„Öskuhaugarnir lagðir niður að fullu og öllu“ Ein af skemmtilegri sögum úr rekstri Héðins hf. er frá árinu 1959. Þegar menn töldu að framtíðarlausnin á sorpurðun væri fundin. Atvinnulíf 27. febrúar 2022 08:01
Forstjóri Brims: „Meiri eftirspurn eftir okkar fiski“ ef það verður lokað á Rússland Sjávarútvegsfyrirtækið Brim seldi fiskafurðir til Úkraínu og Hvíta-Rússlands fyrir samanlagt um 20 milljónir evra, jafnvirði tæplega 3 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. „Við vitum að þeir [Úkraínumenn] munu halda áfram að borða fisk þrátt fyrir stríðsátökin. Þetta er ódýrasti og besti maturinn sem þeir fá.“ Innherji 25. febrúar 2022 13:48
Konur til áhrifa í sjávarútvegi Í sjávarútvegi, þessari rótgrónu atvinnugrein sem hér hefur verið stunduð um aldir, blasa við mörg tækifæri. Og þótt fiskveiðistjórnunarkerfið hafi valdið áratuga deilum er ekki hægt að líta fram hjá því hversu margt hefur gengið upp. Mörg störf hafa skapast, fjölbreytt störf, við veiðar, vinnslu, markaðssetningu, tækni, alþjóðaviðskipti og stjórnun svo eitthvað sé nefnt. Það er þó ekki svo langt síðan að nær einungis karlar sinntu þessum störfum. Þetta var karllægur heimur og er það að mörgu leyti enn. En hvað getum við fullyrt um slíkt? Skoðun 23. febrúar 2022 19:01
Bein útsending: Opinn fundur Félags kvenna í sjávarútvegi Opinn fundur um fjölbreytileika, fjárfestingar og framtíðina í sjávarútvegi fer fram í höfuðstöðvum Íslandsbanka í dag. Fundurinn hefst klukkan 9 og stendur yfir til 10:30 og verður streymt í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 23. febrúar 2022 08:30
Mjófirðingar kalla eftir laxeldi og jarðgöngum til að treysta byggð Tvísýnt er um framtíð byggðar í Mjóafirði eftir að skólahald lagðist þar af fyrir fjórum árum. Þegar Mjófirðingar eru spurðir hvað sé til bjargar er svarið skýrt: Jarðgöng og laxeldi. Innlent 21. febrúar 2022 22:20
Þjóðareign eða einkaeign? Við rífumst um mismunandi leiðir til að stjórna fiskveiðum. Okkur greinir líka á um hversu hátt gjald eigi að koma fyrir veiðirétt. En í langan tíma hafa flestir verið á einu máli um að fiskveiðiauðlindin væri sameign þjóðarinnar. Skoðun 21. febrúar 2022 18:01
„Ég held að enginn vilji snúa aftur til Verbúðardaganna" „Sjávarútvegur dagsins í dag snýst um svo margt annað og fleira en bara veiðar, vinnslu og þras á göngum Alþingis um veiðigjald," segir Agnes Guðmundsdóttir, hjá Icelandic Asia og formaður félagsins Konur í sjávarútvegi. Hún ræðir Verbúðina, veiðigjöld og nýja rannsókn um stöðu kvenna í greininni. Innherji 21. febrúar 2022 18:01
Þorgerður fékk loðin svör frá Svandísi um hækkun veiðigjalda Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kvað sér hljóðs í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag og vildi knýja fram afstöðu ráðherra sjávarútvegsmála, Svandísar Svavarsdóttur, til hækkunar veiðigjalda. Innherji 21. febrúar 2022 16:20
Fiskskortur vegna rysjóttrar tíðar Skip hafa ekki komist á miðin með reglubundnum hætti vegna óhagstæðs veðurfars. Þetta hefur meðal annars haft þau áhrif að framboð er ekki gott í fiskbúðum sem hefur svo áhrif á verð. Innlent 21. febrúar 2022 10:53
Freyja dregur norskt loðnuveiðiskip í höfn Varðskipið Freyja hefur síðan í gærkvöld haft norskt loðnuskip í togi sem fékk veiðarfæri í skrúfuna. Innlent 20. febrúar 2022 10:09
