Héraðsstjóri sagði sprenginguna minna á Hírósíma og Nagasakí Sveitarstjóri Beirút segir atburði dagsins vera þjóðarharmleik og sagði sprenginguna svipa til þeirra í Hirósíma og Nagasakí árið 1945. Erlent 4. ágúst 2020 18:49
Á þriðja þúsund slösuð og spítalar yfirfullir í Beirút Tölur um mannfall eru á reiki eftir gífurlega öfluga sprengingu sem skók Beirút höfuðborg Líbanon nú síðdegis og olli gríðarmiklu tjóni. Við vörum viðkvæma við myndum með þessari frétt. Erlent 4. ágúst 2020 18:30
Að minnsta kosti tíu látnir í Beirút Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir gríðarstóra sprengingu á hafnarsvæði líbönsku höfuðborgarinnar Beirút á fjórða tímanum í dag. Erlent 4. ágúst 2020 17:14
Gríðarstór sprenging í Beirút Gríðarlega stór sprenging átti sér stað í höfn Beirút á fjórða tímanum í dag. Erlent 4. ágúst 2020 15:51
Mótmælin halda áfram í Líbanon Mótmælin beinast að stjórnvöldum í landinu og hvernig þau hafa tekið á efnahagsmálum. Erlent 13. júní 2020 08:51
Sjö ákærðir vegna flótta Ghosn í Tyrklandi Stjórnandi flugfélags, fjórir flugmenn og tveir flugliðar hafa verið ákærðir í tengslum við flótta Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformanns Nissan, frá Japan í desember. Sakborningarnar voru handteknir í janúar en tyrknesk stjórnvöld hafa neitað því að hafa vitað af viðkomu Ghosn í landinu. Erlent 8. maí 2020 15:40
Banna Hezbollah í Þýskalandi Þjóðverjar tilkynntu í morgun að héðan í frá yrðu Hezbollah samtökin bönnuð þar í landi og hafa þau verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Erlent 30. apríl 2020 09:08
Óttast útbreiðslu kórónuveirunnar utan Kína Forstjóri WHO segist hafa sérstakar áhyggjur af smitum utan Kína þar sem engin augljós tengsl séu við Kína eða staðfest smit. Erlent 21. febrúar 2020 18:09
Japanir vísa ásökunum Ghosn á bug Fyrrverandi stjórnarformaður Nissan bar japansk réttarkerfi þungum sökum á blaðamannafundi í Beirút í gær. Dómsmálaráðherra Japans segir þær stoðlausar. Erlent 9. janúar 2020 10:25
Eiginkona Ghosn sökuð um að hafa framið meinsæri í Japan Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Carole Ghosn en talið er að hún sé með eiginmanni sínum sem flúði til Líbanons. Erlent 7. janúar 2020 10:20
Hyggjast herða verklag eftir flótta Ghosn Yfirvöld í Japan hafa gefið það út að þau ætli að herða verklag í innflytjendamálum eftir ótrúlegan flótta Carlos Ghosn. Erlent 5. janúar 2020 18:14
Vill að óafsakanlegur flótti Ghosn verði rannsakaður Dómsmálaráðherra Japan Masako Mori hefur fyrirskipað að rannsókn á flótta Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformann Nissan, frá landinu til Líbanon fari í hönd. Í Japan bíða Ghosn réttarhöld vegna meiriháttar misferlis í starfi. Erlent 5. janúar 2020 11:45
Alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur Ghosn Ekki liggur fyrir hvernig stjórnvöld í Líbanon ætla að bregðast við handtökuskipan Interpol sem þeim hefur borist. Erlent 2. janúar 2020 13:52
Eiginkona Carlos Ghosn segir það lygi að hann hafi flúið land í hljóðfæratösku Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri Renault og Nissan, sem flúði frá Japan til Líbanon rétt fyrir áramót, mun ekki tjá sig neitt opinberlega um flóttann fyrr en í næstu viku. Erlent 2. janúar 2020 10:45
Ghosn flúði frá Japan og til Líbanon Carlos Ghosn, fyrrverandi yfirmaður Nissan og Renault, hefur flúið frá Japan þar sem hann átti fangelsisdóm yfir höfði sér og á hann að hafa óttast að fá ekki sanngjörn réttarhöld. Erlent 30. desember 2019 23:02
Mikil átök milli mótmælenda og öryggissveita í Beirút Öryggissveitir skutu táragasi og gúmmíkúlum að mótmælendum og þurfti að flytja einhverja á sjúkrahús. Erlent 14. desember 2019 23:07
Ekki í fyrsta skipti sem Hariri segir af sér Forsætisráðherra Líbanons tilkynnti um afsögn sína í dag. Mótmæli hafa tröllriðið landinu undanfarnar tvær vikur. Erlent 29. október 2019 19:00
Segir af sér eftir tveggja vikna mótmæli Saad Hariri, forsætisráðherra Líbanons, hefur tilkynnt að hann muni segja af sér embætti og að ríkisstjórn hans muni láta af störfum í von um að lát verði á tveggja vikna mótmælum sem lamað hafa landið. Erlent 29. október 2019 14:25
Kynna umbótatillögur ætluðum að lægja öldurnar í Líbanon Mótmælin hafa nú staðið í fimm daga og hafa margir óskað eftir að boðað verði til allsherjarverkfalls í landinu. Erlent 21. október 2019 13:00
Þúsundir tóku víkingaklappið í mótmælum í Beirút Undanfarnar daga hafa tugir þúsunda íbúa Líbanon mótmælt á götum borga landsins. Um er að ræða einhver umfangsmestu mótmæli landsins í nokkur ár og er verið að mótmæla spillingu, efnahagsástandi landsins og miklu atvinnuleysi, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 19. október 2019 10:45
Hóta að senda eigin landsliðsmenn í fangelsi Rúgbýsamband Líbanon hefur hótað því að henda landsliðsmönnum sínum í fangelsi ef þeir halda úti áætluðum mótmælum. Sport 19. júní 2019 08:00
Hariri segir nýja ríkisstjórn á næsta leiti Forsætisráðherra Líbanons segir að ný ríkisstjórn muni taka við völdum í landinu í næstu viku. Erlent 4. október 2018 23:15
Vísbendingar um spennu milli Assad-liða Flutningur rússneskra hermanna nærri landamærum Sýrlands og Líbanon hefur varpað ljósi á mögulega spennu milli bandamanna Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. Erlent 9. júní 2018 09:45
Sjötíu ár frá stofnun Ísraelsríkis "Hersveitir Araba rjeðust inn í Palestínu í nótt - Gyðingar lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis“ Erlent 14. maí 2018 06:00
Líbanir kjósa þing í fyrsta skipti frá 2009 Kosningar hefðu í raun seinast átt að fara fram aftur árið 2013 en þeim hefur verið seinkað vegna stríðsins í Sýrlandi og pólitísks óstöðugleika heima fyrir. Erlent 6. maí 2018 17:00
Líbanskur leikari hreinsaður af ásökunum um njósnir fyrir Ísraelsmenn Dómari lét handtaka embættismanninn sem fór fyrir rannsókninni. Erlent 13. mars 2018 23:43