
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Fleiri leikmenn á Englandi í vandræðum: Mendy hélt nýárspartí
Manchester City segir í yfirlýsingu sinni að þeir séu vonsviknir með framkomu varnarmannsins Benjamin Mendy en hann hélt nýárspartí, þrátt fyrir strangar reglur í Englandi.

„Óhjákvæmilegt“ að margir greinist á landamærum
Fjórir greindust með covid-19 innanlands í gær og þar af voru allir í sóttkví. Mun fleiri, eða alls fjórtán greindust á landamærum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir fjölda smitaðra sem greindust á landamærum ekki koma á óvart, enda séu margir að snúa heim eftir að hafa varið jólunum í útlöndum.

Fjögur smit innanlands og fjórtán á landamærum
Fjórir greindust með covid-19 innanlands í gær og voru allir í sóttkví. Vel yfir þúsund sýni voru tekin innanlands í gær. Mun fleiri, eða alls fjórtán greindust á landamærum. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu.

Braut reglurnar viljandi til að leyfa viðskiptavinum að skipta jólagjöfum
Fataverslunin Laura Thomsen Luxury í Silkeborg í Danmörku var opnuð í gær svo viðskiptavinir gætu skipt og skilað jólagjöfum. Þetta gerðu eigendur verslunarinnar, þrátt fyrir núgildandi reglur danskra stjórnvalda vegna sóttvarnaaðgerða sem kveða á um að verslanir skuli vera lokaðar til að minnsta kosti 17. janúar.

Áskoranir á nýju ári
Nýtt ár er runnið upp með fyrirheitum og vonum um batnandi tíð. Við blasir að kveða niður veiruna með fjöldabólusetningum og koma atvinnulífinu í fullan gang.

Forstjóri almannavarna Svíþjóðar taldi jólaferð til Kanaríeyja nauðsynlega
Dan Eliasson, framkvæmdastjóri almannavarna í Svíþjóð, hefur verið harðlega gagnrýndur í heimalandinu fyrir ferð sína til Las Palmas um jólin. Sjálfur segir hann ferðina hafa verið nauðsynlega.

Hvergi fleiri verið bólusettir en í Ísrael
Hlutfallslega hafa hvergi verið eins margir bólusettir gegn covid-19 en í Ísrael þar sem um 12% þjóðarinnar hefur þegar fengið fyrsta skammt bóluefnis. Rúmlega milljón íbúar hafa þegar verið bólusettir eða sem jafngildir 11,55 íbúum af hverjum hundrað. Það er sem stendur hæsta hlutfall bólusettra íbúa á heimsvísu samkvæmt frétt BBC.

Bólusetti kærastann og fékk bónorð í leiðinni
Robby Vargas-Cortes, sem starfar sem yfirmaður sjúkraflutninga, kom kærasta sínum, hjúkrunarfræðinginum Eric Vanderlee, heldur betur á óvart þegar hann mætti til hans til að fá bóluefni gegn covid-19. Vargas-Cortes mætti í bólusetningu á Þorláksmessu til Vanderlee, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur í Canton í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum.

Frestað hjá Fulham og Burnley
Leik Fulham og Burnley í ensku úrvalsdeildinni, sem átti að fara fram á morgun, hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Fulham.

„Hillir undir það að þetta muni klárast“
Þótt það hilli undir endalok kórónuveirufaraldursins með tilkomu bóluefnis er mikilvægt að sýna þolinmæði. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Áfram sé mikilvægt að fara varlega til að koma í veg fyrir að veiran fari á flug. Hann segir að almennt virðist hafa gengið vel að hefta útbreiðslu veirunnar um jólin.

Bóluefni Moderna verði samþykkt í Evrópu á mánudaginn
Richard Bergström, bóluefnastjóri Svíþjóðar, segir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins muni veita samþykki fyrir bóluefni Moderna gegn covid-19 á mánudaginn og að fyrstu skammtarnir verði komnir til Svíþjóðar innan tveggja vikna að því er SVT greinir frá. Ísland hefur gert samning um kaup á 128 þúsund skömmtum af bóluefni frá Moderna, í gegnum Svíþjóð, en það ætti að duga til að bólusetja 64 þúsund manns á Íslandi.

Enginn greindist með veiruna í gær
Enginn greindist með covid-19 innanlands síðasta sólarhringinn enda var engin skipulögð sýnataka í gær, nýársdag. Enginn greindist heldur með veiruna á landamærum samkvæmt bráðabirgðatölum. Viðbúið er að nýjar tölur yfir fjölda smitaðra muni liggja fyrir á morgun.

Fór í frí og kom til baka kórónuveirusmitaður
Nígeríski framherjinn Victor Osimhen leikur með Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni. Hann hefur nú greinst með kórónuveiruna.

