Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Fjarlægðu tíst Trump vegna lyga um lækningu gegn Covid
Starfsmenn Twitter fjarlægðu í dag tíst Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þar sem því var haldið fram að til væri lækning gegn Covid-19.

Finna engin tengsl í tveimur tilfellum
Ekki hefur tekist að rekja tvö innanlandssmit sem greindust í gær. Þannig er ekki vitað til þess að þau tengist innanlandssmitum sem komið hafa upp síðustu daga.

Skoða hertar aðgerðir og boða frekari skimun vegna fjölgunar smita
Til umræðu er nú að herða sóttvarnaaðgerðir innanlands og hugsanlega á landamærunum vegna nýrra kórónuveirusmita frá mismunandi uppsprettum undanfarna daga, að sögn staðgengils sóttvarnalæknis. Frekari skimun fyrir veirunni hefst á næstu dögum.

Svona var 89. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag, örfáum dögum eftir að hafa boðað til „síðasta fundarins í bili“.

Leikmaður Real Madrid smitaður
Nú þegar ellefu dagar eru í að Real Madrid mæti Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu er komið upp kórónuveirusmit í leikmannahópi spænsku meistaranna.

Allir þeir smituðu á Akranesi búa saman
Sjö einstaklingar sem hafa greinst smitaðir af kórónuveiru á Akranesi undanfarna daga eru erlendir verkamenn sem búa saman. Sóttvarnalæknir Vesturlands segir engan þeirra alvarlega veikan og engin frekari smit hafi greinst í tengslum við hópsýkinguna.

Þrjú innanlandssmit til viðbótar
Þrjú innanlandssmit kórónuveirunnar greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær.

Segir fulla ástæðu til að hægja á tilslökunum
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist áhyggjufull vegna fjölgunar kórónuveirusmita innanlands sem greinst hafa á síðustu dögum. Hún segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af þeim.

WHO um faraldurinn: Ein stór bylgja, engar árstíðarsveiflur
Nýtt afbrigði kórónuveiru hagar sér ekki eins og inflúensa sem tekur árstíðarsveiflur, að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Fólk ætti að búa sig undir að faraldurinn verði aðeins ein stór bylgja.

Tilslökunum á samkomubanni frestað um tvær vikur
Fyrirhuguðum tilslökunum á samkomubanni sem taka áttu gildi 4. ágúst næstkomandi verður frestað um tvær vikur.

Aftur boðað til upplýsingafundar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag, örfáum dögum eftir að hafa boðað til „síðasta fundarins í bili“

Þriðju stærstu borg Víetnam lokað vegna nýrra smita
Yfirvöld í Víetnam hafa komið á tveggja vikna útgöngubanni í Da Nang, þriðju stærstu borg landsins, eftir að fyrstu nýju kórónuveirusmitin í meira en þrjá mánuði greindust á sjúkrahúsi þar.

Milljónir barna verða vannærð vegna áhrifa kórónuveirunnar
Nærri sjö milljón börn undir fimm ára aldri bætast í hóp barna sem eru vannærð á þessu ári og má að stórum hluta rekja það til kórónuveirufaraldursins.

Yfirmaður sóttvarna í Kína sprautaði sig með tilraunamótefni
Gao Fu, yfirmaður Sóttvarnastofnunar Kína, CCDC, segist hafa verið sprautaður af tilraunamótefni gegn Covid-19, sjúkdómnum sem nýja kórónuveiran veldur.

Veiran líklega ekki legið í leyni á Íslandi
Ólíklegt verður að teljast að kórónuveiran hafi legið í leyni á Íslandi.

Spánverjar biðla til Breta að afnema sóttvarnareglur
Forsætisráðherra Spánar hvetur bresk stjórnvöld til að endurskoða nýjustu sóttvarnaráðstafanir sínar.

Yfir 650 þúsund látist af völdum veirunnar
Heildarfjöldi greindra tilfella kórónuveirunnar á heimsvísu er nú orðinn meiri en sextán milljónir og hafa yfir 650 þúsund látist vegna veirunnar.

Virk kórónuveirusmit orðin 22: Tengsl við hópsýkinguna á Akranesi
Innanlandssmit kórónuveirunnar greindist hér síðdegis og eru virk smit því orðin 22 talsins.

Reglum um fjöldatakmarkanir framfylgt í Eyjum þrátt fyrir að engin sé Þjóðhátíð
Þrátt fyrir að Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hafi verið aflýst munu löggæsluyfirvöld samt sem áður vera með viðbúnað í Eyjum og reglum um fjöldatakmarkanir verður fylgt eftir.

Vill stórsókn í sýnatökum vegna innanlandssmita
Sérnámslæknir á Landspítalanum segir að í ljósi fjölda innanlandssmita þurfi að fara í stórsókn í sýnatökum innanlands.

Norðmenn flykkjast í sænskar verslanir á ný
Norðmenn flykkjast nú yfir landamærin til Svíþjóðar til þess að versla í matinn.

Segja nýjar tillögur komnar á borð heilbrigðisráðherra
Heilbrigðisráðuneytinu hafa borist nýjar tillögur frá sóttvarnalækni er varða breyttar reglur á samkomutakmörkunum.

Nýju innanlandssmitin á Akranesi
Smitrakning er nú sögð standa yfir vegna hópsmits Covid-19 á Akranesi. Staðarmiðillinn Skessuhorn hefur þetta eftir aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Vesturlandi.

Johnson hvetur Breta til að megra sig
Bretar ættu að „grenna sig aðeins“ að mati Boris Johnson, forsætisráðherra en ríkisstjórn hans ætlar að grípa til aðgerða gegn því sem þau telja offitufaraldur í landinu. Vísar Johnson til eigin reynslu af glímu við aukakílóin og Covid-19-veikindi til þess að styðja átakið.

Þjóðaröryggisráðgjafi Trump smitaður af Covid-19
Robert O‘Brien, þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, greindist smitaður af Covid-19, sjúkdómnum sem nýtt afbrigði kórónuveiru veldur. Hann er nánasti ráðgjafi Trump sem hefur smitast af veirunni til þessa.

Breskur köttur greindist með Covid-19
Köttur í Englandi greindist með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 nú á dögunum eftir að hafa farið í sýnatöku í síðustu viku.

Í athugun hvort grípa þurfi til hertari aðgerða
21 er með staðfest kórónuveirusmit hér á landi og 173 eru í sóttkví. Í athugun er hvort grípa þurfi til hertari aðgerða.

Skilgreina Spán aftur sem áhættusvæði eftir fjölgun smita
Spænsk stjórnvöld reyna nú að koma ferðamannaiðnaðinum til bjargar eftir að breska ríkisstjórnin gaf út að þeir sem koma frá Spáni þurfi að fara í fjórtán daga sóttkví. Fleiri lönd hvetja borgara sína til þess að forðast ferðalög til Spánar.

21 með virkt kórónuveirusmit hér á landi
Í dag eru í heildina 21 með staðfest smit veirunnar sem veldur sjúkdómnum Covid-19.

23 rússneskir skipverjar smitaðir og tveir á sjúkrahúsi
Tveir rússneskir skipverjar á togaranum Karelia hafa verið lagðir inn á Landssjúkrahúsið í Þórshöfn í Færeyjum vegna Covid-19.