Ölfus
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 19 ›
Fleiri en einn uppruni sýkinganna á Suðurlandi Þrjátíu og fjórir eru í einangrun á Suðurlandi vegna hópsýkinga kórónuveirunnar sem þar geisa. Útbreiðslan hefur til þessa orðið mest í Þorlákshöfn og Selfossi eða fjórtán smit á hvorum stað. Innlent 29.4.2021 14:53
Snarpur skjálfti á Hengilssvæðinu fannst vel í höfuðborginni Jarðskjálfti að stærð 3,8 varð á Hengilssvæðinu, um 2,6 kílómetra suðaustur af Eiturhól við Nesjavallaveg, klukkan 11:38. Jarðskjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Innlent 29.4.2021 12:07
Að minnsta kosti einn í viðbót með staðfest smit í Þorlákshöfn Fyrstu niðurstöður úr skimuninni sem fram fór í Þorlákshöfn í dag benda til þess að minnst einn þeirra sem skimaðir voru í dag hafi greinst með staðfest smit covid-19. Um tvö hundruð voru skimaðir í grunnskólanum í Þorlákshöfn í tengslum við hópsmit sem þar kom upp. Innlent 28.4.2021 23:55
„Erum komin með meiraprófið í því að glíma við veiruna“ Um eitt hundrað íbúar Þorlákshafnar eru í sóttkví vegna hópsmits og grunnskóli bæjarins var nýttur fyrir umfangsmikla skimun í dag. Innlent 28.4.2021 20:17
„Eins og að fá á sig mark í uppbótartíma“ Níu greindust með kórónuveiruna í gær og þar af voru tveir utan sóttkvíar. Grunnskólinn í Þorlákshöfn var lagður undir skimun í morgun eftir að smit greindist meðal nemenda. Innlent 28.4.2021 12:15
Netverjar flissa yfir nýju skilti Ölfuss Nýtt skilti með nafni sveitarfélagsins Ölfuss, hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum. Kostnaður vegna skiltisins nemur um tíu til tólf milljónum króna, samkvæmt bæjarstjóranum Elliða Vignissyni. Lífið 27.4.2021 20:13
Grunnskólanemi í Þorlákshöfn greindist smitaður Viðbúnaðarstig í Þorlákshöfn verður fært upp um stig eftir að grunnskólanemandi í bænum greindist smitaður af Covid-19 í dag, að sögn Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss. Hann segir yfirvöld undir það búin að fleiri greinist smitaðir á næstu dögum. Innlent 27.4.2021 19:36
Þorlákshöfn líklega áfram í hæga gírnum út vikuna Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir útlit fyrir að Þorlákshöfn verði í „hægum gír“ út vikuna. Að starfsemi sveitarfélagsins verði líklegast ekki eðlileg fyrr en í næstu viku. Innlent 27.4.2021 15:19
Greinilegt að fólk sé ekki að fara í sýnatöku þrátt fyrir einkenni Allir þrír sem greindust utan sóttkvíar í gær tengjast hópsmitinu í Þorlákshöfn. Sóttvarnarlæknir brýnir fyrir fólki að fara í sýnatöku við minnstu einkenni. Það sé greinilegt að sumir séu ekki að bregðast við því. Innlent 27.4.2021 12:22
„Þetta er orðið umtalsvert viðameira en það var í gær“ Segja má að bæjarfélagið Þorlákshöfn liggi í hálfgerðum dvala í dag. Grunnskólanum og bókasafni hefur verið lokað, einungis nokkur börn eru á leikskólanum og æfingar falla niður. Bæjarstjóri segir reynt að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Innlent 27.4.2021 10:31
Grunur um smit meðal grunnskólanema í Þorlákshöfn Nokkrir foreldrar grunnskólanema í Þorlákshöfn hafa greinst smitaðir af Covid-19 en enn hefur ekkert smit verið staðfest meðal nemenda. Fram kemur í pósti frá bæjarstjóra Ölfuss að að minnsta kosti tveir nemendur hafi verið útsettir fyrir smiti og séu komnir með einkenni en þeir fara í sýnatöku á morgun. Innlent 27.4.2021 00:10
Krossar fingur að gripið hafi verið nógu snemma inn í Hópsmit kom upp í Ölfusi í gær þegar fjórir einstaklingar af sama vinnustaðnum greindust með kórónuveiruna. Bæjarstjórinn segir fólk áhyggjufullt en vonar að gripið hafi verið inn í nógu snemma. Þá greindist barn í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri með kórónuveiruna á laugardag og eru nú níutíu nemendur og þrjátíu starfsmenn komnir í sóttkví. Innlent 26.4.2021 10:48
Hópsýking í Þorlákshöfn og veikindi um borð í Þórsnesi Fjögur ný kórónuveirusmit greindust í Þorlákshöfn í gær. „„Brauðið er ekki komið úr ofninum, það er enn verið að skoða þetta. Það er staðfest að einhverjir eru með smit en þetta er ekki stór hópur,“ hefur Morgunblaðið eftir Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Ölfusi. Innlent 26.4.2021 06:40
Áætlar að nýja skiltið kosti tíu til tólf milljónir: „Við erum voðalega stolt af þessu“ Þeir sem leið hafa átt um Hellisheiði nýlega hafa eflaust orðið varir við nýtt gríðarstórt skilti sem þar hefur verið sett upp með nafni sveitarfélagsins Ölfus. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, kveðst afar stoltur af skiltinu og segist nær eingöngu hafa skynjað jákvæð viðbrögð. Hann áætlar að kostnaður vegna skiltisins nemi á bilinu tíu til tólf milljónum. Innlent 25.4.2021 14:28
Níu hundruð manns bólusettir á Selfossi í gær og í dag Um fimm hundruð manns úr Hveragerði, Þorlákshöfn, uppsveitum Árnessýslu og frá Selfossi fá bólusetningu í dag og fjögur hundruð manns af þessum svæðum fengu bólusetningu í gær. Innlent 10.4.2021 12:23
