
Lífeyrissjóðir

Sjö af stærstu lífeyrissjóðum landsins tóku ekki þátt í skuldabréfaútboðinu
Skúli segir að rætt verði við alla líklega fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóði.

Lífeyrissjóðir gætu eignast meirihlutann í HS Orku
Jarðvarmi, sem er í eigu fjórtán lífeyrissjóða, hefur um tvo mánuði til að beita forkaupsrétti sínum og ganga inn í kaup á meirihlutanum í HS Orku sem samið var um í gær að selja til MIRA.

Wow í vanskilum með iðgjaldaframlög
Hafa haldið eftir mótframlagsgreiðslum í þrjá mánuði en starfsmenn voru látnir vita í dag.

LSR bætir við sig í HB Granda en Lífeyrissjóður verslunarmanna selur
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hefur á undanförnum sex mánuðum bætt við sig í HB Granda með kaupum á samanlagt ríflega 0,9 prósenta hlut í útgerðinni, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa hennar.

Sammála um aðkomu lífeyrissjóðanna að leigumarkaðnum
María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins, segir að félagið hafi fundað með VR og þar hafi komið í ljós mikill samhljómur um leigumarkaðinn.

Leyndarhjúpur laskar traust til lífeyrissjóða
Af hverju skyldi einhver treysta bankakerfinu, spurði Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor, á morgunverðarfundi Fjármálaeftirlitsins í vikunni.

Verðtryggðir vextir LIVE aldrei verið lægri
Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) hefur lækkað breytilega vexti á verðtryggðum lánum úr 2,51 prósent í 2,36 prósent.

Eiga orðið jafn mikið í lánum og hlutabréfum
Hlutdeild sjóðfélagalána af heildareignum lífeyrissjóðanna hækkaði hratt á síðasta ári og er næstum því jafn há og hlutdeild innlendra hlutabréfa. Vantar fleiri fjárfesta á markaðinn, segir dósent í hagfræði.

Segir 16 prósent landsmanna treysta lífeyrissjóðunum
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir nauðsynlegt að taka lífeyriskerfið til endurskoðunar.

Lífeyrissjóðir leggi hinu opinbera lið
Skynsamlegt væri af hálfu stjórnvalda að fjölga þátttakendum í uppbyggingu innviða, að mati framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs.

Vill fjármagna vegaframkvæmdir með lánum sem greiðist með vegtollum
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, telur að heildarupphæð lánsfjármagns sem Vegagerðin þarf til framkvæmda sem settar eru í forgang sé minnst 50 milljarðar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Eignast ekki stærri en fimm prósenta hlut
Lífeyrissjóðir munu líklega kaupa hlut í Íslandsbanka og Landsbankanum ef hlutabréf í þeim verða skráð á markað en þeir horfa ekki til þess að eignast stærri en fimm prósenta hlut.

Nýttu ekki forkaupsrétt að hlut í HS Orku
Stjórn Jarðvarma, samlagshlutafélag fjórtan lífeyrissjóða sem eiga þriðjungshlut í HS Orku, ákvað að nýta sér ekki forkaupsrétt sinn að 12,7 prósenta hlut í orkufyrirtækinu, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Upplýsingagjöf til almennings um lífeyrismál verður stóraukin hjá Landssamtökum lífeyrissjóða
Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóðanna fer á morgun yfir það hvernig hægt er að kynna ávöxtunartölur sjóðanna á einfaldan hátt. Ekki tekst þó að birta upplýsingarnar á þessu ári eins og vonast hafði verið til, að sögn framkvæmdastjóra samtakanna. Lífeyrisgreiðendur skorti þekkingu á kerfinu.

Ávöxtun lífeyrissjóða getur skilið á milli þess að lifa góðu lífi eða við fátæktarmörk við starfslok
Gríðarlega mikill munur getur verið á greiðslum úr lífeyrissjóðum við starfslok eftir því hvernig ávöxtun þeirra hefur verið háttað að sögn sérfræðings í lífeyrismálum. Hann gagnrýnir að Landssamtök lífeyrissjóða hafi ekki ennþá birt samanburð á ávöxtun skyldulífeyrissjóða svo sjóðsfélagar geti borið þá saman á einfaldan hátt.

ASÍ ekki rætt hugmyndir Ragnars Þórs
"Þessar hugmyndir hafa ekki verið ræddar innan Alþýðusambandsins. En það er stöðugt til umræðu hjá okkur hvernig hægt er að beita lífeyrissjóðunum,“ segir Drífa Snædal.

Formaður VR vill fulltrúa atvinnulífsins út úr stjórnum lífeyrissjóða
Formaður VR vill að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins hverfi úr stjórnum lífeyrissjóðanna og óheyrilegur kostnaður við rekstur þeirra verði skorinn niður.

FME telur hugmynd formanns VR stangast á við lög
Fjármálaeftirlitið gerir að því skóna að tillögur sem formaður VR viðraði í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöldi stangist á við lög.

Hugmyndir formanns VR um lífeyrissjóðina leggjast illa í SA
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir það ekki liðka fyrir samningum að forysta verkalýðshrefingarinnar hóti að beina því til lífeyrissjóða að frysta fjárfestingar á meðan samningar séu lausir.

Segir lífeyrissjóðina ekki mega stjórnast af þvingunum
Lífeyrissjóðirnir myndu bregðast lögbundnu hlutverki sínu ef skrúfað yrði fyrir fjárfestingar.

Íslenskir lífeyrissjóðir selja bréf sín í Klakka
Íslenskir lífeyrissjóðir hafa að undanförnu gengið frá sölu á stórum hluta bréfa sinna í Klakka, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Eignirnar helmingast á þremur árum
Eignir íslenskra hlutabréfasjóða hafa nær helmingast á þremur árum. Talsvert hefur verið um innlausnir fjárfesta, sér í lagi lífeyrissjóða. Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir áhyggjuefni að innlendir langtímafjárfestar sjái ekki tækifæri í að viðhalda hlut sínum á markaði.

Segir fólk fá lægri greiðslur úr lífeyrissjóðum þar sem konur eru í meirihluta
Eftirlaunagreiðslur þeirra sem greiða í lífeyrissjóð þar sem konur eru í meirihluta eru að jafnaði lægri en hjá þeim sem greiða í sjóði þar sem kynjahlutföllin eru jafnari.

Sjóðsfélagar fá forgang að íbúðum eldri borgara
Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Lífsverk telur að fjármögnunin brjóti sé blað í sögu íslenskra lífeyrissjóða.

Lítil virkni háir hlutabréfamarkaðinum
Sókn lífeyrissjóða erlendis er skynsamleg en hefur skilið eftir tómarúm á íslenska hlutabréfamarkaðinum. Lítil velta hjá stórum fjárfestum bjagar verðmyndun skráðra félaga í Kauphöllinni að mati hagfræðings.

Leggja til breytingar á ráðstöfun tilgreinds séreignarsparnaðar
VR krefst þess eins og Starfsgreinasambandið að lágmarkslaun verði 425 þúsund krónur í lok þriggja ára samningstímabils. Þjóðarátak verði gert í húsnæðismálum og að launafólk geti ráðstafað að vild tilgreindri séreign sem nýlega var tekin upp og geti nýtt hana til greiðslu húsnæðislána.