
Lögreglan

Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla
Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur beðið ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um að farið verði yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu, þegar piparúða var beitt á mótmælendur fyrir utan ríkisstjórnarfund í morgun.

Notuðu piparúða á mótmælendur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum.

„Nema í alveg sérstökum tilvikum“
Hugmyndir fólks um hlutverk og æskilegt umfang ríkisvaldsins eru af eðlilegum ástæðum ólíkar. Flestir eru þó sammála um að frumhlutverk þess sé að halda uppi lögum og reglu. Samt sitja þessi grundvallarmálefni á hakanum við forgangsröðun verkefna ríkisins.

Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi
Óþekkt börn skyldu eftir glaðning á stéttinni fyrir framan húsnæði Neyðarlínunnar í gær. Glaðningurinn innihélt gjafir og þakklætisbréf og skilaboðin voru einföld; „Takk 112!“

Hvers konar bull er þetta!
Það fyrsta sem að ég hugsaði þegar ég sá tillögur um niðurskurð í fjármálaáætlun 2025- 2029 til löggæslu var „hvers konar bull er þetta“.

Niðurskurður skerðir þjónustu og ógnar öryggi
Formaður Landssambands lögreglumanna segir frekar þörf á auknum fjárveitingum en niðurskurði. Niðurskurður muni koma niður á öryggi borgara þar sem forsvarsmenn lögreglunnar hafi þegar gripið til sparnaðar víða um land.

Draumórar að löggæsla muni ekki skerðast
Stjórn Landssambands lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirætlunum stjórnvalda um niðurskurð til löggæslumála sem boðaður er í fjármálaáætlun 2025-2029 og harmar þá stöðu sem uppi er í húsnæðismálum lögreglunnar á Íslandi.

Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar
Stjórn Lögreglustjórafélags Íslands varaði Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þáverandi dómsmálaráðherra, við því að starfslokasamningar Haraldar Jóhannessen ríkislögreglustjóra við nokkra undirmenn væru líklega ólögmætir. Sömu sögu er að segja um ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytis og sérfræðinga innan fjármálaráðuneytis.

Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í stöðu aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá og með 17. maí 2024, til fimm ára.

Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu
Þrátt fyrir að öryggi fólks sé fyrsta skylda ríkisins blasir alvarleg innviðaskuld við hvað varðar löggæslu í landinu. Engu að síður er ætlun ríkisstjórnarinnar að herða ólina að löggæslu í nýjustu fjármálaáætlun með 1.500 milljónir aðhaldskröfu á löggæslustofnanir landsins.

Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir
Píratar gera verulegar athugasemdir við frumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga og lögreglu sem stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að verði afgreidd á yfirstandandi vorþingi. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist ekki deila áhyggjum Pírata. Bæði frumvörp færi reglur hér nær því sem þekkist á Norðurlöndunum.

Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu
Þingmaður Pírata segir greinilegt að alger samstaða sé milli stjórnarflokkanna um að afgreiða breytingar á útlendingalögum sem herði að þeim sem þurfi á vernd að halda. Þá verði ekki nægjanlegt eftirlit með því hvernig lögregla beiti auknum rannsóknarheimildum á fólki sem ekki hefði framið neinn glæp.

300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár
Alls voru 300 kröfur um húsleit lagðar fram fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur á síðustu fimm árum, þar af 273 frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.

Fann fíkniefnin strax
Í fimmta þætti af þáttunum Hundarnir okkar, sem sýndir eru á Vísi alla þriðjudaga, er skyggnst inn í starf lögreglunnar þar sem fíkiniefnaleitarhundar eru notaðir, þjálfun þeirra og hæfniskröfur ræddar og sýnt hvernig þeir vinna.

Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning
Sérfræðingar frá UN Women vinna nú að því að taka út lögreglufræðikennslu á Íslandi og inntökuprófið í til dæmis sérsveitina út frá kynjajafnrétti. Verkefninu stýra þau Jane Townsley og Gerry Campbell sem bæði störfuðu áður sem lögreglumenn en vinna nú að samþættingu kynjajafnréttis innan lögreglu um allan heim. Bæði voru þau á landinu í vikunni.

Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi
Hvítrússneskum manni sem kom hingað til lands til þess að heimsækja krabbameinssjúka móður sína var vísað til baka úr landi á Keflavíkurflugvelli þar sem lögregla taldi ástæða heimsóknar hans ekki ljósa. Maðurinn var sendur til annarrar borgar en hann kom hingað frá.