Suðurstandarvegur lokaður fram yfir helgi Ástand Suðurstrandarvegar við Festarfjall er svipað og var í gær en hefur heldur þróast til verri vegar. Í ljósi jarðskjálftavirkninnar og spár um rigningu á svæðinu næsta daga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda veginum lokuðum að minnsta kosti fram yfir helgi. Innlent 19.3.2021 12:05
Loka fyrir umferð á Suðurstrandarvegi í kvöld og í nótt Suðurstrandarvegi verður lokað klukkan 18 á eftir og fram á morgun hið minnsta. Er það gert vegna ástands vegarins í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Innlent 18.3.2021 16:21
Leyfum fjólunni að blómstra Flestir landsmenn þekkja til Garðyrkjuskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi, þaðan birtast gjarnan myndir af forseta Íslands í heimsókn á sumardaginn fyrsta. Alltaf er gleði og spenna þann dag á Reykjum og ljóst að mikil gróska og kraftur býr í starfsfólki og nemendum sem vekur hjá manni von í brjósti um framtíð garðyrkju á Íslandi. Skoðun 18.3.2021 14:31
Suðurstrandarvegur þrengdur á kafla vegna frekari skemmda Frekari skemmdir urðu á Suðurstrandarvegi í gær nálægt Festarfjalli, en sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu þannig að vegrið hefur ekki allsstaðar fullan stuðning. Innlent 16.3.2021 14:41
Ekki hægt að opna gamla Suðurstrandarveg að fullu vegna grjóthrunshættu Bæjaryfirvöldum í Grindavík hafa borist ábendingar um að gamli Suðurstrandarvegurinn sé lokaður. Það geti skapað hættu ef það gjósi vestan við Grindavík og komi til rýmingar um Suðurstrandarveg. Atli Geir Júlusson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs hjá bænum segir ekki hægt að opna allan veginn að svo stöddu vegna hættu á grjóthruni. Innlent 13.3.2021 13:09
Matsáætlun fyrir vindmyllur á Mosfellsheiði samþykkt Skipulagsstofnun hefur samþykkt tillögu Zephyr Iceland ehf. að matsáætlun vegna fyrirhugaðs vindorkugarðs á Mosfellsheiði innan Sveitarfélagsins Ölfuss og Grímsnes- og Grafningshrepps. Áætlunin er þó samþykkt með 23 athugasemdum. Innlent 6.12.2023 11:13
Líkur á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg Jarðskjálfti af stærðinni 4,6 í Eldvörpum skömmu fyrir klukkan níu í morgun er merki um spennubreytingar á Reykjanesskaga. Smáskjálftavirkni á svæðinu er en talinn fyrirboði eldgoss en talið er að kvikugangurinn við Fagradalsfjall hafi færst til suðurs. Innlent 11.3.2021 11:47
Björgunarsveitir kallaðar út að Ingólfsfjalli Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan 14 í dag eftir að tilkynning barst Neyðarlínu frá konu sem er í sjálfheldu ofarlega í Ingólfsfjalli fyrir ofan bæinn Alviðru. Innlent 7.3.2021 14:35
Ekki útilokað að hraun næði niður á Suðurstrandarveg Ekki er talið að hraun muni renna yfir Reykjanesbraut, komi til eldgoss miðað við stöðuna nú á Reykjanesskaga, en ekki er útilokað að hraun næði niður á Suðurstrandarveg. Innlent 6.3.2021 12:47
Kortleggja minjar sem gætu farið undir hraun Friðaðar og friðlýstar minjar, þar á meðal bæjarstæði, hús og kirkjur, gætu farið undir hraun ef gos hæfist á Reykjanesi. Minjastofnun hefur kortlagt hvaða menningarminjar sem hún hefur á skrá séu í hættu út frá nýjasta spálíkani eldfjallafræði- og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Innlent 3.3.2021 17:31
Líklegast að hraun renni til suðurs Líklegast er að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili á Reykjanesi renni til suðurs. Þetta sýna útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Innlent 3.3.2021 15:58
Hættustig vegna jarðskjálftanna nú einnig í Árnessýslu Hættustig almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga er nú einnig í gildi í Árnessýslu. Fyrr í dag var hættustigi lýst yfir á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu. Innlent 24.2.2021 20:24
Suðvesturhornið nötrar og stærsti skjálftinn 5,7 að stærð Jörð hefur skolfið á suðvesturhorni landsins í morgun og virðist ekkert lát á skjálftavirkni. Fyrstu skjálftar fundust upp úr klukkan tíu og enn skelfur jörð þegar klukkan er að verða ellefu. Skjálftar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu, vestur í Stykkishólm og austur á Helllu. Innlent 24.2.2021 10:07
Hveragerði, Ölfus og Árborg keppast um nýja íbúa „Við erum bara í heilbrigðri samkeppni um hver er bestur“, segir bæjarstjóri Hveragerðisbæjar en mikil fjögun íbúa á sér nú stað í Hveragerði, Árborg og í Ölfusi en allt eru þetta nágranna sveitarfélög, sem keppst um að fá nýtt fólk til sín. Innlent 21.2.2021 15:26
Kofinn enn ófeðraður Timburkofi sem fannst brotinn á Suðurstrandarvegi rétt vestan við Hlíðarvatn að mánudagskvöldið 8. febrúar er enn ófeðraður að sögn Lögreglunnar á Suðurlandi. Talið er að kofinn hafi fallið af flutningabíl umrætt kvöld. Innlent 15.2.2021 12:05