Ástin á götunni

Fréttamynd

Kári og Sölvi í úrslitin

Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen komust í gær í úrslit sænsku bikarkeppninnar þegar lið þeirra, Djurgården, sigraði Elfsborg 2-1 í undanúrslitunum.Kári Árnason spilaði allan leikinn fyrir Djurgården og stóð sig vel í leiknum en Sölvi Geir sat allan tímann á varamannabekknum.

Sport
Fréttamynd

Verðum að vinna næstu tvo leiki

Paul Scholes hjá Manchester United gaf út þá yfirlýsingu í dag að ef Manchester United vinnur ekki sigur á Blackburn og Fulham í næstu tveimur deildarleikjum sínum, geti liðið einfaldlega gleymt því að stríða Chelsea eitthvað í titilslagnum í vetur.

Sport
Fréttamynd

Gravesen til United?

Tomas Gravesen, leikmaður Real Madrid er orðaður við óvænta endurkomu í enska boltann í janúar. Talið er Manchester United hafi augastað á Dananum knáa sem á ekki sjö dagana sæla í herbúðum Real Madrid þessa dagana. Spænsku risarnir hafa tapað þremur leikjum í röð og Gravesen dottinn út úr liðinu.

Sport
Fréttamynd

Tony Pulis á leið til Plymouth

Knattspyrnustjórinn Tony Pulis er sagður vera kominn á fremsta hlunn með að skrifa undir samning um að þjálfa Plymouth Argyle, lið Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni.

Sport
Fréttamynd

Davíð Þór til Reading

Davíð Þór Viðarsson, knattspyrnumaður hjá FH, er á leið til enska félagsins Reading sem leikur í ensku 1.deildinni en hann fer til liðsins í október og verður þar til reynslu í óákveðinn tíma.

Sport
Fréttamynd

Real lagði Bilbao

Áhorfendur fengu nóg fyrir sinn snúð í leik Real Madrid og Atletic Bilbao í kvöld, en leikurinn var í beinni útsendingu á Sýn Extra og er ný lokið. Real hafði sigur 3-1, en þó gekk á ýmsu áður en heimamenn tryggðu sér sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Martröð hjá Jonathan Woodgate

Jonathan Woodgate er nú rétt í þessu að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði Real Madrid, eftir að hafa verið meira og minna frá keppni í eitt og hálft ár vegna meiðsla. Ekki er hægt að segja að Woodgate hefji endurkomu sína með stæl, því nú rétt áðan kom hann liðið Atletic Bilbao yfir með því að skora sjálfsmark á 25. mínútu leiksins.

Sport
Fréttamynd

Enn dramatík í enska bikarnum

Dramatíkin hélt áfram í enska bikarnum í kvöld, en Manchester City varð nýjasta liðið til að hljóta grimm örlög og falla úr keppni, þegar liðið tapaði fyrir Doncaster í vítakeppni. Heiðar Helguson skoraði eitt marka Fulham sem marði Lincoln 5-4.

Sport
Fréttamynd

Ísland úti í kuldanum

Alþjóða knattspyrnusambandið og Knattspyrnusamband Evrópu samþykktu í gær að Skandinavíudeildin í knattspyrnu, eða Royal League, sem er samstarfsverkefni knattspyrnusambanda Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar, fái keppnisleyfi næstu fimm árin. Íslendingum hefur ekki verið boðið að vera með frekar en Finnum.

Sport
Fréttamynd

Neyðarfundur vegna stöðu deildar

Neyðarfundur hefur verið boðaður hjá forráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu vegna minnkandi aðsóknar, lítils skemmtanagildis, minni spennu og hækkandi miðaverðs. Stjórnarformenn liða í úrvalsdeildinni hittast í nóvember næstkomandi. Í ítarlegri úttekt <em>BBC</em> kemur m.a. fram að of margar beinar útsendingar í sjónvarpi, hækkun miðaverðs og varfærni í leikskipulagi liða sé hugsanleg ástæða minnkandi aðsóknar.

Sport
Fréttamynd

Fjórir leikir í Þýskalandi

Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hamburger komst í annað sæti deildarinnar með góðum útisigri á Stuttgart. Leverkusen sigraði Cologne 2-1, Hertha sigraði Duisburg 3-2 og Nurnberg og Schalke skildu jöfn 1-1. Þá vann Mainz sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar það lagði Kaiserslautern 2-0 á útivelli.

Sport
Fréttamynd

Keane ætlar í þjálfun

Roy Keane hefur rætt við forráðamenn Manchester United um að verða þjálfari hjá liðinu eftir að hann leggur skóna á hilluna. Keane, sem fótbrotnaði í leik gegn Liverpool fyrir skömmu, hefur tekið námskeið í þjálfun á undanförnum árum og mun bæta enn frekar við sig á næstunni meðan hann jafnar sig af meiðslunum.

Sport
Fréttamynd

Campo frá í tvo mánuði

Úrvaldseildarlið Bolton varð í dag fyrir því áfalli að spænski miðjumaðurinn Ivan Campo fótbrotnaði á æfingu og talið er víst að hann verði frá keppni í tvo mánuði fyrir vikið.

