
Kólumbía

Labbaði inn á völl með hund sem meig á samherja hans
Fótboltamaður í Kólumbíu varð fyrir því að hundur sem hann fór með inn á völlinn meig á samherja hans.

Deilt um forræði barnanna sem lifðu flugslysið í regnskóginum
Forræðisdeilur eru komnar upp milli ættingja barnanna fjögurra sem lifðu flugslys og 40 daga ein í Amazon-regnskóginum í Kólumbíu. Móðir barnanna lést í kjölfar flugslyssins.

Börnin tala lítið en eru á batavegi
Börnin fjögur, sem fundust í Amazon regnskóginum eftir fjörutíu daga leit, hittu ættingja sína á sjúkrahúsi í Bogotá í gærkvöldi. Þau eru veikburða og tala lítið sem ekkert en hafa greint frá því að týndur hundur hafi veitt þeim félagsskap í skóginum.

Fjögur börn fundust eftir fjörutíu daga í frumskóginum
Fjögur börn sem hafa vafrað allslaus í Amazon-regnkóginum í Kólumbíu undanfarna fjörutíu daga eftir flugslys fundust heil á húfi í gær.

Flúði farbann vegna nauðgunar og býðst til að spila frítt
Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Manga Escobar, sem flúði Ísland í farbanni í desember síðastliðnum eftir að hafa hlotið fangelsisdóm fyrir nauðgun, er ennþá staddur í Kólumbíu og segist ólmur vilja hasla sér völl í atvinnumennsku á ný. Hefur hann boðist til að spila frítt fyrir sitt gamla félag, Deportivo Cali.

Fjögur börn lifðu af flugslys og tvær vikur í óbyggðum
Yfirvöld í Kólumbíu hafa fundið fjögur börn sem voru týnd í Amazon-frumskóginum í sextán daga eftir flugslys. Móðir barnanna lést í slysinu sem og bæði flugmaður og aðstoðarflugmaður vélarinnar.

Stjórnarandstöðuleiðtogi flýr Venesúela í skugga hótana
Juan Guaidó, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, er væntanlegur til Bandaríkjanna eftir að hann honum var vísað frá Kólumbíu. Hann segist hafa yfirgefið heimalandið vegna hótana ríkisstjórnar Nicolás Maduro forseta.

Falski hertoginn
Á annan tug Kólumbíumanna lánaði um margra mánaða skeið mæðginum sem sögðust vera erfingjar gríðarlegra auðæfa og aðalstignar, fleiri hundruð milljónir pesóa. Mæðginin létu sig loks hverfa og það er eins og jörðin hafi gleypt þau.

Flúði land í farbanni vegna nauðgunardóms
Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Escobar Diaz, sem hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir nauðgun fór af landi brott í desember síðastliðnum. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann í september síðastliðnum og bíða afplánunar í fangelsi á Íslandi.

Hundruð þúsundir stúlkna undir 18 ára giftar á ári hverju
Yfir 400.000 stúlkubörn og unglingar giftast í Kólumbíu á ári hverju. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra er beittur andlegu og líkamlegu ofbeldi í hjónabandinu.

Gríðarleg aukning í ræktun kókaínrunna
Ræktun á kókaínrunnum í Kólumbíu hefur aukist um 43 prósent samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Forseti landsins segir stríðið gegn eiturlyfjum vera tapað.

Skattsvikamál Shakiru fyrir dóm á Spáni
Kólumbísku poppstjörnunni Shakiru hefur mistekist að ná dómsátt með spænskum saksóknurum og mun mál hennar vegna meintra skattsvika því fara fyrir dómstóla. Shakira mun þar halda fram sakleysi sínu.

Saksóknarar vilja Shakiru í fangelsi í átta ár
Saksóknarar á Spáni hafa farið fram á að kólumbíska poppstjarnan Shakira verði dæmd í rúmlega átta ára fangelsi verði hún sakfelld fyrir skattsvik. Stjarnan hefur verið ákærð fyrir að hafa svikið 14,5 milljónir evra, eða rúmlega tvo milljarða króna, undan skatti.

Tæplega fimmtíu látnir í bruna í kólumbísku fangelsi
Að minnsta kosti 49 eru látnir og tugir slasaðir til viðbótar eftir að eldur kom upp í fangelsi í suðvestanverðri Kólumbíu í morgun. Eldurinn er sagður hafa kviknað í óeirðum í fangelsinu.

Minnst fjögur látin eftir að stúka hrundi á nautaati
Minnst fjögur létust og hundruð eru slösuð eftir að áhorfendastúka hrundi í El Espinal í Kólumbíu þegar nautaat fór fram í dag.

Kólumbíumenn kjósa vinstrimann í forsetaembættið í fyrsta sinn
Fyrrverandi uppreisnarmaðurinn Gustavo Petro vann sigur í forsetakosningunum í Kólumbíu í gær. Petro verður fyrsti vinstrimaðurinn í sögu landsins til að gegna forsetaembættinu.

