Reykjanesbær

Íbúar í Höfnum loki gluggum vegna mengunar
Á mælum Umhverfisstofununar mælist nú mikil mengun í Höfnum. Vegna þess mæla Almannavarnir með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu.

Ástríðufullur safnari í Reykjanesbæ
Á heimili Ólafs Ólafssonar í Reykjanesbæ er líklega að finna eitt stærsta einkasafn landsins af merkjum og fatnaði sem tengjast starfsemi lögreglu, flugi, hersins og ýmissa annarra embættisaðila, bæði íslenskum og erlendum. Þar má meðal annars finna lögregluhúfu frá 1930, smellubindi frá Varnarmálastofnun Íslands, húfumerki yfirmanna Landhelgisgæslunnar frá tímum Þorskastríðsins því og svo mætti lengi telja.

Vildi fá ökuréttindi án þess að taka prófið og réðst á mann
Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir fjölda brota. Hann var meðal annars fundinn sekur um hrinda manni sem reyndi að róa hann niður eftir að starfsmaður Frumherja neitaði að veita honum ökuréttindi án þess að hann tæki bílpróf. Hann var einnig sakfelldur fyrir að senda sprengjuhótanir.

Rokksafni Íslands verður ekki lokað
Ekki stendur til að loka Rokksafni Íslands í Hljómahöll í Reykjanesbæ þó það eigi að flytja bókasafn bæjarins í húsið og efla starfseminni í því með samfélagsmiðstöð.

Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum
Suðurnes hafa að geyma hlutfallslega fleiri leiguíbúðir í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en nokkur annar landshluti. Fimmtungur íbúða í landshlutanum er skráður í leiguskrá.

Braut tönn með skalla á líkamsræktarstöð í Reykjanesbæ
Karlmaður hlaut í síðustu viku tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás sem átti sér stað í líkamsræktarsal Sporthússins í Reykjanesbæ.

„Við erum að vinna í því að koma í veg fyrir þetta kjaftæði“
Guðný Kristjánsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ og tengdadóttir rokkarans keflvíska Rúnars Júlíussonar segir meirihluta bæjarbúa vera ósáttan með ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að flytja bókasafn bæjarins í Hljómahöll og takmarka starfsemi Rokksafns Íslands. Hún segist munu berjast gegn áformum bæjarstjórnarinnar með öllum tiltækum ráðum.

Skórinn skal passa- sama hvað tautar og raular!
Vinstri meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur enn og aftur sýnt hvers hann er megnugur þegar kemur að því að því að forðast fagleg vinnubrögð og umræðu um þau eins og heitan eldinn.

Fjórtán sagt upp í einu hópuppsögn mánaðarins
Fjórtán manns var sagt upp í einu hópuppsögn til tilkynnt var til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði.

Nauðgaði sautján ára stúlku í leigubíl á Reykjanesbrautinni
Abdul Habib Kohi hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar, fyrir að hafa nauðgað sautján ára stúlku í leigubíl sínum þegar hann ók henni heim.

Bein útsending: Upplýsingafundur um vatn og rafmagn í Reykjanesbæ
Upplýsingafundur um afhendingaröryggi vatns og raforku á Suðurnesjum fer fram í Reykjanesbæ í kvöld. Þar verður meðal annars fjallað um viðbrögð við jarðhræringum og forvarnir og verður fólki gert kleift að spyrja spurninga úr sal eða í gegnum Facebook.

Fjórtán sagt upp hjá Keili og FS tekur yfir brautir
Fjölbrautaskóli Suðurnesja mun taka yfir hluta af starfsemi Keilis eftir að samkomulag um slíkt náðist. Fjórtán starfsmönnum Keilis hefur verið sagt upp í kjölfarið.

Gaslykt í Reykjanesbæ vegna blöndu frá hrauninu og virkjuninni
Umhverfisstofnun hafa borist ábendingar um sterka gaslykt í Reykjanesbæ undanfarna daga. Fólk hafi jafnvel fundið fyrir einkennum á borð við sviða í hálsi og höfuðverk.

Útlendingamál í ólestri
Það hefur lengi verið vitað að útlendingamálin í Reykjanesbæ eru í algjörum ólestri. Samkvæmt nýjustu tölum, sem komu fram vegna fyrirspurnar minnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, kemur í ljós að í Reykjanesbæ dvelja samtals 1.383 hælisleitendur og flóttamenn.

