Erlent Mesti munur á evru og jeni Gengi evru hefur aldrei verið veikara gagnvart japanska jeninu en í dag. Helstu ástæðurnar eru minna atvinnuleysi í Þýskalandi í desember auk þess sem sérfræðingar telja líkur á að evrópski seðlabankinn hækki stýrivexti í tvígang á fyrri helmingi ársins en að japanski seðlabankinn hækki ekki vextina líkt og búist var við. Viðskipti erlent 3.1.2007 11:46 Vilja ekki spá fyrir um heilsu Kastrós Æðstu prestar algengustu trúarbragða á Kúbu, hinnar afrísk-kúbönsku Santeria-trúar, neituðu að spá nokkuð fyrir um heilsu Fídels Kastrós á nýju ári. Kastró hefur ekki sést opinberlega í rúmlega fimm mánuði. Nýársspá prestanna er árlegur viðburður og bíður þjóðin hennar með mikilli eftirvæntingu. Erlent 3.1.2007 08:23 Hlutabréf falla í Taílandi Gengi hlutabréfa hefur fallið um 3,8 prósent í kauphöllinni í Bangkok í Taílandi í kjölfar þess að átta sprengjur sprungu í borginni á nýársnótt. Þrír létust í árásunum og um 40 manns særðust. Viðskipti erlent 3.1.2007 09:12 Friðargæsluliðar sakaðir um nauðganir Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Súdan hafa verið sakaðir um að nauðga stúlkum allt niður í tólf ára aldur. Ásakanirnar komu fyrst fram fyrir tveimur árum en Sameinuðu þjóðirnar hafa um tíu þúsund manna starfslið á svæðinu sem vinnur að uppbyggingu landsins eftir langvarandi borgarastyrjöld. Erlent 3.1.2007 07:30 Vinsælt að kafa með hákörlum Að kafa með hákörlum hljómar ekki beint spennandi en það er engu að síður orðin vinsælt á meðal ferðamanna í Suður Afríku. Ferðir í hákarlaköfun eru uppbókaðar marga mánuði fram í tíman og talið er að allt að eitt hundrað þúsund manns hafi farið í slíkar ferðir í fyrra. Erlent 3.1.2007 07:24 Á ekki von á miklum átökum Forsætisráðherra Sómalíu, Mohamed Al Gedi, sagði í gær að hann byggist ekki við miklum átökum við uppreisnarmenn héðan af þar sem vel hefur tekist að dreifa úr hermönnum þeirra. Sómalska ríkisstjórnin hefur einnig sett í gang áætlun sem miðar að því að afvopna stríðsherra um allt land. Erlent 3.1.2007 07:19 Aukinn viðbúnaður í Taílandi Aukinn öryggisviðbúnaður er nú á mörgum stöðum í Taílandi vegna sprenginganna sem áttu sér stað á nýársnótt. Alls létust þrír í árásunum og um 40 manns særðust. Erlent 3.1.2007 07:16 Margmenni við útförina Útför Geralds Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var haldin Washington í dag en hann andaðist á öðrum degi jóla, 93 ára að aldri. Erlent 2.1.2007 18:28 Aftökunni var næstum frestað Litlu munaði að aftökunni á Saddam Hussein yrði frestað vegna framkomu böðlanna í hans garð og hafa írösk stjórnvöld fyrirskipað rannsókn á málinu. Óttast er að átök trúarhópa muni magnast vegna þessa en aldrei hafa jafnmargir borgarar látið lífið vegna átaka í Írak og í síðasta mánuði. Erlent 2.1.2007 18:26 Misvísandi upplýsingar frá þorpshöfðingja Enn er allt á huldu með örlög um hundrað farþega og áhafnar um borð í farþegaflugvél sem hvarf á leið sinni frá Jövu til Súlavesíu-eyja í gærmorgun. Í morgun var sagt að flakið og 12 eftirlifendur væru fundnir en svo var ekki. Rangar upplýsingar frá þorpshöfðinga á Súlavesíu-eyju hafi ratað í fjölmiðla. Erlent 2.1.2007 18:38 Vill alþjóðlegt bann við dauðarefsingum Erlent 2.1.2007 16:52 Danir þyngdust um 7000 tonn um jólin Prófessor við danska landbúnaðarháskólann hefur reiknað út að Danir hafi þyngst um samtals sjöþúsund tonn um hátíðarnar. Það er 1,8 kíló á mann. Arne Astrup segir að það sé mikið borðað þessa daga og að gangan í kringum jólatréð dugi ekki til þess að halda þyngdinni í skefjum. Erlent 2.1.2007 16:21 Giuliani ætlar að safna