Össur stendur með sundmönnunum Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra tekur upp hanskann fyrir sundkappana á Vopnafirði. Hann segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson mega við daglegum sundspretti og styður hann í málinu, svo lengi sem hráa hakkið verði eftir á bakkanum. Lífið 12.10.2026 17:50
Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Þingmennirnir sem laumuðust í sund í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku frömdu húsbrot að mati Ásthildar Lóu Þórisdóttur þingmanns Flokks fólksins. Hún hafnar því staðfastlega að slík framkoma eigi við um þingmenn almennt. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, segir ekkert fréttnæmt við sundferðina. Innlent 12.10.2026 14:53
Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir þessu og leiðbeint þeim. Innlent 9.10.2026 17:41
Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kom til heimahafnar á Vopnafirði. Innlent 15. júní 2026 09:05
Áfall fyrir bæjarfélagið Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018. Innlent 13. júní 2026 15:14
Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Útgerðarfélagið Brim hefur ráðist í uppsagnir í uppsjávarvinnslu á Vopnafirði. Fundur með starfsmönnum átti að hefjast klukkan eitt í dag. Viðskipti innlent 10. júní 2026 13:04
Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Aðeins einn listi bauð fram til sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi þetta árið og voru fulltrúar O-lista – Sterk stoð því sjálfkjörnir. Engin kosning fór fram í ljósi þessa en frambjóðendur gerðu sér glaðan dag og buðu íbúum í grillveislu, að sögn Stefáns Guðnasonar sem skipar annað sæti listans. Innlent 16. maí 2026 21:23
Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Kjörtímabilið sem nú er að líða hefur verið gríðarlega erfitt á Vopnafirði. Oddviti segir ólgu hafa gert vart við sig og ritstjóri Austurfrétta líkir kjörtímabilinu við tímabil hjá fótboltaliði í krísu. Innlent 8. maí 2026 14:24
Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024. Innlent 15. apríl 2026 09:12
Sjálfkjörið á Vopnafirði Einungis einn framboðslisti barst yfirstjórn Vopnafjarðarhrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og telst hann því sjálfkjörinn. Um er að ræða nýjan framboðslista sem kallar sig Sterk stoð, en Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, leiðir listann. Innlent 15. apríl 2026 08:05
Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis. Innlent 7. apríl 2026 21:21
Snjóruðningstæki sat fast Björgunarsveitir voru kallaðar út úr öllu áttum í gær til aðstoðar ferðafólki sem sat fast á Möðrudalsöræfum. Þá var annað útkall á Borgarfirði eystri vegna snjóruðningsvélar sem hafði fests. Innlent 3. apríl 2026 13:58
Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Hátt í fimmtíu bílar voru fastir á veginum sem liggur yfir Möðrudalsöræfi á milli Jökuldals og að Vopnafjarðarafleggjaranum í gær. Harðduglegur strákur sinnti vegaaðstoð og reyndi eftir fremsta megni að losa bíla sem margir voru illa búnir og ófjórhjóladrifnir húsbílar í leigu erlendra ferðamanna. Innlent 3. apríl 2026 09:53
Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar um sýknu Brims hf. af öllum kröfum foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Málið verður því tekið fyrir á ný í Landsrétti. Innlent 4. mars 2026 14:09
Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á nokkrum stöðum á Austurlandi síðdegis og í kvöld meðan appelsínugul veðurviðvörun hefur staðið yfir. Útköllin snúa fyrst og fremst að því að tryggja samgöngur og koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu. Innlent 2. mars 2026 20:22
Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Á einni viku má segja að öllu hafi verið snúið á hvolf hjá sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps. Samið var um starfslok sveitarstjórans, í kjölfarið hætti oddviti meirihlutans og nú hefur sveitarstjórnarfulltrúi ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi kosningum eftir að oddviti minnihlutans gerði athugasemd við að hún talaði ensku. Innlent 11. febrúar 2026 22:31
Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni og gert honum að sæta fangelsi í sjö ár, frekar en sex, fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps. Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði ætlað sér að svipta fyrrverandi sambýliskonu sína lífi. Innlent 5. febrúar 2026 18:49
Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. Innlent 2. febrúar 2026 21:31
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 21:31
Bálhvasst á Austfjörðum og óvissustig vegna snjóflóðahættu Bálhvasst er á Austfjörðum og hefur talsverður snjór safnast undir Grænafelli á Fagradal. Hefur óvissustigi því verið lýst yfir á Fagradal vegna snjóflóðahættu við Grænafell. Innlent 12. janúar 2026 10:36
Brunaði austur til að finna litla frænda Móðursystir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði tók sjálf þátt í leitinni að honum, og segist ekki hafa getað setið aðgerðalaus eftir að frændi hennar féll í sjóinn. Hún safnar nú fé fyrir hönd foreldranna. Þeir hafa þurft að standa sjálfir straum af dýru dómsmáli sem tapaðist. Innlent 23. október 2025 19:48
„Það er aldrei hægt að kaupa barnið manns til baka“ Móðir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði í sínum fyrsta túr á sjó segir erfitt að hugsa til þess að skjótari viðbrögð skipverja á bátnum hefðu getað bjargað lífi hans. Hún og barnsfaðir hennar hafa tapað máli gegn útgerðinni á tveimur dómstigum, en ætla sér alla leið með málið hvað sem það kostar. Innlent 20. október 2025 19:43
Ár frá morðtilrauninni: „Reyndi að drepa mig og það var eins og að drekka vatn fyrir hann“ „Ár…. Í dag er ár síðan ég fékk að lifa. Atvik sem virkar svo þokukennt, óraunverulegt. Blákaldi veruleikinn er hins vegar sá að þetta gerðist. Barnsfaðir minn og fyrrum maki reyndi að drepa mig og það var eins og að drekka vatn fyrir hann.“ Innlent 17. október 2025 12:17
Gögn sem fyrst voru ekki til brunnu síðar Lögmaður foreldra sem hafa árangurslaust reynt að sækja bætur til Brims hf. og TM trygginga eftir að sonur þeirra drukknaði á sjó vorið 2020 segir óvíst hvort leitað verði til Hæstaréttar vegna málsins. Hann segir sönnunarstöðu foreldranna í málinu einstaklega erfiða. Brim og TM voru sýknuð af kröfum foreldranna í Landsrétti í vikunni. Innlent 11. október 2025 11:02