Óvíst um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Íslendingnum Engin ný tíðindi eru af rannsókn lögreglu á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Þetta segir Margeir Sveinsson í tilkynningu frá lögreglu. Yfirheyrslur og úrvinnsla gagna haldi áfram en sé mjög tímafrekt. Innlent 1. mars 2021 16:03
Fékk skyldmenni í heimsókn í sóttkvíarbústað Einstaklingur sem var í skimunarsóttkví í sumarbústað í umdæmi lögreglu á Suðurlandi fékk ættingja í heimsókn til sín í sóttkvína, að því er fram kemur í vikuyfirliti lögreglu á Suðurlandi sem birt var í dag. Innlent 1. mars 2021 13:42
Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. Innlent 1. mars 2021 12:04
Færður í fangaklefa eftir bílveltu Klukkan hálftíu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um bílveltu á Þingvallavegi við Mosfellsbæ. Innlent 1. mars 2021 06:28
Lokuðu tveimur veitingahúsum á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði tveimur veitingahúsum í umdæminu í gærkvöldi. Öðru þeirra var lokað vegna útrunnins rekstrarleyfis en hinu vegna brots á sóttvarnalögum. Innlent 28. febrúar 2021 08:16
Fötin tekin og færð á milli skápa í sundi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þjófnað í Árbæ í Reykjavík skömmu fyrir klukkan fimm síðdegis í gær. Sundlaugargestur hafði týnt lykli að skáp sínum í sundklefanum. Innlent 28. febrúar 2021 07:38
Lögregla leiðbeindi starfsfólki veitingastaða um opnunartíma og reglur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í reglubundið eftirlit með veitingahúsum í miðborginni í gærkvöldi og voru nokkrir veitingastaðir sóttir heim. Samkvæmt lögreglu var ástandið nokkuð gott þó skerpa hafi þurft á nokkrum reglum. Innlent 28. febrúar 2021 07:29
Lögreglan á Suðurnesjum á harðaspretti Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni, vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, tók á rás frá lögreglu en var hlaupinn uppi og handtekinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 27. febrúar 2021 09:59
Partígestur ýtti við lögregluþjóni og sparkaði í lögreglubíl Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um partíhávaða frá íbúð í Hlíðahverfinu í Reykjavík klukkan hálf eitt í nótt. Samkvæmt dagbók lögreglu var þar fjöldi ungmenna með múgæsing og fóru fæst þeirra eftir fyrirmælum lögreglu, sem ekki kemur fram hver voru. Innlent 27. febrúar 2021 07:37
Málið umfangsmikið og rannsókn rétt að hefjast Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn segir rannsókn á morðinu í Rauðagerði gríðarlega umfangsmikla og langt í land að hún klárist. Karlmaður á fimmtugsaldri var í morgun úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við málið. Innlent 26. febrúar 2021 21:05
Glæpahópar farnir að nýta sér kunnáttu sérfræðinga Lögregla áætlar að um fimmtán glæpahópar séu starfræktir hérlendis. Hóparnir virðast í auknum mæli nýta sér aðstoð sérfræðinga við afbrot sín. Allir eiga þeir sameiginlegt að hafa einhverja tengingu við fíkniefnaframleiðslu eða -dreifingu. Innlent 26. febrúar 2021 20:04
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að morðinu Karlmaður á fimmtugsaldri var í morgun úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að úrskurðurinn sé á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 26. febrúar 2021 10:13
Handtekinn vegna þjófnaðs úr skartgripaverslun Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær mann eftir að tilkynnt var um þjófnað úr skartgripaverslun í miðborg Reykjavíkur. Innlent 26. febrúar 2021 07:33
Telja fimmtán hópa í skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi Lögregluyfirvöld telja að alls séu fimmtán hópar sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi sem séu starfandi hér á landi. Glæpastarfsemin einskorðist þó ekki við Ísland heldur teygi hún anga sína víðar. Innlent 26. febrúar 2021 06:54
„Hafið við Vestmannaeyjar hefur tekið marga“ Það verður að teljast ólíklegt að líkamsleifar sem komu í troll við Vestmannaeyjar árið 1980 séu Geirfinnur Einarsson. Spurningin er hvar þær eru niðurkomnar og hvers vegna þær hafa ekki verið rannsakaðar. Innlent 26. febrúar 2021 06:16
Virti ekki grímuskyldu og fór áður en lögregla mætti á svæðið Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í verslun í Hlíðahverfi í Reykjavík á fimmta tímanum í dag. Eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglu neitaði viðskiptavinur að virða grímuskyldu. Hann var þó haldinn sína leið þegar lögregla mætti á svæðið. Innlent 25. febrúar 2021 20:36
