Boris Johnson en bresk heilbrigðisyfirvöld stefna á að hefja bólusetningar í næstu viku. Erlent 2. desember 2020 20:39
Hafa áhyggjur af Ólympíulágmörkum: „Af hverju megum við ekki fara inn?“ Frjálsíþróttafólk, líkt og fleira afreksíþróttafólk, undrar sig á því af hverju það megi ekki æfa í stórum íþróttahöllum. Sport 2. desember 2020 20:10
Raunhæft að vænta bóluefnis fyrir alla þjóðina í janúar Forstjóri Lyfjastofnunar segir raunhæft að hefja bólusetningar við kórónuveirunni hér á landi í janúar. Hún býst við öllu bóluefni fyrir Íslendinga í einu lagi. Innlent 2. desember 2020 19:19
Anna Aurora bakvörður ætlar í mál við íslenska ríkið og fleiri Anna Aurora Waage Óskarsdóttir ætlar að stefna íslenska ríkinu vegna handtöku hennar á Vestfjörðum í apríl þar sem hún var grunuð um að villa á sér heimildir sem bakvörður á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Þá ætlar hún að stefna fjölmiðlum og einstaklingum sömuleiðis. Lögmaður hennar segir mikla vinnu framundan að hreinsa mannorð skjólstæðings síns. Innlent 2. desember 2020 14:57
Býður upp á líkamsræktartíma þrátt fyrir íþróttabann Einkaþjálfari sem selur líkamsræktartíma segist ekki telja þá falla undir skilgreiningu á íþróttastarfi sem er bannað samkvæmt sóttvarnareglum. Embætti landlæknis segir tímana virðast brot á samkomureglum óháð hversu fjölmennir þeir eru. Innlent 2. desember 2020 14:01
Bakvörðurinn á Bergi verður ekki ákærður Kona sem var grunuð um að hafa villt á sér heimildir sem bakvörður á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins verður ekki ákærð. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari við Vísi. Innlent 2. desember 2020 13:05
Áratugurinn sem er að líða sá hlýjasti í sögunni Útlit er fyrir að árið 2020 verði á meðal þriggja hlýjustu ára frá því að mælingar hófust og verður áratugurinn sem nú er að líða sé hlýjasti frá upphafi. Áætlað er að um tíu milljónir manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna veðuröfga og náttúruhamfara á þessu ári. Erlent 2. desember 2020 13:00
Gerir ekki ráð fyrir því að fólk geti valið hvaða bóluefni það muni fá Yfirvöld hér á landi bíða eftir því að bóluefni gegn Covid-19 fái samþykki hjá Lyfjastofnun Evrópu. Innlent 2. desember 2020 12:28
Covid setti alþjóðlegar áskoranir á stera „Ef öll fyrirtæki, bankar, tryggingaraðilar og fjárfestar aðlaga viðskiptamódel sitt að sjálfbærni, þá er hægt að umbreyta hættunni sem steðjar að í mun bjartari framtíðri,“ segir Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. Atvinnulíf 2. desember 2020 12:00
Vill sjá forystu ÍSÍ meira áberandi út á við Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, segir ÍSÍ vinna gott starf en neitar því ekki að myndi vilja sjá fulltrúa sambandsins meira áberandi út á við. Körfubolti 2. desember 2020 12:00
„Vonandi erum við að fara að sjá þetta eitthvað niður á við“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir tölur dagsins yfir fjölda kórónuveirusmita sýni að smituðum fjölgi ekki mjög skarpt upp á við. Það þurfi þó að bíða aðeins og sjá þróunina næstu daga varðandi það hvort smitum fari fækkandi. Innlent 2. desember 2020 11:48
Frestuðu fundinum um áhrif sóttvarnaraðgerða á íþróttastarfið í landinu Guðni Bergsson, formaður KSÍ, var einn þeirra sem átti að ræða áhrif harðra takmarkana á íþróttastarfið í landinu en þær hafa nú staðið yfir í meira en tvo mánuði. Fundinum var frestað samdægurs. Sport 2. desember 2020 11:30
Sextán greindust innanlands Sextán manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim sem greindust voru ellefu í sóttkví, eða um 69 prósent. Innlent 2. desember 2020 10:51
Bretar heimila notkun Pfizer bóluefnisins fyrstir þjóða Bresk stjórnvöld hafa heimilað notkun á bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni og eru Bretar fyrstir þjóða til að stíga það skref. Erlent 2. desember 2020 07:22
Óboðni gesturinn sem neitar að fara Árið 2020 er senn á enda. Því verður seint lýst sem venjulegu ári enda hefur samkomubann verið í gildi meirihlutann af árinu og daglegt líf allt öðruvísi en fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það birti þó aðeins til í sumar en það var skammgóður vermir og má líkja veirunni við óboðinn gest sem neitar að fara. Innlent 2. desember 2020 07:01
Starfsmenn og íbúar dvalarheimila fremstir í forgangsröðinni Ráðgefandi nefnd við bandarísku sóttvarnastofnunina (CDC) hefur gefið út hvaða forgangsröðun hún vill viðhafa þegar bólusetningar við Covid-19 hefjast vestanhafs. Erlent 2. desember 2020 06:16
Ósanngjarnt að fá aðeins að taka á móti 10 manns í 3000 fm húsnæði Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima, segir að það hafi verið erfitt að fá þær fréttir að tíu manna fjöldatakmarkanir verði áfram í gildi, þó þær hafi vissulega verið viðbúnar. Ósanngjarnt sé að mega ekki taka á móti fleirum en tíu í einu í þessu gríðarstóra húsnæði en að gert sé það besta úr hlutunum með hólfaskiptingum. Viðskipti innlent 1. desember 2020 20:01
Segir að eitthvað þurfi að láta undan: „Erum sett undir sama hatt og skokkhópar“ Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að hljóðið í hreyfingunni sé ekki gott eftir tíðindi dagsins en þar var tilkynnt að æfinga- og keppnisleyfi verður áfram við lýði hér á Íslandi. Handbolti 1. desember 2020 19:01
Vísuðu 2.500 manns frá eftir að ákvörðun ráðherra lá fyrir Veitingamenn höfðu margir gert sér vonir um að geta tekið fleiri viðskiptavini inn á staði sína í aðdraganda jólanna. Eftir að heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína fyrr í dag að svo verður ekki er ljóst að áhrifin á rekstur þeirra verða talsverð. Viðskipti innlent 1. desember 2020 18:22
Þingmaður gripinn í orgíu sem haldin var á svig við sóttvarnalög József Szájer, Evrópuþingmaður fyrir ungverska stjórnarflokkinn Fidesz, hefur sagt af sér þingmennsku eftir að hann sótti samkomu í belgísku höfuðborginni Brussel á föstudag. Erlent 1. desember 2020 18:18
Leikskóla lokað og öll í sóttkví eftir að sex starfsmenn smituðust Sex starfsmenn leikskólans Gimli í Njarðvík í Reykjanesbæ hafa greinst með kórónuveiruna. Skólanum var lokað í gær vegna þessa. Allir starfsmenn og börn leikskólans eru nú í sóttkví. Innlent 1. desember 2020 17:20
KKÍ og HSÍ gefa það bæði út að ekki verði spilað meira á árinu 2020 Það verða ekki spilaðir fleiri leikir í Domino´s deildunum í körfubolta eða Olís deildunum í handbolta á árinu 2020 en þær hafa allar legið í dvala síðan í byrjun október. Sport 1. desember 2020 15:08