

Samherjaskjölin
30 þúsund skjöl um viðskiptahætti Samherja í Namibíu voru birt á vef WikiLeaks. Á sama tíma birtist umfjöllun um málið í þættinum Kveik og hjá Stundinni.

Segja skýrslubeiðni lýðskrum þar sem kallað sé eftir samanburði á epli og kíví
Vægast sagt líflegar umræður sköpuðust á Alþingi í dag um atkvæðagreiðslu um skýrslubeiðni um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi.

Arngrímur dæmdur til að greiða milljónasekt í Namibíu
Íslenski skipstjórinn stýrði skipum Samherja í namibískri landhelgi um árabil. Hann játaði ólöglegar veiðar og var gerð refsing í dag.

Óvíst hvort namibísku skipverjunum verði sagt upp
Fjöldi namibískra skipverja er í óvissu með stöðu sína eftir að Samherji ákvað fara með Skipin Geysi og Sögu frá Namibíu.

Kalla eftir samanburði á greiðslum Samherja fyrir veiðiréttindi í Namibíu og á Íslandi
Tilgangurinn er að auka gegnsæi og traust segir formaður Viðreisnar.

Annar Samherjatogari sagður hafa yfirgefið Namibíu
Geysir, einn af togurum Samherja sem veitt hefur við strendur Namibíu, er sagður hafa yfirgefið Namibíu, án þess að áhöfn skipsins hafi fengið skýringar.

Vilja ekki að Samherjaskip yfirgefi Namibíu án þess að lögregla viti af því
Spillingarlögreglan í Namibíu ráðleggur stjórnvöldum þar í landi að tryggja það að fiskiskipum eða einstaklingum í Namibíu sem tengist Samherjamálinu á einhvern hátt verði ekki leyft að yfirgefa landið, án þess að lögregla verði fyrst látin vita.

Arngrímur játaði ólöglegar veiðar í Namibíu
Refsing verður ákveðin miðvikudaginn 5. febrúar.

„Íslenski sjómaðurinn sem barðist við hákarla“
Fjallað er um uppljóstrarann Jóhannes Stefánsson í afríska miðlinum Mail & Guardian í dag undir fyrirsögninni Íslenski sjómaðurinn sem barðist við hákarla og hafði betur.

Fjölgar um sex í rannsóknarteymi héraðssaksóknara í kjölfar Samherjamálsins
Embætti héraðssaksóknara hefur auglýst sex stöður rannsakenda á rannsóknarsviði embættisins lausar til umsóknar. Rannsóknarsvið fer með rannsóknir á sviði fjármuna-, efnahags- og skattalagabrota.

Segir endurkomu Þorsteins Más velta á niðurstöðu rannsóknar Wikborg Rein
Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, útilokar ekki að Þorsteinn Már Baldvinsson muni snúa aftur í stól forstjóra Samherja.

Ísland færist upp um þrjú sæti á spillingarlista
Ísland færist upp um þrjú sæti á nýjum lista Transparancy International þar sem reynt er að mæla hversu vel varin lönd eru gegn spillingu.

Hefur fleiri spurningar um framkvæmd hagsmunamats
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kveðst ekki óttast að frumkvæðisathugun þingnefndar á hæfi hans leiði til þess að hann þurfi að segja af sér.

„Ég hef ekkert að fela“
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir hvorki sig né ráðuneyti sitt hafa neitt að fela í tengslum við Samherjamálið.

Engin tengsl við Samherja nema áratugakunningsskapur við eigandann
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segist engra sérstakra hagsmuna hafa að gæta gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja.

„Þú leggur ekkert mat á það við hvorn hluta sjálfsins þú ert að tala“
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að símhringing hans til Þorsteins Más Baldvinssonar, eiganda og þáverandi forstjóra Samherja, í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um málefni fyrirtækisins í Namibíu hafi verið hluti af athafnaskyldu hans sem ráðherra.

Bein útsending: Kristján Þór kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna frumkvæðisathugunar á hæfi ráðherrans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja.

Ráðuneytisfólk virðist vilja verja ráðherra sinn
Túlka hæfihugtakið furðu þröngt að mati stjórnsýslufræðings.

Fámenn en hávær mótmæli á Austurvelli
Hópur mótmælenda lét hressilega í sér heyra á Austurvelli þegar Alþingi kom saman til fundar í fyrsta sinn á árinu í dag.

„Þetta er ekki eitt af þessum málum sem mun lognast út af og hverfa“
Formaður stjórnarskrárfélagsins segir að lýðræðið sé sameign allra landsmanna og þess vegna sé það á ábyrgð hvers og eins að láta það virka sem skyldi.

Segir ráðuneytið túlka hæfisreglur allt of þröngt
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, segir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið túlka reglur um hæfi ráðherra allt of þröngt.

Rannsókn Wikborg Rein á Samherja ljúki fyrir apríl
Stjórnvöld ætla að leggja meira fé til skattrannsókna í kjölfar Samherjamálsins.

Þingnefnd ræðir gögn um hæfi Kristjáns Þórs á mánudaginn
Sjávarútvegsráðuneytið hefur skilað svörum til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vegna frumkvæðisathugunar á hæfi Kristjáns Þórs Júlíussonar.

Netverjar hlæja að heildrænu stjórnunar- og regluvörslukerfi Samherja
Tilkynning Samherja um aðgerðaáætlun fellur í grýtta jörð.

Vilja heimta kvótann úr höndum hinna ofurríku
Ögmundur og Gunnar Smári segja kvótakerfið hafa villst verulega af leið.

Þeir handteknu í Samherjamálinu töpuðu fyrir dómi
Sexmenningarnir sem eru grunaðir um spillingu í tengslum við mál Samherja í Namibíu kröfðust þess að handtökur þeirra yrðu felldar úr gildi. Dómari vísaði kröfum þeirra frá dómi.

Samherji „bara rétt að byrja“
Rannsókn sem útgerðarfyrirtækið Samherji hrinti af stað vegna starfsemi sinnar í Namibíu "miðar ágætlega“.

Gerir lítið úr spurningum um hæfi sitt gagnvart Samherja
Sjávarútvegsráðherra segist ekki ætla að stíga til hliðar og segir pólitík ástæðu þess að hæfi hans í málum sem tengjast Samherja sé dregið í efa.

Sigurður Ingi fer með Samherjamál í stað Kristjáns Þórs
Málin tengjast öll útgerðarfyrirtækinu Samherja en Kristján Þór ákvað að segja sig frá þeim vegna vanhæfis.

Björgólfur efast um að Samherjamálið byggi á heiðarlegri blaðamennsku
Björgólfur Jóhannsson svarar Kristni Hrafnssyni.

Wikborg Rein gætir hagsmuna Samherja í Namibíu
Lögfræðifyrirtækið sem Samherji hefur fengið til að skoða meinta brotastarfsemi fyrirtækisins í Namibíu vinnur á sama tíma við að verja fjárhagslega hagsmuni Samherja í landinu.