Ronaldo fær frí á miðvikudag Ungstirnið Cristiano Ronaldo fær frí frá leik Manchester United og Villareal á Spáni á miðvikudagskvöldið, vegna fráfalls föður hans á dögunum. Ronaldo var ekki með liði sínu í jafnteflinu gegn grannaliðinu Manchester City á laugardaginn og Alex Ferguson ætlar að gefa honum lengri tíma til að jafna sig. Sport 11. september 2005 00:01
Meistaradeildin er betri en HM Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Meistaradeild Evrópu sé sterkari og skemmtilegri keppni en sjálft Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Sport 10. september 2005 00:01
Mourinho segir riðilinn erfiðan Jose Mourinho viðurkenndi fúslega að riðillinn sem Chelsea leikur í í Meistaradeild Evrópu sé mjög erfiður og bendir á að liðið muni þurfa á sínu besta til að komast áfram. Sport 26. ágúst 2005 00:01
Dregið í riðla í meistaradeildinni Í dag klukkan 14 að íslenskum tíma verður dregið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. 32 lið eru í pottinum, helmingur þeirra gekk í gegnum forkeppnina en hinn helmingurinn kemur beint inn í keppnina á þessu stigi. Örlög Evrópumeistara Liverpool eru spennandi en svo gæti farið að liðið dragist í sama riðil og Englandsmeistarar Chelsea. Sport 25. ágúst 2005 00:01
Liverpool og Chelsea saman í riðli Liverpool og Chelsea verða saman í dauðariðlinum (G) í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en Paolo Maldini fyrirliði AC Milan dró í riðlana í Mónakó nú síðdegis. Diego Forlan mætir sínum gömlu félögum í Man Utd sem dróst í riðil með Villareal. AC Milan lenti í riðli með PSV og nýliðar í Meistaradeildinni í Thun frá Sviss lenda á riðli með Arsenal. Sport 25. ágúst 2005 00:01
Dregið í riðla í Meistaradeildinni Sterkustu knattspyrnulið Evrópu bíða nú í ofvæni eftir að dregið verði í riðla í Meistaradeildinni en drátturinn fer fram í dag kl. 14 að íslenskum tíma. Athygli vekur að Englandsmeistarar Chelsea eru ekki í efsta styrkleikaflokki enda hefur Jose Mourinho knattspyrnustjóri látið UEFA hafa það óþvegið í fjölmiðlum í morgun. Sport 25. ágúst 2005 00:01
Dregið í riðla í meistaradeildinni Í dag klukkan 14 að íslenskum tíma verður dregið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. 32 lið eru í pottinum, helmingur þeirra gekk í gegnum forkeppnina en hinn helmingurinn kemur beint inn í keppnina á þessu stigi. Örlög Evrópumeistara Liverpool eru spennandi en svo gæti farið að liðið dragist í sama riðil og Englandsmeistarar Chelsea. Sport 25. ágúst 2005 00:01
Þeir bestu heiðraðir hjá UEFA Chelsea skartar tveimur leikmönnum sem valdir voru bestu leikmennirnir í sinni stöðu á síðasta tímabili í Meistaradeild Evrópu á verðlaunaafhendingu sem var að ljúka á vegum UEFA í Mónakó. Þar stendur nú yfir drátturinn í riðlakeppni deildarinnar þetta tímabilið og verða niðurstöður hans birtar innan skamms. Besti sóknarmaðurinn var valinn... Sport 25. ágúst 2005 00:01
Sannfærandi sigur United manna Manchester United sigraði Debrechen frá Ungverjalandi 3-0 ytra í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. United eru því komnir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Gabriel Heinze gerði fyrri tvö mörk United og Kieran Richardson það þriðja. Sjá úrslit og stöðu í öðrum leikjum... Sport 24. ágúst 2005 00:01
Árni Gautur tapaði í vítakeppni Árna Gauti Arasyni, landsliðsmarkverði tóks ekki að tryggja norska félagi sínu Välerenga hundruðir milljóna króna í kvöld þegar lið hans tapaði fyrir belgíska liðinu Club Brugge í vítaspyrnukeppni í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn sjálfur fór 1-0 fyrir Club Brugge en Välerenga vann fyrri leikinn 1-0 í Osló. Sport 24. ágúst 2005 00:01
Collina kom Villareal áfram Leikmenn spænska liðsins Villareal geta þakkað ítalska dómaranum Pierluigi Collina fyrir að vera komnir í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Collina dæmdi fullkomlega löglegt mark af Everton í stöðunni 1-1 en hefði markið staðið hefði staða liðanna í einvígi þeirra verið jöfn.Villareal sigrðai leikinn að lökum 2-1 en markið skoruðu þeir eftir.. Sport 24. ágúst 2005 00:01
United yfir í hálfleik Manchester United er að vinna Debrechen frá Ungverjalandi á útivelli 1-0 í hálfleik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Gabriel Heinze gerði mark United manna á á 20. mínútu. Þetta er seinni leikur liðanna, United vann fyrri leikinn á heimavelli sínum 3-0. Sport 24. ágúst 2005 00:01
Liverpool undir í hálfleik CSKA frá Soffíu er að vinna Liverpool 1-0 í hálfleik á Anfield í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Stuðningsmenn Liverpool geta þó andað léttar því liðið vann fyrri leik liðanna 3-1 í Soffíu. Sport 23. ágúst 2005 00:01
