
Skoski boltinn

Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers
Steven Gerrard þykir einna líklegastur til að taka við skoska stórveldinu Rangers sem er í stjóraleit eftir að Philippe Clement var rekinn í gær.

Telma mætt til skosks stórveldis
Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir er orðin leikmaður Rangers í Skotlandi en hún kemur til félagsins eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki í haust.

Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands
Telma Ívarsdóttir, markvörður Íslandsmeistara Breiðabliks, er á leið til skoska knattspyrnufélagsins Rangers.

Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga
Jack Butland, markvörður skoska liðsins Rangers, verður ekki með liði sínu í kvöld í nágrannaslagnum á móti Celtic.

Snoop Dogg vill eignast hlut í Celtic
Bandaríski rapparinn Snoop Dogg hefur mikinn áhuga á að eignast hlut í skoska fótboltaliðinu Celtic. Hann hefur hrifist af því að sem Hollywood-stjörnurnar Ryan Reynolds og Rob McElhenney hafa gert hjá Wrexham.

Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“
Forráðamenn hjá Víkingi heyrðu fyrst af mögulegum áhuga Hearts í Skotlandi á starfskröftum þjálfarans Arnars Gunnlaugssonar á vefmiðlum í kvöld. Félagið hefur, í það minnsta ekki ennþá, haft samband við Víking vegna Skagamannsins.

Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari ríkjandi Íslandsmeistara Víkings, er ofarlega á lista yfir þá sem veðbankar í Bretlandi telja líklega til að taka við Hearts í Skotlandi.

Átta þúsund Skotar reyna að brjóta Valsmenn niður
Valur á leik í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun þar sem að liðið mætir skoska úrvalsdeildarfélaginu St. Mirren í seinni leik liðanna í annarri umferð. Uppselt er á leikinn.

Endurgerði mynd af sér og Gumma Torfa 34 árum síðar
Þrátt fyrir að rúm þrjátíu ár séu liðin frá því Guðmundur Torfason yfirgaf St Mirren er hann enn í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins. Það mátti glöggt hjá þegar hann mætti á leik skoska liðsins gegn Val í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöldi.

Frá Ástralíu til Íslands til að komast á leik kvöldsins: „Þetta er risastórt“
Skoska liðið St.Mirren heimsækir Val í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Er um að ræða fyrri leik liðanna 2.umferð undankeppninnar. Stuðningsmenn liðsins hafa sett svip sinn á mannlífið í Reykjavíkurborg. Einn þeirra á að baki lengra ferðalag en hinir. Sá heitir Colin Bright. Hann flaug hingað til lands alla leið frá Ástralíu til að mæta á leik kvöldsins á N1 vellinum að Hlíðarenda.

Skosk yfirtaka í miðborg Reykjavíkur
Óhætt er að segja að skoska úrvalsdeildarfélagið St. Mirren muni fá góðan stuðning úr stúkunni á N1 vellinum að Hlíðarenda í kvöld þegar að liðið mætir Val í fyrri leik liðanna í 2.umferð í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Stuðningsmenn skoska liðsins hafa fjölmennt til Reykjavíkur og sett sinn svip á mannlífið þar í dag.

Hjarta Guðmundar slær með St. Mirren: Mæta Val í kvöld
Þrátt fyrir að hjarta fyrrverandi landsliðsmannsins í knattspyrnu, Guðmundar Torfasonar, slái með skoska liðinu St. Mirren er erfitt fyrir hann halda ekki með íslenskri knattspyrnu í kvöld þegar að Valsmenn taka á móti skoska liðinu í fyrri leik þeirra í 2.umferð Sambandsdeildar Evrópu.

Markvörðurinn sótti skóflu og fyllti upp í holu á vellinum
Markvörður skoska D-deildarliðsins Stirling Albion, Derek Gaston, greip til sinna eigin ráða þegar hann uppgötvaði stærðarinnar holu á vellinum í leik gegn Raith Rovers í skoska deildarbikarnum um helgina.

Celtic tvöfaldur meistari eftir dramatískan sigur á erkifjendunum
Celtic er deildar- og bikarmeistari í Skotlandi eftir hádramatískan 1-0 sigur á erkifjendum sínum í Rangers í úrslitum skosku bikarkeppninnar í knattspyrnu fyrr í dag. Celtic hafði þegar tryggt sér skoska meistaratitilinn og fullkomnaði tvennuna í dag, Rangers til mikils ama.

