
Ríkisútvarpið

Mikilvægt að auka jafnræði milli innlendra og erlendra fjölmiðla
Formaður nýskipaðs starfshóps stjórnarþingmanna um Ríkisútvarpið segir að áhrif erlendra efnisveitna verði sérstaklega könnuð í vinnunni framundan. Mikilvægt sé að auka jafnræði milli innlendra og erlendra fjölmiðla.

„Afsakið en hvaða grín er þetta?“
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, lýsir undrun sinni yfir því að mennta- og menningarmálaráðherra hafi falið þremur þingmönnum stjórnarflokkanna að leita leiða til að sætta sjónarmið og rýna í lög vegna Ríkisútvarpsins. „Afsakið en hvaða grín er þetta?“ spyr Hanna Katrín sem furðar sig á því hvers vegna þingmönnum stjórnarandstöðunnar sé ekki boðið að vera með.

Felur þremur stjórnarþingmönnum að „sætta ólík sjónarmið“ um Rúv
Lilja Alfreðdsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur falið þremur fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna að gera tillögur að breytingum á lögum um Ríkisútvarpið í þeirri von að „sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins.“

Árlegur lestur Passíusálmanna
Árlegur lestur Passíusálmanna í Ríkisútvarpinu hófst í síðustu viku og verða þeir að öllu óbreyttu lesnir fram að páskum. Þessi hefð hefur verið við lýði síðan árið 1944. Eins miklar mætur og ég hef á íslensku máli og menningu er ég algjörlega mótfallinn þessari hefð.

Jón Baldvin vill fá 2,5 milljónir frá Sigmari Guðmundssyni
Á morgun verður tekið fyrir í héraði mál Jóns Baldvins Hannibalssonar á hendur þeim Sigmari Guðmundssyni og Aldísi Schram dóttur hans. Aðalmeðferð í málinu fer fram við Héraðsdóm Reykjavíkur.

RÚV mun sýna úrslitamót EM karla og kvenna í knattspyrnu
RÚV hefur tryggt sér sýningarréttinn á úrslitamótum Evrópukeppni (EM) karla í knattspyrnu árin 2024 og 2028. Evrópumótið 2024 verður haldið í Þýskalandi en ekki hefur verið ákveðið hvar mótið verður haldið 2028. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.

Inga Sæland vill fá að vita hvort RÚV hygli einum á kostnað annars í sinni dagskrárgerð
Formaður Flokks fólksins hefur kallað eftir upplýsingum um hvaða stjórmálamenn hafa komið fram í viðtölum á Ríkisútvarpinu.

Lára kveður skjáinn
Lára Ómarsdóttir fréttamaður hefur sent félögum sínum á RÚV ohf kveðjupóst og tilkynnt að hún sé á förum.

RÚV eykur enn hlutdeild sína á auglýsingamarkaði
Tekjusamdráttur fjölmiðla er sem nemur sjö prósentum árið 2019 á föstu verðlagi. Fjórar af hverju tíu krónum fara til erlendra aðila.

Hagur neytenda og auglýsenda að ríkið sé á auglýsingamarkaði að mati VG
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir telur að tryggja þurfi fjármögnun Ríkisútvarpsins ef taka eigi stofnunina af auglýsingamarkaði.

Ýmis „óljósari“ atriði skýrð í nýjum þjónustusamningi við Ríkisútvarpið
Nýr þjónustusamningur mennta- og menningarmálaráðherra við Ríkisútvarpið ohf. Var undirritaður í dag. Meðal „lykilatriða“ í samningnum er „aukin áhersla á fræðsluhlutverk Ríkisútvarpsins og rækt við íslenska tungu“, auk þess sem ýmis „óljósari“ atriði eru skýrð, að því er segir í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Fréttamaður RÚV skrifaði frétt um húsleit daginn áður en hún fór fram
Fréttamaður Ríkisútvarpsins, var í tölvupóstsamskiptum við framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðlabankans á fimm vikna tímabili í aðdraganda húsleitar hjá Samherja.

Mótmæla aðför RÚV að sunnudagsmessunni
„Þeir setja þjóðkirkjuna til hliðar og hverfa frá góðum siðum sem öllum eru hollir. Þeir fylgja í kjölfar borgarstjórnar Reykjavíkur.“

Jóhann Alfreð og Laufey í stað Villa og Ingileifar
Jóhann Alfreð Kristinsson og Laufey Haraldsdóttir eru nýir spurningahöfundar og dómarar í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá RÚV.