Mun minni kvótaskerðing en varað hafði verið við Hafrannsóknarstofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2021/22 verði ekki meiri en 869.600 tonn. Um er að ræða lækkun um 34.600 frá ráðgjöf sem veitt var 1. október síðastliðinn. Hafró hafði áður varað við kvótaskerðingu upp á allt að eitthundrað þúsund tonn. Innlent 18. febrúar 2022 17:24
Fiskheimildir og framsal: 30 ára stríðið - Mál að linni? Eignarréttur og nýtingarréttur. Þessi tvö lykilhugtök nálgast kjarna málsins, þegar að því kemur að öðlast skilning á því, um hvað yfirstandandi 30 ára stríð um fiskveiðistjórnun Íslendinga snýst. Sjónvarpsþættir Vesturports um verbúðina Ísland hafa vakið þjóðarathygli. En þar sem stríðinu er hvergi nærri lokið gefur nývakinn áhugi tilefni til að draga aðalatriðin fram í dagsljósið og leita lausna. Skoðun 18. febrúar 2022 14:30
Segja mikilvægt að huga að vatnsbúskap við byggingu risa fiskeldisstöðvar Samherja Samherji Fiskeldi ehf. áformar að byggja og reka landeldisstöð með 40 þúsund tonna ársframleiðslugetu í Auðlindagarði Orku við Garð á Reykjanesi undir nafninu Eldisgarður. Innlent 17. febrúar 2022 11:54
Vill fá Guggugulan sem hvarf á Akureyri aftur heim til Ísafjarðar Myndlistarmaðurinn og Ísfirðingurinn Gunnar Jónsson lýsir eftir verki sínu, Guggugulum, sem hvarf á Akureyri þegar það var þar til sýnis árið 2016. Verkið er ljósmynd af málningu, Guggugulum, málningarlitnum sem þjóðþekkta skipið Guggan var máluð með. Innlent 17. febrúar 2022 07:00
Fjórða þorskastríðið er fram undan Fyrir þingkosningar síðasta haust settu Sósíalistar fram stefnu sína í sjávarútvegsmálum þar sem kom fram að flokkurinn vildi leggja af kvótakerfið. Sósíalistar bentu á að kvótakerfið, sem upphaflega var sett á til að vernda fiskistofnana, hefði þróast í óskapnað sem hefur í reynd einkavætt fiskimið almennings. Skoðun 16. febrúar 2022 08:01
Óveidd loðna Norðmanna gæti jafnað skertan kvóta Íslensku loðnuskipin voru í dag búin að veiða helming útgefins kvóta og er áætlað útflutningsverðmæti þegar komið í 22 milljarða króna. Stefnir í að vonir um góða loðnuvertíð muni rætast. Viðskipti innlent 15. febrúar 2022 22:36
Segir söguþráð Verbúðarinnar mjög nálægt sannleikanum Fyrrum þingkona Kvennalistans segir Verbúðina endurspegla andrúmsloftið á níunda áratugnum og telur söguþráðinn mjög nálægt sannleikanum. Hún segist viss um að Kristín Halldórsdóttir heitin sé fyrirmynd skeleggrar persónu í þáttunum. Innlent 14. febrúar 2022 22:00
Fiskeldisiðnaðurinn hafi vafið sig inn í stjórnmálin með lævíslegum hætti Hátt í tvö þúsund tonn af laxi hafa drepist í tveimur sjókvíum Arctic Fish í Dýrafirði það sem af er ári. Talsmaður náttúruverndarsamtaka segir reglur um leyfileg afföll á Íslandi galnar og telur hagsmuni stjórnmálamanna þar spila inn í. Innlent 14. febrúar 2022 12:47
15 til 20 prósent eldislax í kvíum Arctic Fish drepist Fimmtán hundruð til tvö þúsund tonn af eldislaxi hafa drepist í tveimur sjókvíum Arctic Fish í Dýrafirði það sem af er þessu ári. Um er að ræða 15 til 20 prósent af lífmassa kvíanna en alls eru um tíu þúsund tonn af laxi í þeim. Innlent 14. febrúar 2022 07:05
Verbúðin er enn okkar saga Mér finnst eins og þjóðin hafi setið límd við sjónvarpsskjáinn í gær. Síðustu vikurnar hafa kaffistofur landsmanna rætt síðasta þátt og um leið rifjað upp tímann sem var, fatnaðinn, reykingarnar og hártískuna og lífið í verbúðinni. Skoðun 14. febrúar 2022 07:00