Algjör martröð eins manns þegar Celtic vann erkióvininn
Skotlandsmeistaratitilinn blasir við Brendan Rodgers og hans mönnum í Celtic eftir 2-1 sigur á erkifjendunum í Rangers í Glasgow í dag.

Rangers og Celtic leyfa stuðningsmenn hvors annars á ný
Skosku erkifjendurnir frá Glasgow, Rangers og Celtic, hafa komist að samkomulagi um að úthluta á ný miðum til hvors annars þegar liðin mætast.

Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur í þjálfun
Þrátt fyrir að vera 75 ára gæti Neil Warnock snúið aftur í þjálfun. Hann er orðaður við stjórastarfið hjá Aderdeen í Skotlandi.

Segja Hákon Rafn á óskalista Celtic
Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson ku vera á óskalista skosku meistaranna Celtic.

Varamarkvörður Arbroath skoraði sannkallað draumamark
Sá fáheyrði atburður atburður átti sér stað í skosku B-deildinni í kvöld að varamarkvörður skoraði mark og það var vægast sagt af dýrari gerðinni.

Celtic sektaðir í þriðja sinn fyrir hegðun stuðningsmanna
UEFA hefur sektað skoska knattspyrnufélagið Celtic um €29.000, sem jafngildir tæpum fjórum og hálfum milljónum króna, fyrir hegðun stuðningsmanna á leik liðsins gegn Atletico Madrid.

Prumpaði í beinni
Neil Lennon, fyrrverandi knattspyrnustjóri Celtic, lenti í óheppilegu atviki þegar hann var að greina leik Celtic og Rangers í sjónvarpi um helgina.

Skiptir um lið til að geta verið nær kærustunni
Fótboltamenn elta oft peninginn þegar þeir skipta um lið en sumir elta aftur á móti ástina. Það á við um sænska knattspyrnumanninn Carl Starfelt.

Craig Brown látinn 82 ára að aldri
Craig Brown, fyrrum þjálfari skoska landsliðsins í knattspyrnu, er látinn 82 ára að aldri. Enginn þjálfari í sögu liðsins hefur stýrt því í jafn mörgum leikjum, en alls lék liðið 71 leik undir hans stjórn og hann er síðasti þjálfarinn sem kom liðinu í lokakeppni HM.

Mættur aftur til Celtic eftir að vera sparkað frá Leicester City
Knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers er tekinn við skoska stórveldinu Celtic á nýjan leik.

Þögull sem gröfin í skugga þrálátra sögusagna
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri skoska liðsins Celtic sem í gær tryggði sér þrennuna í Skotlandi, var þögull sem gröfin er hann var spurður út í framtíð sína hjá félaginu. Postecoglou er ítrekað orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham.

Celtic gulltryggði sér skosku þrennuna
Celtic tryggði sér í kvöld skosku þrennuna með 3-1 sigri á Inverness Caley Thistle í úrslitaleik skoska bikarsins.

Þakka ótrúlegan stuðning eftir að kveikt var í velli félagsins
Skoska neðri deildarliðið Dunipace FC hefur þakkað stuðningsfólki sínu fyrir ótrúlegan stuðning og fjárhagslega aðstoð eftir að kveikt var í gervigrasvelli liðsins fyrir ekki svo löngu.

Fær sex leikja bann fyrir að skalla stjóra erkifjendanna
Craig McPherson, aðstoðarþjálfari Rangers í skosku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir að skalla Fran Alonso, þjálfara Celtic, í viðureign liðanna undir lok síðasta mánaðar.

Biðst afsökunar á því að hafa skallað annan þjálfara
Craig McPherson, aðstoðarþjálfari Rangers í skosku úrvalsdeildinni, hefur beðist afsökunar á því að hafa skallað Fran Alonso, þjálfara Celtic í viðureign liðanna síðastliðinn mánudag.

Aðstoðarþjálfari Rangers skallaði stjóra Celtic í hnakkann
Craig McPherson, aðstoðarþjálfari Rangers, lét skapið hlaupa með sig í gönur eftir leik gegn erkifjendunum í Celtic í skosku úrvalsdeildinni í gær.