
Góðverk

Gott gloss getur gert kraftaverk!
Fjáröflunar- og kynningarátakið Á allra vörum hófst 20. mars og stendur yfir til laugardagsins 5. apríl en þá lýkur átakinu með sjónvarpsþætti í beinni útsendingu á RÚV og frá þjónustuveri Símans þar sem fjöldi fólks tekur við framlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Eins og áður gengur átakið út á sölu varasetta, í ár frá GOSH, og núna á að safna fyrir nýju húsnæði Kvennaathvarfsins.

Minna af þér og meira af öðrum
Til hvers ættir þú að hjálpa náunganum og til hvers að gefa af þér til annarra? Ert þú ekki alltaf í tímaþröng og hefur ekki einu sinni tíma til að mála baðherbergið, fara í ræktina eða ryksuga? Hvers vegna ættir þú þá að gefa þinn dýrmæta tíma til annarra?

Vígðu bleikan bekk við skólann
Bleikur bekkur var vígður í Verzlunarskóla Íslands í morgun til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sem lést eftir stunguárás á menningarnótt. Bryndís Klara hefði orðið átján ára í gær og voru að því tilefni styrkir veittir úr minningarsjóði hennar í fyrsta sinn.

Guðmundur í Brim nældi í treyjuna
Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir, nýkjörinn íþróttamaður ársins, seldi áritaða treyju sína úr 3-0 sigrinum á Þýskalandi síðasta sumar til útgerðarmannsins Guðmundar Kristjánssonar, oft kenndur við Brim.

Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“
Um sextíu manns komu í jólamat Hjálpræðishersins í gærkvöldi, og voru allir gestir leystir út með gjöfum. Svæðisforingi hersins segir gleðilegt að geta endurvakið hefðina, eftir nokkurra ára hlé.

Safnaði fyrir björgunarsveitinni sem kom ömmu úr snjóflóði
Hin ellefu ára gamla Emma Sólveig Loftsdóttir veitti björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupsstað peningagjöf í síðustu viku að fjárhæð tuttugu þúsund krónur. Peningnum safnaði hún upp á eigin spýtur í þakklætisskyni fyrir að koma ömmu sinni til bjargar, þegar snjóflóð féllu á bæinn í mars á síðasta ári. Snjóflóð hafa fylgt fjölskyldunni en langafi hennar slapp naumlega við snjóflóð sem féll á bæinn fyrir fimmtíu árum og varð tólf manns að bana.

List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti
Jólahefti Rauða krossins, með sínum klassísku jólamerkimiðum, hefur verið fastur liður í jólaundirbúningi Íslendinga allt frá árinu 1996. Ár hvert berst heftið inn á heimili landsmanna sem táknræn áminning um þá samkennd og mannúð sem samtökin hafa staðið fyrir í heila öld.

Góð hjartaðir hljómsveitastrákar í Hveragerði
Þeir eru góð hjartaðir fimmtán og sextán ára strákarnir í Hveragerði, sem hafa ákveðið að halda styrktartónleika fyrir „Sjóðinn góða“ á Suðurlandi, sem er fyrir þá sem minna mega sín í jólamánuðinum og yfir jólin. Nafn hljómsveitarinnar vekur sérstaka athygli.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins: 100 ára saga samfélagslegra umbóta
Í ár fögnum við 100 ára afmæli Rauða krossins á Íslandi. Í heila öld hefur félagið unnið að því að bæta líf fólks og stuðla að betra samfélagi.

Kærleikskúla sem býr til ævintýri og góðar minningar
Afhjúpun og afhending Kærleikskúlunnar 2024 fór fram í gær, miðvikudaginn 4. desember, í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Kúlan í ár ber nafnið Blóm og ást þurfa næringu, og er eftir Hildi Hákonardóttur.

Skautadiskó til styrktar góðu málefni
Á morgun sunnudag verður slegið upp skautadiskói í Egilshöll til styrktar hinum sex ára Þorsteini Elfari Hróbjartssyni og fjölskyldu hans. Þorsteinn Elfar greindist nýlega með hvítblæði og því ljóst að næstu mánuðir verða krefjandi og erfiðir fyrir hann og fjölskyldu hans.

Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina
Líkamsræktarkappi sem ætlar að fara sautján hundruð kílómetra á þrektækjum á einni viku segist vera aukaatriði í verkefninu. Markmiðið er að vekja athygli á málstað sem stendur honum nærri og styðja við Pieta-samtökin.

Bein útsending: Vikulöng þrekraun Einars
Í dag hefst átak þar sem Einar Hansberg Árnason hyggst framkvæma röð krefjandi æfinga samtals 500 sinnum, dag og nótt í heila viku. Einar vill með þessu vekja athygli á sjálfsvígstíðni og mikilvægri starfsemi Píeta samtakanna.

Sex kílómetrar urðu átta í straumhörðum og ísköldum sjónum
Maður sem synti milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar með eiginkonu sína í eftirdragi segist hafa þurft að hundsa eigin efasemdir allan tímann. Sundið tók um sex tíma, og sjórinn var aðeins tveggja gráðu heitur þegar verst lét.

