
Víkingur Reykjavík

Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik
Víkingar eru úr leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 tap gegn Shamrock Rovers í Dublin. Nikolaj Hansen gat jafnað metin úr vítaspyrnu í uppbótartíma en skaut í stöng.

Fjör hjá Víkingum í Dublin
Víkingur mætir Shamrock Rovers í seinni leik liðanna í undankeppni Meistaradeildarinnar í Dublin í kvöld. Mikið fjör er hjá stuðningsmönnum Víkinga í Dublin.

„Ég held að allir geri sér grein fyrir því hvað er í húfi“
Víkingur spilar gríðarmikilvægan seinni leik við Shamrock Rovers í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli. Þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson á von á allt öðruvísi leik í kvöld.

Bergþóra Sól kemur heim úr atvinnumennsku og fer í Víking
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er snúin heim úr atvinnumennsku og genginn til liðs við Víking. Hún kemur til félagsins frá sænska úrvalsdeildarliðinu KIF Örebro.

„Fyrir framan okkar áhorfendur erum við allt annað lið og þeir munu sjá það“
Stephen Bradley segir sína menn í Shamrock Rovers hafa fengið færi til að stela sigrinum gegn Víkingi í kvöld. Liðin mætast aftur eftir viku og þar munu Írarnir sýna allt aðra hlið.

„Ég efast um að þeir komist upp með svona leik á sínum heimavelli“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var vitaskuld svekktur að hafa ekki unnið Shamrock Rovers í fyrsta leik undankeppni Meistaradeildarinnar. Niðurstaðan markalaust jafntefli en heimamenn stýrðu spilinu stærstan hluta leiksins.

Uppgjörið: Víkingur - Shamrock Rovers 0-0 | Evrópuævintýri Víkinga hefst á markalausu jafntefli
Víkingur gerði 0-0 jafntefli við Shamrock Rovers í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar.

„Stund sannleikans að renna upp“
Næstu vikurnar verða strembnar hjá Víkingum en liðið leikur bæði í Evrópukeppni, Bestudeildinni og framundan er bikarúrslitaleikur í ágúst.

Víkingar án tveggja sterkra leikmanna í Meistaradeildinni á morgun
Íslands- og bikarmeistarar Víkings hefja leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld þegar Shamrock Rovers mætir í Víkina. Tveir af máttarstólpum Víkinga verða fjarri góðu gamni.

Sjáðu þrennu Söndru, fernu Huldu og táningana sjá um þetta fyrir Val
Fótboltastelpurnar í Bestu deildinni fundu skotskóna á ný eftir afar fá mörk í umferðinni á undan.

Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - Valur 0-2 | Ragnheiður heldur áfram að skora
Valur vann 0-2 sigur gegn Víkingi í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Bæði mörk Vals komu í fyrri hálfleik. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Leiðinlegt að kveðja liðið sem maður hefur verið í frá því maður var fjögurra ára“
Víkingur tapaði gegn Val á heimavelli 0-2. Þetta var síðasti leikur Sigdísar Evu Bárðardóttur sem er á leiðinni í Norrköping.

Sigdís Eva kveður uppeldisfélagið og fer til Svíþjóðar
Sigdís Eva Bárðardóttir er farin frá uppeldisfélagi sínu Víkingi til sænska félagsins Norrköping.

Finnst það gleymast að dómarar eigi að vernda leikmenn
Bestu mörkin fengu ekki mörg mörk í elleftu umferð Bestu deildar kvenna en það var þeim mun meira af vafaatriðum þegar kom að dómgæslu í þessum leikjum. Sérfræðingarnir ræddu dómgæsluna í kvennadeildinni.

Liðsfélagar Helga skjóta hann í hausinn: „Ég þarf að ræða við þá eða drulla mér í burtu bara“
Helgi Guðjónsson hefur tvisvar á síðustu dögum fengið dúndurbolta í andlitið frá eigin liðsfélaga. Bæði skiptin slapp við hann við heilahristing en hann segist þurfa að eiga orð við þá Viktor Örlyg og Ara Sigurpálsson, nú eða bara finna leiðir til að forða sér úr aðstæðum.

„Eru örugglega að leita sér að einhverju fersku“
Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar hennar í Bestu mörkunum ræddu framtíð Sigdísar Evu Bárðardóttur, átján ára framherja Víkings, en hún gæti verið á förum úr Víkinni á næstu vikum.