Reynslubolta í launadeilu við RÚV sagt upp störfum
Félag fréttamanna, stéttarfélag stórs hlutfalls fréttamanna á Ríkisútvarpinu, telur það sæta furðu að yfirstjórn Ríkisútvarpsins láti niðurskurð hjá stofnuninni bitna á fréttastofunni.

Spegillinn hafnar ásökunum Áslaugar Örnu um pólitíska afstöðu og afflutning
Spegillinn hafnar því algerlega að í pistli sem birtur var á mánudaginn síðastliðinn um efni í skýrslu GRECO samtakanna um íslenska stjórnsýslu hafi fréttamaður Spegilsins ekki greint rétt frá efninu.

Breytingarnar hafa áhrif á störf reynslumikilla fréttamanna
Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, segir hagræðingaraðgerðirnar sem gripið hefur verið til á fréttastofunni vera vegna niðurskurðar. Þess mesta sem fréttastofan hafi staðið frammi fyrir síðan árið 2013.

Uppsagnir og breytingar á fréttastofu RÚV
Nokkrum starfsmönnum fréttastofu Ríkisútvarpsins hefur verið sagt upp störfum og verið er að gera breytingar innanhúss þar sem fólk er fært í ný verkefni og stöður þeirra lagðar niður.

Helga Vala orðlaus yfir Kastljósi kvöldsins
„Ég er bæði orðlaus og rasandi eftir áhorf á Kastljós rétt í þessu. Þetta var held ég nýtt met.“

Biskupi sárnar galgopaleg kynning messu á Rás 1
Dagskrárstjóri Rásar 1 segir að ekki hafi verið meiningin að særa neinn.

Fjölmiðlar sem njóta trausts eru ekki sjálfsagður hlutur
Íslendingar fá fréttir um kórónuveirufarsóttina í hefðbundnum fjölmiðlum fremur en aðrar þjóðir og treysta þeim betur. Traustið er undirstaða árangurs í baráttu við veiruna. Á meðan eiga einkareknir fjölmiðlar í vök að verjast á tveimur vígstöðvum.

Engin Söngvakeppni og Daði í Eurovision
Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision-söngvakeppninni í Rotterdam í maí. RÚV leitaði til Daða Freys sem samþykkti að semja lag í keppnina.

Helgi og RÚV sýknuð í meiðyrðamáli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað fjölmiðlamanninn Helga Seljan og Ríkisútvarpið í meiðyrðamáli sem karlmaður höfðaði gegn þeim vegna ummæla fyrrverandi eiginkonu sinnar í Kastljósþætti í ágúst 2015.

Daði býst við því að heyra í RÚV á næstu dögum
Daði Freyr virðist vera klár í slaginn að taka þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision í Rotterdam næsta vor. Daði Freyr og Gagnamagnið áttu að koma fram í Rotterdam síðasta vor en Eurovision-keppninni var aflýst vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Rúv „klárlega að skoða það“ að bjóða Daða þátttökuréttinn
Það kemur í ljós fljótlega með hvaða hætti framlag Íslands til Eurovision 2021 verður valið.

Framlög til RÚV lækka
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að útgjöld Ríkisútvarpsins muni nema 4.515 milljónum króna á næsta ári. Gert er ráð fyrir áframhaldi stuðningi til einkarekinna fjölmiðla.

Víðir í sóttkví eftir viðtal á Rás 2
Starfsmaður Rásar 2 greindist smitaður af kórónuveirunni í gærkvöldi og hafa sex starfsmenn og nokkrir viðmælendur verið sendir í sóttkví.

Smit hjá starfsmanni RÚV
Ekki hefur þurft að senda neinn annan starfsmann stofnunarinnar í sóttkví vegna smitsins.

Ríkisútvarpið braut ekki lög með ráðningu Stefáns
Ríkisútvarpið braut ekki jafnréttislög þegar Stefán Eiríksson var ráðinn í starf útvarpsstjóra í janúar síðastliðnum.

Þorsteinn segir Samherjafólk ofsótt af siðlausu Ríkisútvarpinu
Forstjórinn birtir opið bréf til starfsfólks fyrirtækisins þar sem hann fordæmir enn og aftur fréttaflutning RÚV ohf. og kallar hann siðlausan.