Sport
Fréttamynd

Pálmi á förum frá KA

Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KA í knattspyrnu sem þjálfarar og fyrirliðar 1.deildar karla völdu sem leikmann ársins í kjöri sem fótbolti.net stóð fyrir, er að öllum líkindum á förum frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Naumur sigur Bayern á Frankfurt

Bayern München marði 0-1 útisigur á Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Paolo Guerrero skoraði sigurmarkið 18 mínútum fyrir leikslok. Þetta var 15. sigur Bæjara í röð í deildinni en liðið hefur unnið alla sex leiki sína í deildinni til þessa.

Sport
Fréttamynd

Hörkuleikir á Sýn í kvöld

Það verða tveir sannkallaðir stórleikir á Sýn í kvöld. Nú klukkan 18:50 verður á dagskrá leikur Barcelona og Valencia í spænska boltanum, en síðar um kvöldið verður leikur AC Milan og Lazio á dagskrá. Sá leikur er sýndur í beinni á Sýn Extra nú fljótlega á eftir.

Sport
Fréttamynd

Gilberto samdi við Arsenal

Brasilíski miðjumaðurinn Gilberto hjá Arsenal, hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við félagið til ársins 2009.

Sport
Fréttamynd

Árni og félagar töpuðu

Árni Gautur Arason og félagar hans í Valerenga töpuðu 2-0 fyrir Lilleström í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í kvöld. Árni stóð í marki Valerenga allan leikinn, en gat ekki komið í veg fyrir tap sinna manna.

Sport
Fréttamynd

Carrick frá í tvær vikur

Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Tottenham verður frá keppni í um það bil tvær vikur eftir að hafa snúið sig á ökkla í leik liðsins við Grimsby í deildarbikarnum í gærkvöldi, en það er leikur sem hann vill eflaust gleyma sem fyrst eins og aðrir leikmenn liðsins.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Barcelona og Valencia

Barcelona og Valencia gerðu jafntefli í stórslag kvöldsins í spænska boltanum, þar sem markverðir liðanna voru í aðalhlutverki. Það voru gestirnir í Valencia sem náðu forystu í leiknum 2-1 eftir skelfileg mistök markvarðar Barcelona, en heimamenn náðu að nýta sér mistök markvarðar Valencia skömmu síðar og jöfnuðu metin.

Sport
Fréttamynd

Jol skammaði leikmenn sína

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, fór ekki fögrum orðum um leik sinna manna í tapinu gegn Grimsby í gærkvöldi, en Tottenham er dottið út úr bikarkeppninni fyrir liði sem er þremur deildum neðar á Englandi.

Sport
Fréttamynd

Rafa fer ekki fet

Fregnir bárust af því í morgun að spænska stórveldið Real Madrid væri að íhuga að nálgast Rafael Benitez stjóra Liverpool, sem næsta knattspyrnustjóra liðsins, en spænska liðinu hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum.

Sport
Fréttamynd

Stórslagur í spænska í kvöld

Barcelona og Valencia mætast í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld eftir að hafa tapað óvænt fyrir Atletico Madrid í síðustu umferð. Víctor Valdéz, markvörður Barcelona og spænska landsliðsins, á von á erfiðum leik.

Sport
Fréttamynd

Mido fær ekki lengra bann

Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham verður leikfær með liði sínu í gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi, en hann klárar að taka út þriggja leikja bann sitt gegn Grimsby í bikarnum í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Enskir vilja Mourinho sem þjálfara

Sá orðrómur hefur farið fjöllunum hærra á Englandi undanfarnar vikur að portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourninho hjá Chelsea muni taka við enska landsliðinu í framtíðinni. Hann hefur nú gengið svo langt að enskir fjölmiðlar slógu því upp í gær að Portúgalinn væri tilbúinn að breyta um þjóðfang til að fá starfið.

Sport
Fréttamynd

Real íhugar að kæra

Forystumenn Real Madríd íhuga að kæra leikinn gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í fyrradag. Dómari leiksins, Julian Rodriguez Santiago, flautaði skömmu áður en Espanyol skoraði eina mark leiksins.

Sport
Fréttamynd

Bjarni horfir til Noregs

Bjarna Ólafi Eiríkssyni, varnarmanninum sterka í Val, stendur til boða að halda til Noregs og æfa með tveimur úrvalsdeildarfélögum, Vålerenga og Odd Grenland.

Sport
Fréttamynd

Capello með fæturna á jörðinni

Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að byrjun liðsins í deildarkeppninni á Ítalíu sé ekkert til að hrópa húrra fyrir þrátt fyrir fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar og hefur áhyggjur af leiknum við Udinese annað kvöld.

Sport
Fréttamynd

Rússar hafa áhuga á Aston Villa

Forráðamenn Aston Villa hafa staðfest að viðræður séu í gangi við rússneska fjárfesta sem hafa í huga að kaupa félagið. Orðrómi sem kominn var á kreik að því fylgdi loforð um 75 milljónir punda til leikmannakaupa hefur þó verið vísað á bug og það tekið skýrt fram að viðræður séu aðeins á frumstigi.

Sport
Fréttamynd

Gústaf tekur við Haukum

Gústaf Adolf Björnsson er tekinn við þjálfun 1. deildarliðs Hauka í fótbolta. Gústaf Adolf var ráðinn á mánudagskvöld eftir að stjórn Hauka hafði nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi Izudin Daða Dervic sem þjálfaði Hauka síðustu tvö sumur.

Sport