sjö milljörðum Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, ætlar að safna eitthundrað milljónum dollara eða rúmlega sjö milljörðum króna í kosningasjóð sinn fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Þetta, meðal annars, kemur fram í 140 blaðsíðna kosningaáætlun sem blaðið New York Daily News komst yfir, með einhverjum hætti. Erlent 2.1.2007 16:01 Ekkert spurst til flugvélar Erlent 2.1.2007 15:22 Mengunarkvóti fyrir embættismenn Norðmenn ætla að kaupa mengunarkvóta fyrir embættismenn sem ferðast með flugvélum, í opinberum erindagjörðum. Útblástur flugvéla er sá út blástur gróðurhúsalofttegunda sem vex hvað hraðast, og eru ódýr fargjöld lággjaldaflugfélaga helsti þátturinn í því. Erlent 2.1.2007 14:57 Teddy Kollek látinn Teddy Kollek, fyrrverandi borgarstjóri í Jerúsalem, er látinn, 95 ára að aldri. Kollek var með litríkari ísraelskum stjórnmálamönnum og óþreytandi baráttumaður fyrir friðsamlegri sambúð Ísraela og Palestínumanna. Hann var fimm sinnum kjörinn borgarstjóri í Jerúsalem og gegndi því embætti í tuttugu og átta ár. Erlent 2.1.2007 14:34 Gæsluvarðhald vegna morða á vændiskonum Erlent 2.1.2007 14:16 Air Asia segir stórfréttir í vændum Asíska lággjaldaflugfélagið Air Asia segist ætla að færa stórfréttir á föstudag. Búist er við að flugfélagið muni tilkynna um samstarf með bresku félögunum Easyjet og Virgin Group. Viðskipti erlent 2.1.2007 14:10 Hefndu sín á bæjardólginum Um 400 íbúar smábæjar á Spáni hefndu sín á bæjardólginum um hátíðarnar, með því að brenna allar eigur hans. Javier Bernui hafði búið í Villaconejos í sjö ár og íbúarnir voru orðnir þreyttir á yfirgangi hans. Hann fór oft um vopnaður hnífi eða byssu, hrinti frá sér fólki á börum og í verslunum og tók það sem honum sýndist, án þess að borga. Erlent 2.1.2007 14:07 Fimm ára stúlka bitin til bana Fimm ára stúlka var í gær bitin til bana af pit bull terrier hundi í Englandi. Amma hennar, sem var með hana í pössun, meiddist líka mikið á höndum þegar hún var að reyna að forða stúlkunni frá hundinum. Hundurinn var í eigu frænda stúlkunnar og bjó í sama húsi og amman. Erlent 2.1.2007 11:56 Flakið ekki enn fundið Yfirvöld á Indónesíu upplýstu fyrir stundu að flak farþegaflugvélar sem hrapaði á leið sinni frá Jövu til Súmötru í gær hefði ekki fundist líkt og haldið hefði verið fram. Fregnir bárust af því í morgun að vélin hefði fundist í fjallgarði á vestari hluta Súlavesíu-eyju. Erlent 2.1.2007 11:46 Enginn lést í pílagrímsferðum Pílagrímsferðum til Mekka er nú lokið án þess að nokkur hafi látist. Í fyrra létust 362 pílagrímar í troðningi og árið 2004 létust 250 manns en öll öryggisgæsla var hert til muna þetta árið og þá sérstaklega vegna staðfestingar á dauðdómi yfir Saddam Hússein og hugsanlegra árása al-Kaída. Erlent 2.1.2007 11:22 Hersveitir Eþíópíu verða í Sómalíu um sinn Forsætisráðherra Sómalíu, Ali Mohamed Gedi, sagði í dag að eþíópískar hersveitir myndu þurfa að vera í landinu í þó nokkra mánuði í viðbót. Stuttu áður hafði forsætisráðherra Eþíópíu sagst vonast til þess að geta dregið herlið sitt frá Sómalíu innan fárra vikna. Erlent 2.1.2007 11:04 Í gæsluvarðhaldi til 1. maí Maður sem grunaður er um að hafa myrt fimm vændiskonur í nágrenni Ipswich í Englandi í desember mánuði á síðastliðnu ári hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald til 1. maí næstkomandi. Erlent 2.1.2007 10:47 Mótmæltu komu ársins 2007 Hópur Frakka ákvað að taka á móti nýja árinu með hinum hefbundna franska hætti - með mótmælum. Hópurinn mótmælti komu ársins 2007 og bar meðal annars mótmælaspjöld sem á stóð „Nei við 