Hefur boðað Áslaugu á fund vegna samskipta hennar og lögreglustjóra Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fór fram á það við Jón Þór Ólafsson, formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra komi fyrir nefndina sem fyrst til. Innlent 25. febrúar 2021 17:08
Rektor MH: „Auðvitað er manni brugðið að fá svona tölvupóst“ „Auðvitað er manni brugðið að sjá svona tölvupóst,“ segir Steinn Jóhannsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um sprengjuhótunina sem send var á skólann í nótt. Innlent 25. febrúar 2021 10:14
Sprengjuhótanir hjá þremur stofnunum til viðbótar Lögreglu hafa borist fleiri tilkynningar um sprengjuhótanir í morgun og hefur verið gripið til aðgerða vegna þessa hjá þremur öðrum stofnunum, auk Menntaskólans við Hamrahlíð sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Innlent 25. febrúar 2021 09:55
Lögregluaðgerð við MH vegna sprengjuhótunar Sprengjuhótun barst á netfang Menntaskólans við Hamrahlíð í nótt. Skólahald fellur því niður framan af degi. Lögreglan telur sig vita hver stendur að baki hótuninni en sá er staddur erlendis og hefur áður haft í hótunum með þessum hætti. Innlent 25. febrúar 2021 08:31
Beit í fingur lögreglumanns Skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðaróhapp á Kjalarnesi. Að því er segir í dagbók lögreglu ók tjónvaldur af vettvangi en var stöðvaður skömmu síðar á Þingvallavegi. Innlent 25. febrúar 2021 06:54
Fallist á gæsluvarðhald yfir öllum fimm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm karlmönnum í tengslum við rannsóknina á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 24. febrúar 2021 16:49
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm karlmönnum í tengslum við rannsókn sína á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Þegar mest var voru níu í gæsluvarðhaldi en tveimur var sleppt í gær en gerð krafa um farbann. Innlent 24. febrúar 2021 11:49
Ein líkamsárás í miðbænum og önnur í Mosfellsbæ Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um líkamsárásir í nótt. Annars vegar var tilkynnt um líkamsárás miðbænum laust eftir klukkan hálfeitt í nótt. Innlent 24. febrúar 2021 06:16
Bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á lífslokameðferðum Læknir, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á svokölluðum lífslokameðferðum sem hann hafði umsjón með hjá stofnuninni, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hefur fréttastofa einnig heimildir fyrir því að athugasemdir hafi borist á hendur fleiri læknum hjá stofnuninni. Innlent 23. febrúar 2021 20:49
Flestar skammbyssurnar íþrótta- eða atvinnutæki Lögregla verður ekki mikið vör við að skotvopnum sé smyglað til landsins. Þetta sagði Jónas Hafsteinsson, lögreglufulltrúi í leyfadeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 23. febrúar 2021 20:24
Hringdi í lögreglustjórann vegna Ásmundarsalar á aðfangadag Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra ræddi tvisvar við Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag eftir að lögregla tilkynnti fjölmiðlum um sóttvarnabrot í Ásmundarsal, hvar fjármálaráðherra var staddur. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og hefur eftir Áslaugu að hún hafi ekki verið að skipta sér af rannsókn málsins. Innlent 23. febrúar 2021 20:16
Segir lækninn hafa neitað móður hans um meðferð Sonur aldraðrar konu sem þurfti að leita læknisaðstoðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í kjölfar slyss segir að móður sinni hafi hreinlega verið neitað um meðferð af lækni hjá stofnuninni, en sá er grunaður um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum með þeim afleiðingum að minnsta kosti einn sjúklingur er látinn. Innlent 23. febrúar 2021 18:51
Meintur fíkniefnabarón áfram í gæsluvarðhaldi Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri, sem grunaður er um aðild að morðinu í Rauðagerði að kvöldi 13. febrúar, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í áframhaldandi vikulagt gæsluvarðhald. Varðhaldið, sem rennur út 2. mars, er á grundvelli rannsóknarhagsmuna að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 23. febrúar 2021 16:16
Nokkrum sleppt úr haldi vegna Rauðagerðismálsins Lögregla hyggst sleppa nokkrum sakborningum í Rauðagerðismálinu úr haldi í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu. Farið verður fram á farbann yfir mönnunum á meðan rannsókn stendur yfir. Innlent 23. febrúar 2021 12:15