
Afganistan

Biden segir Afgana þurfa að berjast fyrir landinu sínu
Joe Biden forseti Bandaríkjanna segist ekki sjá eftir að hafa kallað herlið Bandaríkjamanna í Afganistan heim þótt Talibanar hafi að undanförnu náð hverri héraðshöfuðborg landsins á sitt vald.

Hver borgin fellur á fætur annarri
Vígamenn Talibana hafa hert tök sín á yfirráðasvæðum þeirra í norðurhluta Afganistans og virðast þeir vera að undirbúa sig fyrir það að stjórna svæðum þessum til lengri tíma. Stjórnarher landsins á undir högg að sækja en Bandaríkjamenn segja það á ábyrgð Afgana sjálfra að verjast Talibönum.

Talibanar taka tvær borgir til viðbótar
Vígamenn Talibana segjast hafa náð tökum á borginni Kunduz, höfuðborg Kunduz-héraðs. Það er eftir harða bardaga í borginni en fregnir hafa einnig borist af falli borgarinnar Sar-e-Pul, sem er einnig höfuðborg héraðs með sama nafn.

Talibanar ná annarri höfuðborg
Vígamenn Talibana hafa náð tökum á annarri héraðshöfuðborg í Afganistan. Borgin Sheberghan, höfuðborg Jawzjan-héraðs, er önnur höfuðborgin sem fellur í skaut Talibana á tveimur dögum.

Talibanar taka fyrstu borgina án þess að hleypa af skoti
Vígamenn Talibana hafa náð tökum á fyrstu héraðshöfuðborg landsins. Borgin Zaranj í Nimruz-héraði féll í hendur þeirra án þess að skoti væri hleypt af. Zaranj er nærri landamærum Afganistans og Írans.

Reyndu að myrða varnarmálaráðherrann og heita fleiri árásum á leiðtoga
Talibanar gerðu í gær bíræfna tilraun til að ráða varnarmálaráðherra Afganistans af dögum og heita frekari árásum á leiðtoga ríkisstjórnar landsins. Bismillah Khan Mohammadi, ráðherrann, var ekki heima og verðir fluttu fjölskyldu hans á brott.

Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana
Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat.

Forseti Afganistan kennir brottför Bandaríkjahers um versnandi ofbeldi
Ashraf Ghani, forseti Afganistan, hefur kennt skyndilegri og snöggri brottför Bandaríkjahers um versnandi ofbeldi í landinu. Her Afganistan á nú í erfiðum átökum við herskáa Talíbana.

Hafa áhyggjur af auknum árásum á almenna borgara
Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af fregnum af auknum árásum á almenna borgara í Afganistan. Sameinuðu þjóðirnar segja þær árásir hafa náð nýjum hæðum að undanförnu samhliða stórri sókn Talibana, sem hafa lagt undir sig stóran hluta landsins síðustu mánuði.

Aldrei hafa fleiri almennir borgarar látist í Afganistan
Almennir borgarar í Afganistan sem deyja í átökum hafa sjaldan eða aldrei verið fleiri en nú um stundir, síðan Sameinuðu þjóðirnar hófu að safna slíkum tölum í landinu.

Lofa öllu fögru en halda áfram að ógna og myrða
Talibanar munu ekki semja um frið fyrr en Ashraf Ghani, núverandi forseti, fer frá völdum og ný ríkisstjórn verði mynduð. Þeir segjast ekki vilja stjórna einir þar sem engum hafi tekist það til lengri tíma.

Blaðamaður Reuters felldur í átökum við Talibana
Danish Siddiqui, blaðamaður og ljósmyndari Reuters fréttaveitunnar, féll í bardögum stjórnarhers Afganistans og Talibana við landamæri Afganistans og Pakistans í morgun. Siddiqui var á ferð með afgönskum hermönnum þar sem þeir reyndu að ná aftur tökum á bænum Spin Boldak.

Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp
Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Vörðust stórri sókn Talibana
Stjórnarher Afganistans varðist áhlaupi vígamanna Talibana á Taluqan, höfuðborg héraðsins Takhar, sem liggur að landamærum Afganistans og Tadsíkistan. Talibanar hafa lagt undir sig mikið landsvæði í Afganistan að undanförnu en stjórnarherinn segir þá hafa orðið fyrir miklu mannfalli í þessari árás.

Talibanar ráða flugmenn markvisst af dögum
Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum.

Allt herlið horfið frá Afganistan fyrir lok sumars
Joe Biden Bandaríkjaforseti lofaði því í gærkvöldi að hann muni ekki senda aðra kynslóð Bandaríkjamanna í stríðreksturinn í Afganistan sem nú hefur staðið í tvo áratugi.

