Valur

Atli Viðar um sóknarleik Vals: Patrick Pedersen alltof djúpur á vellinum
Valsmenn fóru markalausir og stigalausir út úr fyrsta leik sínum í Pepsi Max deild karla í sumar og hluti af skýringunni gæti verið að framherji liðsins var ekki nógu oft á „réttum“ stað.

Rasmus með höfuðverk í sólarhring eftir leikinn við KR: „Vissi alveg að það væru ekki tveir boltar“
„Mér líður betur í dag en í gær. Ég var með hausverk út kvöldið, og allan daginn í gær,“ segir Rasmus Christiansen, miðvörður Vals, sem varð að fara af velli vegna höfuðmeiðsla í leiknum við KR þegar keppni í Pepsi Max-deildinni hófst á laugardaginn.

Rúnar Kristins með 16-4 tak á Heimi Guðjóns
Rúnar Kristinsson hefur fagnað sigri tvöfalt oftar en Heimir Guðjónsson í innbyrðis leikjum liða þeirra í úrvalsdeild.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KR 0-1 | Meistararnir halda áfram þar sem frá var horfið
Íslandsmeistarar KR heimsóttu Valsmenn í fyrsta leik Pepsi Max deildar karla í fótbolta en KR-ingar tóku Íslandsmeistaratitilinn af Valsmönnum í fyrrasumar.

Elín Metta skoraði áður en mótið átti að vera farið af stað
Elín Metta skoraði fyrsta mark Pepsi Max deildarinnar sumarið 2020 en markið kom áður en mótið átti að vera formlega farið af stað.

Gamlir en góðir | Tveir elstu saman hjá Fylki
Hvaða gömlu refir láta ljós sitt skína í sumar?

Martin valdi mörk gegn Val sem sín uppáhalds eftir allt sem gekk á í fyrra
Enski markahrókurinn Gary Martin valdi tvö mörk gegn Val sem sín uppáhalds mörk á ferlinum, í þættinum Topp 5 á Stöð 2 Sport.

Sjáðu fyrstu mörk Íslandsmótsins - Elín Metta skoraði eftir 90 sekúndur
Elín Metta Jensen skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins 2020 eftir aðeins níutíu sekúndna leik gegn KR. Hún skoraði tvö marka Vals í 3-0 sigri en öll mörkin má sjá í fréttinni.

Heimir hefur „fengið pillur frá KR-ingum“ eftir að hafa tekið við Val
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segist hafa fengið skot á sig frá KR-vinum sínum eftir að hann tók við liði Vals en Heimir er fæddur og uppalinn vestur í bæ.

KR-konur hafa ekki skorað hjá Valsliðinu í meira en fjögur ár
KR-konur hafa ekki unnið Val í meira en ellefu ár og þær hafa ekki skorað hjá Valskonum í síðustu sjö deildarleikjum. Liðin mætast í opnunarleik Íslandsmótsins í kvöld.

Daninn hjá Val sem er hrifinn af Laxness og Jóni Kalman
Daninn Rasmus Christiansen er með áhugaverðari erlendu leikmönnum sem hafa rekið fjörur íslenska boltans á síðustu árum. Valsmaðurinn kennir í KR-skóla, nemur Norðurlandafræði við Háskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á bókmenntum og listum.

Pepsi Max-spáin 2020: Hefja sig aftur til flugs hjá Heimi
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Val 1. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Túfa sendi Heimi „frábært SMS“ sem skilaði honum starfinu hjá Val
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir að upphafið að því að hann réði Srdjan Tufegdzic sem aðstoðarþjálfara sinn hjá Val hafi verið SMS sem hann fékk frá Túfa, eins og hann er oftast kallaður.

Vildu Hannes í titilbaráttu í Noregi en hann fann mann í sinn stað
Norska knattspyrnufélagið Bodö/Glimt, sem varð í 2. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, freistaði þess í vor að fá Hannes Þór Halldórsson til að snúa aftur til félagsins, án árangurs.

Heimi spáð titli í fyrstu tilraun - Engar sérstakar áhyggjur þrátt fyrir langt stopp
Heimir Guðjónsson gerir Val að Íslandsmeistara í fótbolta í fyrstu tilraun ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaganna í Pepsi Max-deild karla.

Spáin fyrir Pepsi Max kvenna 2020: Toppbaráttan (1. til 3. sæti)
Í síðasta hluta spár Vísis fyrir Pepsi Max-deild kvenna er farið yfir liðin þrjú sem munu berjast um Íslandsmeistaratitilinn.