Egill dæmir í UEFA keppninni Egill Már Markússon verður dómari í síðari viðureign pólska liðsins Wisla Plock og Grasshoppers frá Sviss í UEFA-bikarnum, en liðin mætast á Gorskiego-leikvanginum í Plock á fimmtudag. Aðstoðardómarar verða þeir Gunnar Gylfason og Ingvar Guðfinnsson, og fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson. Sport 23. ágúst 2005 00:01
Soffía sigraði Evrópumeistarana CSKA Soffía sigraði Liverpool 1-0 á Anfield í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool fer þó áfram því liðið vann fyrri viðureign liðanna 3-1. Þetta eru mjög óvænt úrslit því afar fáheyrt er að Evrópumeistarar tapi fyrir liði eins og CSKA Soffíu, en KA sem nú er í íslensku 1. deildinni sigraði CSKA á heimavelli fyrir 15 árum. Sport 23. ágúst 2005 00:01
Sofia sektað fyrir Cisse-atvikið Búlgarska knattspyrnufélagið CSKA Sofia hefur verið sektað um 19.500 evrur vegna kynþáttaeineltis sem sóknarmaður Liverpool, Djibril Cisse varð fyrir í leik liðanna á dögunum. Sektin jafngildir um einni og hálfri milljón íslenskra króna. Sport 20. ágúst 2005 00:01
Sá besti sem við gátum fengið Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að miðjumaðurinn Michael Essien fullkomni Chelsea liðið og hann sé besti leikmaður í sinni stöðu sem hægt hafi verið að fá. Essien er 22 ára og kostaði Chelsea 24,4 milljónir punda sem er félagsmet. Sport 19. ágúst 2005 00:01
Carvalho biður Mourinho afsökunar Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Wigan í úrvalsdeildinni um helgina. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina er reiknað með því að hann verði sektaður um tveggja vikna laun. Sport 19. ágúst 2005 00:01
Mörkin í símann Allir GSM viðskiptavinir Og Vodafone eiga nú kost á því að skoða mörkin úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu á þessu keppnistímabili. Þjónustan gefur knattspyrnuáhugamönnum tækifæri að fá send myndskeið af mörkum úr leikjum í Meistaradeildinni og ensku úrvalsdeildinni í símann fáeinum andartökum eftir að þau eru skoruð. Sport 15. ágúst 2005 00:01
Cisse varð fyrir kynþáttafordómum Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið til kynna að það hyggist grípa til aðgerða vegna kynþáttafordóma í garð sóknarmannsins Djibril Cisse í leiknum gegn CSKA Sofia í gær. Leikurinn fór fram í Sofiu en þetta var fyrri viðureign liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 11. ágúst 2005 00:01
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er 2-1 yfir gegn CSKA Soffíu frá Búlgaríu í hálfleik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Djibril Cisse og Fernando Morientes gerðu mörk Liverpool en Dimitrov gerði mark Búlgaranna en leikurinn fer fram í Soffíu. Sport 10. ágúst 2005 00:01
Liverpool sigraði í Soffíu Liverpool sigraði CSKA Soffíu í kvöld 3-1 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Fernando Morientes gerði tvö marka Liverpool en Djibril Cisse eitt. Úrslit annara leikja í kvöld í forkeppni Meistaradeilda karla var eftirfarandi... Sport 10. ágúst 2005 00:01
United yfir í hálfleik Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni. Sport 9. ágúst 2005 00:01
Sigur hjá Árna Gauti og félögum Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Välerenga sigruðu Club Brugge frá Belgíu 1-0 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United sigraði Debrechen frá Ungveralandi 3-0 með mörkum frá Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Ronaldo. Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar eru eftirfarandi.... Sport 9. ágúst 2005 00:01
Buryak látinn fara Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks Sport 9. ágúst 2005 00:01
Geir eftirlitsmaður á Spáni Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á viðureign Real Betis og Mónakó í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðin mætast á Manuel Ruíz de Lopera leikvanginum í Sevilla á Spáni á þriðjudagskvöld. Sport 8. ágúst 2005 00:01
Neftchi vann Anderlecht heima Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik. Sport 3. ágúst 2005 00:01
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 3. ágúst 2005 00:01
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 2. ágúst 2005 00:01
Ótrúlegur leikur í Glasgow í kvöld Glasgow Celtic er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-0 sigur á Artmedia frá Slóvakíu á Celtic Park í kvöld. Slóvaska liðið vann fyrri leikinn heima fyrir 5-0 og því hefði Celtic þurft að komast í sögubækurnar til að knýja fram framlengingu með því að vinna upp þann mun. Sport 2. ágúst 2005 00:01