Johnson kallar herlið Bretlands í Afganistan heim
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að herlið Bretlands í Afganistan verði fljótlega kallað aftur heim. Breskar hersveitir hafa verið með viðveru í Afganistan í tuttugu ár, frá hryðjuverkaárásinni á Tvíburaturnana árið 2001.

Yfirgáfu stærstu herstöðina í skjóli nætur
Síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu Bagram herstöðina, þá stærstu í Afganistan, um miðja nótt og án þess að segja nýjum afgönskum yfirmanni herstöðvarinnar frá því. Afganskir hermenn uppgötvuðu ekki að þeir væru einir fyrr en nokkrum klukkustundum síðar.

Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan
Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn.

Síðustu hermenn NATO yfirgefa Bagram-herstöðina
Síðustu hermennirnir úr röðum Bandaríkjahers og annarra NATO ríkja hafa nú yfirgefið Bagram herflugvöllinn í Afganistan. Völlurinn hefur verið aðalbækistöð herliðsins allar götur síðan stríðið gegn Talíbönum og al-Kaída hófst fyrir um tuttugu árum síðan.

Tyrkland komið á lista yfir ríki sem tengjast barnahermennsku
Tyrklandi var bætt við lista Bandaríkjanna yfir ríki sem hafa tengingu við notkun barnahermanna á undanförnu ári. Þetta er fyrsta skiptið sem Tyrkland, sem er í Atlantshafsbandalaginu, hefur komist á slíkan lista. Talið er að þetta muni flækja samskipti ríkjanna, sem þegar eru nokkuð slæm, umtalsvert.

Varar við borgarastyrjöld í Afganistan
Austin Miller, herforingi og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, varaði í dag við því að Afganar stæðu frammi fyrir erfiðum tímum og mögulega borgarastyrjöld. Leiðtogar ríkisins og aðrir öflugir hópar þurfi að taka höndum saman og berjast gegn Talibönum í kjölfar brottfarar bandarískra hermanna frá landinu.

Um 650 bandarískir hermenn verða eftir í Afganistan
Áætlað er um 650 bandarískir hermenn verði eftir í Afganistan þegar búið verður að kalla herlið Bandaríkjahers heim. Hermönnunum sem eftir verða, verður ætlað að tryggja öryggi bandarískra emættismanna í Afganistan.

Kalla bjórinn heim frá Afganistan
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa ákveðið að ráða verktaka í að flytja tæplega 23 þúsund lítra af bjór frá Afganistan aftur til Þýskalands, nú þegar Atlantshafsbandalagið (NATO) undirbýr að draga hermenn sína út úr Afganistan.

Afganski herinn sagður í slæmu ástandi og óundirbúinn fyrir væntanleg átök
Afganski herinn er illa búinn fyrir væntanleg átök við Talibana. Sérfræðingar segja erfiða bardaga í vændum fyrir hermennina sem eru bæði illa þjálfaðir og útbúnir og þykja álíka líklegir til að sýna ríkisstjórninni hollustu og ganga til liðs við einhverja af fjölmörgum stríðsherrum Afganistans.

Talibanar ná tökum á mikilvægu svæði nærri Kabúl
Vígamenn Talibana hafa ná stjórn á Nerkh-héraði sem gæti nýst þeim sem gætt inn í Kabúl, höfuðborg landsins. Sveitir Talibana eru nú einungis um fjörutíu kílómetra frá höfuðborginni en héraðið hefur áður verið notað til að gera mannskæðar árásir á Kabúl.

Tugir látnir í sprengjuárás skammt frá skóla í Kabúl
Að minnsta kosti fjörutíu eru látnir eftir sprengjuárás sem gerð var nærri skóla í vesturhluta afgönsku höfuðborgarinnar Kabúl í dag.

Námsmenn á meðal þrjátíu látinna í bílsprengjuárás
Þrjátíu manns féllu þegar bílsprengja sprakk við gistiheimili í borginni Pul-e-Alam í austanverðu Afganistan í dag. Á meðal þeirra látnu voru framhaldsskólanema sem voru í borginni til að þreyta inntökupróf í háskóla.

NATO byrjar brottflutning frá Afganistan
Atlantshafsbandalagið er byrjað að flytja hermenn og búnað frá Afganistan, samhliða Bandaríkjunum. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nýverið að aðkomu Bandaríkjanna að stríðinu í Afganistan verði lokið fyrir 11. september, á tuttugu ára afmæli árásarinnar á Tvíburaturnana.

Talibanar með pálmann í höndunum
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í vikunni þá ákvörðun að kalla alla hermenn Bandaríkjanna heim frá Afganistan fyrir 11. september næstkomandi. Það ætlar hann að gera án þess að setja talibönum skilyrði. Ákvörðunin gæti reynst íbúum landsins afdrifarík.