Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Leyfir sér að vona að hið dramatíska „finale“ sé handan við hornið
Íslenskur læknir sem starfar á sjúkrahúsi í Lundúnum segir stöðuna ágæta á spítalanum, þrátt fyrir uppgang ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar og tiltölulega vægar samkomutakmarkanir. Hann bindur vonir við að dramtískur endapunktur faraldursins sé í nánd.

Bólusetningar barna 5 til 11 ára hefjast í Laugardalshöll
Bólusetningar barna á aldrinum 5 til 11 ára hefjast í dag. Á höfuðborgarsvæðinu fara þær fram í Laugardalshöll, á milli klukkan 12 og 18. Börn mæta með fylgdarmanni, sem er með barninu allan tímann og bíður með því eftir bólusetningu.

Verkalýðshreyfingin ætlar í mál við ríki og sveitarfélög
Verkalýðshreyfingin hyggst fara í mál við ríki og sveitarfélög vegna ágreinings um nýtingu orlofsréttar þegar starfsmenn lenda í sóttkví.

Kláraði viðskiptin fyrir utan eftir að hann æsti sig vegna grímuskyldu
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í ónefndri verslun í Reykjavík í dag þegar viðskiptavinur neitaði að bera andlitsgrímu inn í verslunarhúsnæðinu. Maðurinn sinnti ekki tilmælum starfsmanna og stóð fyrir utan verslunina þegar lögregla kom á staðinn.

Lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna stöðu faraldursins
Ríkislögreglustjóri hyggst á þriðjudag lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna sívaxandi álags á heilbrigðiskerfið. Þetta er í annað sinn í faraldrinum sem hæsta viðbúnaðarstigi er lýst yfir vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Bréf varaþingmannsins sé hræðsluáróður
Varaþingmaðurinn og lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson sendi á dögunum langt opið bréf fyrir hönd samtakanna Ábyrgð og frelsi þar sem kennarar, meðal annarra, voru spurðir hvort þeir vildu bera ábyrgð á bólusetningu grunnskólabarna ef allt færi á versta veg. Annar varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segir bréfið hræðsluáróður.

Velferðarþjónusta á tímum Covid
Heimsfaraldurinn hefur svo sannarlega minnt okkur rækilega á mikilvægi heilbrigðis- og umönnunarstétta. Við á velferðarsviði Reykjavíkurborgar höfum ekki farið varhluta af faraldrinum og í dag þegar þetta er skrifað eru um 200 manns á sviðinu í einangrun eða sóttkví, aðallega starfsmenn sem starfa úti á vettvangi við beina umönnun eða þjónustu, til dæmis í heimaþjónustu og í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk. Þetta er um 6 % af heildarstarfsmannafjölda sviðsins sem telur um 3.500 manns.

Þarf ég að biðjast vægðar?
Ég hef fylgst vel með baráttu Arnars Þórs, hæstaréttarlögmanns, fyrrverandi dómara og varaþingmanns sjálfstæðisflokksins. Mér finnst mikilvægt að allar skoðanir komi fram og að við temjum okkur gagnrýna hugsun. Það sem truflar mig þó mest er tónninn sem er sendur til opinberra starfsmanna í bréfi sem hann sendi fyrir hönd samtakanna Frelsi og ábyrgð. Það að opinberir starfsmenn séu gerðir ábyrgir fyrir ákvörðunum sem þeir hafa ekki ákvörðunarvald yfir er að mínu mati barnaleg nálgun.

Finnar segja langtímaáhrif Covid geta orðið að stórslysi
Stjórnvöld í Finnlandi hafa áhyggjur af langtímaáhrifum kórónuveirusjúkdómsins og velta því upp hvort afleiðingarnar geti hreinlega orðið að stórslysi fyrir heilbrigðiskerfið og þjóðfélagið í heild. Málið var kynnt á pallborðsumræðum í Finnlandi nýverið.

Spyr hvort vit sé í að framkvæma PCR-próf
Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir á Landspítalanum, veltir því fyrir sér hvort fjármunum sem varið er í PCR-próf væri ekki betur varið í að byggja upp Landspítalann.

„Því meiri samgangur, því meiri útbreiðsla“
Heilbrigðisráðherra væntir þess að fá minnisblað frá sóttvarnalækni um næstu aðgerðir innanlands seinni partinn í dag eða á morgun. Hann segir ljóst að farið sé að hrikta í stoðum og starfsemi samfélagsins og að aukinn samgangur auki líkur á enn frekari útbreiðslu

Tveir á níræðisaldri létust af Covid-19 í gær
Tveir karlmenn á níræðisaldri létust í gær á Landspítala af völdum Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítala í dag. 41 hefur nú látist af völdum kórónuveirunnar hér á landi frá upphafi faraldurs.

915 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
Í gær greindust 915 einstaklingar smitaðir af Covid-19 innanlands og 134 á landamærunum. Það eru því aðeins færri en greindust í fyrradag en þá greindust 1.044 með kórónuveiruna innanlands. Ásókn er í sýnatöku þó er oft minni um helgar.

Óbólusettum meinað að spila eftir ferðalög?
Svo gæti farið að til þess að mega spila leiki í ensku úrvalsdeildinni eftir ferðalög út fyrir Bretland þá þurfi leikmenn að vera fullbólusettir, annars þurfa þeir að sæta sóttkví í 10 daga. Þetta segir menningarmálaráðherra Bretlands, Nadine Dorries.