Val og Breiðabliki spáð Íslandsmeistaratitlunum
Karlalið Vals og kvennalið Breiðabliks endurheimta Íslandsmeistaratitlana rætist spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Pepsi Max deildunum.

Þarf að standa sig til að halda landsliðstreyju númer eitt: „Hann var örugglega að semja eitt viðtalið í leiknum“
Tómas Ingi Tómasson, sparkspekingur Pepsi Max-markanna og fyrrum markahrókur, segir að Hannes Þór Halldórsson, markvörður Vals, þurfi að standa sig í sumar ef hann ætlar að eiga kost á að spila með Íslandi í umspilsleikjunum um sæti á EM 2021.

Tómas Ingi um Aron Bjarnason: „Aldrei verið hrifinn af Aroni sem fótboltaspilara“
Tómas Ingi Tómasson, einn sparkspekingur Pepsi Max-markanna, segir að koma Arons Bjarnasonar í lið Vals muni ekki skipta sköpum í sumar en þetta sagði hann í fjórða og síðasta miðvikudags-upphitunarþætti Pepsi Max-markanna í gær.

Ekki hægt að kaupa miða á leik Vals og KR á svæðinu á leikdag
Stúkunni á Origo vellinum á Hlíðarenda verður skipt niður í fjögur hólf og hvert þeirra verður með sér inngang á stórleik Vals og KR á laugardagskvöldið.

Pepsi Max kvenna eftir 2 daga: Pétur í mjög fámennan hóp með Loga Ólafs
Pétur Pétursson afrekaði það í fyrrasumar sem aðeins einum öðrum þjálfara hefur tekist í sögu íslenskrar knattspyrnu.

Fyrrverandi leikmaður ÍBV og Vals í gæsluvarðhaldi - Hóstaði á lögreglu og sagðist vera með Covid
James Hurst, fyrrverandi leikmaður ÍBV og Vals í fótbolta, hefur verið settur í gæsluvarðhald í Skotlandi í kjölfar þess að hann meðal annars hóstaði að lögregluþjónum og sagðist vera með kórónuveiruna.

Sjáðu langskotið sem tryggði Selfyssingum fyrsta titil sumarsins
Anna María Friðgeirsdóttir tryggði Selfossi fyrsta titil sumarsins í kvennaflokki er hún skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Val í Meistarakeppni KSÍ sem fór fram á Origo-vellinum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Selfoss 1-2 | Bikarmeistararnir sýndu að þeim er fyllsta alvara
Selfoss vann meistarakeppni KSÍ í fyrsta sinn í dag, í fyrsta sinn sem liðið tók þátt, þegar Selfyssingar unnu Valskonur 2-1 á Hlíðarenda eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Valur afgreiddi Fylki með þremur mörkum á síðustu tuttugu mínútunum
Valur vann 3-0 sigur á Fylki í æfingaleik er liðin mættust á Origo-vellinum. Þetta var liður í loka undirbúningi liðanna fyrir Pepsi Max-deildina sem hefst um aðra helgi.

Hefur orðið fyrir kynþáttafordómum á Íslandi: „Húðliturinn á ekki að segja til um hver gildi okkar eru“
Lovísa Thompson, leikmaður deildarmeistara Vals í handbolta, segist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum hér á landi. Ummæli eins og „þú ert bara góð í íþróttum því þú ert svona á litinn“ hafa fallið í návist Lovísu.

Úr búskap yfir í Íslandsmeistaraliðs Vals
Fyrrum Íslandsmeistari ákvað að einbeita sér að búskap í vetur. Er nú gengin til liðs við Íslandsmeistara Vals.

Helena setur ekki neina dagsetningu á endurkomuna
Helena Sverrisdóttir, spilandi aðstoðarþjálfari deildarmeistara Vals í körfubolta, ætlar ekki að setja neina dagsetningu á það hvenær hún ætli sér að snúa aftur á völlinn eftir barnsburð.

Valsmenn tóku á móti deildarmeistarabikarnum í jakkafötum
Valsmenn eru deildarmeistarar í Olís deild karla 2020 en fengu bikarinn afhentan áttatíu dögum eftir síðasta leik.

Haukur Páll telur að tímabilið í ár verði ólíkt því sem við sáum í fyrra
Haukur Páll Sigurðsson er spenntur fyrir komandi tímabili og segir Valsmenn stefna á toppbaráttu eins og svo mörg önnur lið í deildinni.