
Þór Þorlákshöfn

„Hann er náttúrulega bara Herra Þorlákshöfn“
Emil Karel Einarsson átti frábæran leik með Þór þegar liðið vann loksins leik í Subway deildinni en sigurinn kom á móti einu af efstu liðum deildarinnar og eftir að Þórsliðið hafði lent í miklu mótlæti.

Vinnie sló stoðsendingametið sem var sett á síðustu öld
Vincent „Vinnie“ Malik Shahid setti nýtt stoðsendingamet í úrvalsdeild karla í körfubolta í gær þegar hann leiddi Þórsara til fyrsta sigur síns á tímabilinu.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 116-102 | Fyrsti sigur Þórsara á tímabilinu
Þór Þorlákshöfn vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið tók á móti Keflvíkingum í Subway-deild karla í kvöld. Lokatölur 116-102, í leik þar rúmlega 30 stiga sveifla í síðari hálfleik réði úrslitum.

„Við getum brotnað niður eða eflst við þetta“
Emil Karel Einarsson, fyrirliði Þórs Þorlákshafnar, gat andað léttar eftir að liðið vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn Keflvíkingum í kvöld, 116-102. Emil dró vagninn er Þórsarar snéru leiknum sér í hag og segir það vera eins og þungu fargi sé af sér létt eftir að liðinu tókst loksins að landa sínum fyrsta sigri á tímabilinu.

Pabbi fékk nóg og hótaði Brynjari: „Stelpan er grátandi hérna út af þér“
Æstur faðir leikmanns truflaði leik í 1. deild kvenna í körfubolta í Þorlákshöfn á dögunum þegar hann hafði fengið sig fullsaddan af samskiptum þjálfara í garð dóttur sinnar.

Giskaði á rétt svar og kom liðinu áfram í undanúrslitin
Í spurningaþættinum Kviss á laugardagskvöldið á Stöð 2 mættust Leiknir og Þór Þorlákshöfn í 8-liða úrslitum.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór Þ. 105-97 | Fjórði sigur meistaranna í röð
Valur vann sinn fjórða leik í röð í Subway deildinni. Valur sýndi mikla yfirburði snemma í leiknum og Þór Þorlákshöfn náði sér ekki á strik fyrr en í fjórða leikhluta sem var of seint. Valur vann á endanum átta stiga sigur 105-97.

„Frammistaða sem gerir þjálfara gráhærða“
Valur vann átta stiga sigur á Þór Þorlákshöfn 105-97. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn en hefði viljað sjá betri varnarleik.

Körfuboltakvöld: Tilþrif umferðarinnar átti Styrmir Snær í tapi Þórs Þ. gegn KR
Styrmir Snær Þrastarson getur huggað sig við það að hafa átt bestu tilþrif síðustu umferðar í Subway deild karla í körfubolta þó svo að lið hans, Þór Þorlákshöfn, hafi tapað fyrir KR.

Sex tapaðir boltar á 15 sekúndum: „Þess vegna eru þessi lið neðst“
Leikur Þórs Þorlákshafnar og KR var til umræðu í seinasta þætti af Körfuboltakvöldi þar sem meðal annars var sýnt frá því þegar liðin töpuðu boltanum sex sinnum á aðeins 15 sekúndna kafla í þriðja leikhluta.

Umfjöllun og viðtöl: Þór - KR 118-121 | KR-ingar komnir á blað eftir sigur í framlengingu
KR vann sinn fyrsta leik í Subway deildinni í kvöld gegn Þór Þorlákshöfn 118-121. Eftir að hafa verið að elta allan leikinn náðu heimamenn að kreista út framlengingu en KR gerði betur í framlengingunni og vann þriggja stiga sigur 118-121.

Þórsarar sækja Bandaríkjamann til Þorlákshafnar
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar hefur komist að samkomulagi við Bandaríkjamanninn Vinnie Shahid um að leika með liðinu í Subway-deild karla í körfubolta.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Höttur 89-91 | Fyrsti sigur Hattar í Subway deildinni
Höttur fór til Þorlákshafnar og vann Þór Þorlákshöfn 89-91. Leikurinn var afar spennandi á síðustu mínútunum en Höttur var í bílstjórasætinu og náði að halda þetta út sem skilaði sigri. Þetta var annar sigur Hattar á Þór Þorlákshöfn í röð þar sem liðin mættust í bikarnum síðustu helgi. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Lífið er mikilvægara en körfubolti“
Eftir rúmt ár í Davidson háskólanum í Bandaríkjunum er Styrmir Snær Þrastarson kominn aftur heim í Þór Þorlákshöfn. Hann segist finna sig betur í evrópska körfuboltanum en þeim bandaríska og þá höfðu veikindi í fjölskyldunni úrslitaáhrif á að hann ákvað að snúa aftur heim.