Viktoría krónprinsessa greindist aftur með Covid-19
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar greindist í dag með Covid-19. Þetta er í annað sinn sem prinsessan fær sjúkdóminn en fram kom í mars síðastliðnum að hún og eiginmaður hennar Daníel Prins væru komin í einangrun. Þá veiktust hvorugt þeirra illa.

„Verðum að standa upp úr þessu þó veiran slái okkur niður“
Vonast er til að hægt verði að opna sjúkrahúsið Vog á fimmtudag en því var lokað eftir að 33 starfsmenn og sjúklingar greindust þar með Covid-19. Þetta er í fyrsta skipti frá stofnun sem sjúkrahúsinu er lokað og þurftu starfsmenn að bregðast skjótt við þegar fólk byrjaði að greinast síðasta fimmtudag.

Skólastjórnendur upplifi bréf Arnars Þórs sem hótun
Skólastjórnendur upplifa kröfu varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að þeir verði kallaðir til ábyrgðar vegna bólusetninga barna, sem hótun, að sögn sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Um sé að ræða hræðsluáróður sem ekki eigi að taka mark á.

Hækka þurfi viðbúnaðarstig á landsvísu og herða samkomutakmarkanir
Forstjóri Landspítalans telur rétt að hækka á viðbúnaðarstig almannavarna á landsvísu vegna sívaxandi álags á heilbrigðiskerfið. Kórónuveirusmituðum hafi fjölgað ískyggilega og að herða þurfi samkomutakmarkanir enn frekar til að sporna við frekari innlögnum.

Loka í þrjár vikur til að aðstoða Landspítalann: „Þetta er bara dauðans alvara“
Ákveðið hefur verið að loka Klíníkinni næstu þrjár vikurnar á meðan tæplega tuttugu starfsmenn fyrirtækisins hlaupa undir bagga með starfsfólki Landspítalans.

Sumum nú leyft að útskrifa sjálfan sig úr einangrun vegna álags
Einstaklingum sem hafa klárað sjö daga einangrun vegna Covid-19, finna ekki fyrir einkennum og hafa ekki náð sambandi við Covid-göngudeild Landspítalans er nú heimilt að útskrifa sjálfa sig úr einangrun.

Líklegt að tvíbólusettir séu ólíklegri til að smitast af ómíkron
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ákvörðun um breytingu á sóttkvíarreglum fyrir þríbólusetta vera tekna á grundvelli nýrrar rannsóknar sem sýni fram á að tvíbólusettir séu bæði ólíklegri til að smitast og smita aðra.

Veltu upp ábyrgð kennara á bólusetningu barna í löngu bréfi
Varaþingmaðurinn og lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson sendi langt opið bréf fyrir hönd samtakanna Ábyrgð og frelsi þar sem kennarar, meðal annarra, voru spurðir hvort þeir vildu bera ábyrgð á bólusetningu grunnskólabarna ef allt færi á versta veg.

Dæmi um að ekki takist að útskrifa fólk vegna álags
Dæmi eru um að ekki hafi tekist að útskrifa fólk úr einangrun á sjöunda degi sökum álags á covid-göngudeildinni, að sögn Víðis Reynissonar, yfirlögregluþjóns hjá almannavörnum. Hann segir stöðuna á Landspítalanum sjaldan hafa verið þyngri en nú.

Fullyrðingar um að tvíbólusettir smitist frekar standist ekki
Sóttvarnalæknir segir í nýbirtum pistli sínum að línurit um nýgengi smita á síðunni covid.is þurfi að túlka af varúð. Mikilvægt sé að rýna í samsetningu hópanna sem tölurnar byggjast á.

Segja að Djokovic hafi fengið undanþágu frá bóluefni vegna kórónuveirusýkingar
Serbneska tennisstjarnan Novak Djokovic hafði fengið undanþágu frá bóluefni eftir að hafa greinst með kórónuveiruna þann 16. desember síðastliðinn segja lögfræðingar hans.

1.044 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
Í gær greindust 1.044 einstaklingar smitaðir af Covid-19 innanlands í gær og 198 á landamærunum. Það gera 1.242 í heildina.

Mikil fjölgun smita meðal óbólusettra barna
Aldrei hafa jafnmörg börn yngri en fimm ára smitast af Covid í Bandaríkjunum og nú. Sérfræðingar segja það mikið áhyggjuefni en bólusetningar fyrir svo ung börn hafa ekki hafist.

„Ef ég hefði verið bólusettur hefði ég örugglega ekki orðið svona veikur“
Óbólusettur maður sem veiktist illa af Covid-19 telur ljóst að hann hefði sloppið betur ef hann hefði bólusett sig. Hann er þó ekki fullur eftirsjár, er feginn að vera kominn með ónæmi í bili og vonar að hann þurfi ekki endurhæfingu.

Grunnskólabörn langþreytt á faraldrinum
Grunnskólabörn eru flest hver orðin langþreytt á kórónuveirunni. Fréttamaður okkar hitti nokkur þeirra í Melaskóla í dag og ræddi við þau um faraldurinn.

„Við veljum alltaf að bólusetja börnin til þess að verja þau“
Barnasmitsjúkdómalæknir segir bólusetningu barna á aldrinum 5-11 ára gegn kórónuveirunni snúast um að verja börnin en ekki að stoppa smitið úti í samfélaginu. Átta börn hafi þegar lagst inn á sjúkrahús með veiruna hér á landi en ekkert þeirra hafi verið með undirliggjandi sjúkdóm.