Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Hafnarfjarðarbær hyggst ekki hækka almennar gjaldskrár umfram 2,5 prósent á árinu 2027. Þá hyggst bærinn hverfa frá lækkun á systkinaafsláttarkerfi fyrir leikskóla á þeim grundvelli að sú breyting hefði getað haft í för með sér hækkun umfram 2,5 prósent fyrir tiltekna hópa. Innlent 2.10.2026 20:21
Fréttamaður missti af strætónum til baka Hversu einfalt og þægilegt er að taka strætó á Keflavíkurflugvöll nú þegar vagninn ekur farþegum alveg upp að flugstöðinni? Fréttastofa kannar málið í beinni útsendingu og ræðir við gesti og gangandi. Neytendur 2.10.2026 09:45
Uppsagnir hjá Klettabæ Klettabær, sértækt búsetuúrræði til langs- og skamms tíma, hefur sagt upp 28 starfsmönnum. Breytingarnar tengjast því að einhverjir skjólstæðingar eru á leið í önnur úrræði. Framkvæmdastjórinn segir þetta þungbært skref. Innlent 1.10.2026 15:52
Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Tveir dælubílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og sjúkrabíll voru kallaðir að íbúðarhúsi á Norðurbakka í Hafnarfirði vegna tilkynningar um reyk frá fjölbýlishúsi. Þá reyndist reykurinn koma frá lyftu hússins. Innlent 27. september 2026 14:12
Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Maður gekk inn á lögreglustöðina í Hafnarfirði og óskaði eftir efnagreiningu á fíkniefnum sem hann hafði í fórum sér. Hann var í kjölfarið handtekinn fyrir vörslu á fíkniefnum. Innlent 25. september 2026 17:54
„Meira en tvö stig undir“ Montrétturinn sem og toppsæti Olís deildarinnar er undir þegar að FH tekur á móti Haukum í nágrannaslag í Kaplakrika. Þar hafa Haukar ekki unnið síðan árið 2024 en þeir verma toppsæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins. Handbolti 24. september 2026 12:01
Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Lögregla hóf eftirlit með einum ákærðu í Straumsvíkurmálinu svokallaða eftir að hann kom hingað til lands með tvo kafarabúninga og tvær svokallaðar neðansjávarvespur í bíl sínum. Innlent 23. september 2026 14:16
Líkamsárás í Breiðholti Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkamsárás í Efra-Breiðholti. Brotaþoli er sagður hafa hlotið minniháttar áverka og var einn handtekinn. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangageymslu. Innlent 23. september 2026 06:25
Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Lögreglunni á stöð fjögur, sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og í Árbænum, barst tilkynning um bíl utan vegar en í ljós kom að ökumaður hafði misst stjórn á bílnum og hafnað á vegg. Sá hinn sami hlaut þó einungis minni háttar áverka en fjarlæga þurfti bílinn með kranabifreið. Ekki liggur fyrir hvort um hraðakstur eða grun um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna hafi verið að ræða. Innlent 20. september 2026 18:02
Tuttugu lögðu ólöglega Lögreglan þurfti að sinna fjölda ökumanna í nótt sem voru í órétti. Að undanskildu einu innbroti er dagbók lögreglu í dag undirlögð umferðarlagabrotum. Innlent 20. september 2026 08:27
Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Stálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn sem skilaði upphæðinni var keyptur í Fjarðakaupum í Hafnarfirði. Neytendur 19. september 2026 20:04
Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í dag útkalli þar sem ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Sá reyndist einnig vera með hníf á sér og án ökuréttinda. Þegar farþegi í bílnum neitaði að framvísa skilríkjum var hann fluttur á lögreglustöð eitt til þess að sanna hver hann væri. Innlent 19. september 2026 18:39
Eftirlýstur og með vopn á sér Eftirlýstur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögregla hafði af honum afskipti og fann á honum vopn. Innlent 19. september 2026 07:13
Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni. Innlent 17. september 2026 07:36
„Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Stjórnarformaður Tækniskólans telur að Hafnarfjarðarbær þurfi að standa undir tjóni sem verður af því að skólinn fékk ekki lóð í Hafnarfirði. Fjölmörg sveitarfélög hafa boðað fram aðstoð, þar á meðal Reykjavíkurborg. Innlent 15. september 2026 22:18
Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Nýr Tækniskóli verður ekki í Hafnarfirði eftir að bæjaryfirvöld flöskuðu á að kaupa lóðir sem þau höfðu lofað. Varaformaður bæjarráðs segir það vonbrigði að missa skólann úr bænum. Innlent 15. september 2026 12:00
Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Nýbygging Tækniskólans verður ekki í Hafnarfirði líkt og stóð til eftir að bænum tókst ekki að afhenda skólanum lóðina sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð. Innlent 14. september 2026 17:55
Slökkvilið í Hafnarfjörð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna reyks í heimahúsi í Hafnarfirði á fimmta tímanum í dag. Innlent 13. september 2026 16:44
Sökk í þriðja sinn í höfninni Báturinn Jökull sökk í nótt í Hafnarfjarðarhöfn. Þetta er í þriðja skiptið sem báturinn sekkur í höfninni. Að sögn stjórnarmanns hafnarinnar stóð til að fjarlæga bátinn úr höfninni á næstu dögum. Innlent 13. september 2026 13:32
Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Að eiga barn er Guðs gjöf og ekki eru allir svo heppnir að eignast barn. Að eiga fatlað barn er einnig Guðs gjöf, er einhver munur? Já, mikill munur, fatlaða barnið þarf meiri þjónustu og umönnun en það „heilbrigða“ oft á tíðum. Skoðun 10. september 2026 13:15
Útför Steins Ármanns Steinn Ármann Magnússon leikari var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan 13. Útförinni var streymt á Vísi. Innlent 10. september 2026 12:00
Jarðsyngur sinn besta vin Útför Steins Ármanns Magnússonar leikara verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, heimabæ leikarans, klukkan 13 í dag. Davíð Þór Jónsson, prestur og besti vinur Steins, jarðsyngur. Útförinni verður streymt á Vísi. Innlent 10. september 2026 10:03
Sex gistu í fangageymslu í nótt Tveir voru handteknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir söludreifingu fíkniefna og ólöglega dvöl. Alls gistu sex í fangageymslu lögreglunnar í nótt. Innlent 9. september 2026 06:27
Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Einn var vistaður í fangaklefa fyrir að hafa verið ógnandi og í annarlegu ástandi með hníf innandyra. Hann er sömuleiðis grunaður um vörslu fíkniefna. Innlent 8. september 2026 06:30