BioNTech í kapphlaupi til að fylla upp í ESB-gatið
Stjórnendur þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech gagnrýna Evrópusambandið fyrir seinagang í pöntunum á bóluefni fyrirtækisins og Pfizer. Þeir segja fyrirtækin nú leggja allt kapp á að auka framleiðsluna til að brúa bilið sem seinagangurinn, og of mikið traust ESB til annarra framleiðenda, hafi búið til.

„Bara smá tilfinning og búið“
Stefán Þorleifsson, 104 ára og elsti núlifandi karlmaður á Íslandi, var bólusettur fyrir kórónuveirunni í Neskaupstað fyrr í vikunni. Hann segir sprautuna ekki hafa verið neitt mál og hefur ekki fundið fyrir eftirköstum.

Vísbendingar um að fólk hafi verið að gleyma sér
Yfirlögregluþjónn segir annríki hjá lögreglu og á bráðamóttöku í nótt áhyggjuefni þegar kemur að útbreiðslu kórónuveirunnar. Það gefi vísbendingu um að fólk hafi aðeins verið að gleyma sér sem gæti skilað sér í að fleiri smitist af veirunni.

Hópamyndun við Hallgrímskirkju í nótt tilkynnt til lögreglu
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hópamyndun við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti í Reykjavík um klukkan eitt í nótt.

Koma þarf bóluefni til landsins með öllum tiltækum ráðum
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að koma þurfi bóluefni gegn kórónuveirunni hingað til lans með öllum tiltækum ráðum. Þetta sagði hann í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar.

Ekki heyrt af stórum brotum á samkomutakmörkunum í gærkvöldi
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segist ekki vita til þess að í gærkvöldi hafi verið mikið um brot á samkomutakmörkunum.

Þrír greindust innanlands
Þrír greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Tveir hinna smituðu voru í sóttkví. Þá greindust þrír á landamærunum.

Handtekinn grunaður um að spilla bóluefni viljandi
Lyfjafræðingur í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn fyrir að eyðileggja hundruð skammta af bóluefni Moderna við Covid-19, með því að geyma þá við stofuhita í tvær nætur.

„Við förum bara þegar þú kemur næst“
Ragnar Axelsson ljósmyndari hitti fyrst Halldór Agnar Jónasson á sjúkrahúsinu á Akureyri. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var þá með Covid-19 og barðist fyrir lífi sínu. Hann sagði við RAX að hann hafði valið að fara ekki í öndunarvél, taldi að hann myndi ekki lifa það af.

„Íslenskir stjórnmálamenn ákváðu að láta faraldurinn ekki snúast um sig“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra óskaði landsmönnum öllum ljóss og friðar á nýju ári sem nú fer í hönd í áramótaávarpi sínu í kvöld. Hún stiklaði á stóru yfir fordæmalaust ár, litað af heimsfaraldri, og kvað það „heilbrigðismerki“ að stjórnmálamenn á Íslandi hefðu ekki látið faraldurinn snúast um sig.

Þórólfur Guðnason valinn maður ársins
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Margir voru um hituna á viðburðaríku ári en tilkynnt var um valið í þættinum Kryddsíld í dag, þar sem árið 2020 er gert upp.

„Við eigum býsna góða fylgismenn innan Pfizer“
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að Ísland eigi sér „býsna góða fylgismenn“ innan lyfjafyrirtækisins Pfizer. Hvort það dugi til að tryggja 60 prósent þjóðarinnar bóluefni liggi þó ekki fyrir. Áhugi innan Pfizer á Íslandsrannsókn sé „geysimikill“.

Engir áhorfendur leyfðir í Liverpool-borg
Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool og Everton munu ekki geta fengið áhorfendur á leiki sína á næstunni eftir að Liverpool-borg var færð niður í „Tier 3.“ Það þýðir að engir áhorfendur eru leyfðir á íþróttaviðburði.

Katrín hvetur landsmenn til að fara varlega í kvöld
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist stolt af íslensku samfélagi nú þegar árið 2020 er senn á enda og hvetur landsmenn til að fara varlega í kvöld. Þetta segir Katrín í færslu á Twitter.

Heilbrigðisstarfsmaðurinn maður ársins 2020
Heilbrigðisstarfsmaðurinn er maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Niðurstaðan var kynnt í Reykjavík árdegis í morgun. Niðurstaðan var afgerandi en af tæplega 25 þúsund atkvæðum fékk heilbrigðisstarfsmaðurinn tvöfalt fleiri en næsti maður eða 8965 atkvæði.

Óttast að aðeins „pínulítill hundraðshluti þjóðarinnar“ verði bólusettur fyrir lok næsta árs
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur hættu á að aðeins „pínulítill hundraðshluti þjóðarinnar“ verði bólusettur fyrir kórónuveirunni fyrir lok næsta árs. Samningar stjórnvalda um kaup á bóluefni feli aðeins í sér magn en ekki afhendingartíma.

Þrír greindust innanlands og þar af tveir í sóttkví
Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru tveir í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.