Ætlað að móta aðgerðir gegn ofbeldi á Suðurlandi
„Öruggara Suðurland“ er nýtt verkefni, sem lögreglan á Suðurlandi stendur fyrir í samstarfi við sveitarfélögin fjórtán á svæðinu og nokkrar stofnanir, en tilgangurinn er að móta aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurlandi.

Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf?
Hæstaréttarlögmaður veltir því fyrir sér hvernig ríkið ætli að endurheimta fé sem fyrrverandi Ríkislögreglustjóri gaf undirmönnum sínum rétt fyrir eigin starfslok. Hann segir háttsemi Ríkislögreglustjóra líklega bótaskylda og jafnvel refsiverða.

Örlætisgerningur
Í dómum Hæstaréttar í málum nr. 20/2023, 21/2023, 22/2023 og 23/2023, frá 27. mars 2024 (71. gr.), segir: Samkvæmt öllu framansögðu fólst í raun í samkomulaginu einhliða ákvörðun fyrrverandi ríkislögreglustjóra um nærri 50% hækkun á grunnlaunum stefnda sem hvorki var í samræmi við kjara- né stofnanasamning.

Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum
Lögreglumerki sem umboðsmaður Alþingis óskaði skýringa á er ekki nýtt af nálinni heldur hefur það verið í notkun frá árinu 2018. Samskiptastjóri ríkislögreglustjóra segir gamla merkið hafa reynst illa til stafrænnar útgáfu og því hafi það verið uppfært.

Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki
Umboðsmaður Alþingis hefur sent ríkislögreglustjóra erindi þar sem hann óskar skýringa á nýju lögreglumerki sem hann segir hvergi að finna í reglugerðum.

Fleiri löggur á leiðinni
Ríkislögreglustjóri tekur undir áhyggjur lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar fækkun lögreglumanna á svæðinu. Hún segir að með aðgerðum sem eru í gangi verði staðan betri á næstu árum og lögreglumönnum muni fjölga.

Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar
Tilkynningum um alvarleg ofbeldisbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um áttatíu og fimm prósent á síðustu tíu árum á sama tíma og lögreglumönnum hefur fækkað um fjörutíu. Lögreglustjóri kallar eftir breytingum.

Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum
Alls voru 57 hótanir um ofbeldi gegn lögreglu skráðar í lögreglukerfið LÖKE í fyrra og 28 hótanir gegn öðrum opinberum starfsmönnum. Þá voru 121 ofbeldisbrot gegn lögreglu skráð í kerfið og 50 brot gegn öðrum opinberum starfsmönnum.

Aldrei fleirum vísað frá Íslandi
Aldrei hefur fleirum verið vísað frá Íslandi sem komið hafa á Keflavíkurflugvöll en það sem af er þessu ári eða rúmlega tvö hundruð manns. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir dæmi um að sama fólkinu sé vísað frá landinu oftar en einu sinni.

Forgangsakstur æfður á Suðurlandi
Þjálfun í forgangsakstri lögreglubíla er mjög mikilvægur í starfi lögreglunnar segir lögreglumaður á Suðurlandi en þar var verið að halda forgangsaksturs æfingu í þeim tilgangi að sjá hvað gekk vel og hvað þarf að laga og bæta úr.

Lögregla og ráðherrar hunsa mál forvarnasamtaka
Þolinmæði Árna Guðmundssonar er á þrotum en honum verður lítt ágengt í baráttu sinni gegn ólöglegum netverslunum sem höndla með áfengi.

Hryðjuverkaógn stafi helst af einstaklingum
Ríkislögreglustjóri segir að hryðjuverkaógn hér á landi stafi fyrst og fremst af einstaklingum sem aðhyllast öfgahyggju og bera hatur til samfélagsins.

Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps gagnrýnir stöðu löggæslumála í sveitarfélaginu, sem hann segir allt of litla á sama tíma og þúsundir ferðamanna heimsækja þorpið í Vík á hverjum degi og þekkta ferðamannastaði í sveitarfélaginu eins og Reynisfjöru.

Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau
Embætti ríkislögreglustjóra þarf að greiða fjórum yfirlögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri, Haraldur Johannessen, gerði við þá um endurskoðun launakjara árið 2019. Hæstiréttur telur Harald hafa skort heimild til að hækka laun lögregluþjónanna en þeir hafi tekið við hækkun í góðri trú og því mætti ekki lækka launin á ný.