Finnst skrýtið að hann komi heim á þessum tímapunkti
Þórsarar bættu óvænt við sig íslenskum landsliðsmanni eftir að tímabilið í Subway deildinni í körfubolta var byrjað því Styrmir Snær Þrastarson var mættur í Þórsbúninginn á föstudagskvöldið.

„Eins og 1-0 sigur í fótbolta“
Maté Dalmay, þjálfari Hauka, var kátur eftir sigur nýliðanna á Þór Þ. í kvöld, 90-84. Honum fannst sínir menn verða full ragir í seinni hálfleik eftir frábæran sóknarleik í þeim fyrri.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Þór Þ. 90-84 | Annar sigur nýliðanna
Nýliðar Hauka unnu sinn annan sigur í jafn mörgum leikjum þegar þeir lögðu Þór Þ. að velli, 90-84, í Ólafssal í Subway-deild karla í kvöld. Þórsarar hafa aftur á móti tapað báðum leikjum sínum á tímabilinu.

Styrmir Snær mættur aftur í uppeldisfélagið
Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson er genginn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Þór Þorlákshöfn. Var hann á skýrslu þegar liðið tapaði fyrir Haukum í Ólafssal í Subway deild karla í körfubolta í kvöld.

Þjálfari átti bestu tilþrif fyrstu umferðar í Subway-deild karla
Sérfræðingar Subway Körfuboltakvölds karla tóku saman flottustu tilþrif fyrstu umferðar deildarinnar en öll atvikin komu í tveimur af sex viðureignum fyrstu umferðarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Breiðablik 100-111 | Breiðablik vann upphafsleik tímabilsins
Breiðablik fór til Þorlákshafnar í upphafs leik Subway deildar-karla og vann nokkuð öruggan sigur á Þór Þorlákshöfn. Breiðablik byrjaði leikinn betur og leit aldrei um öxl eftir að hafa verið með sextán stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Leikurinn endaði með ellefu stiga sigri Breiðabliks 100-111.

Körfuboltakvöld um liðin sem hefja leik í kvöld: „Það heldur vöku fyrir mér“
Subway deild karla í körfubolta fer af stað í kvöld en fjórir leikir úr fyrstu umferðinni fara þá fram. Subway Körfuboltakvöld hitaði upp fyrir mótið í vikunni og nú má sjá hvað sérfræðingarnir höfðu að segja um liðin átta sem í kvöld spila sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu 2022-23.

Þórsarar segja formann KKÍ fara með rangt mál
Þór frá Þorlákshöfn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Hannesar S. Jónssonar, formanns KKÍ, við Vísi í tengslum við félagsskiptamál Spánverjans Pablo Hernández til Þórs í sumar. Þar er Hannes sagður fara með rangt mál.

Tölvupóstsamskipti sýna að Þór fékk grænt ljós áður en það varð rautt
Formaður körfuknattleiksdeildar Þórs úr Þorlákshöfn segir vinnubrögð Körfuknattleikssambands Íslands í kringum félagsskipti Spánverjans Pablo Hernández koma illa niður á félaginu. Formaður sambandsins segist skilja gremju Þórsara en regluverkið sé skýrt.

Þórsarar fengu Hernández á brostnum forsendum | KKÍ breytti reglunni
Þór frá Þorlákshöfn samdi í sumar við Spánverjann Pablo Hernández á grundvelli skriflegra svara KKÍ þess efnis að hann yrði undanþeginn því að vera talinn sem erlendur leikmaður í Subway-deild karla. Breyting varð svo á því síðar í sumar, eftir að Þór hafði samið við leikmanninn.

Allt undir í lokin og tilfinningarnar miklar
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið þegar Keflavík mætti Þór Þorlákshöfn í alvöru landsbyggðarviðureign.

Umfjöllun: AEK Larnaca 77-68 Þór Þ. | Stutt gaman hjá Þórsurum
Þór Þ. tapaði með níu stiga mun, 77-68, fyrir AEK Larnaca frá Kýpur í átta liða úrslitum í forkeppni Evrópubikarsins í körfubolta karla. Þórsarar eru því úr leik í keppninni.

Þórsarar fá reynslumikinn Spánverja til Þorlákshafnar
Þór Þorlákshöfn hefur fengið spænska bakvörðinn Josep Pérez til liðs við sig fyrir komandi átök í Subway-deildinni og Evrópubikarkeppni karla í körfubolta.

Þór Þorlákshöfn sækir liðsstyrk
Þór Þorlákshöfn hefur samið við Spánverjann Pablo Hernandez og kemur hann til að leika með liðinu á næsta leiktímabili.

Þór Þorlákshöfn mætir kýpversku meisturunum í Evrópubikarnum
Þór Þorlákshöfn mætir kýpversku meisturunum Petrolina AEK í fyrstu umferð undankeppni Evrópubikarsins í körfubolta, en dregið var í dag.

Þór Þorlákshöfn fær sænskan bakvörð
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar hefur samið við sænska bakvörðinn Adam Ronnqvist um að leika með liðinu á komandi leiktíð í Subway-deild karla.