Ballið að byrja á loðnuvertíðinni Fundur stórrar loðnutorfu grunnt undan Suðausturlandi markar kaflaskil á yfirstandandi vertíð en þar með er staðfest að loðnan er gengin upp á landgrunnið, byrjuð að þéttast í torfur og að nálgast sitt verðmætasta form. Viðskipti innlent 11. febrúar 2022 11:04
Svandís staðfestir svikin við sjávarbyggðirnar! Hinn 7. febrúar sl. spurði ég Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á Alþingi hvort hún hygðist að styðja frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um að tryggja 48 veiðidaga strandveiðanna, festa í lög og auka heimildir ráðherra til að flytja milli flokka innan atvinnu- og byggðakvótakerfisins. Skoðun 11. febrúar 2022 09:02
Loðnuskip komin í mokveiði grunnt undan Jökulsárlóni Stór loðnutorfa er fundin grunnt undan Suðursveit, sem markar kaflaskil á vertíðinni til þessa. Tíu loðnuskip eru komin á svæðið, átta íslensk og tvö færeysk, og mokveiða upp úr torfunni. Viðskipti innlent 10. febrúar 2022 15:16
61 prósent landsmanna frekar eða mjög andvíg kvótakerfinu Ríflega 60 prósent landsmanna eru andvíg kvótakerfinu en 20 prósent eru mjög eða frekar hlynnt því. Andstaðan er meiri meðal kvenna en karla og meiri hjá þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni. Innlent 10. febrúar 2022 07:12
Bíða eftir kallinu að hefja gulltíma loðnuveiðanna Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson sigldi nú undir kvöld áleiðis á Vestfjarðamið til loðnumælinga, sem ráða úrslitum um endanlegan loðnukvóta. Á sama tíma bíður stór hluti loðnuflotans í startholunum að hefja verðmætasta veiðitímabil íslensks sjávarútvegs, eltingaleikinn við hrygningarloðnuna. Viðskipti innlent 9. febrúar 2022 22:00
„Sætum ekki límd við skjáinn yfir sögulegri frásögn af tilurð kvótakerfisins“ Landsmenn sætu ekki allir límdir á sunnudagskvöldum við sjónvarpsskjáinn ef Verbúðin væri einungis söguleg frásögn af tilurð kvótakerfisins. Þetta segir Daði Már Kristófersson, prófessor í umhverfis- og auðlindahagfræði. Innlent 8. febrúar 2022 20:31
Leigubílstjóri ætlaði sér að keyra tökulið Verbúðarinnar niður Tíu ár eru síðan hugmyndin að þáttaröðinni Verbúðinni kviknaði. Hjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson segjast ánægð með útkomuna þrátt fyrir að handritið hafi tekið umskiptum nokkrum sinnum í ferlinu og áskoranirnar hafi verið nokkrar. Lífið 8. febrúar 2022 19:30
Erlendir miðlar fjalla um mögulegt hvalveiðibann Íslands Stórir erlendir fjölmiðlar fjalla nú um möguleg endalok hvalveiða við Íslandsstrendur, eftir að Svandís Svavarsdóttir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sagði fátt rökstyðja hvalveiðar. Núverandi veiðiheimildir renna út árið 2023 og ráðherrann lætur að því liggja að hvalveiðar verði óheimilar frá árinu 2024. Innlent 5. febrúar 2022 08:57
Hringormar fundust spriklandi í bleyju, ælu og við endaþarmsop eftir fiskát Átján hringormslirfur voru sendar til rannsóknar hjá Tilraunastöðinni að Keldum á tímabilinu 2004 til 2020. Fjórtán þeirra höfðu um tíma lifað í fólki og voru lifandi þegar þær fundust, þrjár fundust í lifandi fiski og ein var dauð. Smituðu einstaklingarnir voru allt frá því að vera ungbörn upp í fólk á níræðisaldri. Innlent 4. febrúar 2022 15:05
Hundfúlir að þurfa að hætta í mokveiði á loðnumiðunum Loðnuskipin streyma núna í höfn, hvert af öðru, eftir að Hafrannsóknastofnun varaði við yfirvofandi kvótaskerðingu. Skipstjórinn á Venusi segir að menn verði bara að taka þessu en viðurkennir að þeir séu hundfúlir. Innlent 3. febrúar 2022 22:22