Segir Ísak Bergmann hafi valið rétt og að FCK muni græða: „Munu selja hann fyrir hærri upphæð en þeir greiddu“ Ísak Bergmann Jóhannesson, einn eftirsóttasti og efnilegasti leikmaður Svíþjóðar, samdi við FC Kaupmannahöfn á dögunum. Sænski miðillinn Sportbladet fór ofan í saumana á því hvernig einn eftirsóttasti leikmaður efstu deildar endaði í Danmörku. 2.9.2021 12:02
Benedikt svarar fyrir sig í kjölfar fréttaflutnings Mannlífs Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta sem og Njarðvíkur í efstu deild karla, birti færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann fór yfir málin í kjölfar fréttaflutnings Mannlífs sem gaf í skyn að Benedikt væri haldin kvenfyrirlitningu. 2.9.2021 10:31
Áhorfendur komust ekki heim vegna Ídu Opna bandaríska meistaramótið í tennis fer nú fram á Flushing Meadows-svæðinu sem staðsett er í Queens í New York. Fellibylurinn Ída gerði áhorfendum lífið leitt þar sem mörg þeirra sátu föst á vellinum vegna veðurs. 2.9.2021 09:31
Fór með sigur af hólmi þrátt fyrir að halda að hún væri handarbrotin Aryna Sabalenka er komin í þriðju umferð Opna bandaríska meistaramótsins í tennis eftir sigur á Tamöru Zidansek. Sabalenka hélt að hún hefði handarbrotnað í fyrsta setti leiksins en komst í gegnum sársaukann og fór áfram. 2.9.2021 09:00
Segir Dani þurfa að venjast því að spila á Parken eftir allt sem hefur gengið á Danmörk vann Skotland 2-0 á Parken í Kaupmannahöfn er þjóðirnar mættust í undankeppni HM. Mörkin tvö komu á 92 sekúndna kafla snemma í fyrri hálfleik. Simon Kjær sagði það kærkomið að snúa aftur á heimavöll þar sem Danir hafa upplifað margt og mikið á undanförnum mánuðum. 2.9.2021 08:31
Líklegt byrjunarlið Íslands: Hannes Þór milli stanganna, Kári fyrirliði og Albert fremstur Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í dag. Hér að neðan má sjá líklegt byrjunarlið Íslands í leiknum. 2.9.2021 08:00
Thelma Björg lauk leik á Ólympíumótinu í nótt Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir lauk í nótt leik á Ólympíumótinu í Tókýó er hún synti í undanrásum 400 metra skriðsundsins. Var það hennar seinni grein á mótinu. 2.9.2021 07:30
Við það að fá taugaáfall í fangelsinu Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, er við það að fá taugaáfall í HMP Altcourse-fangelsinu. Þar bíður hann dóms eftir að hafa verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota. 1.9.2021 16:02
Lecce vill fá Davíð Snæ frá Keflavík Ítalska B-deildarliðið Lecce heldur áfram að sækjast í íslenska knattspyrnumenn en nú síðast var Davíð Snær Jóhannsson orðaður við félagið. 1.9.2021 15:30
Reynsluboltarnir úr Pepsi Max deildinni Eftir erfiða byrjun Íslands í undankeppni HM 2022 í fótbolta er ljóst að Ísland er með bakið upp við vegg innanvallar jafnt sem utan vegna þeirra ofbeldis- og kynferðisbrotamála sem hafa litið dagsins ljós á undanförnum dögum og vikum. 1.9.2021 15:01