Leitin að Jóni Þresti

Vilja hvorki staðfesta fund í Haag né aðkomu Europol
Lögregluyfirvöld á Íslandi segjast ekki geta staðfest þá staðhæfingu Davíðs Karls Wiium, bróður Jóns Þrastar Jónssonar, að íslenska lögreglan og sú írska muni funda um hvarf Jóns í Haag í Hollandi á næstunni.

Heimir svaraði fyrir sig í vinsælum spjallþætti
Heimir Hallgrímsson var gestur í hinum vinsæla spjallþætti Late Late Show í írska sjónvarpinu í gærkvöld og svaraði þar fyrir sig eftir harkalega gagnrýni Stephen Bradley, þjálfara írska liðsins Shamrock Rovers.

Engar nýjar vísbendingar í leit að Jóni Þresti
Lögreglan á Írlandi hefur engar nýjar upplýsingar í rannsókn sinni á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Það staðfestir lögreglan í tölvupósti til fréttastofu.

Þeir sem sendu ábendingarnar verði að stíga fram
Írskur blaðamaður telur lögreglu ætla að halda áfram að leita að Jóni Þresti Jónssyni, þrátt fyrir að eftirgrennslan hafi enn ekki borið árangur, eftir að nafnlausar ábendingar bárust um hugsanleg afdrif hans. Þeir sem sendu vísbendingarnar verði að stíga fram svo Jón Þröstur finnist.

Engar frekari vísbendingar eftir leitina
Leit írsku lögreglunnar að Jóni Þresti Jónssyni hefur ekki borið árangur og liggja engar frekari vísbendingar um hvarf hans fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá írsku lögreglunni.

Halda leit áfram þriðja daginn í röð
Leit heldur áfram þriðja daginn í röð að Jóni Þresti Jónssyni í Santry Demense almenningsgarðinum í Dyflinni á Írlandi. Lögreglan er byrjuð að grafa í skóglendi sem afgirt var í gær í garðinum.

„Segir okkur að þeir eru ekkert að bulla“
Systir og bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin fyrir fimm árum síðan segjast finna fyrir viðhorfsbreytingu írsku lögreglunnar vegna rannsóknar á hvarfi hans.

Lögregla girðir af svæði í almenningsgarðinum
Lögreglan í Dublin hefur nú girt af skóglendi í Santry Demense almenningsgarðinum í Dublin þar sem leit stendur yfir að Jóni Þresti Jónssyni. Það kemur fram á írska miðlinum Independent.

Kafarar og hundar koma að í leitinni í almenningsgarðinum
Lögreglan hefur hafið leit á ný að Jóni Þresti Jónssyni í Santry Demense almenningsgarðinum í Dublin. Leit hófst í gær en vegna stærðar garðsins er talið líklegt að það þurfi í það minnsta tvo daga í leitina.

Hafi ætlað að hitta einhvern í garðinum
Lögregluyfirvöld í Dublin telja nú líklegt að Jón Þröstur Jónsson hafi ætlað sér að hitta einhvern í almenningsgarðinum Santry Demense. Hann hafi látist í kjölfar þess fundar. Þetta herma heimildir írska miðilsins Dublin Live.

Leitin að Jóni Þresti færist í almenningsgarð í Dublin
Írska lögreglan hefur efnt til leitaraðgerða í almenningsgarði með skóglendi og vatni í Dublin í tengslum við rannsókn sína á mannshvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í írsku höfuðborginni fyrir fimm árum.

Nýjar vísbendingar varðandi hvarf Jóns Þrastar
Systkini Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf í Dublin á Írlandi fyrir fimm árum eru mætt til írsku höfuðborgarinnar í þeim tilgangi að aðstoða við rannsókn lögreglu á málinu. Írska lögreglan segir tvær nýjar vísbendingar hafa borist og leitar til almennings.

Tengiliðir fjölskyldunnar kannast ekki við upplýsingar um morð
Þórunn Jónsdóttir, systir Jóns Þrastar Jónssonar, segir tengiliði fjöskyldunnar hjá lögreglunni á Íslandi og á Írlandi ekki kannast við þær upplýsingar sem koma fram í frétt Sunday Independent.

