
Grindavík

Almannavarnir boða til upplýsingafundar
Upplýsingafundur almannavarna verður haldinn klukkan 19:00 í dag og fer fram í Skógarhlíðinni.

Ríkisstjórnin fundar vegna eldgossins
Ráðherranefnd ríkisstjórnar Íslands mun funda klukkan fimm í dag vegna eldgossins sem hófst í morgun. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er á leið til landsins, en hún hefur verið erlendis undanfarna daga.

Bein útsending frá gosstöðvunum
Eldgos hófst rétt norðan Grindavíkur klukkan 07:57 á sunnudagsmorgun. Í fréttinni má sjá gosstöðvarnar í beinni útsendingu.

Hætta á fleiri gossprungum í Grindavík
Veðurstofan metur aukið kvikuflæði í kvikuganginum undir Grindavík. Fleiri gossprungur gætu opnast inni í bænum.

Hraun runnið yfir Grindavíkurveg
Hraunrennslið úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð yfir Grindavíkurveg. Þetta sést á vefmyndavélum.

„Þetta hraun mun því miður flæða hratt í átt að nyrstu byggð“
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, segir aðeins fimmtíu til hundrað metra í nyrstu byggð í Grindavík frá sprungunni sem opnaðist innan varnargarða skömmu eftir klukkan 12.

Unnið að varnargörðunum fáeinum metrum frá hrauninu
Enn er vinna í gangi við varnargarðinn við Grindavíkurveg þrátt fyrir að hraunflæðið sé einungis örfáum metrum frá. Miðað við hraða hraunsins er ljóst að vinnuflokkurinn getur ekki unnið mikið lengur.

Ný sprunga hefur opnast rétt norðan bæjarins
Ný sprunga hefur opnast rétt norðan byggðar í Grindavík. Sprungan opnaðist um klukkan 12:10, norðan götunnar Efrahóps.

Flogið yfir gosstöðvarnar
Ný myndskeið sem tekin eru með dróna sýna skýrt hversu nálægt Grindavíkurbæ gossprungan, sem opnaðist í morgun, er.

Nýjar sprungur hafa opnast í Grindavík
„Við sjáum í Grindavík að það eru nýjar sprungur búnar að opnast. Við erum með dróna yfir bænum og við erum að sjá nýjar sprungur. Við erum að sjá gufu sem þýðir að heita vatnið er farið í sundur á einhverjum stöðum. Það er eitt og annað sem á eftir að koma í ljós.“

„Þetta er bara alveg hrikaleg staða“
„Þetta er bara alveg hrikaleg staða. Mikið áfall,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra um yfirstandi eldgos sem hófst nálægt Grindavík í morgun. Hún segir hug sinn hjá íbúum Grindavíkur en biðlar til allra að halda ró sinni.

Gosið sést víða að
Eldgosið við Grindavík sést vel frá höfuðborgarsvæðinu og víðar.

Grindvíkingar „eins og innflytjendur í eigin landi“
Hún Cortina frá Rúmeníu var komin upp að gosstöðvunum snemma í morgun þar sem hún á frí í vinnunni í dag. Hún segist finna til með Grindvíkingum sem innflytjenda og segir þá vera orðna eins konar innflytjenda í eigin landi.

Hraunflæðið fjórðungur af því sem var síðast
Prófessor í jarðeðlisfræði segir aðeins nokkrar klukkustundir í að hraun nái að renna til húsa innan Grindavíkurbæjar, ef hraunflæði helst óbreytt.

Aukafréttatími í opinni dagskrá á Stöð 2
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efndi til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins norðan Grindavíkur.

Skrítið að vakna við fréttir um að húsið sé að fara undir hraun
Forstjóri líftæknifyrirtækisins ORF segir skrítið að hafa vaknað við þær fréttir í morgun að hraun rynni í átt að gróðurhúsi fyrirtækisins fyrir ofan Grindavík. Það komi honum þó ekki alveg á óvart, enda sitji húsið á sprungunni sem klýfur bæinn.

„Vinsamlegast gefið okkur vinnufrið“
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður.

Bein útsending: Eldgosið rætt á Sprengisandi
Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í morgun verður fyrirferðarmest í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sem hófst klukkan 10 í morgun.

„Þetta virðist ekki vera jafnmikill ofsi“
Hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi eldgos vera minna en það síðasta. Hluti hraunsins renni innan varnargarða við Grindavík en meirihluti þess renni í suðvestur, „réttu megin“ við garðana.

Skiptinemar einir fyrstu við gosstöðvarnar
Einir fyrstu til að koma og bera gosið augum voru tveir skiptinemar við háskólann. Þau Hanna Kling og Léon Mizera segjast hafa ætlað í dagsferð og voru á skrifstofu bílaleigu þegar þeim bárust fréttir að gos væri hafið. Þau hafi hlaupið út og séð himinbjarmann og ákveðið að breyta um áætlun.

Tóku spennu af háspennustreng til að verja orkuverið
Páll Erland, forstjóri HS Veitna, segir í samtali við Vísi að helsta áhyggjuefnið, hvað varðar orkumál, séu rafmagnsinnviðir við Grindavíkurveg og inni í Grindavíkurbæ.

Bjarga verðmætum undan hraunflæðinu
Menn eru að vinnu við að bjarga jarðýtum og fleiru, sem er alveg við hraunjaðarinn.

Hefur ekki áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar
Eldgosið norðan Grindavíkur, sem hófst skömmu fyrir klukkan átta í morgun, hefur ekki haft áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar eða áætlun innanlandsflugs.

Myndir úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar
Vísindamenn eru í eftirlitsflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Myndir teknar úr þyrlunni benda til þess að gossprunga sé opin beggja megin varnargarðs norðan Grindavíkur.

Sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna
Af fyrstu myndum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar hefur sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna sem byrjað vara að reisa norðan Grindavíkur.

Hraunið hefur náð að varnargörðum
Hraunið sem rennur úr gíg sunnan Hagafells hefur nú náð varnargörðum sem hafa verið í byggingu norðan Grindavíkur.

Hraun rennur líklega í suður í átt að bænum
Hraun úr eldgosinu, sem hófst laust fyrir klukkan 08, rennur að öllum líkum í suður í átt að Grindavíkurbæ. Það kom þó upp norðan varnargarða við bæinn.

Eldgos er hafið
Eldgos er hafið norðan við Grindavík. Fyrsta mat á staðsetningu er nálægt Sundhnúk klukkan 7:57 í morgun.

Hætta aukist á öllum svæðum og uppfæra hættumatskort
Veðurstofan hefur uppfært hættumatskort í ljósi túlkunar nýjustu gagna. Hætta hefur aukist á öllum svæðum.

Ekkert annað að gera en að bíða og sjá
„Það er ekki margt annað hægt að gera en að bíða og sjá hvernig málin þróast. Það er búið að rýma bæinn.“