

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Tveir menn féllu 3,5 metra af vinnupalli
Vinnuslys varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær þegar vinnupallur gaf sig og tveir menn féllu á jörðina.

Fær hvorki 650 þúsund krónurnar né iPhone-símann til baka
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum þarf ekki að aflétta haldi af 650 þúsund krónum í reiðufé og iPhone-síma sem lagt var hald á er lögregla handtók mann vegna gruns um að hann hafi ekið undir áhrifum fíkniefna.

Tilkynnt um líkamsárás og hótanir í Breiðholti
Meintur árásarmaður var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Stálu bíl og þóttust vera í fjöruferð
Undanfarin vika hefur verið annasöm hjá lögreglunni á Vestfjörðum en meðal þeirra mála sem komu á borð hennar voru nokkur sem vörðuðu göngufólk sem var komið í ógöngur, umferðarslys og utanvegaakstur.

Tvöfalt fleiri rafskútuóhöpp á borði lögreglu
Fjöldi óhappa sem tengjast rafmagnshlaupahjólum sem komið hafa til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tvöfaldast frá því í fyrra.

Umferðartafir vegna framkvæmda á Vesturlandsvegi
Í dag og á morgun má gera ráð fyrir umferðartöfum vegna malbikunar á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi.

Hótaði að stinga starfsmann verslunar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nótt afskipti af manneskju í annarlegu ástandi sem tilkynnt var um að hefði komið inn í verslun í miðborginni og hótað að stinga starfsmann.

Hafði sent viðvörun á byggingarfulltrúa: „Við höfum enn áhyggjur af hinu húsinu“
Arkitekt sem býr beint á móti húsinu við Bræðraborgarstíg eitt, sem brann fyrir tíu dögum, hefur áhyggjur af húsi við Bræðraborgarstíg númer þrjú sem er skráð á sama eiganda.

Lögreglu gert að hefja aftur rannsókn á meintu kynferðisbroti gegn barnungum systrum
Því er beint til lögreglu að leggja þurfi áherslu á að finna meintan geranda og þær kynferðislegu myndir af þeim sem hann kann að hafa í vörslu sinni

Tíu ára börn þátttakendur í ofbeldi sem tekið er upp á myndskeið og birt á netinu
Myndbönd af ungmennum sem beita önnur ungmenni ofbeldi eru í dreifingu á netinu. Dæmi eru um að 10 ára börn taki þátt í athæfinu. Lögregla lítur málið alvarlegum augum og telur að ofbeldi sé að aukast meðal ungmenna.

Komust naumlega undan grjóthruni í Esjunni
Tvær konur sem voru á göngu í Esjunni forðuðu sér naumlega undan grjóthruni úr klettabeltinu austan við Þverfellshornið. Önnur þeirra hlaut smávægileg meiðsli.

Mikið kvartað undan samkvæmishávaða í nótt
Óvenju margar kvartanir vegna samkvæmishávaða í heimahúsi komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Alls voru átján slík mál bókuð frá því klukkan 17 í gær til 5 í nótt.

Lögreglumaður talinn handleggsbrotinn eftir árás
Talið er að lögreglumaður hafi handleggsbrotnað eftir að ráðist var á hann í miðborginni skömmu fyrir miðnætti.

Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi á skemmtistað
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem reyndist vopnaður hnífi á skemmtistað í miðborginni. Maðurinn reyndi að veitast að öðrum manni.

Bruninn á Bræðraborgarstíg: Sá handtekni áfram í gæsluvarðhaldi
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði karlmann á sjötugsaldri sem var handtekinn í kjölfar brunans mannskæða á Bræðraborgarstíg í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. júlí í dag. Rannsókn á brunanum er sögð miða vel áfram.

Konan sem leitað var að fannst látin
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu nú á fjórða tímanum.

Nafnlaust bréf komið í hendur lögreglu: Líkt við apa og sagt að drepa sig
Steingrímur Ingi Gunnarsson, nítján ára, fékk nafnlaust bréf í pósti þar sem hann var sagður ljótur og honum sagt að drepa sig. Faðir hans, séra Gunnar Einar Steingrímsson sóknarprestur, greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í gær

Björgunarsveitir aðstoða við leit að Maríu
Leit lögreglu að Maríu Ósk Sigurðardóttur, sem lýst var eftir í nótt, stendur enn yfir og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út til aðstoðar.

Átta hundruð handtekin í háleynilegri lögreglurannsókn í Evrópu
Á meðal þeirra átta hundruð sem handtekin voru í aðgerðinni voru nokkrir höfuðpaurar og leiðtogar glæpagengja sem lögreglan hafði um langt skeið reynt að góma. Þá voru tveir lögreglufulltrúar á meðal hinna handteknu. Flest hinna handteknu höfðu aðsetur í Bretlandi.

Drukknir, dólgslegir og dottandi í verslunum
Rúðubrot, lausir hestar, búðarhnupl og heimapartý voru meðal þeirra 64 mála sem lögreglan segir að hafi ratað inn á hennar borð í gærkvöldi og nótt.

Lögreglan leitar að Maríu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í nótt eftir Maríu Ósk Sigurðardóttur, 43 ára, til heimilis í Grafaravogi í Reykjavík.

Segir fólk hringja á öllum tímum sólarhrings með ásökunum um mannvonsku
Kolbeinn Óttarsson Proppé segist hafa verulegar áhyggjur af pólaríseringu sem einkenni íslensk stjórnmál.

Fluttur á og af bráðadeild í járnum
Um stundarfjórðungi eftir að skemmtistaðir borgarinnar lokuðu í gærkvöldi segist lögreglan hafa afskipti af dauðadrukknum karlmanni í Austurstræti.

Fundu metamfetamín vafið fast um maga manns
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að tæp 300 grömm af metamfetamíni og 1600 stykki af lyfseðilsskyldum lyfjum í fórum sínum við komuna til landsins fyrr í mánuðinum.

Sleginn með áhaldi á Granda
Maður var fluttur á bráðadeild í nótt eftir að hafa orðið fyrir árás á Granda í vesturbæ Reykjavíkur.

Allra augu á þingmönnum Sjálfstæðisflokks og VG
Kosið verður um frumvarp laga um afglæpavæðingu á þinginu á eftir.

Fyrsta mat bendi til þess að yfirlögn hafi ekki samræmst útboðsskilmálum
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, segir að fyrsta mat bendi til þess að yfirlögn á vegkaflanum þar sem banaslysið varð í gær hafi ekki samræmst útboðsskilmálum. Mælirinn er fullur hjá bifhjólasamfélaginu á Íslandi sem krefst úrbóta á hættulegum vegköflum landsins.

Ók vespunni á þann sem tilkynnti þjófnaðinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á sjöunda tímanum í gær ungan mann sem staðinn var að þjófnaði á ökutækjum.

Tveir létust í slysinu á Kjalarnesi
Slysið varð á fjórða tímanum í dag.

Hafa ekki enn borið kennsl á hin látnu
Kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinnur enn að því að bera kennsl á þau þrjú sem létust í eldsvoða á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í vesturbæ Reykjavíkur á fimmtudag.