„Ég bað um að taka fimmta vítið“
Víkingur Reykjavík tryggði sér farseðilinn í úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Stjörnunni. Ari Sigurpálsson, leikmaður Víkings, tók síðasta vítið og skaut sínu liði áfram.

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Víkingur - Stjarnan 1-1 (5-4) | Víkingar í úrslit enn á ný
Víkingur er komið í úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í fimmta skiptið í röð eftir sigur á Stjörnunni í vítaspyrnukeppni.

Víkingar geta náð því sem enginn hefur gert í sextíu ár
Víkingar eru einum leik frá fimmta bikarúrslitaleiknum í röð og sá leikur er á móti Stjörnunni í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikars karla.

„Bæði lið gátu klárlega stolið þessu í dag“
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, segir að tilfinningarnar séu blendnar eftir að lið hans gerði jafntefli við Víking í Bestu deild kvenna í kvöld. Leikurinn var mjög kaflaskiptur og gátu bæði lið tekið stigin þrjú hér í dag en niðurstaðan var markalaust jafntefli sem flestir myndu segja að væri sanngjörn úrslit.

Uppgjör og viðtöl: Fylkir-Víkingur R. 0-0 | Ekkert mark í baráttuleik
Fylkir og Víkingur gerðu markalaust jafntefli í kvöld í uppgjöri nýliðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Fagnaði markinu með því að þykjast kasta vatnsbrúsa
Víkingur hélt út gegn Fram og vann 2-1 sigur í 13. umferð Bestu deildar karla. Mörkin úr leiknum og sérstakt fagn Danijels Dejan Djuric má sjá hér fyrir neðan.

„Virkilegt áhyggjuefni fyrir þessa Evrópuleiki“
Það var létt yfir Arnar Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, þegar hann mætti í viðtal til Gunnlaugs Jónssonar strax eftir 2-1 sigur liðsins gegn Fram í kvöld.

Uppgjör: Víkingur R. - Fram 2-1 | Meistararnir héldu út
Topplið Víkings tók á móti Fram í 13. umferð Bestu deildar karla nú í kvöld. Leikið var á Víkingsvelli. Eftir afar spennandi leik sigruðu Víkingar 2-1 og styrkja stöðu sína því á toppnum.

Sjáðu Víking rúlla yfir Stjörnuna, Fylki jafna tvisvar í Vesturbænum og góða ferð Fram á Ísafjörð
Tólf mörk voru skoruð í leikjum gærdagsins í Bestu deild karla. Víkingur rústaði Stjörnunni, Fram gerði góða ferð á Ísafjörð og KR og Fylkir skildu jöfn á Meistaravöllum.

„Það leggst ekkert á mig að þurfa að byrja á bekknum“
„Gott að komast aftur á sigurbraut eftir tvö jafntefli,“ sagði Helgi Guðjónsson eftir 4-0 stórsigur Víkings gegn Stjörnunni í Garðabænum í kvöld. Hann átti frábæra innkomu af bekknum og skoraði tvö mörk.

Uppgjör: Stjarnan - Víkingur 0-4 | Algjörir yfirburðir gestanna í Garðabæ
Víkingur heimsótti Stjörnuna í Garðabæ og vann 4-0 stórsigur. Heimamenn sáu einfaldlega aldrei til sólarinnar gegn ógnarsterkum gestunum.

Selma Dögg: John hefur alltaf svo mikla trú á okkur
„Þetta var mjög kaflaskipt,“ sagði fyrirliði Víkings, Selma Dögg Björgvinsdóttir, eftir 3-2 sigur á Stjörnunni í kvöld.

Uppgjör og viðtöl: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Svakalegur viðsnúningur í Víkinni
Víkingur vann endurkomusigur á heimavelli í kvöld gegn Stjörnunni, 3-2, eftir að hafa lent í tvígang undir í leiknum.

Stúkan: Sögulínurnar úr leik KR og Víkings greindar
KR-ingar sóttu stig í greipar Íslandsmeistara Víkings í gær í fyrsta leik sínum undir stjórn Pálma Rafns Pálmasonar. Víkingar byrjuðu leikinn betur en eftir að stöðva þurfti leikinn í drykklanga stund eftir hættuspark breyttist takturinn í leiknum.