Sundlaugar Suðurnesja geta opnað á ný
Hitaveitan í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum hefur náð jafnvægi. Sundlaugar geta því opnað á ný eftir að hafa verið lokaðar allt frá því að hitaveitulögn fór í sundur vegna hraunflæðis fyrir viku síðan.

Rafmagn af hluta Keflavíkur í nótt
Rafmagn verður tekið af á afmörkuðu svæði Keflavík í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HS Veitna. Þar er birt kort af svæðinu sem verður rafmagnslaust.

Katrín segir farsælast að orkufyrirtæki séu í almannaeign
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur farsælast að allir orkuinnviðir séu í almanna eigu. Hún gaf Alþingi munnlega skýrslu um áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum í dag.

Píparar áfram til taks
Píparasveit almannannavarna verður áfram til taks fyrir íbúa Suðurnesja. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu frá almannavörnum.

Fara af neyðarstigi og á hættu- og óvissustig
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að fara af neyðarstigi Almannavarna vegna eldgoss á Reykjanesskaga, þar sem búið er að lýsa yfir goslokum.

Leiguverð í nágrenni höfuðborgarsvæðisins hæst í Reykjanesbæ
Meðalleiga á hvern fermetra í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var hæst í Reykjanesbæ í fyrra, en þar er hún um sex prósentum hærri en á Selfossi.

Kraftaverk við hitaveitulögnina
Íbúar á Reykjanesi ættu allir að vera komnir aftur með heitt vatn á ný í síðasta lagi í nótt. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að um kraftaverk sé að ræða en fjörutíu pípulagningamenn eru í viðbragðsstöðu í kvöld.

Fékk sér fiskibollur með starfsfólki HS veitna
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leit við á starfsstöð HS veitna í dag þar sem boðið var upp á fiskibollur í tilefni dagsins.

Íbúar verði að vera heima þegar vatnið kemur aftur á
Arinbjörn Snorrason, fulltrúi almannavarna, segir mikilvægt að Suðurnesjamenn séu heima hjá sér og fylgist með þegar verið er að hleypa heitu vatni aftur inn á kerfin eftir viðgerð á Njarðvíkurlögn.

Heitt vatn komið í öll hús fyrir lok dags
Heitavatnslögnin frá Svartsengi til Fitja er komin í lag og streymir heitt vatn nú inn í hús. Vonast er til að heitt vatn verði komið í öll hús fyrir lok dags og er fólki bent á að vera vakandi fyrir því hvort vatn flæði eðlilega inn í húsin.

Hafa flutt tæp tvö þúsund tonn af vatni í trukkum
Starfsfólk Veitna hefur á undanförnum tveimur sólarhringum flutt nærri því tvö þúsund tonn af heitu vatni á tönkum til Suðurnesja. Unnið hefur verið að því sleitulaust með því markmiði að verja lagnakerfið á Suðurnesjum og auðvelda uppkeyrslu kerfisins.

Helgin köld en helstu áskoranir leystar
Íbúar á Reykjanesi segja síðustu daga hafa verið nokkuð kalda vegna heitavatnsleysisins. Þeir mæta þó öllum áskorunum með miklu æðruleysi og redda sér þegar kemur að því að til dæmis komast í bað og vaska upp.

Hitaveitan í gang: Húseigendur hvattir til að vitja eigna sinna
Viðgerð er lokið á hitaveituæðinni frá Svartsengi og heitt vatn farið að streyma í tanka á Fitjum. Unnið er að undirbúningi þess að hleypa inn á kerfið og geta viðskiptavinir vænst þess að heitt vatn fari að streyma á næstu klukkstundum.

Flúði kuldann heima og gisti í Kópavogi
Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er búsettur á Suðurnesjum en flúði kuldann þar og fór til Kópavogs.

Vatn farið að streyma í heitavatnstanka á Fitjum
Framkvæmdir við nýja hjáveitulögn Njarðvíkuræðarinnar gengu vonum framar í nótt og vatn er nú tekið að streyma inn í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum.

„Hér er um lengri tíma viðburði að ræða“
Orkumálastjóri segir ljóst að atburðirnir á Suðurnesjum komi til með að endurtaka sig og mikilvægt sé að innviðir séu undir það búnir. Vinnuvegur var lagður í nótt ofan á hraunið sem flæddi yfir Grindavíkurveg í núliðnu eldgosi.