
Fæðingarorlof

Við viljum jafnan rétt foreldra
Á síðasta kjörtímabili studdu þingmenn Sjálfstæðisflokksins breytingu á lögum sem vörðuðu hækkun í skrefum á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi. Mikilvæg breyting var gerð á málinu í þinginu á þann veg að fyrsta hækkunin gilti fyrir alla foreldra sem áttu rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.

Tvíburaforeldrar fái hálft ár í viðbótarorlof
Formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir breytingum á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Breytingarnar eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um breytingar á kerfinu til að styrkja afkomuöryggi fjölskyldna.

„Bara það að fá að taka þátt er ómetanlegt“
„Þetta er alltaf tengt föðurhlutverkinu einhvern veginn, okkur líður eins og við séum fyrir og það er engin þörf fyrir okkur,“ segir 32 ára íslenskur faðir.

Þorpið
Þú kannast kannski við það orðatiltæki að það taki þorp til að ala upp barn. En þú hefur eflaust líka heyrt að margar mæður, hér á landi, telja sig ekki hafa þetta þorp á bakvið sig. Ég er ein af þessum mæðrum. Það getur verið erfitt að fá hjálp því allir sem gætu hjálpað þér eru í vinnunni og ef þeir eru ekki í vinnunni þá eru þeir líka með sín eigin áhugamál, áhyggjur og þreytu.

Alvotech taki þátt í uppbyggingu en Reykjavík reki skólann
Líf Magneudóttir oddviti VG í borgarstjórn veltir fyrir sér afleiðingum þess að fyrirtæki hefji rekstur leikskóla. Færist starfsfólk yfir gæti það leitt til þess að mönnunarvandinn, rót vandans að hennar sögn, aukist.

Stofnuðu Félag ungra mæðra til að rjúfa félagslega einangrun
Það getur verið einmanalegt að vera ung móðir. Þetta segja mæður sem nýlega stofnuðu Félag ungra mæðra sem hefur það að meginmarkmiði að rjúfa félagslega einangrun eftir fæðingu. Margrét Helga, fréttamaður, fékk að sitja fund með framtakssömum ungum mæðrum og börnum þeirra.

Tryggjum breytingar með nýju fæðingarorlofskerfi Samfylkingar
Fæst hafa velt því fyrir sér: „Hvenær ætli barnið mitt komist inn í grunnskóla?“, eðlilega ekki. Hið sama ætti að gilda um leikskólana. Þegar fæðingarorlofi lýkur grípa foreldrar of oft í tómt.

Nýtt fæðingarorlofskerfi Samfylkingar
Samfylkingin mun ráðast í grundvallarbreytingar á fæðingarorlofskerfinu ef við fáum til þess umboð í Alþingiskosningunum þann 30. nóvember.

Mikilvæg „ófemínísk“ tillaga og fleira gott
Vörðurnar á lífsins leið eru margar. Ein sú stærsta, foreldrahlutverkið, er hvorki gefins né sjálfsögð. Það getur verið krefjandi að hefja nýtt líf og stofna fjölskyldu.

Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion
Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið.

Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna
Arion banki ætlar á næstu mánuðum að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Forstöðumaður segist vona til þess að daggæslan létti líf fleiri en bara starfsmanna.

Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið
Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21.

Kæru ungu foreldrar
Ég og hvaða nýbakaða móðir sem er getur sagt þér að síðustu vikurnar fyrir fæðingu er hvíldin nauðsynleg. Konum er þó ekki tryggður réttur til þessarar hvíldar hér á landi heldur þurfa þær að ganga á veikindarétt sinn undir lok meðgöngunnar, ef þær eru svo heppnar að eiga einhvern veikindarétt eftir þegar að því kemur.

Kæra unga móðir
Frá einni nýbakaðri móður til annarrar móður: Ég held með þér og vona að það gangi allt vel. Það er þó sjaldnast alveg þannig, hvort sem það er svefnleysi, brjóstagjöfin, kveisa, erfiðleikar við þyngdaraukningu hjá litla krílinu, fæðingarþunglyndi eða hvaðeina.

Hildur leiðir aðgerðahóp forsætisráðherra um að brúa bilið
Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í Reykjavík leiðir aðgerðahóp innan forsætisráðuneytisins sem á að vinna að því að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu
Hagstofa Íslands hefur tekið úr birtingu talnaefni um fjölda starfandi eftir rekstarformi eftir að kom í ljós að opinberar hagtölur um fjölda starfandi ríkisstarfsmanna voru ofmetnar. Gögnin voru unnin fyrir forsætisráðuneytið. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í dag slíkar villur hið versta mál.

Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund
Fimm þúsund manns skráðir í fæðingarorlof voru ranglega taldir sem ríkisstarfsmenn í opinberum gögnum Hagstofunnar. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir villur sem þessar í opinberum gögnum vera hið versta mál og vill bæta hagskýrslugerð.

Reglur um fæðingarstyrk geri ráð fyrir einsleitum hópi námsmanna
Þórdís Dröfn Andrésdóttir formaður Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, segir nauðsynlegt að breyta reglum um greiðslur til námsmanna úr fæðingarorlofssjóði þannig þær taki mið af fjölbreyttari hópi námsmanna. Þá þurfi einnig að hækka greiðslurnar.

Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok
Reyndur mannauðsráðgjafi merkir bakslag hvað varðar jafnrétti kynjanna í fyrsta sinn á ævi sinni. Hámenntaðar konur séu að bugast við endurkomu í vinnu vegna nýrra krafna meðal annars frá samfélagsmiðlum.

Hildur biður Samfylkinguna afsökunar
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, biður Samfylkinguna afsökunar á rangfærslum í grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í dag. Í greininni segir hún Samfylkinguna ekki hafa komið á tólf mánaða fæðingarorlofi þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um að svo hafi verið, það reyndist ekki alveg rétt hjá henni

Löng barátta XD fyrir jafnrétti og frelsi
Við sjálfstæðismenn gátum glaðst yfir mörgu við þinglok. Eitt af því var hækkun á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi sem þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa stutt ötullega. Við þinglega meðferð gerði meirihluti velferðarnefndar mikilvægar breytingar á málinu á þann veg að hækkunin gildi fyrir alla þá sem eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.

Fölsk vernd fæðingarorlofslaga fyrir verðandi feður?
Hjá ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi, var starfsmanni sem hafði nýlega sagt frá því að hann ætti von á barni, sagt upp störfum. Um er að ræða verðandi föður og á fundinum þar sem honum var afhent uppsagnarbréfið sagði hann að þetta gæti ekki verið lögleg uppsögn þar sem hann væri verndaður skv. fæðingarorlofslögum. Svar fyrirtækisins var að þessi vernd gildi einungis fyrir konur.

Þarf heppni til að fæðingarorlof með fjölbura gangi upp?
Eins og fæðingarorlof fyrir fjölburaforeldra er nú eru 12 mánuðir í fæðingarorlof og við það bætast 3 mánuðir fyrir hvert barn umfram eitt. Tvíburaforeldrar fá því samtals 15 mánuði til að skipta á milli sín og þríburaforeldrar 18 mánuði.

Þakklát eftir fund með „viljugum“ Bjarna
Sylvía Briem Friðjónsdóttir, sem síðustu daga hefur vakið athygli bágri stöðu nýbakaðra foreldra í tengslum við leiksólapláss og fæðingarorlof, átti fund með forsætisráðherra í dag og fór yfir stöðuna.

Hækkum lágmarkið
Hækkun á fæðingarstyrk til stúdenta er nauðsynlegt næsta skref hvað varðar fæðingarorlofið, sem og hækkun lágmarksgreiðslna úr fæðingarorlofssjóði og afnám 20% skerðingar á greiðslum til bóta fyrir þau lægst launuðu.

Hærri fæðingarorlofsgreiðslur – en bara fyrir suma foreldra
Hámarksgreiðslur fæðingarorlofs hafa ekki hækkað síðan árið 2019. Þannig stendur í dag hámark greiðslna úr fæðingarorlofssjóði í 600.000 kr. á mánuði fyrir skatt. Það þýðir að greiðslur úr fæðingarorlofssjóði geta aldrei numið hærri upphæð en 600.000 kr. á mánuði. Nú 5 árum síðar verða hámarksgreiðslur hækkaðar í 900.000 kr. vegna kjarasamninga í þeim tilgangi að „treysta fjárhagslegt öryggi ungbarnafjölskyldna“ eins og segir í greinargerð með frumvarpi ríkisstjórnarinnar þess efnis, en þó í þremur skrefum.

Klára frekar barneignir í Noregi en að flytja aftur heim
Dóra Sóldís Ásmundardóttir og maðurinn hennar Sindri Ingólfsson búa í Osló Noregi og eiga tvö börn, Flóka og Öglu Guðrúnu, undir þriggja ára aldri. Þau hafa komið sér vel fyrir í Noregi og eiga ekki endilega von á því að koma heim strax.

„Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“
„Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu,“ segir Sylvía Briem Friðjónsdóttir sem vakið hefur athygli á bágri stöðu nýbakaðra foreldra. Hún kveðst hafa fengið ábendingar um gjaldþrot foreldra sem hafi tekið sér fæðingarorlof og spyr hvort það sé orðinn lúxus að fjölga sér.

Stjórnmálamenn sem reiða sig á gleymsku kjósenda
Athafnakonan Sylvía Briem Friðjónsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir samfélagsmiðlafærslu um erfiða stöðu nýbakaðra foreldra. Sylvía á ung börn og gerði bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar að umtalsefni. Hún spurði hreinlega hvort það væri orðinn „lúxus að fjölga sér“. Varaþingmaður Viðreisnar, María Rut Kristinsdóttir, benti á málflutninginn undir liðnum störf þingsins - fjölskyldufólk væri að bugast undan álaginu sem fylgir þessu bili.

Munurinn á meðgöngu- og fæðingarsjúkdómum
Það er gömul saga og ný að ráðherrar og þingmenn, þrátt fyrir her aðstoðarmanna sem túlka fyrir þau, eru misduglegir við að lesa og skilja afleiðingar frumvarpa ráðuneyti og stofnanir landsins leggja fyrir þau að samþykkja sem lög. Hér verður rakið stuttlega eitt slíkt dæmi sem spannar tæpa þrjá áratugi.