
Tjáningarfrelsi

Biskup hefur veitt séra Davíð formlegt tiltal fyrir „harkaleg og ósmekkleg skrif“
Biskup Íslands hefur veitt séra Davíði Þór Jónssyni formlegt tiltal fyrir þau „harkalegu og ósmekklegu skrif sem hann viðhafði á Facebook-vettvangi“ sínum í gær. Davíð Þór sagði þar að sérstakur staður væri í helvíti fyrir stjórnarliða Vinstri grænna.

Séra Davíð Þór hótar Katrínu og Vinstri grænum helvítisvist
Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnesskirkju, er ómyrkur í máli um þann gjörning að vísa skuli um þrjú hundruð hælisleitendum úr landi á næstunni.

Páll Vilhjálmsson fór bónleiður til búðar frá umboðsmanni
Hinn umdeildi Páll Vilhjálmsson, kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og bloggari, sendi umboðsmanni Alþingis erindi þar sem hann taldi fyrirliggjandi að Kristinn Þorsteinsson skólameistari hafi reist tjáningarfrelsi sínu skorður. Umboðsmaður tekur ekki undir það með Páli.

Þórður Snær segist ekki lengur geta setið undir óhróðri Páls
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson ætla að stefna Páli Vilhjálmssyni bloggara og framhaldsskólakennara fyrir meiðyrði.

„Þreklaus“ Ingó segist ekki hafa kýlt konu
Ingólfur Þórarinsson, sem er ef til vill betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir það í „besta falli galið“ að hann hafi kýlt konu og hrækt framan í hana. Hann segist þreyttur á að verjast nafnlausum ásökunum en birtir á Facebook skjáskot af pósti frá lögmanni sínum þar sem fram komi að hann hafi aldrei verið kærður ofbeldisbrot eða kynferðisbrot.

Sverrir Einar áfrýjar máli sínu á hendur Sindra Þór
Sverrir Einar Eiríksson eigandi Nýju vínbúðarinnar hefur ákveðið að áfrýja máli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni markaðsstjóra Tjarnarbíós.

Fimm vitni höfðu sögur að segja af hegðun Ingólfs
Fimm vitni komu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag og sögðu frá samskiptum sínum eða vina sinna við Ingólf Þórarinsson. Ingólfur stefnir Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni fyrir ummæli sem Sindri lét falla á Twitter og krefst greiðslu miskabóta vegna þeirra.

Sindri segist hafa heyrt mjög margar sögur af Ingó í gegnum árin
Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson segir að á þeim tíma sem hann kallaði Ingólf Þórarinsson barnaníðing á samfélagsmiðlum hafi verið komnar fram gríðarlega alvarlegar ásakanir í garð tónlistarmannsins. Aðspurður hvers vegna hann lét sig málið varða svaraði Sindri: „Af hverju ekki?“

„Ekkert fyrirtæki vill ráða nauðgara eða barnaríðara, en ég er það ekki“
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir ekkert fyrirtæki vilja ráða til sín mann sem sé sakaður um að brjóta á börnum. Hann hafi aldrei verið kærður til lögreglu og ásakanir í hans garð eigi allar sameiginlegt að vera nafnlausar frásagnir.

Ingó og Sindri takast á um umdeild ummæli í dómsal
Aðalmeðferð í máli Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur. Báðir voru mættir í dómsal þar sem þinghald hófst klukkan 10.

Fáránlega ríkur maður með takmarkaðan skilning á málfrelsi
Kaup Elon Musk á samfélagsmiðlinum Twitter hafa vakið mikil viðbrögð um allan heim. Milljarðamæringurinn segist ætla að efla tjáningarfrelsi á miðlinum og útrýma gervimennum. Sérfræðingar setja stórt spurningamerki við þær fyrirætlanir.

Sagði „nauðgunarher“ vera á leið til samnemanda
Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur staðfest ákvörðun sviðsstjóra Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um að víkja nemanda við sálfræðideild skólans úr skólanum að fullu eftir að hann hafði sent samnemanda skilaboð sem metin voru „óforsvaranleg“, „ógnandi“ og „til þess [fallin] að valda [ótta].“

Sindri hafði betur gegn Sverri vegna ummæla á Twitter
Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson hefur verið sýknaður í héraðsdómi af kæru um meiðyrði gegn löfræðingnum og eiganda Nýju vínbúðarinnar Sverri Einari Eiríkssyni. Sverrir krafðist þess að Sindri greiddi honum þrjár milljónir króna í bætur en mun þurfa að greiða málskostnað Sindra Þórs.

Ritstjóri Viðskiptablaðsins sýknaður af kröfum Lúðvíks vegna Óðins
Landsréttur sýknaði í dag Trausta Hafliðason, ritstjóra Viðskiptablaðsins, og Myllusetur ehf., útgáfufélag þess, af kröfum Lúðvíks Bergvinssonar, fyrrverandi þingmanns Samfylkingarinnar, sem krafist ómerkingar ummæla sem birtust í skoðanadálkinum Óðni.

Telja skrif Páls hafa svert ímynd skóla sem standi fyrir fjölbreytileika
Um þrjátíu kennarar og starfsfólk við Fjölbrautarskólann í Garðabæ lýsa andstöðu við málflutning Páls Vilhjálmssonar, sögukennara við skólann, á bloggsíðu hans. Skólastjóri segir skrif hans valda skólanum tjóni og kennari segir skrifin hafa áhrif á andrúmsloftið á kennarastofunni.