2007“ og „Nútíminn er betri“ á göngu sinni í gegnum miðborg Nantes á gamlárskvöld. Erlent 2.1.2007 10:20 Fljúgandi furðuhlutur sást í Bandaríkjunum Hópur flugvallarstarfsmanna og flugmanna sem vinna á O'Hare flugvellinum í Chicago í Bandaríkjunum sögðu frá því nýverið að þeir hafi séð fljúgandi furðuhlut sveima yfir flugvellinum þann 7. nóvember síðastliðinn. Erlent 2.1.2007 09:49 Ætla að halda kjarnorkuáæltun áfram Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í ræðu í morgun að Íran myndi halda starfsemi við kjarnorkuáætlun sína áfram þrátt fyrir refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna. Ahmadinejad sagði refsiaðgerðirnar ekki hafa neitt gildi í augum Írana. Erlent 2.1.2007 07:48 Olíuverð undir 61 dal Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór undir 61 dal á tunnu á helstu mörkuðum eftir að Saddam Hussein, fyrrum forseti Íraks, var tekinn af lífi. Þá hefur gott veðurfar í Bandaríkjunum hjálpað til við að halda verðinu niðri. Viðskipti erlent 2.1.2007 09:26 Írakar rannsaka myndbönd af Saddam Íraska ríkisstjórnin ætlar sér að rannsaka það hvernig verðir komust með myndavélasíma inn í aftökuherbergi Saddams Hússeins. Myndband hefur komist í umferð á netinu af aftöku hans þar sem heyra má verðina hrópa móðganir að Saddam en á myndbandinu sem íraska ríkisstjórnin sendi frá sér var ekkert hljóð. Erlent 2.1.2007 09:22 Rannsókn hreinsar stjórnendur Apple Bandaríski tölvurisinn Apple skilaði ársuppgjöri sínu á föstudag í síðustu viku, sem var síðasti dagur fyrirtækisins til að gera slíkt. Uppgjörið tafðist vegna rannsóknar bandaríska fjármálaeftirlitsins á kaupréttarsamningum stjórnenda fyrirtækisins sem meðal annars voru veittir Steve Jobs, forstjóra fyrirtækisins. Rannsóknin hreinsar fyrirtækið og stjórnendur þess af misgjörðum. Viðskipti erlent 2.1.2007 09:18 « ‹ 189 190 191 192 193 194 195 196 197 … 334 ›
Mesti munur á evru og jeni Gengi evru hefur aldrei verið veikara gagnvart japanska jeninu en í dag. Helstu ástæðurnar eru minna atvinnuleysi í Þýskalandi í desember auk þess sem sérfræðingar telja líkur á að evrópski seðlabankinn hækki stýrivexti í tvígang á fyrri helmingi ársins en að japanski seðlabankinn hækki ekki vextina líkt og búist var við. Viðskipti erlent 3.1.2007 11:46
Vilja ekki spá fyrir um heilsu Kastrós Æðstu prestar algengustu trúarbragða á Kúbu, hinnar afrísk-kúbönsku Santeria-trúar, neituðu að spá nokkuð fyrir um heilsu Fídels Kastrós á nýju ári. Kastró hefur ekki sést opinberlega í rúmlega fimm mánuði. Nýársspá prestanna er árlegur viðburður og bíður þjóðin hennar með mikilli eftirvæntingu. Erlent 3.1.2007 08:23
Hlutabréf falla í Taílandi Gengi hlutabréfa hefur fallið um 3,8 prósent í kauphöllinni í Bangkok í Taílandi í kjölfar þess að átta sprengjur sprungu í borginni á nýársnótt. Þrír létust í árásunum og um 40 manns særðust. Viðskipti erlent 3.1.2007 09:12
Friðargæsluliðar sakaðir um nauðganir Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Súdan hafa verið sakaðir um að nauðga stúlkum allt niður í tólf ára aldur. Ásakanirnar komu fyrst fram fyrir tveimur árum en Sameinuðu þjóðirnar hafa um tíu þúsund manna starfslið á svæðinu sem vinnur að uppbyggingu landsins eftir langvarandi borgarastyrjöld. Erlent 3.1.2007 07:30
Vinsælt að kafa með hákörlum Að kafa með hákörlum hljómar ekki beint spennandi en það er engu að síður orðin vinsælt á meðal ferðamanna í Suður Afríku. Ferðir í hákarlaköfun eru uppbókaðar marga mánuði fram í tíman og talið er að allt að eitt hundrað þúsund manns hafi farið í slíkar ferðir í fyrra. Erlent 3.1.2007 07:24
