
Skipulag

Landfylling getur orðið góð viðbót við útivistarsvæðið í Laugarnesi
Hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að menn fari sér að engu óðslega í að ákveða hvað verði byggt á nýrri landfyllingu við Laugarnestanga. Meðal annars verði útsýni frá Laugarnesi haft í huga þegar byggt verður.

Isavia gerir ýmsar athugasemdir við uppbygginguna á Oddeyrinni
Isavia telur mögulegt að ellefu hæða fjölsbýlishús á lóð á Oddeyrinni á Akureyri kunni að auka takmarkanir á nýtingu Akureyrarflugvallar. Isavia gerir ýmsar athugasemdir við fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.

Landfylling í Sundahöfn tekur á sig mynd
Vörubílar hafa ekið fimmtán þúsund ferðir með grjót, mold og möl úr grunni við nýja Landspítalann í Sundahöfnina. Þar er stór landfylling nú að taka á sig mynd.

Skipulag byggðar og samgangna á vendipunkti
Loftslagsmálin eru komin á dagskrá. Loksins. Þótt það séu ekki ný sannindi að loftslag sé að hitna af mannavöldum, þá er nú loks svo komið að almenn samstaða og skilningur er um það í samfélaginu að aðgerða sé þörf og það strax.

Byggt í kringum Valhöll
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í dag að heimila uppbyggingu íbúða- og skrifstofuhúsnæðis við Háaleitisbraut 1 í Reykjavík.

Börn, eitur og stokkur
Hilmar þór Björnsson arkitekt spyr sig og aðra hversvegna við þurfum Miklubrautarstokkinn og hvað eigi að gera við alla umferðina meðan á framkvæmdum stendur?

Ætlar að krefja Reykjavíkurborg um milljónir vegna framkvæmda á Hverfisgötu
Veitingahúseigendur ætla að krefja Reykjavíkurborg um milljónir í skaðabætur vegna framkvæmda á Hverfisgötu. Framkvæmdirnar hafa tafist um marga mánuði. Borgin lofar bót og betrun en veitingahúseigandi segir kerfið gera það að verkum að svo verði ekki.

Fréttir af andláti miðbæjarins „stórlega ýktar“
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir segir að miðbærinn iði af fjölbreyttu mannlífi.

Hafa áhyggjur af því að uppbygging á Oddeyrinni muni þrengja að hafnarstarfsemi
Stjórn Hafnarsamlag Norðurlands hefur áhyggjur af því að verði aukið byggingarmagn heimilað á reit í grennd við Oddeyrarbryggju á Akureyri geti það "þrengt verulega“ að hafnarstarfsemi á svæðinu. Það geti kallað á kostnaðarsaman flutning á þeirri starfsemi sem er á hafnarsvæðinu.

Moskan á Suðurlandsbraut samþykkt
Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar samþykkti á afgreiðslufundi sínum í fyrradag beiðni Félags múslima um að byggja mosku við Suðurlandsbraut.

Forkaupsréttinum á Geirsgötu 11 ekki aflétt
Faxaflóahöfnum hefur ekki borist beiðni um að forkaupsrétti stofnunarinnar á Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík verði aflétt.

Fullt út úr dyrum á íbúafundi um uppbyggingu á Oddeyrinni
Akureyringar, og þá sérstaklega íbúar á Oddeyrinni, fjölmenntu á íbúafund þar sem kynntar voru nánar hugmyndir að uppbyggingu nokkurra fjölbýlishúsa á afmörkuðum reit á Oddeyrinni. Fullt var út úr dyrum á fundinum í kvöld í menningarhúsinu Hofi.

50 milljónir í fegrunaraðgerðir í Mjóddinni
Ráðist verður í fyrsta áfanga aðgerðanna á næstu mánuðum.

Veggur Gentle Giant rifinn
Veggurinn umdeildi sem hvalaskoðunarfélagið Gentle Giants á Húsavík lét byggja hefur verið rifinn að hluta. Enn er reynt að ná samkomulagi um norður- og austurhlið veggsins.

Fólk ruglað á Borgarlínunni
Um fjórðungur er andvígur og álíka margir eru hvorki hlynntir né andvígir.