„Hlutlaust ríkisútvarp er bara rangt, rangt frá a til ö“
Eyjólfur Ármannsson Flokki fólksins tók þátt í sérstakri umræðu á Alþingi um umhverfi fjölmiðla og fengu íslenskir fjölmiðlar falleinkunn hjá þingmanninum og þá sér í lagi RÚV. Eyjólfur talar af biturri reynslu sem formaður Orkunnar okkar og lýsti henni fyrir þingheimi.

Instagram bannar Kanye
Meta hefur tekið þá ákvörðun að banna Kanye West af Instagram í sólarhring vegna áreitis á miðlinum. Rapparinn hefur verið að áreita Pete Davidson sem er kærasti fyrrverandi eiginkonu hans Kim og einnig þáttastjórnandann Trevor Noah.

Vikið úr Háskóla Íslands eftir að hafa sent samnemanda ógnandi skilaboð
Kærunefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að Háskóli Íslands hafi ekki gerst sekur um brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar nemenda við skólann var vikið úr skólanum eftir að sá hafði sent samnemanda ógnandi tölvupóstsskilaboð.

Tjáningarfrelsið okkar allra
Tjáningarfrelsi er af hinu góða. Um það getum við öll verið sammála. Þetta tjáningarfrelsi leiðir til þess að við fréttum af ýmsu sem við hefðum annars ekki frétt af.

Reynir segir dóminn víkka tjáningarfrelsið til mikilla muna
Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs segir nýfallinn dóm í Hæstarétti vera þess eðlis að nú geti menn nánast látið nánast hvað sem er flakka.

Arnþrúður hafði betur gegn Reyni í Hæstarétti
Ummæli Arnþrúðar Karlsdóttur, útvarpskonu á Útvarpi Sögu, um Reyni Traustason ritstjóra standa. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem staðfesti dóm Landsréttar þess efnis. Reynir hafði höfðað mál á hendur Arnþrúði og sakað hana um ærumeiðandi ummæli.

Eva skorar á Kára og Björn Inga að fara í mál við Eddu Falak
Eva Hauksdóttir lögmaður segir að menn sem verði fyrir óljósum ásökunum um kynferðisbrot verði að hætta að senda frá sér moðvolgar játningar. Þá verði löggjafinn og dómsstólar að fara að bregðast við ófremdarástandi vegna rógs á netinu.

Ásakanir um kynferðisbrot - Í góðri trú eða ekki?
Nýlegur dómur héraðsdóms Norðurlands eystra í ærumeiðingamáli hefur vakið nokkra athygli. Í hnotskurn er niðurstaðan sú að stefnda var ekki talin hafa farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns með því að saka pilt um það á samfélagsmiðli að hafa nauðgað sér. Aftur á móti voru ómerkt orð hennar gagnvart sama manni um að hann hefði nauðgað annarri stúlku.

Er ekki bara best að sleppa þumlinum?
Undanfarna mánuði hefur ítrekað ratað í fréttir að háttsett fólk innan þjóðfélagsins setji like, eða jafnvel hjörtu eða önnur tjákn á umdeildar færslur. Þá virðist alltaf sama umræðan fara af stað, hvort verið sé að oftúlka gjörninginn eða hvort sá sem setti þumal á tiltekna færslu sé með gjörningnum að taka afstöðu í viðkvæmu máli.

Vill að Sindra verði gert að birta dóminn á Twitter
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, vill að forsendur dóms í máli gegn Sindra Þór Sigríðarssyni Hilmarssyni verði birtar á Twitter. Málið varðar meint ærumeiðandi ummæli Sindra um tónlistarmanninn en aðalmeðferð fer fram þann 18. janúar næstkomandi.

„Saman munum við mæta þessari stefnu Ingólfs af hörku“
Fyrsta meiðyrðamálið sem Ingólfur Þórarinsson tónlistarmaður hefur höfðað er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur þann 18. janúar næstkomandi. Málið er höfðað gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni sem birti færslu um efnið á Twitter-síðu sinni fyrr í dag. Þar kvaðst hann ætla að mæta Ingólfi af hörku.

Fyrsta meiðyrðamál Ingólfs á dagskrá dómstóla
Fyrsta meiðyrðamálið, sem Ingólfur Þórarinsson hefur höfðað vegna ummæla sem féllu um hann á samfélagsmiðlum síðasta sumar, er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar næstkomandi.

Sautján sjónarmið um tjáningarfrelsi og menntun
Skrif Páls Vilhjálmssonar kennara í Garðabæ hafa verið mjög til umfjöllunar. Í tilefni af þeirri umræðu vaknaði eftirfarandi hugleiðing.

Páll ekki rekinn en hlýtur ákúrur frá skólameistara
Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ hefur sent nemendum og aðstandendum skólans bréf þar sem hann fer yfir mál Páls Vilhjálmssonar kennara við skólann sem varða afar umdeild bloggskrif hans um Helga Seljan fréttamann. Skólameistari lýsir sig afar ósáttan við skilaboð Páls til geðsjúkra.

Smálánafyrirtæki hafði betur í máli gegn Neytendasamtökunum
Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakanna, var óheimilt að fullyrða að lán smálánafyrirtækisins eCommerce 2020 hafi verið úrskurðuð ólögleg. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi ummæli sem hann lét falla í garð fyrirtækisins dauð og ómerk.