Segja að Ekvador verði hent út af HM vegna falsaðs vegabréfs
Hætt er við því að Ekvador fái ekki að taka þátt á HM karla í fótbolta í Katar í vetur. Síle fái sæti liðsins þar sem ólöglegur leikmaður, með falsað ekvadorskt vegabréf, spilaði með liðinu í undankeppninni.

Líkur á vinstrisinnuðum forseta í Kólumbíu í fyrsta sinn frá lýðveldisstofnun
Seinni umferð forsetakosninga Kólumbíu mun fara fram 19. júní næstkomandi, þar sem enginn frambjóðenda hlaut meira en helming atkvæða í fyrri umferð sem fór fram á sunnudag. Gustavo Petro, vinstrisinnaður fyrrverandi borgarstjóri höfuðborgarinnar Bogotá hlaut þar 40 prósent atkvæða og mun mæta Rodolfo Hernandez, íhaldsömum viðskiptafrömuði, í einvíginu.

Lögregla frá þremur löndum leitar morðingja saksóknara
Líklegt er talið að paragvæskur saksóknari sem var skotinn til bana í Kólumbíu á þriðjudag hafi verið myrtur vegna baráttu hans gegn glæpum. Lögreglumenn frá Kólumbíu, Paragvæ og Bandaríkjunum leita nú morðingja hans.

Saksóknari myrtur í brúðkaupsferðinni sinni
Paragvæskur saksóknari sem var þekktur fyrir baráttu sína gegn skipulögðum glæpasamtökum var skotinn til bana í brúðkaupsferð sinni á ferðamannaströnd í Kólumbíu. Eiginkona hans hafði tilkynnt að hún ætti von á barni aðeins nokkrum klukkustundum áður en hann var myrtur.

Leikjahæsti leikmaður Kólumbíu á HM látinn eftir bílslys
Freddy Rincon, fyrrverandi fyrirliði kólumbíska landsliðsins í fótbolta, er látinn aðeins 55 ára að aldri.

Glæpabaróninn Otoniel verður framseldur til Bandaríkjanna
Eiturlyfjabaróninn Dario Antonio Úsuga, kallaður Otoniel, verður framseldur til Bandaríkjanna. Otoniel var handsamaður á laugardag í umfangsmikilli aðgerð lögreglunnar og hersins í Kólumbíu.

Handsömuðu einn alræmdasta glæpaforingja Kólumbíu
Lögregla og her í Kólumbíu handsamaði í dag einn alræmdasta glæpaforingja landsins, Dairo Antonio Usuga, sem er einnig þekktur sem Otoniel, eftir fimm ára þrotlausa leit.

Rannsaka mögulegt tilfelli Havana-heilkennisins í Kólumbíu
Bandarísk yfirvöld rannsaka nú möguleg tilfelli Havana-heilkennisins í bandaríska sendiráðinu í Kólumbíu aðeins nokkrum dögum áður en utanríkisráðherra Bandaríkjanna á að ferðast þangað.

Hinir grunuðu tengdir við fundi um framtíð Haítí
Ráðamenn á Haítí segja hina grunuðu í morði Jovenel Moise, forseta, hafa hist í aðdraganda morðsins og rætt næstu skref eftir dauða forsetans. Hinir grunuðu segjast hafa verið að tala um næstu skref ef Moise stigi úr embætti.

Reyna að púsla atburðarásinni á Haítí saman og heita því að hafa hendur í hári höfuðpaursins
Yfirmenn lögreglunnar á Haítí vinna nú að því að púsla saman þeim upplýsingum sem fyrir liggja um morð Jovenel Moise, forseta landsins, sem skotinn var til bana á heimili sínu aðfaranótt miðvikudags. Hópur þungvopnaðra málaliða réðst á heimili hans og skaut hann til bana, auk þess sem eiginkona hans var særð lífshættulega.

Suður-Ameríkukeppnin tekin af Kólumbíu vegna mótmælaöldu í landinu
Kólumbía mun ekki halda Suður-Ameríkukeppnina í sumar eins og til stóð vegna mótmælaöldu í landinu. Mótið fer nú eingöngu fram í Argentínu.

Sautján látnir eftir mótmæli síðustu daga
Sautján manns hið minnsta eru látnir eftir mótmæli síðustu fimm daga á götum kólumbísku höfuðborginnar Bogota og í öðrum stórborgum landsins. Mótmælin hafa beinst að fyrirhuguðum breytingum stjórnvalda á skattalöggjöf landsins.

Héldu hreinu í 57 mínútur með aðeins sjö leikmenn inni á
Aðeins sjö leikmenn voru í byrjunarliði Rionegro Aguilas gegn Boyaca Chico í kólumbísku úrvalsdeildinni í gær. Á endanum þurfti þó að flauta leikinn af.

Sakaðir um að myrða almenna borgara sem flýja átökin
Flóttamenn í Kólumbíu, sem flúið hafa stríðsátök í Venesúela, hafa sakað stríðandi fylkingar um að hafa misnotað og myrt almenna borgara. Um fjögur þúsund flóttamenn hafa farið yfir landamærin undanfarna viku en á sunnudaginn var hófust átök í La Victoria, stuttu frá landamærunum við Kólumbíu.