Syndir sex kílómetra með kayak í eftirdragi
Sigurgeir Svanbergsson, sundkappi, syndir nú frá Reyðarfirði til Eskifjarðar til styrktar góðu málefni. Í eftirdragi verður eiginkonan hans á kayak.

Bjarneyjarstofa athvarf fyrir foreldra sem missa á meðgöngu
Ný stofa fyrir fjölskyldur sem hafa misst börn á meðgöngu var opnuð á Landspítalanum í dag. Stofan hefur fengið nafnið Bjarneyjarstofa í höfuðið á Bjarneyju Hrafnberg ljósmóður sem hefur í meira en þrjátíu ár stutt foreldra í gegnum slíkan missi.

Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa
Ljósmóðir sem vann á sjúkrahúsi á Gasa í sumar og hefur í þrjátíu ár starfað sem sendifulltrúi Rauða krossins víða um heim segir aðstæðurnar á Gasa að mörgu leyti þær hættulegustu sem hún hefur starfað í. Hún upplifi minni virðingu fyrir störfum heilbrigðisstarfsfólks en áður fyrr.

„Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði
Hlaupaskórnir sem Mari Järsk var klædd í þegar hún hljóp 57 hringi í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet eru nú á uppboði. Uppboðið er á vegum góðgerðardags Hagaskóla, sem fór reyndar fram í fyrradag.

Bauð öllum bæjarbúum í matarboð
Íbúi á Akranesi tók sig til í kvöld og hélt opið matarboð þar sem allir bæjarbúar voru boðnir velkomnir. Stefnan er sett á að halda slíkt matarboð mánaðarlega og gestgjafinn leggur áherslu á mikilvægi þess að fólk setjist niður og borði saman.

Flóttamenn tóku forskot á stóra plokkdaginn
Hátt í fimmtíu flóttamenn og sjálfboðaliðar frá hinum ýmsu löndum fóru í dag um Landspítalasvæðið í Fossvogi til að hreinsa og fegra svæðið. Fólkið fór á vegum Rauða krossins til að hita upp fyrir stóra plokkdaginn.

Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni
Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast.

Átta milljónir söfnuðust á listaverkauppboði til styrktar fólki á Gasa
Átta milljónir króna söfnuðust til styrktar neyðaraðstoðar á Gasa á listaverkauppboði sem nýlega fór fram á samfélagsmiðlinum Instagram. Styrkurinn var afhentur Félaginu Ísland-Palestína í dag.

Suðurnesjabúar fá frítt í sund í Hveragerði
Hveragerðisbær býður íbúum á Suðurnesjum frítt í sundlaugina í Laugaskarði í Hveragerði í dag og svo lengi sem heitavatnsleysi varir.

Býður Grindvíkingum upp á frítt skutl
Hafnfirðingur sem býður Grindvíkingum upp á frítt skutl á „stór-Hafnarfjarðarsvæðinu“ segir viðbrögðin hafa verið ótrúleg. Enn sem komið er sé bara eitt skutl til Keflavíkur fyrirhugað en ef eftirspurnin eykst er hann tilbúinn að skutla fram yfir helgi.

Landsbjörg fær aukinn styrk í desember
Björgunarsveitirnar eru sannarlega eitt af skýrum einkennum íslensks samfélags og gott dæmi um samtakamátt þjóðarinnar þegar á reynir.

Söfnunin tók kipp: „Greinilegt að þetta snerti einhvern streng“
Jólagjafasöfnun mæðrastyrksnefndar hefur svo sannarlega tekið kipp eftir umfjöllun helgarinnar um dræma þátttöku í söfnuninni. Markaðsstjóri Kringlunnar segir nú 2,5 milljónir hafa safnast af fjárframlögum auk fjölda pakka sem komið hefur verið fyrir undir jólatrénu í Kringlunni.

Gáfu bílskúrsfylli af dósum til Grindavíkur
Þrír ungir drengir skiluðu í gær hundrað þúsund krónum til Rauða krossins eftir mikla dósasöfnun í Laugardalnum. Móðir eins þeirra segir að bílskúr hafi verið orðinn troðfullur af dósum eftir söfnunina.

Þakkar þriðjudagur
Þakkar þriðjudagur (e. Giving Tuesday) er alþjóðlegt fyrirbæri sem hófst árið 2012 og hefur þann einfalda tilgang að hvetja fólk til þess að gera góðverk.

Söfnun fyrir Grindvíkinga gengur vel
Söfnun Rauða krossins til stuðnings Grindvíkingum og til þess að efla viðbragð samtakanna við náttúruhamförunum á Reykjanesskaganum hefur gengið vel.

Safna dósum svo grindvísk börn fái bangsa
Síðustu daga hafa fyrirtæki, einstaklingar og verkalýðsfélög lýst yfir stuðningi við Grindvíkinga og boðið fram aðstoð. Nokkrir ungir drengir úr Laugardalnum vildu leggja sitt af mörkum til að aðstoða Grindvíkinga. Þeir safna nú dósum til að grindvísk börn geti eignast nýjan bangsa.