Jón Þröstur sagður hafa verið myrtur af öðrum Íslendingi
Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf sporlaust á Írlandi í fyrra, var myrtur fyrir slysni af öðrum Íslendingi vegna deilna um peninga sem töpuðust á pókermóti. Þetta er fullyrt í frétt Sunday Independent á Írlandi.

Vilja ræða við mann sem talið er að hafi upplýsingar um Jón Þröst
Einkaspæjarinn Liam Brady, sem fenginn var til þess fyrir nokkrum mánuðum að leita Jóns Þrastar Jónssonar, vonast til að geta talað við mann sem talið er að kunni að geta veitt mikilvægar umlýsingar um hvarf Jóns.

Ár frá hvarfi Jóns í Dublin
Í færslu á Facebook segir að dagurinn sé erfiður fyrir alla fjölskyldu hans og vini. Fyrir alla sem þekktu hann. Þau eru þó ekki hætt að leita svara varðandi hvað varð um Jón.

Hafa ráðið einkaspæjara til að rannsaka hvarf Jóns Þrastar
Þetta kemur fram í viðtali írska dagblaðsins The Irish Sun við systur Jóns Þrastar sem birtist í morgun.

Bróðir Jóns Þrastar flutti til Dyflinnar: „Bónus að geta haldið þrýstingi á lögregluna“
Fékk vinnu í borginni og segist taka einn dag í einu.

Fjölskylda Jóns Þrastar biðlar enn til almennings: „Einhver sá eitthvað“
Tæplega fimm mánuðir eru liðnir frá því að Jón Þröstur Jónsson sást síðast í Dyflinni á Írlandi.

Segir mjög veika von um að Jón Þröstur sé á lífi
Bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf á dularfullan hátt á Írlandi fyrir rúmum fjórum mánuðum segir vonina um að Jón Þröstur sé á lífi mjög veika. Engar nýjar upplýsingar hafi komið fram í málinu. Hann segir einhvers konar málalok nauðsynleg til að geta horft fram á veginn og verið til staðar fyrir sína nánustu.

Líkurnar á því að Jón Þröstur finnist á lífi fari minnkandi með degi hverjum
Leit fjölskyldunnar að Jóni Þresti, sem hvarf sporlaust í Dyflinni í febrúar síðastliðnum, hefur enn engan árangur borið.

Fjölskylda Jóns fær særandi skilaboð frá fjölda miðla
Frá þessu segir fjölskyldan á Facebook-síðu sem tileinkuð er leitinni að Jóni Þresti.

Á krossgötum eftir hvarf Jóns Þrastar
Rúmir tveir mánuðir eru frá því að Jón Þröstur Jónsson hvarf á dularfullan hátt á Írlandi.

Getur ekki leyft sér að syrgja og heldur áfram að leita bróður síns
Ekkert hefur spurst til Jóns Þrastar síðan hann gekk út af hóteli og út á götur Dyflinnar að morgni laugardagsins 9. febrúar. Jón Þröstur verður 42 ára á þessu ári og er fjögurra barna faðir. Davíð segist ekkert hafa sofið fyrstu vikurnar eftir að Jón Þröstur hvarf.

Biðja pókerspilara að gæta sín í kjölfar hvarfs Jóns Þrastar
Pókersíðan Pokerscout.com hvetur pókerspilara til að hafa allan varann á í kjölfar hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni á Írlandi í febrúar síðastliðnum.

Ákvörðun um að fara úr landi hefði verið tekin í stundarbrjálæði
Lögreglu á Írlandi berast enn daglega ábendingar vegna hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar, Íslendings sem saknað hefur verið þar í landi síðan í febrúar.

Fjölskylda Jóns biður Íra um hjálp
Vilja að Írar prenti út plaköt af Jóni Þresti.

Hafa ekki útilokað að Jón hafi farið frá Írlandi
Interpol lýsir eftir Jón Þresti.

Interpol lýsir eftir Jóni Þresti
Alþjóðalögreglan Interpol hefur lýst eftir Jóni Þresti Jónssyni en ekkert hefur spurst til hans síðan hann hvarf í Dyflinni á Írlandi fyrir rúmum mánuði.

Barnsmóðir Jóns Þrastar ræðir um hvarfið
Mánuður er síðan Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dublin.