Á ekki von á miklum átökum Forsætisráðherra Sómalíu, Mohamed Al Gedi, sagði í gær að hann byggist ekki við miklum átökum við uppreisnarmenn héðan af þar sem vel hefur tekist að dreifa úr hermönnum þeirra. Sómalska ríkisstjórnin hefur einnig sett í gang áætlun sem miðar að því að afvopna stríðsherra um allt land. Erlent 3.1.2007 07:19
Aukinn viðbúnaður í Taílandi Aukinn öryggisviðbúnaður er nú á mörgum stöðum í Taílandi vegna sprenginganna sem áttu sér stað á nýársnótt. Alls létust þrír í árásunum og um 40 manns særðust. Erlent 3.1.2007 07:16
Margmenni við útförina Útför Geralds Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var haldin Washington í dag en hann andaðist á öðrum degi jóla, 93 ára að aldri. Erlent 2.1.2007 18:28
Aftökunni var næstum frestað Litlu munaði að aftökunni á Saddam Hussein yrði frestað vegna framkomu böðlanna í hans garð og hafa írösk stjórnvöld fyrirskipað rannsókn á málinu. Óttast er að átök trúarhópa muni magnast vegna þessa en aldrei hafa jafnmargir borgarar látið lífið vegna átaka í Írak og í síðasta mánuði. Erlent 2.1.2007 18:26
Misvísandi upplýsingar frá þorpshöfðingja Enn er allt á huldu með örlög um hundrað farþega og áhafnar um borð í farþegaflugvél sem hvarf á leið sinni frá Jövu til Súlavesíu-eyja í gærmorgun. Í morgun var sagt að flakið og 12 eftirlifendur væru fundnir en svo var ekki. Rangar upplýsingar frá þorpshöfðinga á Súlavesíu-eyju hafi ratað í fjölmiðla. Erlent 2.1.2007 18:38
Danir þyngdust um 7000 tonn um jólin Prófessor við danska landbúnaðarháskólann hefur reiknað út að Danir hafi þyngst um samtals sjöþúsund tonn um hátíðarnar. Það er 1,8 kíló á mann. Arne Astrup segir að það sé mikið borðað þessa daga og að gangan í kringum jólatréð dugi ekki til þess að halda þyngdinni í skefjum. Erlent 2.1.2007 16:21
Giuliani ætlar að safna sjö milljörðum Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, ætlar að safna eitthundrað milljónum dollara eða rúmlega sjö milljörðum króna í kosningasjóð sinn fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Þetta, meðal annars, kemur fram í 140 blaðsíðna kosningaáætlun sem blaðið New York Daily News komst yfir, með einhverjum hætti. Erlent 2.1.2007 16:01
Mengunarkvóti fyrir embættismenn Norðmenn ætla að kaupa mengunarkvóta fyrir embættismenn sem ferðast með flugvélum, í opinberum erindagjörðum. Útblástur flugvéla er sá út blástur gróðurhúsalofttegunda sem vex hvað hraðast, og eru ódýr fargjöld lággjaldaflugfélaga helsti þátturinn í því. Erlent 2.1.2007 14:57
Teddy Kollek látinn Teddy Kollek, fyrrverandi borgarstjóri í Jerúsalem, er látinn, 95 ára að aldri. Kollek var með litríkari ísraelskum stjórnmálamönnum og óþreytandi baráttumaður fyrir friðsamlegri sambúð Ísraela og Palestínumanna. Hann var fimm sinnum kjörinn borgarstjóri í Jerúsalem og gegndi því embætti í tuttugu og átta ár. Erlent 2.1.2007 14:34
Air Asia segir stórfréttir í vændum Asíska lággjaldaflugfélagið Air Asia segist ætla að færa stórfréttir á föstudag. Búist er við að flugfélagið muni tilkynna um samstarf með bresku félögunum Easyjet og Virgin Group. Viðskipti erlent 2.1.2007 14:10
Hefndu sín á bæjardólginum Um 400 íbúar smábæjar á Spáni hefndu sín á bæjardólginum um hátíðarnar, með því að brenna allar eigur hans. Javier Bernui hafði búið í Villaconejos í sjö ár og íbúarnir voru orðnir þreyttir á yfirgangi hans. Hann fór oft um vopnaður hnífi eða byssu, hrinti frá sér fólki á börum og í verslunum og tók það sem honum sýndist, án þess að borga. Erlent 2.1.2007 14:07