Akureyringum boðið til fundar um ellefu hæða blokkirnar á Oddeyrinni
Skipulagssvið Akureyrar hefur boðað til kynningarfundar í Hofi þar sem kynna á breytingar á aðalskipulagi fyrir Oddeyrina á Akureyri. Um er að ræða fimm fjölbýlishús sem verða mest ellefu metra há.

Lýðræðið og skipulagið
Dómharka í umræðu um Borgarlínu, LSH, flugvöll í Vatnsmýri og uppbyggingu þar, beinist of oft að persónum með grófum ummælum um gáfnafar þeirra og eða geðheilsu. Oftast er um að ræða ónafngreinda sérfræðinga, starfsmenn borgar- eða ríkisstofnana og að sjálfsögðu stjórnmálamenn.

Afturkalla leyfi vegna stíflu Neyðarlínunnar
Skútustaðahreppur segir stíflu Neyðarlínunnar í Drekagili sjöfalt lengri en leyfi var fyrir og afturkallar leyfið. Framkoma framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar sögð ósæmandi. Stjórn Neyðarlínunnar harmar hnökra á samskiptum.

Svona líta hugmyndir að uppbyggingunni á Oddeyrinni út
"Svona verkefni í bæ eins og Akureyri. Við þurfum að vinna það í sátt við samfélagið,“ segir Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, um hugmyndir félagsins að byggja allt að ellefu hæða fjölbýlishúsa á Oddeyrinni á Akureyri.

Ný bensínstöð markar tímamót
Á horni bílastæðisins við verslunarkjarnann Lindir í Kópavogi eru hafnar framkvæmdir sem marka ákveðin tímamót.

Nýtt leiðanet Strætó og borgarlínu: Styttri ferðatími en lengri ganga á næstu biðstöð
Umfangsmestu breytingarnar felast m.a. í nýju skipulagi við Hlemm og nýrri endastöð á BSÍ-reitnum.

Ráðleggur fyrrverandi stjórnmálamönnum í Firðinum að láta lítið fyrir sér fara
Ágúst Bjarni Garðarsson telur kynningu á uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar klúður.

„Ef þetta væri fyrsti stokkurinn í heiminum þá myndi mér ekki lítast á blikuna“
Dagur B Eggertsson, borgarsstjóri Reykjavíkur, segir það einn af "stóru sigrunum“ að samgönguframkvæmdir verði fjármagnaðar af innheimtum veggjöldum á höfuðborgarsvæðinu.

Vilja byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á Oddeyrinni
Bæjarstórn Akureyrar hefur samþykkt fyrsta skrefið í vinnu sem miðar að því að breyta deiliskipulagi Akureyrar svo heimilt verði að byggja allt að fimm 6-11 hæða fjölbýlishús á reit á Oddeyrinni. Tillögurnar sem liggja til grundvallar verða kynntar fljótlega á íbúafundi.

Enn meiri tafir á að endurbótum ljúki á Hverfisgötu
Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að verkinu sem hófst í maí í vor yrði lokið 23. ágúst. Verklok munu því tefjast um ríflega tvo mánuði frá þeirri áætlun.

Stjórnendur virtu að vettugi kostnaðarmat verkfræðistofu
Framkvæmdastjóri verkfræðistofu sem vann kostnaðarmat vegna byggingar 129 íbúða á Kársnesi segir að kostnaðaráætlun fyrirtækisins hafi verið hunsuð og stjórnendur Upphafs fasteignafélags hafi samið aðra áætlun innanhúss og kynnt hana hagsmunaaðilum. Sú áætlun hafi verið verulega vanáætluð.

Leggja fram tillögu um samflot og samferðabrautir
Samferðabrautir tíðkast víða erlendis og er stefna sem miðar að því að flytja sem flest fólk á milli staða á hverjum tíma í stað bíla.

Hart deilt á nýtt deiliskipulag
Fulltrúar meirihlutans ásamt fulltrúa Miðflokksins sögðu í bókun uppbygginguna í fullkomnu samræmi við markmið svæðisskipulags.

Færsla fráveitulagnar allt að 400 milljónir
Framkvæmdir við breytingar á fráveitulögn sem liggur undir fyrirhugaðri gróðurhvelfingu í útjaðri Elliðaárdalsins munu kosta á bilinu 89 til 429 milljónir króna.

Bílar í borgum
Það vita það flestir að bíllinn mengar, er heilsuspillandi, tekur gríðarlega mikið pláss, veldur slysum og er samfélagslega óhemju dýr.