Fimm ára stúlka bitin til bana Fimm ára stúlka var í gær bitin til bana af pit bull terrier hundi í Englandi. Amma hennar, sem var með hana í pössun, meiddist líka mikið á höndum þegar hún var að reyna að forða stúlkunni frá hundinum. Hundurinn var í eigu frænda stúlkunnar og bjó í sama húsi og amman. Erlent 2.1.2007 11:56
Flakið ekki enn fundið Yfirvöld á Indónesíu upplýstu fyrir stundu að flak farþegaflugvélar sem hrapaði á leið sinni frá Jövu til Súmötru í gær hefði ekki fundist líkt og haldið hefði verið fram. Fregnir bárust af því í morgun að vélin hefði fundist í fjallgarði á vestari hluta Súlavesíu-eyju. Erlent 2.1.2007 11:46
Enginn lést í pílagrímsferðum Pílagrímsferðum til Mekka er nú lokið án þess að nokkur hafi látist. Í fyrra létust 362 pílagrímar í troðningi og árið 2004 létust 250 manns en öll öryggisgæsla var hert til muna þetta árið og þá sérstaklega vegna staðfestingar á dauðdómi yfir Saddam Hússein og hugsanlegra árása al-Kaída. Erlent 2.1.2007 11:22
Hersveitir Eþíópíu verða í Sómalíu um sinn Forsætisráðherra Sómalíu, Ali Mohamed Gedi, sagði í dag að eþíópískar hersveitir myndu þurfa að vera í landinu í þó nokkra mánuði í viðbót. Stuttu áður hafði forsætisráðherra Eþíópíu sagst vonast til þess að geta dregið herlið sitt frá Sómalíu innan fárra vikna. Erlent 2.1.2007 11:04
Í gæsluvarðhaldi til 1. maí Maður sem grunaður er um að hafa myrt fimm vændiskonur í nágrenni Ipswich í Englandi í desember mánuði á síðastliðnu ári hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald til 1. maí næstkomandi. Erlent 2.1.2007 10:47
Mótmæltu komu ársins 2007 Hópur Frakka ákvað að taka á móti nýja árinu með hinum hefbundna franska hætti - með mótmælum. Hópurinn mótmælti komu ársins 2007 og bar meðal annars mótmælaspjöld sem á stóð „Nei við 2007“ og „Nútíminn er betri“ á göngu sinni í gegnum miðborg Nantes á gamlárskvöld. Erlent 2.1.2007 10:20
Fljúgandi furðuhlutur sást í Bandaríkjunum Hópur flugvallarstarfsmanna og flugmanna sem vinna á O'Hare flugvellinum í Chicago í Bandaríkjunum sögðu frá því nýverið að þeir hafi séð fljúgandi furðuhlut sveima yfir flugvellinum þann 7. nóvember síðastliðinn. Erlent 2.1.2007 09:49
Ætla að halda kjarnorkuáæltun áfram Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í ræðu í morgun að Íran myndi halda starfsemi við kjarnorkuáætlun sína áfram þrátt fyrir refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna. Ahmadinejad sagði refsiaðgerðirnar ekki hafa neitt gildi í augum Írana. Erlent 2.1.2007 07:48
Olíuverð undir 61 dal Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór undir 61 dal á tunnu á helstu mörkuðum eftir að Saddam Hussein, fyrrum forseti Íraks, var tekinn af lífi. Þá hefur gott veðurfar í Bandaríkjunum hjálpað til við að halda verðinu niðri. Viðskipti erlent 2.1.2007 09:26
Írakar rannsaka myndbönd af Saddam Íraska ríkisstjórnin ætlar sér að rannsaka það hvernig verðir komust með myndavélasíma inn í aftökuherbergi Saddams Hússeins. Myndband hefur komist í umferð á netinu af aftöku hans þar sem heyra má verðina hrópa móðganir að Saddam en á myndbandinu sem íraska ríkisstjórnin sendi frá sér var ekkert hljóð. Erlent 2.1.2007 09:22
Rannsókn hreinsar stjórnendur Apple Bandaríski tölvurisinn Apple skilaði ársuppgjöri sínu á föstudag í síðustu viku, sem var síðasti dagur fyrirtækisins til að gera slíkt. Uppgjörið tafðist vegna rannsóknar bandaríska fjármálaeftirlitsins á kaupréttarsamningum stjórnenda fyrirtækisins sem meðal annars voru veittir Steve Jobs, forstjóra fyrirtækisins. Rannsóknin hreinsar fyrirtækið og stjórnendur þess af misgjörðum. Viðskipti erlent 2.1.2007 09:18
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent